Fréttablaðið - 28.07.2005, Síða 48

Fréttablaðið - 28.07.2005, Síða 48
41FIMMTUDAGUR 28. júlí 2005 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 26 27 28 29 30 Fimmtudagur JÚLÍ Félagsskapurinn N‡hil stendur fyrir ljó›ahátí› nú um helgina. Á sama tíma koma út tvær bækur á vegum N‡hil. Eiríkur Örn Nor›dahl me›limur í N‡hil segir a› aldrei á›ur hafi veri› haldin slík hátí› hér á landi. Á morgun og á laugardaginn fer fram Alljóðlega þjóðahátíðin, fyrsta alþjóðlega ljóðahátíð félagsskapar- ins Nýhils. Hátíðin fer fram í Nor- ræna húsinu og Klink & Bank. Sex erlend ljóðskáld verða flutt inn til landsins af því tilefni, en þau eru Anna Hallberg (Svíþjóð), Christian Bök (Kanada), Catharina Gripen- berg (Finnland), Billy Childish (Bretland), Jesse Ball (Bandaríkin), og Lone Hørslev (Danmörk). Fjöl- mörg íslensk skáld taka einnig þátt í hátíðinni. Hátíðin verður sett með ávarpi Eiríks Arnar Norðdahl og Halldórs Arnar Úlfarssonar klukkan níu á föstudagskvöldið í Klink og Bank og eftir það tekur við hvert skáldið af öðru og fer með ljóð. Þeir sem stíga á svið eru meðal annars Haukur Ingvarsson, Þórdís Björnsdóttir og Billy Childish. Tónlistarmaðurinn Mugison treður einnig upp sem og hljómsveitin Reykjavík!. „Þetta er alþjóðleg ljóðahátíð Nýhils og verðum við þarna með heljarinnar ljóðapartí og húllumhæ. Við í Nýhil höfum aldrei gert neitt svona stórt áður og ég er ekki viss um að eitthvað þessu líkt hafi verið gert áður á Íslandi því þessar bók- menntahátíðir sem eru haldnar hér á landi eru skáldsagnahátíðir en ekki ljóðahátíðir,“ segir Eiríkur. Heiti félagsskaparins Nýhil er komið úr latínu en í því máli þýðir nihil ekkert og að sögn Eiríks kallar félagsskapurinn sig Nýhil til að- greiningar frá latneska orðinu því um sé að ræða nýja leið til að öðlast tilgangsleysi í gegnum ljóð. Um helgina koma einnig út tvær bækur frá Nýhil, annars vegar er það þriðja bók í flokki Afbóka Ný- hils, Af ljóðum, en fyrstu tvær bæk- urnar voru Af stríði (2003) og Af okkur (2004) og hins vegar er það ástarljóðabók Nýhils, Ást æða varps. Af ljóðum er 180 síðna bók en í henni eru greinar, ljóð og ljóðaþýð- ingar eftir innlenda og erlenda höf- unda. Ást æða varps inniheldur ástar- ljóð eftir nokkra Nýhilista: Eirík Örn Norðdahl, Hauk Má Helgason, Hildi Lilliendahl Viggósdóttur, Kristínu Eiríksdóttur, Ófeig Sig- urðsson, Óttar Martin Norðfjörð og Val Brynjar Antonsson. Ritstjórar eru Ófeigur Sigurðsson og Haukur Már Helgason. Hátíðin heldur svo áfram á laug- ardaginn og hefst dagskráin með tvískiptu málþingi í Norræna hús- inu klukkan 12 þar sem annars vegar verður fjallað um íslenska samtímaljóðlist og hins vegar um avant-gardisma vs. jaðarmenningu. Klukkan 21 verður svo dagskrá í Klink og Bank sem hefst klukkan 21. Þar koma fram meðal annarra Kanadamaðurin Christian Bök, sem Eiríkur segir stærsta nafnið á hátíð- inni, Þórunn Valdimarsdóttir, Cat- harina Gripenberg og svo slær ís- firski trúbadorinn Skúli Þórðarson botn í uppákomuna ásamt hljóm- sveit sinni Sökudólgunum. Eiríkur segir að ókeypis sé inn á hátíðina og að allir séu hjartanlega velkomnir. ■ ...opnun sýningar Sigga P. í Deiglunni á Akureyri klukkan 17.00 í dag. Þar verða sýnd olíu- málverk sem hann hefur málað í Hrísey. ...tónleikum hljómsveitarinnar Snakebird á Kaffi Kúltúra klukkan 21. Hljómsveitina skipa Þorvaldur Geirsson söngur/gítar, Númi Björnsson gítar og Hjörtur Geirsson bassi. ...sýningum hjónanna Ás- mundar Ás- mundssonar og Gunnhildar Hauksdóttur sem opna í Kling og Bang gallerí á morgun klukkan 17. Verkið hér að ofan er eftir Gunn- hildi. Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson leika á hádegistónleikum í Hallgrímskirkju í dag. Tónleikarnir hefjast klukkan 12.00 og standa í um hálfa klukkustund. Á efnisskránni eru hefðbundin ættjarðarlög, Land míns föður eftir Þórarin Guðmunds- son, Hver á sér fegra föðurland eftir Emil Thoroddsen og Lofsöng- ur Sveinbjörns Svein- björnssonar. Einnig leika þeir íslensk ein- söngslög, Drauma- landið eftir Sigfús Ein- arsson og Nótt (Nú ríkir kyrrð í djúpum dal) eftir Árna Thor- steinsson. Þá eru flutt dægurlög sem á síðari árum hafa fest sig í sessi sem ættjarðar- lög, Ísland er land þitt eftir Magnús Þór Sig- mundsson og Fylgd eftir Sigurð Rúnar Jóns- son. Öll er þessi lög að finna á hljómdiski sem kom út í fyrra með leik Sigurðar og Gunnars og nefnist Draumalandið. Hann var hljóðritaður í Laug- arneskirkju og tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaun- anna. Innipúkinn 2005 verður haldinn um helgina. Uppihitun fyrir hátíðina hefst á morgun í garð- inum við 12 Tóna á Skólavörðustíg þar sem Stórsveit Nix Noltes kemur fram ásamt Þóri. Klukkan 22.00 verða svo aðrir upphitunartón- leikar á Grand Rokk þar sem Jonathan Richman kemur fram og sér Þórir einnig um upphitun á þeim tónleikum. Innpúkinn hefst svo á laugardaginn klukkan 15.00 á NASA með tónleikum Donnu Mess og verður stanslaus dagskrá fram á rauða nótt bæði á laugardag og sunnudag þar sem ýmis erlend og íslensk bönd koma fram. Miða á Innipúkann er hægt að nálgast í verslun 12 Tóna við Skólavörðustíg, í verslun Hive við Grensásveg og á midi.is. menning@frettabladid.is ! Við eigum nóg af tjaldstæðum Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 5/7, 11/7, 12/7, 13/7 kl. 14-18 6/7, 7/7, 8/7, 14/7, 15/7, 17/7, 22/7, 28/7 kl. 14-20 10/7, 17/7 kl. 12-18 LOKAÐ 18/7 - 21/7, 23/7-27/7, 29/7-11/8 KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren • Í samstarfi við Á þakinu Lau 13/8 kl 14, Su 14/8 kl 14, Lau 20/8 kl 14, Su 21/8 kl 14 ÖRLAGAEGGIN-SÖNGLEIKUR Allra síðasta sýning 28/7 EKKI MISSA AF…Ættjarðarlög í nýju ljósi Tusquets-útgáfan á Spáni hefur keypt út- gáfuréttinn á nýjustu skáldsögu Guðbergs Bergssonar, Lömuðu k e n n s l u k o n u r n a r. Bókin kom út hjá JPV fyrir síðustu jól og var tilnefnd til Menningarverðlauna DV. Tusquets-útgáfan er með virtustu út- gefendum Spánar og gefur meðal annars út verk Milans Kund- era. Tusquets hefur þegar gefið út nokkr- ar af bókum Guð- bergs sem hafa vakið mikla athygli og hlot- ið góða dóma á Spáni. Þýðandinn er mál- vísindamaðurinn En- rique Bernardez sem hefur þýtt aðrar bækur Guðbergs, auk Njálssögu, Egilssögu og fleiri sagna. ■ Lömu›u kennslu- konurnar til Spánar GUÐBERGUR BERGSSON Nýjasta skáldsaga Guðbergs, Lömuðu kennslukonurnar, hefur verið seld til Spánar. Nýhil stendur í stórræðum ■ ■ TÓNLEIKAR  12.00 Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson leika á hádeg- istónleikum í Hallgrímskirkju. Á efn- isskránni eru hefðbundin ættjarðar- lög, Land míns föður eftir Þórarin Guðmundsson, Hver á sér fegra föð- urland eftir Emil Thoroddsen og Lof- söngur Sveinbjörns Sveinbjörnsson- ar. Einnig leika þeir íslensk einsöngs- lög, Draumalandið eftir Sigfús Einars- son og Nótt (Nú ríkir kyrrð í djúpum dal) eftir Árna Thorsteinsson. Þá eru flutt dægurlög sem á síðari árum hafa fest sig í sessi sem ættjarðarlög, Ísland er land þitt eftir Magnús Þór Sigmundsson og Fylgd eftir Sigurð Rúnar Jónsson.  