Tíminn - 09.08.1975, Side 4
4
TÍMINN
mrtOOowrrm
Laugardagur 9. ágúst 1975
Kvikmynd um
ævi Onassis
Heyrzt hefur að nú eigi að gera
kvikmynd um ævi Onassis. Ant-
hony Quinn, sem er fæddur I
Grikklandi, mun eiga að leika
Onassis. Julie Christie er sögð
eiga að leika Jackie og kvik-
myndin muni vera gerð I Túnis.
En aðrir segja að kvikmyndin
veröi gerð i Grikklandi og aö
Jackie sjálf ætli að leika sjálfa
sig. Orðrómurinn mun hafa bor-
izt til eyrna Kennedyættarinnar
1 Bandarikjunum. Ekkja John
F. Kennedy er ekki lengur vel
séð f þeim hópi fyrir þetta til-
tæki, ef satt reynist. Svipað er
að segja um systur Onassis, frú
Garofallidou. Hér sjáiö þið
mynd af þeim mágkonunum,
frú Jackie og frú Garofallidou á
göngu á götu I Aþenu. Þeirra
vinskapur fer senniiega lika út
um þúfur, ef Jackie gefur sam-
þykki sitt til þessarar kvik-
myndatöku. Sjálf hefur Jackie
ekkert sagt opinberlega um
þetta mál.
„Fuglinn flaug
fjaðralaus"
Myndarlegi haninn sem
maðurinn heldur á er mjög
sjaldgæft fyrirbæri. Fjaðrir
vaxa ekki á honum. Er verið að
rannsaka hanann i hænsna-
vísindadeild Marylandháskóla,
en þetta fyrirbrigði er þekkt
þótt það sé mjög sjaldgæft. Tal-
ið er að einn af hverjum 100
milljónum hænsnfugla sé fædd-
ur með þeim ósköpum, að ekki
vaxi á honum fjaðrir.
Eyrnauglan er heldur betur
fjöðrum skreytt. Þessi býr i
Skotlandi og er öskrandi vond.
Þá reisir hún hálsfjaðrirnar og
gefur frá sér ógnandi hljóð.
Sennilega á ljósmyndarinn sök
á skapvonzku uglunnar, er hann
hefur orðið full nærgöngull við
hana að næturlagi.
Jtw 'iite
— Hvers vegna valdiröu þessa
vinnu, mamma?
— Dapurlegasti dagurinn I lifi
minu var þegar gamli hundurinn
minn lézt. Ég man það svo vel,
það var i vikunni, áður en konan
min dó.
— Þetta þvottþolna
veggfóður er svo
ágætt, en það er fjand-
ans erfiði að ná þvi af.
DENNI
DÆMALAUSI
„Ég ætla að taka þessa garð-
slöngu i gegn, sem er ekkert
nema óþekktin við niig”.