Fréttablaðið - 28.07.2005, Page 24

Fréttablaðið - 28.07.2005, Page 24
Ráðið í göngulagið Íslandsbanki skilaði uppgjöri yfir væntingum og voru forsvarsmenn bankans að vonum ánægðir með niðurstöðuna. Greinilegt er að bankinn er aftur að finna fjölina sína eftir dulitla tilvistarkreppu. Tekju- sviðin virðast öll að braggast og búið að sigla Sjóvá í aðra höfn. Auk þess hefur bankanum orðið vel ágengt við að fjármagna sig erlendis og unnið mark- visst að þeim málum. Nú er spennan með uppgjör hinna viðskiptabankanna sem birta uppgjör sín í dag. Spákaupmenn reyna að ráða í hvað kemur upp úr kössunum og meðal þess sem gárungar segja óbrigðult er að ráða í göngulag stjórnenda skömmu fyrir uppgjör. Þannig eru Lands- bankamenn sagðir ganga hnar- reistir þessa dagana, en göngulag KB manna er óræðara. Markaður- inn býst þó við góðum uppgjör- um og margir þeirra skoðunar að báðir bankarnir komi með upp- gjör yfir spám greiningardeilda. Meiri göngulagsgreining Ef göngulagsgreiningu hefur verið beitt er ljóst að göngulag Jóns Sigurðssonar í Össuri er ákveðið og hnarreist þessa dagana þar sem bréf Össurar hafa hækkað síðustu daga eins og bréf Landsbankans. Össur birtir einnig uppgjör sitt í dag og eru margir spenntir að fylgjast með því hvernig framleiðslufyrir- tækjunum með kostnaði í krónum gengur að glíma við erfiðar ytri aðstæður. Síðustu uppgjör Marel, Öss- urar og Actavis hafa bent til þess að menn hafi náð nokkuð vel að glíma við styrk krónunnar og spenn- andi að sjá hvernig til tekst nú. Að vísu er vandinn mismikill milli fyrirtækjanna og ljóst að núverandi staða krónunnar hvetur menn ekki beinlínis til að auka starf- semi sína hér á landi. Ef bara er tekið tillit til ytri aðstæðna eru stjórnendur fjármálafyrir- tækja léttari í spori þessa dagana en stjórnendur fram- leiðslufyrirtækja. MESTA HÆKKUN ICEX-15 4.286 KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ] Fjöldi viðskipta: 276 Velta: 2.083 milljónir +0,22% MESTA LÆKKUN MARKAÐSFRÉTTIR... Boeing skilaði betra uppgjöri á öðrum ársfjórðungi en spáð hafði verið. Hagnaður félagsins var 70 sent á hvern hlut sem er tíu sent- um meira en markaðurinn hafði gert ráð fyrir. Tekjur félagsins hækkuðu um fimmtán prósent á milli ára og numu fimmtán millj- örðum Bandaríkjadala. Virði hluta- bréfa í Boeing hefur ekki verið hærra í fjögur ár. Úrvalsvísitalan hækkar enn og sló fyrra met þegar hún endaði í 4.287 stigum. Mest hækkuðu bréf í Össuri og Landsbankanum yfir tvö prósent. Og fjarskipti og Íslands- banki hækkuðu einnig um meira en eitt prósent. Japönsk hlutabréf hækkuðu í gær vegna styrkingar Bandaríkjadals gagnvart jeninu. Sterkari dalur eykur tekjur japanskra útflutnings- fyrirtækja eins og Honda og Canon. 24 28. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Þegar ljóst verður í dag hver býður hæst í Sím- ann líður ekki langur tími þangað til kaupsamn- ingur verður undirrit- aður. Drög að samn- ingnum liggja þegar fyrir og hafa bjóðendur samþykkt hann í stórum dráttum. Seinnipartinn í dag verður ljóst hver býður hæsta verð í Símann og gengur til viðræðna við einkavæð- ingarnefnd um kaup á fyrirtækinu. Þær viðræður eiga ekki að taka langan tíma að sögn Jóns Sveins- sonar, formanns einkavæðingar- nefndar. Drög að kaupsamningi liggur þegar fyrir og þeir sem skila inn bindandi tilboðum þurftu að vera búnir að samþykkja drögin í stórum dráttum í gærkvöldi. Því eigi að vera hægt að ljúka stærstu einkavæðingu á Íslandi fyrir lok sumars. Tólf hópar, sem í voru 35 inn- lendir og erlendir fjárfestar, upp- fylltu skilyrði einkavæðingarnefnd- ar til að skila inn bindandi tilboðum í dag. Síðustu vikurnar hafa þessir aðilar fengið aðgang að ítarlegum upplýsingum um rekstur Símans og stjórnendur fyrirtækisins. