Fréttablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 29
SMÁAUGLÝSINGAR
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er fimmtudagur 15. 09,
258. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 6.50 13.23 19.54
AKUREYRI 6.33 13.08 19.40
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Elma Lísa Gunnarsdóttir eignaðist
forláta snyrtiborð á dögunum sem
henni þykir sérstaklega vænt um.
„Ég er nýbúin að eignast snyrtiborð sem
amma mannsins míns, Auðbjörg Björns-
dóttir, átti og er það í miklu uppáhaldi hjá
mér núna,“ segir Elma Lísa Gunnarsdóttir
leikkona. Borðinu fylgdu einnig náttborð í
stíl sem Elma Lísa segir að séu sérstak-
lega falleg, en borðin voru keypt í Amer-
íku og eru um 60 ára gömul. „Borðið er
ótrúlega fallegt og hefur mikið tilfinn-
ingalegt gildi, en ég er mjög hrifin af
gömlum hlutum með sál,“ segir Elma Lísa.
Hún segist nú ekki sitja við borðið og
greiða þar hár sitt á kvöldin, þvert á móti.
„Það er nú aðallega fallegt og rómantísk
og nota ég það til að geyma ýmislegt dót
og glingur, auk þess sem ég hef sett sjal
yfir spegilinn því það er sagt að maður
eigi ekki að hafa spegil í svefnherberg-
inu,“ segir Elma Lísa.
Mikið af húsgögnunum á heimili Elmu
Lísu eru úr fjölskyldunni. „Ég á litla
kommóðu frá ömmu og svo hefur Auð-
björg gefið okkur talsvert af húsgögnum,
eins og borðstofuborð og hrikalega flotta
gamla saumavél sem ég nota sem síma-
borð,“ segir Elma Lísa.
Blaðamaður spyr hana hvort það sé
ekki soldið leikkonulegt að eiga svona
snyrtiborð og játar hún því. „Ég eyði
meiri tíma fyrir framan spegilinn í leik-
húsinu heldur en heima hjá mér,“ segir
Elma Lísa. En síðustu daga hefur hún eytt
löngum stundum í leikhúsinu þar sem hún
leikur í leikritinu Himnaríki eftir Árna Ib-
sen. Verkið verður frumsýnt á morgun í
Hafnarfjarðarleikhúsinu og spenna liggur
í loftinu. kristineva@frettabladid.is
Húsgögnin frá ömmu Au›björgu
Áhættureiknir Hjartaverndar
mæltist vel fyrir á þingi
Evrópskra hjartalækna sem
haldið var í Stokkhólmi 3.-7.
september. Áhættureiknirinn
byggir á endurteknum skoðun-
um og mælingum á hátt í
20.000 Íslendingum síðustu 38
árin. Fylgst er með hvaða sjúk-
dóma þessir einstaklingar fá
og það rannsakað í tengslum
við mælda þætti frá fyrri tíð.
Þannig er hægt að spá fyrir um
hvaða sjúkdóma viðkomandi
kunna að fá.
Raforkunotkun heimilanna
eykst enn, hraðar en ráð var
fyrir gert. Helstu orsakirnar eru
að tækjum hefur fjölgað mikið
á heimilum svo sem sjónvörp-
um og tölvum og algengt er að
þau séu höfð í biðstöðu fremur
en að slökkt sé á þeim, en það
kallar á nokkra raforkunotkun.
Gert er ráð fyrir að þessi þróun
haldi áfram á allra næstu árum.
Tískurisinn H&M ætlar sér
stóra hluti með glænýrri galla-
buxnalínu og er kynningarher-
ferð í þann veginn að
renna af stokkunum.
Línan kallast „&“ og
er ætlunin að bjóða
allt að hundrað
mismunandi galla-
buxur á hverri árs-
tíð. Þær verða að
sjálfsögðu ein-
göngu til sölu í
verslunum H&M.
LIGGUR Í LOFTINU
[ TÍSKA - HEIMILI - HEILSA]
KRÍLIN
Blævængur er
vængur af blæfugli
sem er til þess að
blaka burtu heitu
lofti og búa til
kalt í staðinn!
SMÁAUGLÝSINGAR
SÍMI: 550 5000
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Elma Lísa segist aldrei sitja við snyrtiborðið og snyrta sig, heldur sé það frekar til skrauts.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
RÓSAMUNSTUR
Rómantíkin ryðst inn á
heimilið. BLS. 6
MATVÖND BÖRN
Hvað er til bragðs að taka?
BLS. 9
[ ILSE JACOBSENDönsk hönnun í Garðabæ.
BLS. 5
]