Tíminn - 09.08.1975, Síða 2
2
TÍMINN
Laugardagur 9. ágúst 1975
Viðbyggingin veröur þrjár haeðir, og þegar henni verður lokið 1978, verður sjúkrahúsið 10 þús. rúmmetr-
um stærra en nú er. Tímamynd ET
LOKIÐ VIÐ NÝJU SJÚKRAHÚS-
ÁLMUNA Á NORÐFIRÐI 1978
1 gær var ætlunin að taka i notkun bilaferjuna f Reykjavík, sem ger-
ir það að verkum, að Akraborgin nýtist mikiö betur en nú. En til-
raunin i gær tókst ekki sem skyldi, hönnunaratriði i sambandi við
tengingu brúar og skips þarf aö endurskoða, en þvi verki á að vera
lokið á þriöjudaginn, en þá er ætlunin aðreyna að nýju. Timamynd:
Róbert.
Ö.B.—Rvik. — Unnið er nú að
byggingu nýrrar álmu við sjúkra-
húsið á Neskaupstað. Lokið hefur
verið við að steypa upp kjallara
og fyrstu tvær hæðir hússins, en
það inun eiga að verða alls þrjár
hæðir, cða um 10.000 rúmmetrar
að stærð. Áætlað er, að byggingu
sjúkrahússins verði lokið á árinu
1978.
Stefán Þorleifsson, fram-
kvæmdastjóri sjúkrahússins á
Neskaupstað sagði i viðtali við
Timann að i kjallara hússins yrði
komið fyrir endurhæfingarstöð,
sem tæki yfir megniö af kjallar-
anum, en auk hennar verða þar
þvottahús, likskurðarstofa,
geymslur fyrir sjúkrabila o.fl. — t
„efri kjallara”, sem kallaður er,
verður vinnuaðstaða fyrir fjóra
lækna. Þar á að koma heilsu-
gæzlustöð, tvær skurðstofur,
röntgendeild, rannsókna- og
tannlæknastofa. A þriðju hæð
verður fæðingadeild. Þar verður
aðstaða fyrir 31 sjúkrarúm og
munu flest herbergin verða þri-
og fjórbýli, en þó verða tvö til
þrjú einbýli fyrir gjörgæzlu. t
tengibyggingunni, sem tengir það
gamla og hið nýja sjúkrahús
saman, verða búningsherbergi og
önnur slik aðstaða fyrir starfsfólk
hússins. Er fyrirhugað að þrjár
deildir verði við spitalann,
þ.e.a.s. skurðdeild, lyfjadeild og
röntgendeild.
Yfirlæknir sjúkrahússins er
Daniel Danielsson.
800 lögfræðingar koma
saman á norrænt lög-
INNVEGIÐ MJÓLKURAAAGN
Á LANDINU MUN MINNA
EN í FYRRA VEGNA KULDA
OG LÉLEGRAR SPRETTU
fræðingamót í Reykjavík
SAMTALS hafa mjólkurbúin i
landinu tekið á móti 54,2 millj.kg.
af mjólk fyrri hluta þessa árs.
Það er 920 þús. kg. minna magn
en á sama tima árið 1974, eða
1,67%.
Fyrstu mánuði þessa árs var
innvegið mjólkurmagn svipað og
var i fyrra, en i júni verður veru-
leg breyting, þvi þá er mjólkur-
framleiðslan i landinu 901 þús. kg.
minni en i júni i fyrra. Þessi sam-
dráttur i mjólkurframleiðslunni
má rekja til mikilla kulda i júni-
mánuði og lélegrar sprettu á
túnum. Bændur hafa treyst um of
á beitina og margir hverjir látið
kýrnar of fljótt út.
Reikna má með að innvegið
mjólkurmagn verði mun minna i
sumar og haust en var i fyrra,
bæði er það að útlit fyrir háar-
sprettu er lélegt þar sem svo seint
er slegið, og svo hefur grænfóöur
sprottið illa viðasthvar á landinu.
