Fréttablaðið - 28.07.2005, Side 45
FÓTBOLTI Valsmenn héldu sigur-
göngu sinni á heimavelli áfram í
gær, en baráttuglatt lið Vals vann
Fylki með þremur mörk gegn einu,
í skemmtilegum leik að Hlíðar-
enda. Leikurinn fór fjörlega af
stað og áttu bæði lið ágætis sóknir
á upphafsmínútunum.
Þegar líða tók á fyrri hálfleikinn
var Valsliðið sterkara, þó sóknir
Fylkismanna hafi oft á tíðum
skapað hættu upp við marka Vals-
manna. Mikil barátta var einkenn-
andi fyrir leikmenn beggja liða og
áttu miðjumenn erfitt með að taka
boltann niður og láta hann ganga
milli manna, þar sem leikmenn
gáfu ekkert eftir. Á 35. mínútu
fengu Valsmenn hornspyrnu, en
þeir höfðu verið með undirtökin
mínúturnar á undan. Eftir ágæta
sendingu Guðmundar Benedikts-
sonar tókst Garðari Gunnlaugs-
syni að skalla boltann í netið.
Eftir markið voru Valsmenn
miklu sterkari og hefðu hæglega
getað bætt við marki. Valur hóf
seinni hálfleikinn eins og oft áður í
sumar með mikilli pressu og upp-
skáru mark strax í upphafi. Þá
skoraði Atli Sveinn eftir horn-
spyrnu Guðmundar Benedikts-
sonar.
Eftir þetta var róðurinn orðinn
þungur hjá Fylki. Leikmenn liðsins
voru óþolinmóðir og héldu bolt-
anum illa innan liðsins, en það
hefur stundum verið þeirra styrk-
leiki í sumar. Dugnaðurinn í miðju-
mönnum Vals, og þá sérstaklega í
Stefáni Helga, gerði leikmönnum
Fylkis erfitt fyrir og urðu þeir
oftar en ekki að reyna langar send-
ingar fram á við. Á 64. mínútu
tókst Björgólfi Takefusa að
minnka muninn fyrir Fylki úr víta-
spyrnu, en hún kom eftir að Peter
Tranberg féll fimlega í teignum.
Eftir markið sóttu Fylkismenn í
sig í veðrið og pressuðu stíft á
Valsvörnina. Valsmenn náðu þó að
vinna sig inn í leikinn aftur með
skynsömum leik. Á áttugustu mín-
útu tókst Valsmönnum að bæta við
þriðja markinu, eftir skelfileg mis-
tök Helga Vals Daníelssonar í vörn
Fylkis. Sigþór Júlíusson stal
boltanum af Helga Vali, sem var of
lengi með boltann, og lagði hann
laglega fram hjá Bjarna Þórði
Halldórssyni markmanni Fylkis.
Stefán Helgi Jónsson átti góðan
leik á miðjunni hjá Val, og stoppaði
ófáar sóknirnar. „Við náum yfir-
leitt að spila vel á heimavelli. Við
vorum þéttir í vörninni og náðum
að brjóta niður sóknirnar hjá Fylki
hátt á vellinum og það gefur okkur
færi á hröðum og góðum sóknum.
Vonandi höldum við þessari spila-
mennsku áfram,“ sagði Stefán við
Fréttablaðið eftir leik. -mh
28. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
> Við vonumst til ...
... að Keflvíkingar sýni sínar bestu
hliðar á Laugardalsvellinum í
kvöld og bæti besta árangur
íslensks félagsliðs í
Evrópukeppni félagsliða.
Keflavík vann fyrri leikinn gegn
Etzella 4–0 en ekkert íslenskt
lið hefur unnið með meira ein
sex mörkum samanlagt. Með
góðum stuðningi og góðri
stemningu í Dalnum gæti metið
fallið á Þjóðarleikvanginum.
Heyrst hefur ...
... að Reynir Leósson, varnarmaðurinn
trausti hjá ÍA, sé hugsanlega að spila sitt
síðasta tímabil með Skagaliðinu í bili.
Reynir hyggur á nám erlendis en hann
hefur spilað 81 af 83 leikjum Skaga-
manna í úrvalsdeildinni undanfarin fimm
keppnistímabil og því er ljóst að ef af
verður að það gæti orðið erfitt að fylla
hans skarð í miðri Skagavörninni.
sport@frettabladid.is
28
> Við hrósum ...
.... Valsmönnum fyrir að halda enn
í FH og sjá um leið fyrir
einhverri spennu í topp-
baráttu Landsbanka-
deildarinnar. Valsmenn
hafa unnið 9 af 11 leikjum
deildarinnar sem myndi
duga í toppsætið á flestum
tímabilum en ekki þó í ár.