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins hafa erlendu fjárfestarnir heltst úr lestinni og allt útlit fyrir að enginn þeirra skili inn bindandi tilboði. Þegar leitað er skýringa á því eru tvær ástæður helst nefndar; verðhugmyndir um Símann séu of háar miðað við sam- bærileg fyrirtæki í Evrópu og mikil gengisáhætta vegna íslensku krónunnar. Erfitt sé að verja sig fyrir gengissveiflum þegar um svo stórar upphæðir sé að ræða. Verði þetta raunin skila aðeins þrír innlendir hópar fjárfesta inn tilboði í Símann. Erfitt er að full- yrða hvort færri bjóðendur leiði til lækkun tilboða. Árið 2001, þegar upphaflega stóð til að selja Símann, kom fram að eigið fé var verðmetið á um 45 milljarða króna. Það er svipuð upphæð og greining- ardeildir bankanna hafa verðmetið fyrirtækið á, ef þær nota hefð- bundnar aðferðir. Hins vegar telja sérfræðingar að Síminn sé meira virði því hægt sé að hagræða í rekstrinum. Það er því ljóst að hér er um stærstu einkavæðingu að ræða á Íslandi. bjorgvin@frettabladid.is Peningaskápurinn… Actavis 41,40 +0,73% ... Bakkavör 38,60 +0,26%... Burðarás 16,30 -0,31%... FL Group 14,50 -0,68% ... Flaga 4,72 +0,00% ...HB Grandi 8,50 +0,00% ... Íslandsbanki 14,05 +1,08% ... Jarðboranir 21,60 +0,47% ... KB banki 556,00 -0,71% ... Kög- un 58,40 -1,02% ... Landsbankinn 18,70 +2,19% ... Marel 58,40 -0,85% ... SÍF 4,83 +0,63 ...Straumur 12,60 +0,40% ... Össur 82,50 +3,13% Bjóðendur samþykkja drög að kaupsamningi Össur +3,13% Landsbankinn +2,19% Og Vodafone +1,70% Síminn -5,66% Kögun -1,02% Marel -0,85% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Umsjón: nánar á visir.is Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, segir að OMX-kauphallarhópurinn hafi haft frumkvæði að því að bjóða Kauphöll Íslands og norsku kaup- höllinni að ganga til liðs við sam- stæðuna með sama hætti og þeirri dönsku á sínum tíma. Að OMX standa kauphallirnar í Helsinki, Kaupmannahöfn, Riga, Stokk- hólmi, Tallinn og Vilnius. „Við erum alls ekki búin að taka ákvörðun og engar viðræður eru í gangi við OMX. Það þarf að fara gaumgæfilega yfir kosti og galla þess að fara inn í OMX,“ segir Þórður. Hann bendir á að Kauphöllin sé í mikilli sókn og ekkert liggi á. Kauphöllin svarar tilboði OMX í haust hvort áhugi sé fyrir því að hefja aðildarviðræður. - eþa TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN TM hagnaðist um rúmar 200 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Spá mikilli hagna›ar- aukningu TM er spáð 1,7 milljarðs króna hagnaði á öðrum ársfjórðungi. Á sama tímabili árið 2004 hagnaðist TM um 208 milljónir króna. Hagn- aður Tryggingamiðstöðvarinnar á fyrsta ársfjórðungi var 1,4 mill- jarðar og var það yfir væntingum markaðsaðila. Ávöxtun hlutabréfa hefur verið góð en tap hefur verið af vátryggingarekstri. Spár bank- anna gera því ráð fyrir að líkt og áður vegi gengishagnaður þungt. Stjórnendur félagsins gera ráð fyrir að framhald verði á tapi af vátryggingastarfsemi fram eftir ári. Stefnt er að því að þær skipu- lagsbreytingar sem standa yfir leiði til betri markaðsstöðu og lækkandi kostnaðarhlutfalla. -dh AFKOMA TM Á ÖÐRUM ÁRSFJÓRÐ- UNGI – Í MILLJÓNUM KRÓNA Spá Íslandsbanka 1.506 Spá KB banka 2.000 Spá Landsbankans 1.660 Meðaltal: 1.722 OMX leitar hófanna LÝÐUR GUÐMUNDSSON OG BRYNJÓLFUR BJARNASON Fjárfestingafélag sem Lýður og Ágúst Guðmundssynir ráða yfir, Exista, er meðal bjóðenda í Símann. Hér er Lýður með Brynjólfi Bjarnasyni forstjóra Símans, en talið er að staða stjórnenda Símans verði tryggð kaupi Exista og félagar fyrirtækið. Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands auglýsir eftir starfsmanni á skrifstofu. Um er að ræða 80% starfshlutfall sem felst m.a. í : Símvörslu almennum skrifstofustörfum umsjón með kaffistofu Nánari upplýsingar veitir Katla Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri í síma 545-0400. Umsóknum skal skila fyrir 5. ágúst nk. á skrifstofu Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands, Laugavegi 120, 4. hæð eða með tölvupósti á netfangið katla@redcross.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.