Fréttablaðið - 15.09.2005, Side 16

Fréttablaðið - 15.09.2005, Side 16
ÓÐIR Í PYLSUR Kjötiðnaðarmaðurinn Tom Jackson hengir upp pylsur í verslun sinni í London. Árlega neyta Bretar 189 tonna af pylsum sem jafngildir því að hver Breti borði 140 pylsur á ári. 16 Myndhöfundur deilir við bókaútgefanda: Ekkert lögbann á bók ÚTGÁFA Sýslumaðurinn í Reykja- vík vísaði í gær frá lögbanns- beiðni sem sett hafði verið fram á útgáfu bókarinnar Fiskisagan flýgur frá bókaútgáfunni Skruddu. Í úrskurðinum er vísað til þess að bókin sé komin út og sá gjörn- ingur verði ekki aftur tekinn. Fyrir helgi lagði sýslumaður til að trygging vegna lögbannsins yrði 1,5 milljónir króna, en útgef- andinn fór fram á tryggingu upp á 10 milljónir króna, enda hafi mikill kostnaður verið lagður í útgáfuna, bæði laun og prentun. „Við munum ekki una þessum úrskurði,“ segir Kristinn H. Benediktsson, höfundur ljós- mynda í bókinni, en hann vildi fá fram lögbann þar sem hann taldi illa farið með hugverk sín í rit- inu. „Það er málshöfðun í undir- búningi, en við bíðum eftir plöggum frá sýslumanni þannig að kæran verður trúlega ekki lögð fram fyrr en á morgun,“ segir hann. - óká SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP Leiðtoga- fundur Sameinuðu þjóðanna hófst í höfuðstöðvum samtakanna í New York í gær. Á þessum 60 ára afmælisfundi stóðu vonir til að samþykktar yrðu tillögur að víð- tækri endurskipulagningu og um- bótum á uppbyggingu og starf- semi samtakanna, en sennilegast þykir að ekki takist samkomulag um annað en mjög útvatnaða út- gáfu af þessum umbótatillögum. Göran Persson, forsætisráð- herra Svíþjóðar, sem er starfandi forseti allsherjarþings SÞ, setti fundinn með ávarpi þar sem hann hvatti ráðamenn heims til að taka saman höndum um að hindra stríðsátök og þjóðarmorð og vernda mannréttindi. Yfir 160 þjóðar- og ríkisstjórnaleiðtogar mættu til að hlýða á Persson brýna fyrir sér að milljónir mannslífa væru í hættu ef ekki verður gripið til afdráttarlausra ráðstafana til að uppræta fátækt í heiminum. Kofi Annan, framkvæmda- stjóri SÞ, sagði í ávarpi sínu að ályktunin sem leiðtogarnir munu afgreiða í lok fundarins á morgun væri „góð byrjun“ en ekki „þær víðtæku grundvallarumbætur“ sem hann hefði lagt til. Hann kall- aði eftir því að vasklega yrði gengið fram í að útkljá ágrein- ingsmál sem urðu til þess að ekki reyndist unnt að ná samkomulagi um að ganga lengra í þessari at- lögu. „Því að eitt hefur komið skýrt í ljós í þessu ferli sem við hófum fyrir tveimur árum: hvað svo sem skilur okkur að stöndum við eða föllum saman, í þessum heimi þar sem allir eru háðir öllum,“ sagði Annan. George W. Bush Bandaríkja- forseti reyndi í ávarpi sínu að „selja“ alþjóðasamfélaginu áform um að útbreiða lýðræði í Írak og víðar um heiminn, stokka upp starfsemi Sameinuðu þjóðanna og gera átak í að afnema hömlur á al- þjóðaviðskipti. Margir í áheyr- endahópnum hefðu frekar viljað heyra hann segja að Bandaríkin myndu hætta að sniðganga al- þjóðasamninga á borð við Kyoto- sáttmálann og um stofnun Alþjóða sakadómstóls, en Bush vildi nota tækifærið til að lýsa fyrir leiðtog- unum sýn sinni á það hver væru brýnustu úrlausnarefni alþjóða- mála. audunn@frettabladid.is NORÐURÁL STÆKKAÐ Hér má sjá yfir Norðurál á Grundartanga þar sem tólf Danir vinna við stækkunina. Verkalýðsfélag Akraness: Deilt um Dani KJARAMÁL Verkalýðsfélag Akra- ness hefur fengið lögfræðinga til að kanna hvort Ístak greiði stétt- arfélagsgjöld af tólf dönskum smiðum sem vinna við stækkun Norðuráls. Loftur Árnason, framkvæmda- stjóri Ístaks, segir að farið sé eft- ir þeim reglum sem gildi: „Dan- irnir fá ekki laun hjá okkur. Þeir eru launamenn hjá starfsmanna- leigu, en við vitum að þeim er greitt meira en lágmarkslaun á Ís- landi kveða á um.