Fréttablaðið - 28.07.2005, Page 29

Fréttablaðið - 28.07.2005, Page 29
Fótboltakappinn og tískutáknið David Beckham spókaði sig um í Peking í Kína í vikunni. Það væri ekki í frásögur færandi nema að drengurinn var með glænýja hár- greiðslu – kemur á óvart! Hárið á honum var eilítið lengra og broddarnir sem hafa einkennt hann síðustu misseri alveg horfn- ir. Real Madrid-stjarnan ku vera mest leiðandi karlmaður í hár- tísku í heiminum og hafa karl- menn, ungir sem aldnir, ávallt apað eftir honum hárgreiðslurnar. Hann er ekki hræddur við að leika sér með hárið en nú eru uppi skiptar skoðanir um nýja „lúkk- ið“. Hárgreiðslumaðurinn Paul Merr- itt gerði móhíkanahárgreiðsluna sem Beckham skartaði í heims- meistarakeppninni árið 2002 en honum líst vel á nýju greiðsluna. „Mér líkar það sem hann er að reyna að gera við hárið. Mér finnst hann flottur,“ segir Paul en stílistinn James Galvin er á önd- verðum meiði. „Hann hefur ekki oft gert mistök í hári en þetta eru mistök. Þetta er einfaldlega sítt að aftan og mér líkar ekki mis- munurinn á síddinni á hliðunum og á toppnum.“ Dæmi nú hver fyrir sig. Blóm Fátt er sumarlegra en að vera með blóm í hárinu. Nú standa blómin í görðunum í fullum blóma og það er tilvalið að nota þau sem hárskraut. Þau endast reyndar ekki lengi en meðan þau lifa eru þau mun fallegri en gerviblómin sem hægt er að fá víða í verslunum.[ ] S: 588 5518 Opnunartími • Mörkinni 6 mán. – fös. 10 – 18 • lau. 10 – 16 Mikið úrval af yfirhöfnum á 50% afslætti NÝ SENDING Kjólar – Toppar Jakkar – Skór Fatahönnun eins og myndlist Sýningin, sem gekk mjög vel og fékk frábærar við- tökur, var haldin í unglistagalleríinu Klink og Bank og þar sýndu einnig aðrir ungir hönnuðir sem eru að stíga sín fyrstu skref í tískuheiminum. Það gekk ekki áfallalaust fyrir sig að koma þessu öllu saman á koppinn, því Harpa sagði sig á síðustu metrunum úr þátttöku í tískuvikunni Iceland Fashion Week og ákvað í kjölfarið með engum fyrirvara að halda sína eigin sýningu. Sýningin gekk sem fyrr segir eins og í sögu en þangað streymdi erlenda tískuelítan og varð ekki fyrir vonbrigðum með gróskuna hjá ungu hönnuðunum. Tískan er ekki það eina sem Harpa hefur áhuga á heldur hefur hún starfað töluvert við búningagerð og stílíseringu. Svo er hún góður tískuteiknari og segir sennilegt að mastersnám í teikningu verði fyrir valinu þegar þar að kemur. Harpa kýs að nálgast fatahönnunina eins og myndlist, flíkurnar mótast í ferlinu og eru ekki endilega fyrir fram ákveðnar. Fötin sem Harpa sýndi á sýningunni í Klink og Bank eru sambland af útskriftarverkefni hennar og nýrri flíkum og um þessar mundir vinnur hún að nýrri línu sem væntanleg er með haustinu. Hár, hár, hár, hár, hár, hár, hár Fótboltahetjunni David Beckham nægir ekki að vera með eina hárgreiðslu á ári og frumsýndi glænýja greiðslu fyrr í vikunni. Harpa Einarsdóttir vinnur nú að nýrri fatalínu sem er væntanleg í haust. Harpa Einarsdóttir er ung kona á uppleið. Hún hélt nýverið sína fyrstu einkasýningu hérlendis. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G ET TY Móhíkanagreiðslan í heimsmeistara- keppninni árið 2002 sem kom Beckham endanlega á hárgreiðslukortið. Hið fræga toppatagl árið 2003. Allt hár farið árið 2004.Fyrr á árinu var Beckham með það aðeins styttra. Nýja greiðslan hans Beckhams.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.