Fréttablaðið - 15.09.2005, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
BJART SUÐAUSTAN TIL Skýjað og
hætt við dálítilli súld vestan og norðan til
og slyddu á miðhálendinu. Hiti 5-12 stig á
láglendi, hlýjast suðaustan til.
VEÐUR 4
FIMMTUDAGUR
15. september 2005 - 248. tölublað – 5. árgangur
Eigna›ist forláta
snyrtibor›
ELMA LÍSA GUNNARSDÓTTIR
Í MIÐJU BLAÐSINS
● heimili ● tíska ● heilsa
▲
Nýtt
kortatím
abil
í BT
Gagnrýnir ráðningu
Sjálfsráðning Davíðs Oddssonar í
stöðu seðlabankastjóra brýtur gegn
anda nýju seðlabankalag-
anna. Ráðning Jóns Sig-
urðssonar í stöðu seðla-
bankastjóra fyrir fá-
einum misserum var
sama marki brennd.
Þetta segir Þorvald-
ur Gylfason hag-
fræðiprófessor.
Í DAG 26
Tilheyrir ekki nútímanum
Eric-Emmanuel Schmitt er einn af
þekktustu rithöfund-
um Frakklands.
Hann er einn gesta
Bókmenntahátíðar og
segist vera átjándu
aldar maður.
BÓKMENNTIR 42
VEÐRIÐ Í DAG
Rooney sá rautt
Þrír þekktir vandræða-
gemlingar úr enska
boltanum sáu rautt í
meistaradeildinni
í gær.
ÍÞRÓTTIR 34
...skemmtir þér ; )
ÚTSALAN
ER HAFIN
Í VERSLUNUM
SKÍFUNNAR
Stokkar spilin í september
„Ég hafði ekki reiknað með því að
fara varanlega á þing en er
tilbúin að stökkva þegar
kallað er,“ segir Ásta Möll-
er sem sest senn á þing í
stað Davíðs Oddssonar.
TÍMAMÓT 32
Bílasýningin í Frankfurt
Heimamenn sterkir
bls. 2
Ryðvörn
Selta kallar á ryðvörn
bls. 6
Fyrsti bíllinn
Skemmtilegar sögur
Bílakaup
Val um kaup eða leigu
bls. 10
BÍLAR
[ á fleygiferð
inn í framtíðina ]N‡ir bílar og
framtí›arbílar
BÍLAR
▲
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
STJÓRNMÁL „Eðlilega þrýsta Norð-
urlandaráðherrarnir á okkur. Það
var samkomulag um að Ísland
færi í þetta ekki aðeins fyrir okk-
ar hönd heldur einnig fyrir hönd
allra Norðurlandanna. Þetta eru
því líka hagsmunir annarra en
okkar,“ segir Halldór Ásgrímsson
forsætisráðherra um aðildarum-
sókn Íslendinga að Öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna.
Davíð Oddsson utanríkisráð-
herra kvað þrýsting norrænu ut-
anríkisráðherranna hafa verið
mikinn þegar hann hitti þá á fundi
í Danmörku í byrjun mánaðarins.
Halldór segir að málið varði
ríkisstjórnina og ákvörðun hafi
verið tekin af henni á sínum tíma í
samráði við stjórnarandstöðuna
um að sækjast eftir sæti í Örygg-
isráðinu.
Umsóknin gildir fyrir setu í
ráðinu árin 2009 og 2010 og kemur
því inn á borð stjórnvalda eftir
næstu þingkosningar. „Það er unn-
ið að þessu máli hér á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna með þeim
hætti,“ segir Halldór sem staddur
er á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna. „Að mínu mati á að
stilla kostnaði í hóf og ekki að fara
í dýra kosningabaráttu. Hins veg-
ar hafa ýmsir gefið kost á sér til
setu í ráðinu og tapað henni.
Frændur vorir Svíar töpuðu síðast
slíkri baráttu þegar þeir buðu sig
fram fyrir hönd Norðurlandanna.
Davíð Oddsson utanríkisráð-
herra hefur – eftir því sem næst
verður komist – ekki hug á að af-
greiða aðildarumsóknina áður en
hann lætur af embætti í lok mán-
aðarins. Hann hefur opinberlega
haft efasemdir um málið og 600
milljóna króna kostnað vegna
væntanlegrar kosningabaráttu.
Hann sagði þó í viðtali við Frétta-
blaðið í byrjun mánaðarins að
ákvörðun yrði tekin áður en þing
kemur saman í haust.
Allt bendir til þess að það komi
í hlut Geirs H. Haarde, verðandi
utanríkisráðherra, að taka af
skarið um aðildarumsóknina.
