Fréttablaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 54
Hér á landi fást fimm tegundir vína frá Deakin Estate í öllum helstu Vín-
búðum. Eitt þeirra er Deakin Estae Merlot sem þykir ein bestu kaup í
áströlskum vínum í dag. Áströlsk blöð hafa verið óspör á lofsyrði,
The Courier Mail gaf víninu 88 stig og telur það „bestu kaupin“ og
mælir sérstaklega með því með grilluðu lambi eða jafnvel pizzum,
sé áleggið af veglegri gerðinni! Herald Sun segir það „hitta beint
í mark með ferskleika sínum“. The Advertiser bendir á að flest
góð merlot-vín séu afar dýr en hér sé vín á ferðinni sem gefi
dýrum vínum ekkert eftir en sé á afar hagstæðu verði. Vínin
komu fyrst á markaðinn 1994 í takmörkuðu upplagi. Allar
götur síðan hefur Deakin Estate jafnt og þétt aukið fram-
leiðsluna og hlotið fjölmörg verðlaun, sem hefur leitt til þess
að núna fást vínin um allan heim og nýlega bættist Ísland í
hópinn.
Verð í Vínbúðum 1.290 kr.
FIMMTUDAGUR 28. júlí 2005 37
Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 • Skífan Smáralind • Skifan Kringlunni • www.skifan.is
...skemmtir þér ; )
KOMIN
Í SKÍFUNA
á sumartilboði aðeins 1999 kr.
POTTÞÉTT 382FÖLD GEISLAPLATA
1.999 kr.
Suður-afrísk vín hafa náð miklum vinsældum hérlendis undan-
farin ár. Þau eru jafnan kraftmikil og bragðrík en megin-
ástæðan fyrir vinsældunum er eflaust hagstætt verð. Þótt
suður-afrísk vín séu tiltölulega ný hér á landi eru fram-
leiðendur þarlendis engir nýgræðingar í víngerð.
Nederburg er eitt stærsta vínhús landsins og á sér yfir
200 ára sögu. Nederburg hefur hlotið fleiri alþjóðleg
verðlaun en nokkur önnur víngerð í landinu og verið
í fararbroddi í nýjungum. Nederburg Shiraz Pinota-
ge hentar vel með kjöti, sérstaklega grilluðu.
Nederburg Shiraz Pinotage hefur fengið góðar
viðtökur á Norðurlöndunum og fengið góða dóma í
blöðum í Danmörku. Má nefna að Vinavisen gaf því
fimm stjörnur eða hæstu einkunn.
Verð í Vínbúðum 1.090 kr.
DEAKIN ESTATE:
Mjúkt merlot með lambinu
NEDERBURG:
Fimm stjörnu vín
VEITINGASTAÐURINN
SALT PÓSTHÚSSTRÆTI 2, 101
REYKJAVÍK
Hvernig er stemningin?
Flott hönnun og stað-
setning gera staðinn
sérstaklega glæsilegan.
Staðurinn er látlaus og stemningin
þægileg og gaman er að fara á
staðinn í léttan hádegismat jafnt
sem fínan kvöldverð.
Matseðillinn: Áhersla er lögð á úr-
val íslensks hráefnis sem er matreitt
að hætti Miðjarðarhafslandanna.
Fiskur er áberandi, en boðið er upp
á ferskasta fiskinn sem fæst hverju
sinni, þrjár tegundir sem hægt er
að fá í þremur útfærslum; saltbak-
aðan, rósmarín-ristaðan og krydd-
gljáðan. Einnig eru á boðstólum
nautalundir og salt og sítrónubakað
lambakjöt, auk léttari rétta í anda
Spánar, Portúgals og Ítalíu á borð
við risotto og pasta. Bloody Mary-
súpa sem inniheldur vodka er at-
hyglisverð. Í forrétt er meðal annars
boðið upp á humartríó, parma-
skinku, snigla og túnfisk.
Réttir dagsins: Ekki er boðið upp á
rétt dagsins en í náinni framtíð
verður breytilegur matseðil enda á
staðurinn nú þegar marga
fastakúnna úr viðskiptalífi borgar-
innar.
Vinsælast: Í hádeginu er fiskurinn
vinsælastur en á kvöldin er meira
beðið um nautakjöt og lamb.
Svalt salt
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR