Fréttablaðið - 28.07.2005, Page 43
„Minn ferill hófst uppi á Bifröst í
Borgarfirði þegar ég byrjaði þar
í skólahljómsveit sextán ára gam-
all,“ segir Jóhann G. Jóhannsson,
myndlistar- og tónlistarmaður,
sem hefur sungið, spilað og samið
lög í yfir 40 ár.
Kjarninn úr þessu fyrsta
bandi Jóhanns myndaði síðan
hljómsveitina Strauma sem
spilaði víða í Borgarfirði sumarið
1965 og Óðmenn urðu til ári síðar.
„Þetta var skemmtilegur tími
enda margt að gerast. Við vorum
coverband en vorum samt að
semja,“ segir Jóhann en bandið
gaf út eina plötu. „Lagið Tonight
is the end vakti mesta athygli af
því það var sungið á ensku. Þeir
voru ekki hrifnir af því á Þjóð-
viljanum,“ segir Jóhann og hlær.
Árið 1970 tók líf Jóhanns aðra
stefnu en þá hættu Óðmenn í
annað sinn. „Ég ákvað að taka hlé
og byrjaði að mála,“ segir Jó-
hann, sem hefur síðan unnið
jöfnum höndum í tónlist og
myndlist. „Í tónlistarbransanum
þarf maður að hafa samskipti við
félagana og menn þurfa að koma
sér saman um hlutina en í mynd-
listinni þarftu bara að eiga við
sjálfan þig,“ segir Jóhann sem
finnst hvort tveggja skemmti-
legt. „Það er mjög svipuð til-
finning að mála mynd sem þú ert
ánægður með og að semja lag.“
Undanfarin ár hefur Jóhann
lagt meira upp úr því að semja lög
en spila. Á miðjum áttunda ára-
tugnum fór hann að semja fyrir
aðra. „Ég átti orðið svo mikið efni
að ég hafði ekkert við allt þetta að
gera,“ segir Jóhann sem hefur
samið lög eins og Don't try to fool
me sem hann söng sjálfur, Eina
ósk sem Björgvin Halldórsson
söng, Fljúgum hærra sem Grýl-
urnar tóku svo eftirminnilega og
svo mætti lengi telja.
Þótt 40 ára tónlistarafmæli Jó-
hanns miðist í raun við árið 2003
vinnur hann enn að verkefnum í
tilefni þess. Stefnan er að gefa út
disk þar sem ýmsir þekktir
flytjendur taka lög eftir Jóhann.
■
26 28. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
MAXIMILIEN ROBESPIERRE (1758-1794)
lést þennan dag.
Svipuð tilfinning að
mála mynd og semja lag
JÓHANN G. JÓHANNSSON HEFUR SUNGIÐ, SPILAÐ OG SAMIÐ Í YFIR 40 ÁR
„Konungurinn verður að deyja til þess að
landið geti lifað.“
Maximilien Robespierre var einn af leiðtogum frönsku andspyrnu-
hreyfingarinnar. Hann sendi andstæðinga sína svo tugþúsundum
skipti á höggstokkinn.
timamot@frettabladid.is
MYNDLISTAR- OG TÓNLISTARMAÐUR Jóhann stefnir að því að gefa út plötu á næst-
unni þar sem hann ætlar að fá þekkta flytjendur til að taka lög eftir sjálfan sig.
Hátt í hálf milljón manna lést
þennan dag árið 1976 þegar
jarðskjálfti sem mældist 8,3 á
Richterskala reið yfir Kína. Skjálft-
inn gereyðilagði borgina Tangsh-
an sem staðsett er norðaustur af
Peking. Þúsundir létust þegar
aðal sjúkrahúsið í borginni
hrundi og mikill fjöldi námu-
verkamanna grófst undir en í
borginni bjuggu 1,6 milljón
manna.
Tangshan var staðsett mjög ná-
lægt upptökum skjálftans og varð
því verst úti. Skjálftans varð þó
einnig vart í nálægum borgum
og í Peking þar sem íbúum var
ráðlagt að búa á götum úti þar er
ekki þótti öruggt að vera inni í
húsum.
Opinberar kínverskar tölur um
fjölda látinna er 250 þúsund en
nú er talið líklegra að um hálf
milljón manna hafi látist í skjálft-
anum. Þar með er það mesta
mannfjall í jarðskjálfta á 20 öld
og skjálftinn sá öflugasti síðan í
Alaska árið 1964 þegar skjálfti
mældist 9,2 á Richter.
Uppbygging Tangshan hófst strax
að loknum skjálftanum og að
lokum var öll borgin endurbyggð.
Hún er af þeim sökum kölluð
Hin hugrakka borg Kína.
Fleiri létust af völdum jarðskjálfta
á fyrstu tíu mánuðum ársins
1976 en síðustu sex ár á undan.
Það ár var mikil hreyfing á jarð-
skorpunni allt frá Kína til Grikk-
lands.
28. JÚLÍ 1976
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1662 Kópavogsfundurinn er
haldinn. Helstu forystu-
menn þjóðarinnar undirrita
skuldbindingarskjal sem
miðar að einveldi Dana-
konungs hér á landi.
