Tíminn - 08.08.1975, Blaðsíða 3

Tíminn - 08.08.1975, Blaðsíða 3
Föstudagur 8. ágúst 1975 TÍMINN 3 Nýr vegur úr Eyja- firði upp á hálendið ASK-Akureyri. Undanfarin ár hefur verið erfiðleikum bundið fyrir ferðamenn að komast nið- ur af hálendinu f Eyjafjörð. Hingaðtil má segja, að einungis hafi verið um tvær aðalaksturs- leiðir að ræða niður af þvi I dali Norðanlands, eða i Skagafjörð og Bárðardal. En nú i haust á að gera lokaátakið i vegarfram- kvæmdum i botni Eyjafjarðar, þannig að næsta sumar á þar aö vera greiðfær leiö. Að sögn Eiriks Björnssonar oddvita eru tvö vegarstæði inni i Eyjafjarðarbotni, Vatnahjalla- leið að vestan og vegur um Hólsfjall að austan, sem liggja upp á hálendið, en báðir þessir vegir eru brattir og raun'ar var vegur sá er Ferðafélag Akur- eyrar lagði um Vatnahjalla aldrei notaður. Helmingi nýja vegarins er fulllokið, en hann er um það bil 20 kilömetra langur. Eirikur sagði einungis vanta tæki til framkvæmdanna, fé væri þegar fyrir hendi. En þaö eru hrepp- arnir i innanverðum Eyjafirði, Akureyrarbær og Fjallvega- sjóður, sem lagt hafa til fjár- magn. Hins vegar hefur Vega- gerð rikisins útvegað tækin. Þegar þessi vegur opnast mun verða um auðvelda leið að ræða, en vegurinn liggur hvergi mjög hátt, og ætti þvi að verða mun lengur færent.d. Hólsfjallsveg- ur. Þá opnast fyrir ferðamenn ný og þægileg leið, Nauðlentu í Jökulsá á Brú íþróttafélagið Þór á Akureyri heldur afmælismót: NÝR KNATTSPYRNUVÖLLUR VÍGÐUR í GLERÁRHVERFI JK-Egilsstöðum. — Um tiuleytið á miðvikudagskvöidið nauðlenti eins hreyfils flugvél, af gerðinni Cessna 150 á grynningum i Jökulsá á Brú. Tveir menn voru i vélinni, báðir flugmenn úr Reykjavik, Sigurður Björgvins- son og Ingvi Grétarsson, og sak- aði þá ekki, en flugvelin er talin vera ónýt, þar sem hún marar i kafi úti i fljótinu, 50 m frá landi. Tíminn ræddi við Sigurð Björgvinsson á Egilsstöðum i gær. Kvað hann þá félaga hafa verið á leiðinni til Vopna- fjarðar,frá Egilsstöðum. Er þeir voru komnir út undir Kollumúla skall á þá svo mikið dimmviðri, að þeir afréðu að snúa við, og urðu skömmu siðar að freista nauðlendingar, er þeir voru staddir yfir Jökulsá. Heppnaöist nauðlendingin þannig, að vélin lenti út I ánni en mennirnir sluppu báðir ómeiddir. Urðu þeir að vaða ána, sem þarna er ill yfirferðar og yfir 50 metra ál að fara, en eftir tveggja tima för, eða undir miðnættið, komu mennirnir heim að Hólma- tungu, þar sem þeir gátu látið vita af sér. Hafði þá þegar verið hafin leit, er flugturninum á Egilsstöðum þótti óeðlilega langt siðan heyrzt hafði frá vélinni, og voru leitar- menn lagöir af stað. í gær héldu fulltrúar Loftferða- eftirlitsins austur til að kanna málavöxtu. ASK—Akureyri — Um helgina minnist Iþróttafélagið Þór af- mælis sins, sem var 6. júnisiðast- liðinn. t tilefni afmælisins verður vígður nýr knattspyrnuvöllur I Glerárhverfi, en vigsluleikurinn verður milli núverandi meistara- flokks Þórs og liðs skipað knatt- spyrnumönnum, sem voru i eld- linunni árið 1965 og árunum þar á undan. Laugardaginn 9. ágúst verður knattspyrnukeppni yngri flokka á Þórsvellinum milli liða Þórs og Vanfær ferðakona sótt fársjúk inn á öræfi Gsal—Reykjavik — 1 gærdag um klukkan fjögur barst hjálpar- beiðni til Slysavarnafélagsins frá Landamannalaugum, þar sem frá þvi var greint, að þritug kona sem væri I hópi brezkra ferða- manna við Strútslaug austan