Valsmenn minnku›u forskot FH-inga á toppi Landsbankadeildarinnar í sex stig me› 3-1 sigri á Fylki og
ná›u um lei› átta stiga forskoti á li›i› í 3. sæti. Fylkismenn töpu›u fyrsta útileik sumarsins.
Valsmenn gefa FH-ingum ekkert eftir
LEIKIR GÆRDAGSINS
Landsbankadeild karla:
VALUR–FYLKIR 3–1
STAÐAN:
FH 11 11 0 0 29–5 33
VALUR 11 9 0 2 24–6 27
KEFLAVÍK 12 5 4 3 21–24 19
FYLKIR 12 5 2 5 21–19 17
ÍA 11 5 2 4 12–12 17
KR 12 4 1 7 14–19 13
FRAM 12 3 2 7 11–18 11
ÍBV 12 3 1 8 10–24 10
ÞRÓTTUR 12 2 3 7 12–18 9
GRINDAVÍK 11 2 3 6 11–20 9
MARKAHÆSTIR:
Tryggvi Guðmundsson, FH 9
Allan Borgvardt, FH 8
Matthías Guðmundsson, Val 7
Björgólfur Takefusa, Fylki 6
Hörður Sveinsson, Keflavík 6
Guðmundur Steinarsson, Keflavík 5
1. deild karla:
FJÖLNIR–BREIÐABLIK 2–3
0–1 Ellert Hreinsson (30.), 0–2 Olgeir
Sigurgeirsson (43.), 0–3 Petr Podzemsky
(52.), 1–3 Birgir Jóhannsson (57.), 2–3
Atli Guðnason (88.).
VÍKINGUR Ó.–VÍKINGUR R. 0–4
0–1 Björgvin Vilhjálmsson (9.), 0–2
Rannver Sigurjónsson (40.), 0–3 Egill
Atlason (83.), 0–4 Hörður Bjarnason (88.)
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
25 26 27 28 29 30 31
Fimmtudagur
JÚLÍ
■ ■ LEIKIR
20.00 Þór og KA mætast á
Akureyravelli í 1. deild karla.
20.00 KS tekur á móti HK á
Siglufjarðarvelli í 1. deild karla.
20.00 Völsungur fær Hauka í
heimsókn til Húsavíkur í 1. deild
karla.
■ ■ SJÓNVARP
13.30 HM í sundi á RÚV.
17.35 Chicago Fire - AC Milan á
Sýn.
19.15 Bandaríska mótaröðin í golfi
á Sýn.
19.40 Einvígi í golfi. Sergio Garcia
og Greg Norman á Sýn
20.30 Landsbankadeildin 7.-12.
umferð á Sýn.
22.00 Sterkasti maður heims á Sýn.
22.55 Strandblak á Sýn.
23.30 HM í sundi á Sýn.
23.50 DC United - Chelsea á Sýn.
Lið í Landsbankadeildinni styrkja sig áður en félagsskiptaglugganum lokar:
FÓTBOLTI Seint í gærkvöldi
komu hingað til lands tveir er-
lendir leikmenn sem spila með
KR út sumarið. Það eru Dalibor
Pauletic, 26 ára króatískur varn-
armaður, og Erik Krzisnik, 31 árs
miðjumaður. Mikið er um
meiðsli í leikmannahópi KR og
nú í síðasta leik meiddist Ágúst
Gylfason á nýjan leik og verður
frá í rúmlega hálfan mánuð.
„Leikmannahópur okkar er ekki
of stór og við viljum þétta hann
fyrir lokaátökin. Þessir leikmenn
sem við fáum hafa góð meðmæli
frá mönnum sem þekkja vel ís-
lenska knattspyrnu þannig að við
bindum vonir við þá,“ sagði Sig-
urður Helgason, framkvæmda-
stjóri KR-Sports. Pauletic hefur
spilað í efstu deild í heima-
landinu en Krzisnik í næst efstu
deild í Grikklandi, hann á að baki
einn A-landsleik fyrir Slóveníu.
Christopher Vorenkamp,
bandarískur miðjumaður, hefur
fengið leikheimild með ÍBV.
Hann er 24 ára og hefur leikið
með Minnesota Thunder í heima-
landinu að undanförnu. Hann
fékk leikheimild með liðinu í
gærkvöldi og verður sjötti
erlendi leikmaðurinn til að leika
með liðinu í Landsbankadeildinni
í sumar. Eyjamenn eru nú
staddir í Færeyjum þar sem þeir
mæta B36 í Evrópukeppninni í
kvöld, fyrri leikur liðanna endaði
1-1. -egm
N‡ir útlendingar komnir til KR og ÍBV
Knattspyrnusamband Venesúela segir
á heimasíðu sinni að landsleik milli
Íslands og Venesúela í knattspyrnu,
sem fyrirhugaður var 17. ágúst, hafi
verið aflýst.
