Fréttablaðið - 28.07.2005, Side 63
46 28. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Lárétt: 2 fituskán, 6 tónn, 8 belta, 9 kaffi,
11 á fæti, 12 skært, 14 óánægður, 16
veisla, 17 biblíunafn, 18 beljaka, 20 tveir
eins, 21 fuglar.
Lóðrétt: 1 gangur, 3 kyrrð, 4 fönguleg, 5
frostskemmd, 7 snar, 10 tob, 13 dans, 15
bæta, 16 hjúpur, 19 skóli.
Lausn.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Humar
1.290,-kr.kg
Ótrúlegt verð á fínum humri.
Hvað má og hvað ekki? er ef til vill
spurning sem margir velta fyrir
sér þessa stundina. Í dægurmála-
þáttum í gærkvöldi bauðst fólki
hins vegar að sjá brot úr Sirkus
Jim Rose, sem verður með sýningu
á Broadway í kvöld en þessi
sirkus, ef svo má kalla, byggist á
því að ganga fram af áhorfend-
unum.
Guðmundur Steingrímsson,
sem tók á móti sirkusfólkinu í
Kvöldþættinum, sagðist enn vera
að reyna að átta sig á því hvað
þetta hafi verið. „Við höfum auð-
vitað fengið einhver viðbrögð við
þessu og þetta fór að sjálfsögðu
fyrir brjóstið á sumum,“ sagði
hann en bætti þó við að í þættinum
væru atriði sem ekki væru ætluð
börnum og viðkvæmum sálum. Að-
spurður hvort hann ætlaði á sýn-
inguna sagðist hann ekki reikna
með því. „Þetta er maður sem er
með sinn eigin sjónvarpsþátt,
hefur ferðast um heiminn í fimm-
tán ár og fengið glimrandi dóma.
Það er því greinilegt að einhverjir
kunna að meta húmorinn þó þetta
sé ekki minn tebolli.“
Jim Rose var á Laugarvatni
þegar Fréttablaðið náði tali af
honum og sagði hann það hafa
komið sér óvart hversu langt hann
hefði mátt ganga í landi þar sem
mótmælendatrú væri við lýði. „Í
kaþólskum löndum má miklu
meira,“ sagði hann, hvort sem það
var í alvöru eða gríni. Jim naut
lífsins og ætlaði sér að spila golf og
veiða auk þess sem hann langaði
að fara í göngutúr með konunni
sinni og ræða um framtíðina.
freyrgigja@frettabladid.is
Typpas‡ning í sjónvarpi
„Vinur minn kom í heimsókn til
Íslands á sunnudaginn og þá
ákváðum við að semja og setja
upp lítið dansverk,“ segir ball-
ettdansarinn Gunnlaugur Egils-
son en í kvöld flytur hann verkið
Salt ásamt félaga sínum, Banda-
ríkjamanninum Tilman O'Donn-
ell, í Nýlistasafninu við Lauga-
veg 26.
„Hugmyndin um að fólk getur
verið háð einhverju án þess að
vera meðvitað um það er
kveikjan að verkinu,“ segir Gunn-
laugur en hann kynntist Tilman
er þeir voru saman við nám í
Kanada. „Við búum nú báðir í
Stokkhólmi þar sem Tilman
starfar við Cullberg ballettinn,“
segir Gunnlaugur, sem sjálfur er
fastráðinn við Konunglega ball-
ettinn í Svíþjóð og er staddur í
sumarfríi hér á landi.
„Við Tilman höfum lengi talað
um að það gæti verið gaman að
auðga dansflóruna á Íslandi með
því að setja upp verk hér heima
og urðum að grípa tækifærið
fyrst hann var staddur á landinu.“
Þeir félagarnir hafa einu sinni
áður starfað saman. „Þá dansaði
Tilman í verki eftir mig sem ég
samdi fyrir hátíð á Dramaten
sem er Þjóðleikhúsið í Svíþjóð.