Torfajökuls, væri mjög alvarlega veik. Konan var ófrisk og var komin þrjá mánuði á leið. Hún fékk heiftarlegar blæðingar og þótti ekki ráðlegt að flytja hana landveginn til byggða. Þyrla Landhelgisgæzlunnar og SVFl var strax fengin til að fara á staðinn og fenginn var læknir frá Landspitalanum með i förina. Um kvöldmatarleytið bárust þær fréttir, að þyrlan hefði þurft að snúa viðsökum þoku og rigningar á þessum slóðum, — og þá var gripið til þess ráðs að senda björgunarsveitina Vikverja i Vik landleiðina að Strútslaug, en björgunarsveitin hafði verið reiðubúin að leggja i þá för strax eftir að hjálparbeiðnin barst. Skömmu fyrir kl. 19 I gærkvöldi lagði björgunarsveitin áleiðis að Strútslaug með allan nauðsynleg- an búnað, en leiðin þangað er Fara til Skálholts í 35 rútum Ö.B. Reykjavík — 1 dag kl. niu árdegis halda mótsgestir kristi- lega stúdentamótsins áleiðis til Skálholts. Haldið verður af stað frá Laugardalshöllinni, og munu flestir mótsgesta fara i ferðina, en til ferðarinnar þarf 35 lang- ferðabifreiðir. Komið verður við á Þingvöllum, þar sem sr. Eirik- ur Eiriksson þjóðgarðsvörður mun rekja sögu staðarins. Siðan verðurhaldiðáfram i Skálholt, og verður þar farið i skoðunarferð um staðinn og gerð grein fyrir sögu staðarins. Biskup Islands, herra Sigurbjörn Einarsson, mun flytja ræðu á samkomu, sem haldin verður i Skálholtskirkju. Að samkomunni lokinni verður haldið áleiðis til Reykjavikur um Grimsnes. Almenn samkoma verður siðan haldin i Laugardalshöll i' kvöld kl. 20.30 og mun sr. Jörgen Skydstofte tala. íslenzkur söng- hópur flytur einnig nokkur lög. mjög erfið yfirferðarog aðeins að litlu leyti fær bilum. Ekki er búizt við að björgunar- sveitin komi aftur til byggða með konuna fyrr en undir morgun i fyrsta lagi. Við Strútslaug er litið sæluhús. KA, en aðalhátiðahöldin hefjast klukkan 10 á sunnudagsmorgun. Verður safnazt saman við Akur- eyrarvöll og farið i skrúðgöngu út að Glerárskóla, þar sem Harald- ur Helgason, formaður Þórs, flyt- ur ávarp. Að aflokinni ræðu Haraldar verður vlgsluleikur, en þá verður kvennaknattspyrna. Þess má geta að nú fyrir skömmu fór fram fyrsti kappleikurinn i knatt- spymu kvenna, milli liðs Þórs og Iþróttabandalags Keflavikur. Þeim leik lauk með sigri Þórs með einu marki gegn engu. Siðar um daginn verður knatt- spymukeppni i yngri flokkum milli Þórs og KA, en einnig verð- ur viðavangshlaup i mörgum ald- ursflokkum kvenna og karla, þar sem öllum er heimil þátttaka. Kynferðisafbrota- maðurinn var í tygjum við piltinn — sem fannst látinn í sundlauginni í Kópavogi s.l. laugardagsmorgun Gsal-Reykjavik — samkvæmt uppiýsingum lögregiunnar i Kópavogi er ekkert sjáanlegt samhengi milli dauða Haildórs Einarssonar, sem fannst látinn I sundlaug Kópavogs sl. laugar- dag, — og kynferðisbrota manns- ins.sem úrskurðaður hefur verið i 30 daga gæzluvarðhald i Kópa- vogi, en sögusagnir hafa verið á kreiki um skyldleika þar á milli. Timinn hefur það eftir áreiðan- Tveir íslenzkir Norður- sjávarbdtar sviptir veiðileyfi vegna ofveiði? Gsal—Reykjavik — Samkvæmt upplýsingum hjá sjávarútvegs- ráðuneytisins, virðist sem Loftur Baldvinsson EA hafi brotið reglur um hámarksveiðar á sild I Norð- ursjó, en I reglum um þær veiðar er svo kveðið á um, að skipin megi aðeins veiða 135 lestir af sild austan við 4 gráðu v.i. Enn hefur ekki fengizt endanleg staðfesting á grun sjávarútvegsráðuneytisins