Fyrstu 6 mánuði þessa árs seld-
ust 24,6 millj. ltr. af nýmjólk, það
Eldsvoði á
Gsal-Reykjavik — i fyrrinótt kom
upp eldur i húsinu Bakkavegur 1 á
Þórshöfn á Langanesi, en luisið er
þriggja liæða meö útveggjum úr
steini, en að öðru lcyti timbur-
vcrk. Enginn bjó i húsinu, en unn-
ið hafði verið að endurbótum á
þvi um skeið og ýmsum breyting-
um. Ilúsiö varð alelda á skammri
stundu og fékk slökkviliö litið við
ráðið. Mildi var að vindur stóð af
húsinu, þvf ella hefðu næstu hús
verið i liættu.
Eldsins varð fyrst vart kl. rúm-
lega eitt i fyrrinótt og breiddist
hann fljótt út. Húsiö er talið nær
ónýtt. Eldsupptök eru ókunn.
Húsið var byggt árið 1930 og
það er i eigu Skúla Friðrikssonar.
var aukning frá fyrra ári um
8,1%. Sala a rjóma var 7,1% meiri
en i fyrra. Heldur hefur dregið úr
sölu á skyri, samtals var salan
814 tonn, það var tæpum 2%
minna en i fyrra. Nokkur aukning
varð i sölu undanrennu eða tæp
10%. Framleiðsla á ostum hefur
minnkað um tæp 8%. Framleiðsla
á smjöri fyrstu 6 mánuði ársins
voru 647 tonn, það var 12% minna,
en fyrri helming ársins 1974.
Birgðir af smjöri 1. júli voru 246
tonn.
Seld voru 709 tonn i ár á móti
1060 tonnum i fyrra. Mest munar
þar um söluna i júnimánuði i
fyrra, þá seldust hvorki meira né
minna en 345 tonn en i sama mán-
uði i ár seldust 106 tonn.
Stööugt verður aukning i sölu
Kvikmynda-
sýningar
fyrir útlenda
ferðamenn
VILHJALMUR Knudsen kvik-
myndagerðarmaður hefur nú i
mánuð sýnt myndirnar „Eldur I
Heimaey”og „Þjóðhátið á Þing-
völlum” i vinnustofu föður sins,
Ösvalds heitins Knudsen, i Hellu-
sundi 6A, Reykjavik, við góða að-
sókn, kl. 9 á hverju kvöldi.
Sérstakar sýningar eru fyrir
erlenda ferðamenn kl. 3 á daginn.
Eru þá sýndar með ensku tali
kvikmyndirnar „Eldur i Heima-
ey”, „Sveitin milli sanda”, og
„Heyrið vella á heiðum hveri”.
Sýningum átti að ljúka 9. ágúst
en Vilhjálmur hefur nú ákveðið
að halda sýningum áfram, út
þennan mánuð.
osta, i ár hafa selzt innanlands
fram til fyrsta júli 589 tonn, það
var tæp 10% aukning frá fyrra
ári.
A fyrri helmingi þessa árs voru
flutt út 251 tonn af ostum en 422
tonn á fyrra helmingi ársins 1974.
Ö.B.—Rvik. —Miðvikudaginn 20.
ágúst verður sett i Háskólabiói i
Reykjavik 27. þing norrænna lög-
fræðinga. Þingið mun standa
dagana 20.-22. ágúst, og mun dr.
Ármann Snævarr, scm er for-
maður islandsdeildar norrænu
lögfræðingaþinganna setja þing-
ið. Þátttakendur verða um 800
talsins, að inökum undanskildum,
sem verða um 500. Þátttaka
skiptist þannig: að frá islandi
verða 110, Sviþjóð 320, Danmörku
120, Norcgi 140 og Finnlandi 80.
Er þetta mun stærri hópur en
fyrirfram var búizt við. Þó mun
takast að útvega gistirými fyrir
alla, en margir munu búa á heim-
ilum, sem Ferðaskrifstofa rikis-
ins visar á. Árið 1972 voru rétt
eitthundrað ár liðin frá þvi fyrsta
þingið var haldið, en einmitt það
ár var 26. norræna lögfræðinga-
þingið haldið i Helsinki i Finn-
landi.
Framkvæmdastjóri þingsins er
Birgir Guðjónsson. Sérstakt póst-
hús verður opið i tengslum við
þingið.
Timinn biðst afsökunar á
mistökum, sem urðu við
birtingu fréttar á bls. 3 i
blaðinu í gær um mál kyn-
ferðisafbrotamanns i Kópa-
vogi og hörmulegt fráfall
ungs inanns.