Hann vildi ekki tjá sig um málið
þegar Fréttablaðið leitaði eftir því
í gær. - jh
A›ild a› rá›inu ekki
einkamál Íslendinga
Forsætisrá›herra segir a›ildarumsókn Íslands a› Öryggisrá›i Sameinu›u fljó›-
anna ekkert einkamál Íslendinga. Margt bendir til fless a› afgrei›sla málsins
ver›i eitt fyrsta verk Geirs Haarde flegar hann tekur vi› utanríkisrá›uneytinu.
VERÐBÓLGA „Þessi síðasta hækkun
er meiri en gert var ráð fyrir og
við tökum það mjög alvarlega,“
segir Halldór Ásgrímsson for-
sætisráðherra um aukna verð-
bólgu um þessar mundir.
Verðbólgan mælist nú 4,8 pró-
sent og er komin yfir fjögurra
prósenta takmark Seðlabankans.
Halldór segir að vaxandi verð-
bólga verði til þess að ríkis-
stjórnin haldi sínu striki varð-
andi aðhald í ríkisfjármálum rétt
eins og gert hafi verið í fjárlög-
um þessa árs. „Það hefur verið
dregið mjög úr fjárfestingum
ríkisins á þessu ári. Það eru ekki
nein kraftaverk til í þessum efn-
um. Ég er þeirrar skoðunar að
næsta verðbólgumæling verði
lægri og það er engin ástæða til
að ætla annað en að verðbólgan á
öllu árinu verði innan marka eða
um 3,5 prósent. Það verður mjög
góður afgangur þegar fjárlaga-
frumvarpið birtist og þannig tök-
um við tillit til efnahagslegra
markmiða.“
Halldór segir ríkisstjórnina
halda fast við það að lækka
tekjuskattinn á næsta ári um eitt
prósentustig eða um fjóra millj-
arða króna. „Fyrir liggur að það
mun bæta kaupmáttinn á næsta
ári og ætti að greiða fyrir kjara-
samningum á næstunni. Þetta
gæti líka átt við um árið 2007
þegar tekjuskatturinn lækkar
um tvö prósentustig. - jh
Forsætisráðherra segir mikinn afgang á fjárlagafrumvarpi næsta árs:
Tekjuskattur ver›ur lækka›ur
ELÍN EBBA ÁSMUNDSDÓTTIR Hefur starfað
hjá LSH í 24 ár.
Landspítalinn:
Yfiri›jufljálfi
gefst upp
HEILBRIGÐISMÁL „Ég hef aldrei átt
jafnmikla samleið með geðsjúkum
og á síðustu árum, því nú skil ég
hvernig er að vera áhrifalaus,
vandalaus og mæta fordómum.“
Þetta segir Elín Ebba Ásmunds-
dóttir, yfiriðjuþjálfi á geðsviði
Landspítala - háskólasjúkrahúss,
sem hverfur af starfsvettvangi sín-
um, um sinn að minnsta kosti. Hún
segist óánægð með stjórnun spítal-
ans og það andrúmsloft sem þar rík-
ir meðal starfsmanna. Hún segir
spítalann, sem eigi að vera staður
lækninga, geta verið heilsuspillandi
fyrir starfsfólk með hugsjónir.
sjá síðu 22
SURAIA STUDD AF KYNSYSTUR SINNI Afgönsk kona í Kabúl heldur á kosningaspjaldi af kvenframbjóðanda í kosningunum sem fram fara
næsta sunnudag. Suraia Perlika er ein þeirra kvenna sem sækjast eftir atkvæðum fólks.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Leiðtogafundur
Sameinuðu þjóðanna hófst í gær.
Rauðar tölur í Kauphöll:
Hlutabréfaver›
lækkar enn
VIÐSKIPTI Úrvalsvísitalan lækkaði í
gær þriðja daginn í röð og hefur
fallið um fimm prósent í vikunni.
Hlutabréf í fjórtán af fimm félög-
um í Úrvalsvísitölunni lækkuðu á
markaði í gær.
Verð á hlutabréfum byrjaði að
lækka á mánudaginn þegar tölur
sýndu mikla hækkun á vísitölu
neysluverðs. Eftir miklar hækkanir
að undanförnu vilja margir fjárfest-
ar leysa út hagnað með því að selja.
Ekki er búist við miklum lækk-
unum á hlutabréfamarkaði á næst-
unni. „Það eru engar slæmar fréttir
að koma frá fyrirtækjunum, sem
flest hafa verið að skila fínum upp-
gjörum og standa í mikilli útrás.
Þótt Úrvalsvísitalan hafi fallið í vik-
unni er hún í sama gildi og um miðj-
an ágúst,“ segir Bjarki Logason hjá
greiningardeild Landsbankans.
- eþa
sjá síðu 30
AP
M
YN
D