Fréttablaðið - 28.07.2005, Qupperneq 57
Þúsund manna þorpið Gata íFæreyjum bar svip fjölmenn-ingarlegrar heimsborgar um
síðustu helgi enda hækkaði íbúatal-
an upp í 6000 manns. Í Færeyjum
búa 49.000 manns. Það lætur því
nærri að ríflega tólf prósent Færey-
inga hafi verið í Götu um helgina.
Reyndar voru fleiri en Færeyingar
á svæðinu, þar á meðal tugir Íslend-
inga. Í þeim hópi voru þrjár hljóm-
sveitir: Hjálmar, Stillbirth og
VaGínas. Ástæðan fyrir því var að í
Götu fór fram G!festival, „Föroya
stærsta og feitasta tónleikatiltak
nakrantíð,“ eins og bæjarstjórinn,
Páll Isholm, orðaði það í ávarpi sínu.
Gata var lengst af þekkt á Íslandi
fyrir baráttu ásatrúarmannsins
Þrándar í Götu gegn kristnitöku.
Í dag er Gata þekkt sem heima-
bær Eivarar og fyrir G!festivalið.
Boðið var upp á þétta dagskrá; á
fimmta tug hljómsveita, trúbadora
og plötusnúða. Skemmtikraftarnir
komu frá þrettán löndum og dag-
skráin fór fram á þremur sviðum.
Þrándur í götu Íslendinga
Íslendingum gekk misvel að ná
áfangastað. Ein íslensk flugvél
sveimaði yfir Færeyjum lungann af
fimmtudeginum. Þoka hindraði
lendingu. Þrátt fyrir að viðbótar-
eldsneyti væri sótt til Skotalands
fékkst ekki lendingarleyfi fyrr en á
föstudeginum.
Liðsmenn Stillbirth og VaGínas
voru í þessari flugvél. VaGínas átti
að spila á fimmtudeginum og Still-
birth snemma á föstudeginum.
Vegna þess hvað dagskráin var þétt
og vel skipulögð var ekkert svig-
rúm fyrir hljómsveitirnar síðar á
hátíðinni. Það voru vonbrigði.
Af öðrum áhugaverðum hljóm-
sveitum sem spiluðu á fimmtudeg-
inum var leitt að missa af Holgar og
Villmenn. Það er færeysk grallara-
hljómsveit sem spilar vísnapopp,
pönk, reggí og rapp. Allt frumsamið
ef undan er skilin mögnuð útgáfa af
„Talað við gluggann“ eftir Bubba
Morthens. Fleiri færeyskir tónlist-
armenn hafa spreytt sig á þessu
sama lagi. Þekktast er það í flutn-
ingi Kára P.
Makrel í MTV
Af þeim sem við strandaglóparnir
misstum af fyrrihluta föstudags var
miður að heyra ekki í færeysku
rokksveitinni Makrel. Makrel náði
öðru sæti í íslensku Músíktilraun-
unum 2002 og gítarleikarinn Rasm-
us Rasmusen var valinn besti gítar-
leikarinn. Í kjölfarið hljóðritaði
Makrel fyrri plötu sína í Geim-
steini.
Í sumar hefur hið norræna MTV
leitað að besta ósamningsbundna
bandinu og Makrel hefur komist í
gegnum öll þrep keppninnar til
þessa, eins og fylgjast má með á
www.nordicunsigned.com.
200 í 1. sæti
Pönktríóið 200 er eitthvert magnað-
asta fyrirbæri færeysku músíkflór-
unnar. Ólíkt öðrum pönksveitum
eru liðsmenn 200 afburðagóðir
hljóðfæraleikarar, einkum bassa-
snillingurinn Mikael Blak. Til við-
bótar syngur söngvarinn eins og El-
vis Presley. Textarnir eru kjaftfort
og fyndið níð um þann slétta helm-
ing Færeyinga sem vill tilheyra
Danmörku. Nafnið 200 er stytting á
slagorðinu „200% loysing“ (200%
aðskilnaður (frá Danmörku)). Plöt-
ur 200 seljast í 1.000 eintökum í
Færeyjum, sem jafngildir 6.000 ein-
taka sölu á harðri pönkplötu á Ís-
landi. Þessa vikuna á 200 vinsælasta
lagið í Færeyjum. Hlusta má á það á
www.uf.fo/15bestu/. Tekið skal fram
að þetta er eitt poppaðasta lag 200.
Alvöru reggí
200 fóru á kostum líkt og á tvennum
hljómleikum á Íslandi 2002. Trylltu
áheyrendur og fengu tíu liðsmenn
annarra hljómsveita til að aðstoða í
fjöldasöng í einu lagi. Þarna mátti
ætla að hápunkti hátíðarinnar væri
náð. En þá stigu Hjálmar á stokk og
„slógu í gegn“. Áhorfendaskarinn
var með frá fyrsta lagi, dansandi og
veifandi höndum. Þjóðerniskennd
Íslendinga hækkaði um margar
gráður og menn höfðu á orði að
Hjálmar hefðu stolið senunni. Ofur
ánægðir Færeyingar höfðu á orði
að Hjálmar væru „tann ektaða
reggae vöran“ (alvöru reggíband).