Eins og tekið var fram i
fréttinni telur lögreglan i
Kópavogi ekkcrt sjáanlegt
samhengi milli láts piltsins
og afbrota mannsins.
Vatnsdalsá
Gisli Pálsson á Hofi i Vatns-
dal, hafði samband við Veiði-
hornið i gær, og kvað veiði i
Vatnsdalsá hafa verið góða á
þessu ári. Væru nú komir 434
laxar upp úr ánni, en á sama
tima i fyrra höföu veiözt 345
iaxar. Er þvi um verulega
aukningu á veiði aö ræða, eða
rúmlega 20%.
Undanfarið hafa útlendingar
verið i ánni, en i dag taka
Islendingar aftur við veiðirétt-
indum. Veiðifélag um ána hefur
verið starfandi I þrjú ár, og hef-
ur auglýst hana hverju sinni.
Hafa islenzkir aðilar haft veiði-
réttinn fyrri hluta sumars og i
lokin en um mitt sumar hafa
erlendir aðilar haft ána á leigu.
Forsvarsmaður þeirra er J.A.
Cooper, en Arnaldur Þór er full-
trúi hinna islenzku aðila. Eru öll
veiðileyfi seld á þessu sumri, og
fyrir nokkrum dögum birtist i
blöðum auglýsing veiðifélagsins
um ána næsta sumar.
Hrútafjarðará
Eirikur Gislason i Staðar-
skála veitti Veiðihorninu þær
upplýsingar i gær, að veiði i
Hrútafjarðará hefði verið mjög
góð i sumar, og væru komnir
eitthvað á annað hundrað laxar
á land, en ekki kunni hann að
segja okkur nákvæma tölu.
Leyfi er aðeins fyrir tvær steng-
ur i ánni, og halda veiðimenn-
irnir til i veiðiskála austan ár-
innar, miðja vegu milli brúar og
Réttarfoss sem er niðurundan
Grænumýrartungu en upp að
honum gengur laxinn. Veiði-
svæðið er allstórt, þvi að bakkar
árinnar liggja góðan spöl út eft-
ir firði, norðan brúar.
Það eru islenzkir aðilar, sem
hafa Hrútafjarðará á leigu, og
er litið selt út af veiðileyfum,
þar eð þeir nota þau mest sjálf-
ir.
Eirikur kvað laxinn vænan,
sem veiðzt hefði, og þó sérstak-
lega seinustu dagana. Þá hefði
veður verið einkar heppilegt til
veiða.
Einnig kvað Eirikur bleikju-
veiðina i Hrútafjarðará hafa
færzt mjög i aukana á undan-
förnum árum, og væri hér um
að ræða vænan og fallegan fisk,
allt að 7 pundum á þyngd.
Hofsá i Vopnafirði
Þegar Veiðihornið hafði sam-
band við Sólveigu Einarsdóttur
um tvö-leytið i gær, var Karl
prins ekki kominn frá veiðiskap,
en hann lét engan tima fara for-
görðum i dvöl sinni eystra og
hélt til veiða i býtið I gærmorg-
un. Prinsinn veiddi fjóra laxa á
fimmtudaginn og hafði þá alls
fengið 22laxa, en um veiði hans
i gærmorgun vissi Sólveig ekki,
þegar við töluðum saman.
Taldi Sólveig vist, að Karl
prins myndi taka eitthvað af
veiðinni heim með sér, svo að
búast má við þvi, að islenzkur
lax verði á borðum i Bucking-
ham-höll einhvern næstu daga,
veiddur af Karli prinsi.
Sólveig Einarsdóttir kvað um
560 laxa hafa veiðzt i Hofsá á
þessu sumri, og myndi stærsti
laxinn vera eitthvað um 20
pund.
Þá er silungsveiðin að byrja i
Hofsá fyrir alvöru, en hún hefur
verið hálftreg fram að þessu,
og er um að kenna miklu vatni
i ánni. öll veiðileyfi á þessu
sumri eru löngu seld, bæði hvað
snertir lax, 6stengur, og silung,
3 stengur.
Veiðimenn hafa aðallega
verið útlendingar i sumar, þó
hafa islenzkir aðilar haft ána á
leigu aðra hvora helgi.