Fréttablaðið - 15.09.2005, Side 24

Fréttablaðið - 15.09.2005, Side 24
„Mín bestu kaup gerði ég árið 1980 þegar ég keypti 72 árgerðina af Volvo en hann var, eins og sagt var þá, fasteign á hjólum og í rauninni fyrsti alvöru bíllinn minn. Hann var ekkert afskaplega dýr og hann borgaði sig líka en það gera bílar varla í dag. Mín verstu kaup gerði ég hins vegar í minni fyrstu utanlandsferð en þá var ég sautján ára gamall í sólar- landaferð á Spáni og sárvant- aði úr. Ég var nú alveg grænn í bak og fyrir þannig að vaskur kaupmaður var ekki í vandræðum með að pranga inn á mig úri sem hann sagði vera vatnsþétt, högghelt og alveg pottþétt en á móti kom að það var nokkuð dýrt. Ég var því nokkuð montinn með mig þegar ég bar rándýran gripinn og ákvað að nýta mér fjárfestinguna um leið svo ég fór með úrið strax í sund. En ég var ekki búinn að svamla lengi þegar ég tók svo eftir því að þetta rándýra úr var orðið fullt af vatni. Ég hugsaði með mér að það mætti nú kannski bjarga þessu svo ég ákvað að hrista úrið og sjá hvort vatnið færi þá ekki úr sem það og gerði. En það sem verra var með þetta höggþétta úr var að það þoldi ekki svona hristing svo glerið datt af og svo fylgdu vísarnir á eftir. Þessi kómíski atburður minnti hreinlega á teiknimynd. En ég held ég hafi notið þessarar fjár- festingar í korter eða svo.“ Rá›legast a› geyma gaskútana utandyra Flestir landsmenn leggja gasgrillunum um flessar mundir enda styttist í vetur. Miklu máli skiptir hvernig gengi› er frá gaskútunum flar sem fleir geta skapa› talsver›a eldhættu og skynsamlegast er a› skila kútunum fyrir veturinn. Samkvæmt reglugerð má geyma einn gaskút á hverju heimili. Flestum kútum fylgir miði með leiðbeiningum um hvernig best er að geyma þá. Þar kemur fram að ekki skuli geyma kútana í kjöllur- um eða öðrum niðurgröfnum stöð- um og ekki við hátt hitastig, því annars geti hitalokinn opnast. Þá er brýnt að loftræsting sé góð. Leki gaskútur á illa loftræstum stað safnast gasið fyrir á gólfinu og skapar talsverða hættu. Kristján Jens Kristjánsson, verkefnastjóri forvarnadeildar Slökkviliðsins, bendir hins vegar á að það sé aðeins ein leið til að koma í veg fyrir eldhættuna sem fylgir gaskútum, það er að geyma þá alls ekki heima fyrir. „Allar varúðarráðstafanir eru af hinu góða en það er samt sem áður aldrei fullkomlega öruggt að geyma gaskút á heimilinu.“ Krist- ján segir að sérstaklega fjölbýlis- hús valdi slökkviliðsmönnum áhyggjum. „Tökum sem dæmi fjölbýlishús með 40 til 50 íbúðum og gefum okkur að í kjallara- geymslu næstum hverrar íbúðar sé gaskútur. Þú getur rétt ímynd- að þér hversu mikill sprengikraft- urinn yrði ef eldur brytist út við slíkar aðstæður.“ Kristján segir að sjái fólk sig til- neytt til að geyma gaskúta heima hjá sér yfir vetrarmánuðina sé af- farasælast að geyma þá utandyra. Það er þó engin trygging fyrir því að kúturinn valdi ekki skemmdum springi hann. „Það er ekki langt síðan það kviknaði í gasgrilli úti á svölum íbúðar í Grafarvogi og sprengingin olli miklum skemmd- um í eldhúsi.“ Skynsamlegasta lausnin er því að skila kútunum til olíufélagsins þar sem kúturinn var keyptur. Ýmislegt letur fólk hins vegar til þess, til dæmis endurgreiða félög- in aðeins fyrir hylkin sjálf en ekki innihaldið. Þá er ekki hægt að fá kútana endurgreidda nema á tveimur stöðum í höfuðborginni; í Esso-aðföngum að Gelgjutanga og á millilager Olís í Laugarnesi við Héðinsgötu. „Ég held að það sé mikilvægt að hvetja fólk til að skila kútunum á haustin og það væri ekki galin hugmynd að þeir sem taka við þeim endurgreiddu líka fyrir innihaldið.“ bergsteinn@frettabladid.is                                         !"!#$ %" $"&!#'( ') 24 NEYTANDINN: SIGURÐUR SIGURJÓNSSON LEIKARI ÚTGJÖLDIN > KÍLÓ AF HVEITI Á VERÐLAGI NÓVEMBER HVERS ÁRS 19 90 19 95 20 00 20 03 87 kr. 64 kr.66 kr 75 kr. 19 85 35. kr 19 80 5 kr. Lét pranga inn á mig armbandsúri GÓÐ HÚSRÁÐ ■ BÖRN Í BÍL Það er ekkert grín ef börnin verða bílveik og því eru holl ráð í þeim efnum gullsígildi. Mörgum foreldrum hefur reynst vel að hvetja börn sín til að horfa út um gluggann meðan á ferðalaginu stendur í stað þess að þau lesi eða leiki sér. Einnig hefur engiferöl hamlað bílveiki margra barnanna. ■ AÐ NÁ HVÍTLAUKSHÝÐINU AF Til þess að ná hýðinu utan af hvítlauksrifi er þjóðráð að setja það inn í örbylgju- ofn í fimmtán sek- úndur