20.00 Stórsveit Nix Noltes heldur tónleika á Hótel Borg þar sem flutt verða lög af væntanlegri breiðskífu sveitarinnar. Sveitin leikur þjóð- lagatónlist frá Balkanskaga og Búlgaríu í eigin útsetningum. Hud- son Wayne hitar upp.  20.00 Dorthe Højland og félagar halda tónleika í Norræna Húsinu. Tónleikarnir bera yfirskriftina Spaces and places og þar er teflt saman landslagsmyndum frá Íslandi, eftir sænska ljósmyndarann Fredrik Holm og tónsmíðum danska saxafónleikar- ans Dorthe Højland. Sveit Dorthe Højland skipa Jacob Højland, píanó og hljómborð, Andreas Dreier, bassi, Sören Olsen, trommur og loks Dorthe Højland , á alt og sópran saxafón.  21.00 Hljómsveitin Snakebird heldur tónleika á Kaffi Kúltúra. Hljómsveitina skipa Þorvaldur Geirs- son söngur/gítar, Númi Björnsson gítar og Hjörtur Geirsson bassi.  21.00 Raftónlistarveisla í KlinK og BanK, Brautarholti. Veislugestir eru; hinn þýski Binaer, austurríkismaður- inn Franz Pomassl, Product 8, Aux- pan og hinir landsþekktu Reptilicus. Aðgangseyrir er 500 krónur.  22.00 Danska þjóðlagasveitin Mov- ing Cloud heldur tónleika á Gauki á Stöng.  22.00 B3 Tríó með tónleika á Pravda Bar. Tríóið skipa þeir Agnar Magnússon á orgel, Ásgeir Ásgeirs- son á gítar og Erik Qvick á trommur. Aðgangur er ókeypis.  22.00 Hljómsveitin THE HEAVEY COATS frá Bandaríkjunum leikur á Grand Rokk. ■ ■ OPNANIR  17.00 Siggi P. (Sigurður Pétur Högnason) opnar sýningu í Deigl- unni í dag. Á sýningunni eru olíu- málverk sem hann hefur málað í Hrísey. Sýningin stendur til 21. ágúst og er opin alla daga nema mánu- daga frá kl. 13 til 17. ■ ■ UPPÁKOMUR  20.00 Sirkus Jim Rose með sýn- ingu á Broadway. Miðaverð er 2.500 kr og aldurstakmark er 18 ár. Húsið opnar kl. 19:00 og sýning hefst kl. 20:00. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. SIGURÐUR FLOSASON OG GUNNAR GUNN- ARSSON Leika ætt- jarðarlög á tónleikum í Hallgrímskirkju sem hefj- ast klukkan 12.00 í dag. EIRÍKUR ÖRN NORÐDAHL Félags- skapurinn Nýhil stendur fyrir sinni fyrstu alþjóðlegu ljóðahátíð nú um helgina og segir Eiríkur, einn meðlima Nýhils, að mikill hugur sé í Nýhilistunum. Sannkölluð raftónlistarveisla verður haldin í Klink og Bank í Brautarholti í kvöld. Fram koma Binaer frá Þýskalandi, Austurríkis- maðurinn Pomassl, Product 8, Aux- pan og hljómsveitin Reptilicus. Binaer er heitasti plötusnúður Vínarborgar um þessar mundir og Franz Pomassl hefur vakið mikla at- hygli með kraftmikilli framkomu. Auk þess að vera þekktur í raftón- listargeiranum er hann fyrrum ást- maður hinnar þekktu söngkonu Ninu Hagen. Reptilicus kemur fram opinber- lega á Íslandi í fyrsta skiptið í 10 ár og verður þetta einnig í það síðasta. Auxpan og Product 8 þarf varla að kynna fyrir raftónlistaráhugamönn- um og sýna þeir listir sínar í kvöld. Tónleikarnir í kvöld byrja klukkan 21.00 og er aðgangseyrir 500 krónur. ■ Raftónlistarveisla í kvöld BINAER Þjóðverjinn Binaer mun þeyta skífum í Klink og Bank í kvöld.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.