Fréttablaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 47
30 28. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Svo virðist sem ég
sé ekki sannur Ís-
lendingur því ég hef
aldrei farið á útihá-
tíð um verslunar-
mannahelgi. Þær
upplýsingar fékk ég
í gegnum auglýs-
ingu fyrir einhverja
útihátíðina sem ég heyrði í út-
varpinu fyrir skemmstu. Hún var
eitthvað á þessa leið: „Það hafa allir
sannir Íslendingar komið á [ónafn-
greinda útihátíð] að minnsta kosti
einu sinni. Þeir sem ekki hafa gert
það vita ekki hvernig sannir Íslend-
ingar skemmta sér.“
Ég verð að fá að vera ósammála
þessari auglýsingu og þótt ég hafi
aldrei farið á útihátíð hef ég svo
sannarlega skemmt mér um
verslunarmannahelgina.
Fyrstu þrettán ár ævi minnar
eða svo fór ég nefnilega í Kerlingar-
fjöll þar sem pabbi minn, ásamt
öðrum góðum mönnum, stóð fyrir
árlegu Old Boys-móti á skíðum. Það
var yndislegt að skíða allan daginn
á stuttermabol í glampandi sól og
slappa svo af í pottunum seinni
partinn undir fögrum tónum Álfa-
drottningarinnar Unnar Eyfells.
Inn á milli þess skoppuðu krakk-
arnir á trampólínunum, mömm-
urnar löguðu fordrykki og pabb-
arnir grilluðu í skjólinu af Nípunum.
Kvöldvökurnar, sem öll fjölskyldan
fór saman á, voru alveg frábærar,
jafnvel þótt starfsfólkið setti upp
sömu grínþættina ár eftir ár.
Síðasta kvöldið var svo haldið á
ball þar sem allir dönsuðu saman
við lagið um „Stjána saxafón“ í boði
húshljómsveitarinnar. Þetta var sko
sönn fjölskylduskemmtun en því
miður lögðust þessar ferðir af
vegna hækkandi meðalaldurs og
versnandi heilsu keppenda.
Mér finnst svolítið skrítið að
kalla útihátíðir sanna skemmtun
miðað við þær fréttir sem berast ár
eftir ár af slagsmálum, ofurölvun
og hrottafengnum nauðgunum.
Ferðir eins og þær sem voru
farnar í Kerlingarfjöll eru það sem
ég vil kalla sanna skemmtun og ég
er viss um að minningar mínar um
þær lifi mun lengur en þeirra sem
muna varla hvað þeir heita undir
lok útihátíðar.
STUÐ MILLI STRÍÐA
SÓLEY KALDAL KANN AÐ SKEMMTA SÉR ÞÓ HÚN HAFI ALDREI FARIÐ Á ÚTIHÁTÍÐ.
Ógleymanlegar stundir í Kerlingarfjöllum
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
Er formið
betra?
Já, já! Tennurnar eru
komnar á sinn stað
aftur og heilahristing-
urinn var ekki nærri
eins alvarlegur og
fyrst var talið!
Algjört
ofmat!
og enn einu sinni...
þúsund þakkir fyrir
þessi flottu plast-
blóm! Gjörðu svo
vel!
Takk! Þú
færð þau
aftur
næst!
Það verður nú langt
þangað til næst, vinur!
Hellúúúúú Marílúú....
Jaa, heimsóknar-
tíminn er jú ekki
fyrr en eftir fjóra
tíma!
Hvert þó í..?!!
Bless elsku
hjarta....
Leyfðu mér að
klípa aðeins í
þig elskan!
Geiiiisp! Geiiiisp!
Já,
kannski.
Gott kvöld,
eiginlega bara!
Þetta er
„hann er með
brjálæðislegt
augnaráð“
-svipurinn
minn.
Þú færð það
sem þú sérð.
Svo þetta vogris dót er
frekar smitandi, ha?
Ó, já,
mjög.
Þetta smitast eins og eldur í
sinu svo Solla verður að vera
heima í nokkra daga.
Og við þurfum að þvo hendurnar
okkar oft og sótthreinsa allt sem
krakkarnir hafa snert
svo við ...
... smitumst
ekki.
Of seint.
Blikk!
Blikk!