en eftir það flettist það afar auðveldlega. Einnig má kremja rifið með sléttum hníf en þá springur efsti hluti þess og eftir það er barnaleikur að ná hýðinu af. ■ AÐ NÁ LíMBLETTUM AF GLERI Límmiðar barnanna rata oft á gler hingað og þangað. Erfitt getur verið að ná þeim fyllilega í burtu þar sem oftast situr límbletturinn eftir. Þó er hægt að sigrast á þeim með því að hella sítrónudrop- um í blauta tusku og nudda svo vel.hagur heimilanna ■ HVAÐ KOSTAR... Í LEIKHÚS Dýrara á söngleiki Á hverja sýningu í Þjóðleikhúsinu kostar hver miði 2.700, en 2.900 í Borgarleikhús- inu. Aldraðir, öryrkjar, stúdentar og börn fá 600 krónur í afslátt í Þjóð- leikhúsinu. Í Borgarleikhúsinu fá aldraðir og öryrkjar 700 krónur í af- slátt, en börn 12 ára og yngri fá ókeypis aðgang í fylgd með for- ráðamönnum sínum á valdar sýningar. Það er aðeins dýrara að fara á söngleiki. Á Edith Piaf í Þjóðleikhúsinu kostar 3.000, en 3.600 á söngleiki eða stórsýningar í Borgarleikhúsinu. Fyrir þá sem fara mikið í leikhús getur verið hentugt að kaupa áskriftarkort. Á fimm sýningar á stóra sviði Þjóðleikhússins, eða sex sýningar á minni sviðin kostar kortið 10.500 krón- ur. Á fjórar sýningar á Stóra sviði Borgarleikhússins, auk einnar sýningar að eigin vali kostar áskriftar- kortið 11.100. Einnig býður Borgarleikhúsið upp á átta miða aðgöngukort sem kostar 19.500. ■ VERSLUN OG ÞJÓNUSTA Hive stefnir á símamarkað Fyrirtækið Hive stefnir á frekari símaþjónustu fyrir við- skiptavini sína. Fyrsta skrefið var Hive-netsími þar sem viðskiptavinum Hive bjóðast útlandasímtöl til 31 lands á mun lægra verði en símafyrirtækin hafa boðið upp á. Netsíminn byggir á IP tækni, sem gerir Hive kleift að nota internetið til þess að flytja símaumferð beint inn á staðbundin símkerfi í þeim löndum sem hringt er til. Einnig er hægt að taka net- símann í ferðalagið og hringja í íslensk heimasímanúmer erlendis frá fyrir 2,99 á mínútuna. Næstu skref fyrirtækisins verður að bjóða upp á almenna símaþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Nýtt fasteignasjónvarp Ný sjónvarpsstöð hefur göngu sína í byrjun nóvember þar sem sýndar verða fasteignakynningar allan sólarhringinn. Það er Hlynur Sigurðsson sem stendur á bak við sjónvarpsstöðina, en hann hefur séð um þáttinn Þak yfir höfuðið á Skjá ein- um. Hægt verður að velja fasteignaauglýsingar með því að senda smáskilaboð. Á kvöldin má meðal ann- ars sjá kynningar á nýjustu fasteignunum og kynn- ingar á einbýlishúsum. Stöðinni verður dreift í gegn um breiðbands- og ADSL-kerfi Símans, en viðræður standa yfir um frekari dreifingu. 15. september 2005 FIMMTUDAGUR Bifvélaverkstæði Þ. Jónssonar og Vélalands hefur starfað í 56 ár: Fólk heldur lengur í bílana sína „Fólk heldur lengur í bíla sína nú en áður og það virðist einnig fara mun betur með þá,“ segir Sigurður Grétarsson, eigandi Bifvélaverk- stæði Þ. Jónssonar Vélalands. Verkstæðið hefur verið starf- rækt í 56 ár en Þór Jónsson og Grétar Árnason, faðir Sigurðar, opnuðu það árið 1949 og Sigurður bætti svo Vélalandi sínu við það árið 1988. „Nú síðustu ár hefur til dæm- is verið óvenju mikið um vélar- upptekningar hjá okkur, ég man varla eftir öðru eins. Eins er það áberandi núna að flestir vilja láta gera fyrirbyggjandi viðgerðir á bílum sínum þannig að ef eitt- hvað er ekki alveg eins og það á að vera er það bara tekið í gegn en áður vildu menn helst ekkert láta laga fyrr en allt var orðið stopp. Svo er líka mikið um það að menn komi með 5 til 6 ára gamla bíla og vilja bara láta gera þá upp.“ Eins hefur viðskiptahópurinn tekið nokkrum breytingum hjá Sigurði eins og kannski víða ann- ars staðar þar sem bílar eru teknir í gegn. „Nú eru konur farnar að koma með bílana sína sjálfar og þá er líka viðkvæðið sem karlmenn- irnir viðhöfðu þegar þeir komu með sína bíla á verkstæðið ekki lengur í gildi.“ Og Sigurður útskýr- ir þetta títt notaða en nú ógilda við- kvæði: „Jú, þegar karlarnir komu með bilaðan bíl á verkstæðið sögðu þeir venjulega: „Konan var á hon- um.“ Þetta á ekki lengur við segir Sigurður frekar en klámmyndirn- ar sem hann segir að hafi horfið af veggjum verkstæðanna fyrir 15 til 20 árum. - jse GASKÚTAR GEYMDIR Esso-aðföng að Gelgjutanga er annar tveggja staða í höfuðborg- inni þar sem hægt er að skila gaskút gegn endurgreiðslu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.