hér að lútandi, en að sögn Jóns B. Jónssonar, fulltrúa i ráðuneytinu bendir allt til þess, að Loftur Baldvinsson hafi gerzt brotlegur við þessar reglur. Auk Lofts Báldvinssonar er annar bátur grunaður um að hafa brotið sömu reglur um veiöikvóta, en þaö er örn KE. Samkvæmt töium sem ráðuneytið fékk i gær, virðist þó sein örn KE hafi ekki brotið regl- urnar, en þaö mál er i rannsókn. Til þess að fylgjast með veiðum islenzkra báta á sildveiðunum I Norðursjó er skipstjórum þeirra gert skylt að senda upplýsingar um afla gegnum telex til Lands- sambands isl. útvegsmanna, og ennfremur gefa þeir upp það svæöi, þar sem bátarnir veiða. LítJ sendir siðan upplýsingarnar áfram til Fiskifélagsins. Samkvæmt eigin upplýsingum skipstjórans á Lofti Baldvinssyni, hefur skipið brotið reglur um veiðikvótann, og þvi liggur nán- ast beinast við að svipta skipið leyfi til sildveiðanna. Sjávarút- vegsráðuneytið hefur beðið skip- stjórann á Lofti um frekari upp- lýsingar um veiðarnar, en þegar Timinn hafði tal af Jóni B. Jóns- syni, fulltrúa i ráðuneytinu i gær, hafði svar ekki borizt frá skip- stjóranum. Þaö sem styrkir grun manna um ofveiði íslenzku skipanna er sú staðreynd, að það tekur hátt I tvo sólarhringa að sigla á þau mið, er veitt er á, frá Danmörku, eða um fjóra sólarhringa fram og til baka, — en islenzku veiðiskipin hafa landað I Danmörku miklu tiðar en eðlilegt þykir, og m.a. landaði Loftur Baldvinsson þrjá daga i röð i þessum mánuði, þann 5. 6. og 7. Ef það sannast á bátana, að þeir hafi brotið reglur um Norð- ursjávarsildveiðarnar munu þeir eflaust verða kærðir i ofanálag, eftir að þeir hafa verið sviptir leyfi. legum heimildum, að Halldór Einarsson hafi siðast, er hann sást meðal lifenda, verið með manni þeim, sem úrskurðaður hefur verið i gæzluvarðhald vegna ætlaðra kynferðisafbrota. Samkvæmt heimildum okkar hafði Halldór heitinn verið i nán- um tygjum við umræddan mann og hafði maðurinn launað Hall- dóri greiðann með ýmsu móti, þ.á.m. með áfengi. Eins og áður hefur komið fram i fréttum Tim- ans hefur umræddur maður verið úrskurðaður i gæzluvarðhald vegna ætlaðra kynferðisafbrota á fjölda unglinga i Kópavogi, og hafa drengirnir, er maðurinn hefur leitað á veriö allt frá 11 ára gamlir. Leiða má likur að þvi, að maðurinn hafi launað þeim öllum greiðann á svipaðan hátt og fram hefur komiö i sambandi við Hall- dór heitinn. Umræddur maður fékk hjarta- áfall við yfirheyrslur hjá rann- sóknarlögreglunni i Kópavogi i gær og var fluttur á Borgarspital- ann, þar sem lögreglumenn gæta hans. Maðurinn hefur starfað sem bréfberi i Kópavogi og sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum okkar, hefur lögreglan um all- langan tima haft manninn grun- aðan um þessa iðju sina, en sann- anir hafa ekki verið handbærar fyrr en nú. FLOTBRYGGJAN, sem ætlunin er að nota til að bæta aðstöðu Akraborgar i Reykjavlkurhöfn, stóö reiðubúin til notkunar þegar Ijósmyndara Timans bar að siðari hluta dags I gær. Var honum tjáö, aö til stæði að taka flotbryggjuna i gagnið við fyrstu hentugleika, sem munu hafa veriö i gærkvöldi eöa þá með morgninum. Rætistþá loks langþráður draumur Akraborgar-manna.sem nú geta nýtt skipið að miklum mun betur, er bifreiðarnar aka beint um borö I stað þess að þurft hefur aö hffa þær upp á þilfar fram til þessa. Timamynd: Róbert.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.