“ Vilhjálmur Birgisson, formað- ur Verkalýðsfélagsins, skrifar á heimasíðu félagsins að Ístak neiti að láta félaginu í té upplýsingar um hver kjör mannanna séu. Það séu brot á samkomulagi ASÍ og Samtaka atvinnulífsins. - gag 15. september 2005 FIMMTUDAGUR KRISTINN H. BENEDIKTSSON Kristinn H. Benediktsson ljósmyndari fór fram á lög- bann á útgáfu bókarinnar Fiskisagan flýgur þar sem hann taldi illa farið með myndir sínar í ritinu. Kröfunni var vísað frá í gær. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI Hvetur lei›toga heimsins til a› útkljá ágreiningsmál Á lei›togafundi Sameinu›u fljó›anna, sem hófst í gær, hvatti Kofi Annan til einingar um framtí›arskipan samtakanna. Reikna› er me› a› lei›togar heims samflykki útvatna›a ályktun um umbætur á samtökunum. BUSH HJÁ SÞ George W. Bush Bandaríkjaforseti ávarpar allsherjarþingið í gær. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P ALÞJÓÐAMÁL Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra ávarpar leiðtoga- fund Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Tilgangur leiðtogafundarins er að fara yfir efndir þeirra skuldbind- inga sem felast í svonefndum þús- aldarmarkmiðum Sameinuðu þjóð- anna en þar er einkum lögð áhersla á málefni þróunarlanda og ýmsa að- steðjandi vá eins og ófrið. Halldór Ásgrímsson forsætis- ráðherra segir að þegar liggi fyrir samkomulag um yfirlýsingu. „Þar er gert ráð fyrir því að styrkja Sam- einuðu þjóðirnar með stofnun mannréttindaráðs og sérstakrar friðarstofnunar. Í sjálfu sér er text- inn góðra gjalda verður en aðalat- riðið er hvað gert verður með hann og hvaða vald þessi ráð öðlast. Það sem veldur vonbrigðum er að hvorki hefur gengið né rekið á sviði afvopnunar. Ekki hefur heldur náðst samstaða um það hvernig skilgreina skuli hryðjuverk. Fjöldi þjóða vill enn réttlæta aðgerðir í nafni frelsisbaráttu sem aðrir kalla hryðjuverk.“ Halldór segir það enn fremur mikil vonbrigði að engin niðurstaða hafi fengist um breytingar á Örygg- isráðinu. „Við höfum fyrir augunum hræðileg dæmi þar sem Sameinuðu þjóðirnar hafa ekki brugðist við að- steðjandi vá og dæmi um það eru skelfingarnar í Rúanda. Ef menn vilja koma í veg fyrir að þess háttar atburðir endurtaki sig verða Sam- einuðu þjóðirnar að hafa vald og möguleika til að grípa í taumana. Í ræðu minni ætla ég að leggja áherslu á samskipti þjóða í starfi Sameinuðu þjóðanna. Þær hafa brugðist mjög mörgum, bæði þjóð- um, þjóðflokkum eða einstaklingum með aðgerðaleysi. Aðgerðir Sam- einuðu þjóðanna eiga að vera slíkar að þeir sem brjóta mannréttindi og virða ekki líf annarra hugsi sig tvisvar um áður en þeir beita of- beldi,“ segir Halldór Ásgrímsson. johannh@frettabladid.is Afvopnunarmálin valda Halldóri vonbrig›um Halldór Ásgrímsson forsætisrá›herra ávarpar allsherjarfling Sameinu›u fljó›- anna í dag. Hann ætlar a› leggja áherslu á auki› vald Sameinu›u fljó›anna til fless a› beita sér gegn ófri›i og mannréttindabrotum. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON FORSÆTIS- RÁÐHERRA Halldór telur að Samein- uðu þjóðirnar verði að hafa mögu- leika á að koma í veg fyrir ógnarat- burði. „Þær hafa brugðist mjög mörg- um, bæði þjóðum, þjóðflokkum eða einstaklingum með aðgerðaleysi.“ SKATTASAMNINGUR SKIPT VIÐ KRÓATA Nýverið hófust viðræður um tvísköttun- arsamning á milli Íslands og Króatíu. Þetta kemur fram í Tí- und, fréttablaði Ríkisskatts- stjóra. HVERAGERÐI HVERAGERÐI STYÐUR KJALVEG Á fundi bæjarráðs Hveragerðis- bæjar í gær var samþykkt að leggja til hálfa milljón í hlutafé til Norðurvegar ehf., en félagið var stofnað í kringum áform um uppbyggingu Kjalvegar. Þau skil- yrði voru sett fyrir fjárveiting- unni að hlutafjársöfnunin næði þeim markmiðum sem hafa verið sett og kynnt voru á fundi bæjar- ráðs 19. júlí.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.