Tíminn - 09.08.1975, Qupperneq 12

Tíminn - 09.08.1975, Qupperneq 12
12 TÍMINN Laugardagur 9. ágúst 1975 Höfundur: David Morrell Blóðugur hildarleikur 89 — Ertu viss? Ég get hæglega sagt henni að þú sért ekki við. — Gerðu eins og ég segi maður. Gefðu mér samband við hana. FJÓRTÁNDi KAFLI. Teasle settist á skrif borðsstólinn og kveikti sér í síga- rettu. Annað hvort myndi sígarettan skýra hugsun hans eða umlykja hugsun hans þoku og sljóleika. Það var þess virði að reyna, því hann treysti sér ekki til að tala við hana svo óstyrkur sem hann var. Hann hinkraði við svo- litla stund og leið strax betur. Svo lyfti hann símtólinu upp að eyranu. — Halló, Anna? sagði hann hljóðlega. — Will? — Já. Rödd hennar var kverkmæltari og hásari en hann minntist, og röddin brast í sumum orðum hennar. — Ertu slasaður, Will? Ég óttaðist um þig. — Nei. — Það er satt. Þú ræður hvort þú trúir því eða ekki, en ég óttaðist um þig. Teasle teygaði að sér sígarettureykinn. Enn voru þau byrjuð á að misskilja hvort annað. — Ég meinti að ég er ekki slasaður. — Guði sé lof. Hún þagði og dró að sér andann, rétt eins og hún væri einnig með sígarettu. — Ég hef hvorki horft á sjónvarpið, lesið blöðin né neitt annað. Það var ekki fyrr en í kvöld að ég frétti hvað kom fyrir þig. Ég varð skelf ingu lostin. Ertu viss um aðekkertsé að þér? — Já. Teasle datt i hug að lýsa fyrir henni öllu, sem komið hafði fyrir. En það myndi aðeins hljóma eins og meðaumkvunarbón. — Ég hefði hringt miklu fyrr, ef ég hefði vitað um þetta. Ég vildi ekki láta þig halda, að mér stæði á sama um hvað kemur fyrir þig. — Ég veit það. Teasle starði á krypplaða ábreiðuna á sófanum. Það var margt mikilvægt, sem segja þurfti. En hann gat ekki komið sér til þess. Þetta skipti hann ekki lengur neinu máli. Þögnin milli þeirra var orðin of löng. Hann varð að segja eitthvað. Ertu með kvef ? Mér heyrist þú vera kvefuð. — Ég er að jaf na mig eftir síðustu pest. — Orval er dáinn. Teasle heyrði hana hætta að anda sem snöggvast. Ó — mér líkaði vel við hann. — Ég veit það. Þegar allt kemur til alls, þá líkaði mér mun betur við hann en ég hafði hugmynd um. Singelton er dauður og nýliðinn Galt, líka... — Segðu mér ekki meira, í guðs bænum. Ég vil alls ekki vita meira. Teasle hugsaði aðeins um orð sín. I raun og veru var ekkert að segja þegar allt kom til alls. Þó hann heyrði rödd hennar fann hann ekki til neinnar girndar. Hann þráði hana ekki. Þó hafði hann óttast það. Nú fann hann, að hann var loksins f rjáls.— Ertu enn í Kaliforníu? Hún svaraði ekki. — Það kemur mér líklega ekkert við, sagði hann. — Það er allt í lagi. Mér er sama. — Jú — ég er enn í Kaliforníu. — Nokkur vandræði? Vantar þig peninga? — Will? — Hvað? — Ekki þetta, Will. Ég hringdi ekki af þeim sökum. — Ég veit það. En vantar þig peninga? — Ég get ekki tekið við peningum f rá þér. — Þú skilur mig ekki. Ég held að allt verði í lagi með mig. Ég á við að ég tek þetta ekki eins nærri mér núna. — Það er gott. Ég hafði líka áhyggjur út af því. Þú máttekki halda, að ég vil ji særa þig, Will. — Ég á við, að mér líður miklu betur. Ef þig vantar peninga, er þér óhætta að taka við þeim. Ég er ekki að reyna að gera þig þakkláta til að geta fengið þig heim aftur. — Nei. — Leyfðu