Geir Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri knattspyrnusambands Ís-
lands, segir þessa tilkynningu
ótímabæra. „Það hefur ekki
verið staðfest við mig enn
þá að áhugi fyrir því að
landslið Venesúela leiki á
Laugardalsvelli 17. ágúst sé
ekki fyrir hendi. Þvert á
móti hef ég fengið staðfest
hjá umboðsmanni knatt-
spyrnusambands Íslands í
Argentínu, sem hefur verið
okkar tengiliður í sambandi
við þennan leik, að leikurinn fari
fram. Þetta er líka svolítið ein-
kennilegt þar sem ekki var búið
að ganga frá lausum endum í
sambandi við leikinn. Það átti eftir
að ná samkomulagi um ferðatil-
högun og ýmislegt fleira.“
Ásgeir Sigurvinsson, annar
þjálfara íslenska landsliðs-
ins, var áhyggjufullur
þegar hann heyrði af
þessu. „Það verða
mikil vonbrigði ef
ekki verður hægt
að staðfesta
leikinn 17. ágúst,
því það er ekki mikill
tími til þess að undir-
búa annan leik á sama
tíma. Við Logi Ólafsson erum þegar
byrjaðir að búa okkur undir leikinn
gegn Venesúela og getum ekki annað
en vonast eftir því að leikurinn fari
fram, eins og rætt hefur verið um.“
Fjölmiðlar í Venesúela hafa gagnrýnt för
landsliðsins til Íslands og segja hana
peningasóun. Á heimasíðu knattspyrnu-
sambands Venesúela stendur jafnframt
að í stað íslenska liðsins leiki Venesúela
gegn landsliði Ekvador í borginni Loja,
sem er í suðurhluta Ekvador.
Landslið Venesúela er sem stendur 24
sætum fyrir ofan hið íslenska, í 68. sæti,
en Ísland er númer 92. Landslið
Ekvador hefur hins vegar hækkað sig
jafnt og þétt á listanum og er í sæti
númer 33.
KNATTSPYRNUSAMBAND VENESÚELA: HEFUR ÞEGAR TILKYNNT AÐ LEIKNUM HAFI VERIÐ AFLÝST
Leikurinn gegn Venúsúela í lausu lofti
3-1
Valsvöllur, áhorf: 900 Jóhannes Valgeirsson (5)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 14–7 (5–3)
Varin skot Kjartan 2 – Bjarni Þórður 2
Horn 4–4
Aukaspyrnur fengnar 10–9
Rangstöður 0–1
1–0 Garðar Gunnlaugsson (35.)
2–0 Atli Sveinn Þórarinsson (48.)
2–1 Björgólfur Takefusa, víti (64.)
3–1 Sigþór Júlíusson (80.)
Valur
*MAÐUR LEIKSINS
VALUR 4–4–2
Kjartan 6
Steinþór 6
Atli Sveinn 7
Grétar 7
Bjarni Ólafur 6
Matthías 7
*Stefán Helgi 7
Sigurbjörn 7
(88. Hálfdán –)
Sigþór 6
Guðmundur 7
(74. Kristinn –)
Garðar 7
(83. Sigurður –)
FYLKIR 4–3–3
Bjarni Þórður 5
Ragnar 6
Valur Fannar 7
Helgi Valur 5
Gunnar Þór 4
Guðni Rúnar 5
Tranberg 5
Jón Björgvin 5
(59. Hrafnkell 5)
Viktor Bjarki 6
Björgólfur 7
(83. Björn Viðar –)
Christiansen 6
(80. Eyjólfur –)
Fylkir
3 MÖRK Í SUMAR Hafþór Ægir Vilhjálms-
son hefur skorað 3 mörk fyrir ÍA í sumar.
TÍUNDA MARKIÐ HJÁ GARÐARI Í SUMAR Garðar Gunnlaugsson hefur skorað tíu mörk fyrir
Val í sumar, fjögur í Landsbankadeildinni og sex í VISA-bikarnum. Hér kemur hann Val í
1-0 í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hafþór Vilhjálmsson hjá ÍA:
Fer til reynslu
í Danmörku
FÓTBOLTI Hafþór Ægir Vilhjálms-
son, leikmaður meistaraflokks ÍA
í knattspyrnu, heldur til Dan-
merkur um næstu helgi og verður
þar til reynslu hjá danska úrvals-
deildarliðinu FC Midtjylland.
Frammistaða Hafþórs með ÍA í
sumar hefur vakið athygli, en
þetta er hans fyrsta tímabil með
meistaraflokki félagsins. Hafþór
leikur oftast vinstra megin á miðj-
unni, og hefur staðið sig vel í
þeirri stöðu í sumar.
Hafþór er nítján ára gamall og
hefur leikið með ÍA í öllum yngri
flokkum. -mh
EITT SÍMANÚMER
UM LAND ALLT
GÆÐAVARA Á BETRA VERÐI!