Á laugardeginum var spenning-
ur fyrir færeyska þungarokks-
bandinu Sic. Sú hljómsveit hélt
hljómleika í Vestmannaeyjum í
fyrra og nokkra hljómleika í
Reykjavík árið 2002 undir nafninu
Krit. Munurinn á Krit og Sic er sá
að laglínur Sic eru öflugri og mús-
íkin mýkri.
Sigurvegari færeysku Músíktil-
rauna, Prix Föroyar, í ár, Go Go
Blues, skilur eftir spurningar-
merki. Go Go Blues er blússveit að
hætti blúshliðar Doors eða
Animals. Gamaldags og ófrumleg
hljómsveit. Á frekar heima í
pöbbaspileríi en að vera verðlaun-
uð sem merkasta hljómsveit Fær-
eyja.
Ormurinn endalausi
Týr er enn eitt færeyska nafnið
sem við Íslendingar þekkjum. Týr
stimplaði sig rækilega inn á Ís-
landskortið 2002 með glæsilegum
flutningi á „Orminum langa“ og
öðrum álíka lögum. Plötur Týs hafa
selst í um 4.000 eintökum hvor á Ís-
landi. Vinsældir Týs á Íslandi
hrundu „færeysku bylgjunni“ af
stað en ekki sér enn fyrir endann á
henni.
Þátttaka Makrels í Músíktil-
raunum á sama tímapunkti studdi
við það kastljós sem beindist að
færeyskri músík. Nokkrum vikum
síðar uppgötvuðu Íslendingar hæfi-
leika Eivarar og táningastjarnan
Brandur Enni varð sömuleiðis
poppstjarna á Íslandi.
Týr renndi í gegnum öll sín
þekktustu lög af miklu öryggi.
Röddun Týs var glæsileg að vanda
og gítarleikarinn Heri er „hetjugít-
arleikari“ á heimsmælikvarða.
Högni Lisberg spilaði á tromm-
ur á Íslandi 2002 með trip-hop
hljómsveit Eivarar, Clichaze. Síðan
hefur hann átt farsælan feril sem
trúbador. Spilar á gítar og syngur
falleg frumsamin lög. Nokkuð
óvænt hefur hann náð ágætri stöðu
sem slíkur í Sviss. Það var þægilegt
að hlusta á framlag hans sem mót-
vægi við þungarokkið.
Þreyttir Svíar
Stærsta nafnið á G!festivali í ár var
sænska þungarokkssveitin Europe.
Allir þekkja léttþungarokksslagara
Europe á borð við „Final Count-
down“ og „Cherry“. Öfugt við þróun
flestra þungarokkshljómsveita hef-
ur þungarokk Europe orðið þyngra,
harðara og hrárra með tímanum.
Ekki samt til bóta. Europe var ekki
hápunktur G!festivals. Þann heiður
eiga 200 og Hjálmar. Liðsmenn
Europe eru ekki þær risarokk-
stjörnur sem allir þekkja í dag.
Stelpurnar í VaGínas héldu sig vera
að fá eiginhandaráritun hjá söngv-
ara Europe á sunnudeginum en upp-
götvuðu síðar að þær höfðu einung-
is fengið eiginhandaráritun hjá mið-
aldra síðhærðum Færeyingi. Sá
varð sennilega hissa þegar þær
þökkuðu honum fyrir „last night“
og báðu um eiginhandaráritun!
Mega feitt hár
Börn á öllum aldri voru ekki skilin
útundan á G!festivali. Kardi-
mommubærinn, töframaður og
fleiri sáu þeim fyrir skemmtun.
Fram yfir miðnætti gengu lítil börn
sjálfala um svæðið. Foreldrar settu
á þau nafnspjald með símanúmeri
og enginn þurfti að hafa áhyggjur
af þeim.
Ástæða er til að geta gestrisni
heimamanna. Fjölskylda Eivarar of-
dekraði okkur með tertum, kökum,
snaps, bjór og mat. Barnaherbergi
voru rýmd fyrir næturgistingu
gestanna. Þegar hugað var að rútu-
ferð út á flugvöll vildu gestgjafarn-
ir endilega skutla okkur alla leið. Er
þó um klukkutíma akstur frá Götu
til flugvallarins í Vogum. Er nema
von að Íslendingar fái ást á Færeyj-
um og Færeyingum þegar móttök-
urnar eru svona? ■
40 28. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Skinkufeitt
festival
Rokkveislan G!festival var haldin me› miklum stæl í
Færeyjum um helgina. Jens Gu› mætti á svæ›i› og
horf›i á íslensku reggísveitina Hjálma stela senunni,
hlusta›i á flreyttu sænsku rokkhundana í Europe og
naut fádæma gestrisni fjölskyldu söngkonunnar
Eivarar Pálsdóttur.
MIKKJAL Söngvari færeysku þunga-
rokksveitarinnar Sic var heldur betur
vígalegur enda áhuginn á honum mikill.
MIKAEL BLAK Þessi reffilegi bassafant-
ur hljómsveitarinnar 200 er heitur að-
skilnaðarsinni og rokkaði feitt gegn Dön-
um.
TÝR Íslandsvinirnir í Tý rokkuðu feitt og sýndu gamalkunna takta en náðu þó ekki að toppa Hjálma.
VAGÍNAS Þetta meinta kvennapönkband komst með herkjum á festivalið og hafði eig-
inhandaráritun frá afdönkuðum Færeyingi upp úr krafsinu en þær töldu hann vera
söngvara hinnar heillum horfnu sveitar Europe.