mér að minnsta kosti að borga fyrir þetta símtal. Ég skal borga það. — Ég get ekki þegið það. — Leyfðu mér að minnsta kosti að skrifa símtalið á skrifstof una. Þá er það bærinn sem borgar, en ekki ég. í guðs bænum leyfðu mér að gera eitthvað f yrir þig. — Ég get það ekki. Hættu þessu, hættu. Láttu mig ekki iðrast þess að hringja. Ég óttaðist að þetta myndi gerast. Það munaði minnstu að ég léti það vera að tala við þig. Teasle fann símtólið renna til í sveittum lófa sínum. — Þú ætlar þá ekki að koma aftur? — Ég ætlaði alls ekki að tala um þetta. Þetta er ekki ástæða þess.að ég hringdi. — En þú kemur ekki aftur. — Nei. Ég kem ekki aftur. Því miður. mmm i i LAUGARDAGUR 9. ágúst 7.00Morgunútvarp 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veöurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 14.00 A þriðja timanum Páll Heiðar Jónsson sér um þátt- inn. 15.00 Miðdegistónleikar Sinfóniuhljómsveit Lundúna leikur tónlist eftir ensk tónskáld. Sir Malcolm Sargent og Sir Arthur Bliss stjórna. 15.45 t umferðinni. Fréttir og veðurfregnir. tslandsmótið i knattspyrnu 1. deild. Jón Asgeirsson lýsir siðari hálf- leik i leik 1A og IBV á Akra- nesi. 16.45 Hálffimm. Jökull Jakobsson sér um þáttinn. 17.30 Nýtt undir nálinni. örn Petersen annast dægur- lagaþátt. 18.20 Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Hálftiminn Ingólfur Margeirsson og Lárus Óskarsson sjá um þáttinn, sem fjallar i þriðja og sið- asta sinn um ritskoðun og tjáningarfrelsi. 20.00 Hljóynplöturabb Þor- steinn Hannesson bregður plötum á fóninn. 20.45 A ágústkvöldiSigmar B. Hauksson annast þáttinn. 21.15 Astarljóðavalsar op. 52 eftir Johannes Brahms Irmgard Seefried, Raili Koska, Valdemar Kmentt og Eberhard Waechter syngja við pianóundirleik Eriks Werba og Gunthers Weissenborns. 21.45 Eyjavaka Óskar Aðalsteinn rithöfundur les frumortan ljóðaflokk. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Danslög 23.55 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok LAUGARDAGUR 9. ágúst 1975 18.00 íþróttir. Meðal annars myndir frá bikarkeppni Frjálsiþróttasambands Is- lands. Umsjónarmaður Ómar Ragnarsson. Hlé. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Dagskrá og auglýsingar. 20.30 Læknir i vanda. Brezkur gamanmyndaflokkur, eins konar framhald af „Lækni á lausum kili”. 1. þáttur. býðandi Stefán Jökulsson. 20.55 Rolf Harris. Brezkur skemmtiþáttur, þar sem ástralski söngvarinn Rolf Harris og fleiri leika og syngja og flytja ýmiss kon- ar gamanmál. Aðalgestur þáttarins (special guest star): Val Doonican. Aðrir gestir: Georgie Fame og Alan Price. Þýðandi Sigrún Helgadóttir. 21.35 Hátiðin mikla. (The Big Carnival). Bandarisk bió- mynd frá árinu 1951. Leik- stjóri Billy Wilder. Aðal- hlutverk Kirk Douglas, Jan Sterling, Bon Arthur og Porter Hall. býðandi Dóra Hafsteinsdóttir. Myndin gerist i litlum, bandarisk- um námabæ. Dag nokkurn lokast verkamaður inni i námugöngum. Blaðamaður, sem kemur þar að, sér að auðvelt er að bjarga mann- inum, en hann sér lika, að með þvi að telja björgunar- menn á að beita óhentugum aðferðum, getur hann skap- að stórfrétt handa blöðun- um og unnið sér frama i starfi. 23.20 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.