Fréttablaðið - 15.09.2005, Qupperneq 69
37
Íslenska landsliðið í knattspyrnuhækkaði um tvö sæti á styrkleika-
lista Alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins,
FIFA og er nú í 92.
sæti. Stærsta fréttin
er þó væntanlega
sú að lið Englands
hefur dottið út af
topp tíu listanum og
er nú í því ellefta
eftir heldur dapurlega frammistöðu
gegn Norður-Írum fyrir skemmstu. Þá
hefur tap Englands í Danmörku
einnig áhrif á stöðuna. Skotar hækk-
uðu um 12 sæti og eru nú í því 74.
Brasilía er sem fyrr á toppnum, þá
koma lið Hollands, Argentínu, Tékk-
lands og Mexíkó.
Alberto Luque, leikmaðurNewcastle, verður frá keppni
næstu tvo mánuðina eftir að hafa
meiðst í leik Newcastle og Fulham á
St. James Park um liðna helgi. Lækn-
isskoðun og röntgenmyndataka sem
fór fram á mánudag leiddi í ljós að
meiðslin eru verri en í fyrstu var talið
og hafa fréttirnar reynst vera mikið
reiðarslag fyrir stuðningsmenn félags-
ins. Newcastle hefur byrjað leiktíðina
í Englandi skelfilega og reyndar að-
eins skorað eitt mark sem kom
einmitt í leiknum gegn Fulham.
Luque var keyptur til félagsins fyrir
einungis 20 dögum frá Deportivo La
Coruna fyrir 9,5 milljónir punda.
Roy Keane, fyrirliði ManchesterUnited, verður ekki með liði sínu
næstu tvær vikurnar vegna meiðsla á
lærvöðva. Hann mun því missa af
næsta leik Manchester United í
meistaradeildinni og
leikjunum gegn
Liverpool og Black-
burn í ensku úrvals-
deildinni. Þá er ekki
víst hvort hann
verður orðinn klár í
slag Írlands í und-
ankeppni HM en
framundan er afar þýðingarmikill
leikur gegn liði Sviss. Það er einnig
athyglisverð staðreynd að í þeim 23
leikjum sem Keane hefur misst af í
úrvalsdeildinni síðustu tvö árin hefur
United tapað 31 stigi.
Þrír leikir fóru fram í þýsku úrvals-deildinni í handbolta í gær. Mag-
deburg vann 36–24 sigur á Concord-
ia Delitzsch og skoraði Arnór Atlason
eitt mark í leiknum. Þá vann
Hamburg risasigur á Düsseldorf,
41–24 og skoraði Markús Máni
Michaelsson tvö mörk fyrir síðar-
nefnda liðið. Kiel vann svo góðan
sigur á liði Minden, 38–27, en Snorri
Steinn Guðjónsson skoraði fimm
marka Minden, þar af tvö úr víti.
Frank Lampard hefur játað að enskilandsliðsþjálfarinn Sven Göran
Eriksson hafði rétt fyrir sér þegar að
hann gagnrýndi
hann fyrir að vera
ekki í jafngóðu
formi og í fyrra. „Ég
byrjaði ekki vel í
fyrra en endaði
tímabilið sem fót-
boltamaður ársins.
Jose er mjög ánægður með mig og
ég hef rætt þetta við landsliðsþjálfar-
ann. Sven hafði alveg rétt fyrir sér en
mér fannst gagnrýni hans ekki sann-
gjörn því flestallir í enska liðinu eru
ekki í góðu formi. Ég hef samt engar
áhyggjur því ég ætla ekki að vera í
toppformi í upphafi tímabils heldur
að reyna bæta mig í allan vetur og
vera upp á mitt besta þegar það
skiptir mestu máli,“ sagði Lampard.
ÚR SPORTINU
FIMMTUDAGUR 15. september 2005
LAUGARDAGINN 17. SEPTEMBER
Í BEINNI
CHARLTON – CHELSEA
SUNNUDAGINN 18. SEPTEMBER KL. 11
LIVERPOOL – MAN.UTD
MÁNUDAGINN 19. SEPTEMBER KL. 19
ARSENAL – EVERTON
Kristján Örn Sigurðsson knattspyrnukappi í Brann:
Me› lægstu einkunn í Noregi
FÓTBOLTI Kristján Örn Sig-
urðsson knattspyrnukappi
með Brann í Noregi og ís-
lenska landsliðinu er ekki í
miklum metum hjá norsk-
um fjölmiðlamönnum.
Hann hefur reyndar átt
ágætu gengi að fagna á ár-
inu en hann hefur haldið
sæti sínu í byrjunarliði
Brann eftir að hafa fengið
sitt tækifæri snemma á
tímabilinu og hann hefur sömuleið-
is átt sæti í íslenska landsliðinu.
En íþróttablaðamann norska
dagblaðsins Verdens Gang meta
hann ekki betur en svo að hann er
lægstur allra þeirra sem hafa leik-
ið nóg af tímabilinu, 60% leikj-
anna, til að komast á listann. Krist-
ján Örn er í 141. sæti list-
ans með 3,73 í meðalein-
kunn en gefið er á skalan-
um einn upp í tíu. Fimm
Íslendingar leika í norsku
úrvalsdeildinni og hafa
allir leikið nóg til að kom-
ast á listann. Flestir eru
þeir fremur neðarlega á
listanum nema Árni
Gautur Arason, mark-
vörður Vålerenga, sem
er í 23. sæti.
„Ég reyni að fylgjast sem
minnst með þessu,“ sagði Kristján
Örn í gær þegar Fréttablaðið hafði
samband. „Þetta er enn allt tiltölu-
lega nýtt fyrir mér en mér finnst
að mér hafi gengið betur og betur í
hverjum leik.“ - esá
KRISTJÁN ÖRN Hefur
átt fast sæti í byrjun-
arliði Brann.