Fréttablaðið - 28.07.2005, Síða 56

Fréttablaðið - 28.07.2005, Síða 56
FIMMTUDAGUR 28. júlí 2005                                                    !"                   !               !#            $                      % &              % ' $    $    % (                              )          *+   *+,-./*0,.. 1 2   34 2  5       *3  !  #  )   !   6     2   7      '   8   " 3+...      # $ %    &   $     & '    ((()) *  +  ,, %     9  )  (   ,+::;3+1 <7 ,+::;3.. =  >  ???  @  Spennumyndin Hostage með harðjaxlinum Bruce Willis í aðal- hlutverki var frumsýnd í vikunni. Það hefur ekki farið mikið fyrir Hostage enda hefur frammistaða Willis í hinni mögnuðu Sin City dregið athyglina frá henni. Willis er samt á kunnuglegum slóðum en hér leikur hann, rétt eins og í Sin City, löggu í vondum málum. Það hefur hann líka gert í þremur Die Hard myndum en það vill svo skemmtilega til að í fyrstu Die Hard myndinni flæktist hann í gíslatöku og nákvæmlega það sama er uppi á teningunum í Hostage. Willis leikur lögreglumann Jeff Talley í Los Angeles sem sér- hæfir sig í að ná samningum við illmenni í gíslatökumálum. Þegar eitt slíkt mál endar með skelfingu yfirgefur hann stórborgina og sest að í smábæ. Þar telur hann sig öruggan og lausan við hættu- leg leiðindamál. Það breytist svo skyndilega þegar ungmenni sem ætla sér að stela bíl taka fjöl- skyldu í gíslingu. Talley vill auð- vitað ekki koma nálægt málinu, þrátt fyrir sérþekkingu sína, og kemur vandræðunum yfir á aðra. Það verður þó skammgóður vermir þar sem ungmennin brutust inn í rangt hús og halda spilltum kaupsýslumanni föngn- um. Sá lumar á leyndarmálum sem forhertir alvöru glæpamenn vilja komast yfir. Þeir svífast eisnkis og taka því fjölskyldu Talley í gíslingu og þvinga hann til að leysa málið. Willis er því í vondum málum og líf fjölskyldu hans hangir á blá- þræði. Hann hefur þó án efa oft séð það svartara og þegar hann er innikróaður eru fáir flinkari í meðferð skotvopna þannig að vondu kallarnir mega fara að vara sig. ■ Willis á tæpasta va›i BRUCE WILLIS Það verður ekki af þessum sjóaða hasarmyndakappa tekið að hann kann að munda frethólkinn. Hann lendir þó í bölvuðu klandri í Hostage og þarf að taka á öllu sem hann á. Nicole Kidman vill ólm eignast eitt barn í viðbót og í þetta skiptið fæða það sjálf. Kidman á tvö ætt- leidd börn með fyrrverandi eigin- manni sínum, Tom Cruise. „Mér þætti alveg dásamlegt að verða ófrísk og eignast barn. Ég veit ekki hvort það verði en það yrði algjör blessun,“ sagði leikkonan. Nicole stefnir þó ekki á tæknifrjóvgunar- stöð á næstunni því henni finnst rétti faðirinn vera algjört skilyrði fyrir barneignum. „Ég vil ekki fæða barn án föðurs og þess vegna verður sennilega ekkert úr því. Ég efast um að nokkur vilji vera með mér nema af röngum ástæðum,“ sagði leikkonan. Hún segir að helst vilji hún finna sér venjulegan mann sem ekki er á eftir frægð og pening- unum hennar. „Það væri frábært að kynnast þannig manni því þá gæti ég lifað minna áberandi lífi.“ Nicole hefur einnig greint frá því að skilnaðurinn við Cruise hafi verið henni afar erfiður. „Ég fór ekki úr náttfötunum mínum í marga mánuði. Mig langaði ekki að klæða mig og greiða mér eða neitt slíkt. Mér fannst eins og öllum væri sama hvort það væri góð lykt af mér, hvort ég liti vel út eða hvort ég færi í fallega kjólinn minn.“ ■ Kidman langar í barn NICOLE KIDMAN Leikkonan hefur hingað til verið með afar ríkum mönnum til að koma í veg fyrir að eiga kærasta sem eingöngu er á eftir peningunum hennar.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.