Tilman hefur getið sér gott orð
sem dansari og danshöfundur en
á þessu ári vann hann danshöf-
undakeppni bæði í Hannover í
Þýskalandi og Kuopio í Finnlandi
ásamt félaga sínum Shintaro O-
UE.“
Eftir velheppnað sumarfrí með
tilheyrandi hesta- og óvissuferð-
um heldur Gunnlaugur endur-
nærður til Svíþjóðar til að dansa
með Konunglega ballettnum í
haust. „Það sem liggur fyrir er að
ég kem til með að dansa „dökku
hlið“ Tristans í verki sem pólski
danshöfundurinn Christov Pastor
byggir á sögunni um Tristan og
Ísold. Auk þess verð ég líka í nú-
tíma dansverki eftir norska dans-
höfundinn Inu Thordal Christian-
sen sem nefnist Five is the Per-
fect Number.“
Aðeins ein sýning verður á
verkinu Salt þar sem Tilman
heldur brátt til Svíþjóðar.
Dansinn hefst klukkan 20 og er
aðgangur ókeypis. ■
FLYTJA FRUMSAMIÐ VERK Gunnlaugur og Tilman kynntust í dansnámi í Kanada og
sömdu verkið Salt í sumarsólinni til að auðga íslensku dansflóruna
GUNNLAUGUR EGILSSON: SÝNIR NÝTT VERK Í NÝLISTASAFNINU Í KVÖLD
Dansar í sumarfríinu frá
Konunglega ballettnum
... fær rithöfundurinn Guðbergur
Bergsson fyrir að hafa selt enn
eina skáldsöguna, Lömuðu
kennslukonurnar, til bókaforlags
á Spáni þar sem skáldskapur
hans nýtur greinilega nokkurrar
hylli.
HRÓSIÐ
Lárétt:2brák,6as,6óla,9bki,11il,12
bjart, 14ósæll,16át,17lea,18rum,20
gg,21arar.
Lóðrétt:1labb,3ró,4álitleg,5kal,7
skjótur, 10ias,13ræl,15laga,16ára,19
ma.
TÓNLISTIN Ég fíla bara alls konar tónlist og finnst frábær
svona elektrónísk tölvutónlist með húmor. Það er
skemmtilegast þegar tónlistarmennirnir taka sig ekki of al-
varlega og tónlistin er með smá galsabrag. Sænska syst-
kinahljómsveitin The Knife er mjög skemmtileg og tónlist
Donnu Mess er svolítið svipuð þeirra. Við erum reyndar að-
eins oddhvassari og hrárri og erum ekkert alltaf að vanda
okkur rosalega. Svo finnst mér Skátarnir og Scarlet
Fantastic mjög góð.
BÓKIN Eins og er er ég að lesa bókina Bananas, Beaches
and Bases: Making Feminist Sense of International Politics
eftir Cynthiu Enloe. Ég var að klára nýju Harry Potter bók-
ina og hún var bara svona allt í lagi. Mér finnst skemmti-
legast að lesa alls kyns ævintýrabækur en annars fer það
bara eftir því hvaða bækur renna til mín.
BÍÓMYNDIN Ég er ekki alæta á bíómyndir og mér leiðast
óskaplega þessar dæmigerðu Hollywood-myndir. Mér
fannst Napoleon Dynamite rosa skemmtileg en ég sá hana
fyrir skemmstu. Hún var svo afslöppuð og fyndin og var al-
veg laus við allar klisjur, klámvæðingu og annað rugl.
Núna hef ég reyndar rosalega gaman af því að horfa á sci-
fi-myndir, þar sem eitthvað dularfullt er að gerast úti í
geimnum. Það kemur alltaf svona geimverutímabil í bíóin
einu sinni á ári og núna hef ég áhuga á þannig kvikmynd-
um.
BORGIN Uppáhalds borgin mín er Kochi, sem er borg í
Kerala á Indlandi. Kerala er sjálfstjórnarhluti af Indlandi og
er þekkt fyrir að mennta fólkið sitt vel og þar er læsi yfir 95
prósentum. Ég fór þangað fyrr í sumar því vinur okkar býr í
Indlandi og við vorum að heimsækja hann. Kochi er ofsalega
falleg borg með öflugu listalífi og krúttlegum miðbæ. Svæðið
er gamalt kommúnistaríki og það er minni stéttaskipting
þarna en annars staðar á Indlandi. Það er svona Evrópu-
bragur yfir borginni og ég gæti vel hugsað mér að búa þar.
BÚÐIN Krambúðin er svolítið í
uppáhaldi. Þetta er svona eins og
hverfisbúð og mér líður alltaf vel
þar. Starfsfólkið leggur mikið upp
úr þjónustunni og er bæði
skemmtilegt og persónulegt. Mér
finnst reyndar allar búðir sem
leggja áherslu á góðan fíling og
hugsa ekki bara peninga vera frá-
bærar, til dæmis Fríða frænka. Ég
kaupi samt mest í Kolaportinu.
VERKEFNIÐ Næst á dagskrá er að spila á Innipúkanum
um verslunarmannahelgina. Svo erum við að fara að gefa
út plötu um miðjan september og erum bara að vinna í
því að klára hana. Okkur langar að reyna að gera efnis-
meiri plötu en gengur og gerist til að túlka Donnu Mess fíl-
inginn betur á diskinn. Við eigum eftir að pæla aðeins í því
en það verða að minnsta kosti ljósmyndir og plakat.
AÐ MÍNU SKAPI:
Krambú›in, Kochi og Innipúkinn
BJÖRG SVEINSDÓTTIR, TÓNLISTARKONA Í DONNA MESS OG NEMI.
Eiríkur Jónsson, blaðamaður áDV, hefur stjórnað morg-
unþætti Talstöðvarinnar
á laugardögum með
miklum stæl frá því
stöðin fór í loftið. Þar
hefur hann haft Reyni
Traustason, ritstjóra
Mannlífs, sér til halds
og trausts og þeir fé-
lagar hafa tekið á
móti fjölda góðra
gesta í hressilegt
spjall. Kempurnar
eru á leið í sumarfrí
og verða með sinn
síðasta þátt í bili
um Verslunarmannahelgina. Það
getur hins vegar ekki hver sem er
fyllt skarð Eiríks og
því hefur Hjálmar
Hjálmarsson, leik-
ari og náinn sam-
starfsmaður Ekki
fréttamannsins
Hauks Hauksson-
ar, verið fenginn til
að hlaupa í skarðið.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Mínusaðdáendur ættu að getaglaðst yfir þeim fregnum úr
herbúðum rokkdrengjanna að tón-
smíðar á fjórðu breiðskífu hljóm-
sveitarinnar standi nú yfir af fullum
krafti og ganga, að sögn söngvarans
Krumma, framar öllum vonum.
Ættu aðdáendur ekki að harma það
að strákarnir lofi því að næsta plata
verði besta plata hljómsveitarinnar
til þessa. Annars er það að frétta af
drengjunum í Mínus að þeir voru að
leggja lokahönd á upptökur á frum-
saminni tónlist við nýjustu kvikmynd
Róberts Douglas, Strákarnir okkar,
sem frumsýnd verður í september.
Jafnframt halda þeir sig í Reykjavík
um verslunarmannahelgina, að
minnsta kosti á föstudagskvöldið
þegar hljómsveitin tryllir lýðinn á
Gauknum.
SIRKUS JIM ROSE Framferði sirkusmanna hefur ekki vakið hörð viðbröð eins og við
mátti búast eftir írafárið í kringum tónleika Snoop Dogg. Ísleifur B. Þórhallsson, sem flytur
sirkusinn inn, segir Íslendinga vera farna að sjóast og fólk sé orðið ágætlega frjálslynt.