1750 Tónskáldið Jóhann Sebast-
ian Bach andast í Leipzig.
1960 Norðurlandaráðsþing er
haldið á Íslandi í fyrsta
sinn.
1965 Johnson Bandaríkjaforseti
ákveður að auka herafla
Bandaríkjanna í Víetnam
um 50 þúsund menn.
1974 Fjórðungur þjóðarinnar
sækir þjóðhátíð á Þingvöll-
um til minningar um 1100
ára afmæli Íslandsbyggðar.
2000 Síðustu föngunum úr
Maze-fangelsinu í Írlandi er
sleppt úr haldi.
Hálf milljón ferst í jar›skjálfta
Tilkynningar um merkisatbur›i, stórafmæli,
andlát og jar›arfarir í smáletursdálkinn hér
a› ofan má senda á netfangi›
timamot@frettabladid.is.
Augl‡singar á a› senda á
auglysingar@frettabladid.is e›a hringja í síma
550 5000.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Hvalir, skjaldbökur og hafmeyjar
verða meðal þess sem fyrir augu
ber á árlegri sandkastalakeppni
sem haldin verður í tíunda sinn á
ljósu ströndinni við Holt í Önund-
arfirði á laugardaginn. Keppnin er
ávallt haldin um verslunarmanna-
helgi og hefur ætíð notið mikilla
vinsælda enda hafa allt upp í 500
manns látið sjá sig í fjörunni að
sögn Guðmundar Björgvinssonar
forsvarsmanns keppninnar.
„Það er nú best að vera að
þessu í rigningu,“ segir Guðmund-
ur en þátttaka sveiflast mjög eftir
veðri og vindum. Alla aldurs-
flokka má sjá berfætta á strönd-
inni að moka í fötur, vökva og
móta sandinn. „Það verða allir að
börnum þarna,“ segir Guðmundur
léttur í lundu en yfirleitt rísa um
sextíu til áttatíu skúlptúrar á
ströndinni en mikill fjöldi fólks
kemur einnig til að fylgjast með.
Trébryggja er við ströndina þar
sem áhorfendur geta fengið gott
útsýni yfir listaverkin. Verkin eru
þó ekki langlíf og standa einungis
fram að næsta flóði. ■
Hafmeyjar í sandinum
M
YN
D
/G
U
Ð
M
U
N
D
U
R
SI
G
U
RÐ
SS
O
N
FLUGVÉL ÚR SANDI Ýmis falleg listaverk gefur að líta í árlegri sandkastalakeppni í
Önundarfirði á laugardag.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og
systir,
Guðmundía Sigurey Sigurðardóttir
Hringbraut 128g, Keflavík,
lést á Hjartadeild Landspítalans þriðjudaginn 19. júlí.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Hólm Snorradóttir
Þuríður Árný Snorradóttir Steinar Gunnbjörnsson
Erla Hrönn Snorradóttir Jóhann Steinsson
Árni Ómar Snorrason Sigurlaug Ingvarsdóttir
Bernódus Sigurðsson
www.steinsmidjan.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
ANDLÁT
Þorbjörg Guðný Aradóttir, Akralandi 3,
áður Þrándarlundi í Gnúpverjahreppi,
lést á líknardeild Landspítalans miðviku-
daginn 20. júlí.
Sigurbjörg Ámundadóttir, Kristnibraut
77, Reykjavík, lést á líknardeild Landspít-
alans í Kópavogi mánudaginn 25. júlí.
Svandís Guðmundsdóttir frá Kleifa-
stöðum, Norðurbrún 1, andaðist á líkn-
ardeild Landakotsspítala mánudaginn
25. júlí.
Óskar Sigurður Guðjónsson, Hjallavegi
21, Reykjavík, lést á hjartadeild Land-
spítalans við Hringbraut þriðjudaginn
26. júlí.
AFMÆLI
Ragnheiður Davíðsdóttir
forvarnafulltrúi er 51 árs.
Pétur Ormslev knatt-
spyrnukappi er 47 ára.
Jón Arnar Magnússon
frjálsíþróttamaður er 36
ára.
Birgitta Haukdal söng-
kona er 26 ára.JAR‹ARFARIR
11.00 Baldvin Jóhannesson símvirki,
Skúlagötu 40b, Reykjavík verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni.
13.00 Ásta Jónsdóttir, Háaleitisbraut
45, Reykjavík, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju.
13.00 Hallfreður Örn Eiríksson, Háa-
leitisbraut 56, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Háteigskirkju.
13.30 Tryggvi Ingimar Kjartansson,
Brekkugötu 10, Akureyri, verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju.
14.00 Guðrún Torfadóttir, Miðtúni 12,
Tálknafirði, verður jarðsungin frá
Akraneskirkju.
15.00 Sigurgeir V. Snæbjörnsson,
Laugateigi 26, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju.
FÆDDUST fiENNAN DAG
1866 Beatrix Potter
barnabókahöfundur
1929
Jacqueline Kennedy
Onassis
1945 Jim Davis höfundur
Grettis