Tíminn - 09.08.1975, Side 16
Laugardagur 9. ágúst 1975
Nútima búskapur þarfnasf1
BJtlfEA
haugsugu
Guöbjörn
Guöjónsson
Heildverzlun S.röumúla
Sfmar 85694 & 85295
fyrir góéan wat
^ KJÖTIÐNAOARSTÖÐ SAMBANDSINS
ttalskir kommúnistar
fagna afdrifarikum
kosningasigri.
Ný stjórn í Portúgal
— Deilur portúgalskra herforingja fara harðnandi
Keuter—Lissabon — Ný rfkis-
stjórn — skipuð róttækum vinstri-
sinnum — undir forsæti Vasco
Goncalves forsætisráðherra tók
við völdum i Portúgal i gær. Ljóst
er, að á næstunni mun standa
mikill styrr um stjórnina, þar eð
áhrifamiklir foringjar i her
landsins og stærstu stjórnmála-
flokkar þess eru andvigir henni.
1 hinni nýju stjórn sitja átján
ráðherrar. Þeir eru ýmist her-
foringjar, sem taldir eru hliðholl-
ir kommúnistum, eða þá tækni-
fræðingar er hneigjast að marx-
isma, þótt þeir hafi yfirleitt ekki
haft bein afskipti af stjórnmálum.
Deilur portúgalskra her-
foringja fara harðnandi með degi
hverjum. í fyrrakvöld gáfu tiu
þekktir herforingjar út yfirlýs-
ingu, þar sem hin nýja stjórn er
harðlega gagnrýnd. T.d. er full-
yrt, að hún sé alls ófær um að
stjórna landinu, eins og sakir
standa.
Þristirnið — Goncalves, Fran-
cisco Costa Gomes forseti og
Otelo Saraiva de Carvalho hers-
höfðingi — hefur svarað gagnrýni
timenninganna. í svarinu segir,
að gagnrýnin þjóni aðeins þeim
tilgangi að auka enn á spennuna i
landinu. Þá hefur Jorge Correia
Jesuino upplýsingaráðherra gefið
i skyn, að timenningunum verði
refsað.
Timenningarnir voru ekki við-
staddir, þegar nýja stjórnin sór
embættiseið i gær. Carlos Fabio
yfirhershöfðingi var og fjarver-
andi i mótmælaskyni.
Egyptar íhuga að hefja
smídi kjarnorkuvopna
— Tilkynning í þá átt birt, um leið og likur
á nýju friðarsamkomulagi aukast
Reuter-Kairo. Egyptalandsstjórn
tilkynnti i gær skipun sérstaks
ráðs, er fjalla á um alhliða nýt-
ingu kjarnorku, þ.á.m. hugsan-
lega smiði kjarnorkuvopna.
Anwar Sadat forseti er formaður
ráðsins.
Tilkynning egypzku stjórnar-
innar kom nokkuð á óvart, þar eð
likur benda til, að bráðabirgða-
samkomulag milli Egypta og
Verður
Japönunum
tíu
sleppt?
Reuter-Tripoli. Libiustjórn
ihugar nú, hvort hún eigi að
láta lausa þá tiu félaga úr
japönsku hryðjuverkasamtök-
unum Rauði herinn, er komu
til Libiu i gærmorgun með
þotu frá Malasiu.
Ekki þarf að rekja forsögu
þessa máls — hún er flestum
kunn. Japanirnir gáfust upp,
um leið og þeir stigu út úr þot-
unni á flugvellinum við
Tripoli. Ekki er ljóst, hvort
Libiustjórn hafði áöur heitið
þeim frelsi.
Israelsmanna um frið á Sinai--
skaga sé á næsta leiti. Frétta-
skýrendur benda þó á, að tilkynn-
inguna megi skoða sem svar
Egypta við þrákelkni Israels-
manna við að skrifa undir sátt-
mála Sameinuðu þjóðanna um
bann við útbreiðslu kjarnorku-
vopna. (Sjálfir hafa Egyptar
skrifað undir sáttmálann, en ekki
staðfest hann.).
Von ó ísöld
þrótt fyrir
hitabylgju
Reuter-London. Sem kunnugt
er hefur mikil hitabylgja
gengið yfir Evrópu að undan-
förnu. Það eru þvi margir
Evrópubúar — þó ekki Islend-
ingar! — sem skopast þessa
dagana að kenningum veður-
fræðinga um, að ný minnihátt-
ar isöld sé i vændum á norður-
hveli jarðar.
Veðurfræðingar sitja þó fast
við sinn keip og benda á, að
meðalhiti hafi farið lækkandi
siðustu þrjátiu ár. Slik lækkun
meðalhita komi þó ekki i veg
fyrir, að hitabylgjur gangi yfir
við og við.
Viöa gætir nú bjartsýni, að nýtt
samkomulag um frið á Sinai-
skaga verði gert innan tiðar.
Gerald Ford Bandarikjaforseti
lét svo um mælt i fyrrakvöld, að
sterkar likur væru á samkomu-
lagi eins og sakir stæðu. Egypzkir
embættismenn hafa tekið undir
orð Fords; en um leið tekið fram,
að Egyptar yrðu að vera við öllu
búnir, unz gengið hefði verið frá
hinu nýja samkomulagi.
Verð á
kaffi
hækkar
á heims-
markaði
NTB-Ösló. NTB-fréttastofan
hefur eftir áreiðanlegum
heimildum, að verð á kaffi eigi
cftir að hækka i haust.
Heimsmarkaðsverð á kaffi
hefur hækkað að undanförnu
vegna uppskerubrests i Brasi-
liu. Hve mikil hækkunin verð-
ur, er aftur á móti erfitt að sjá
fyrir. A.m.k. réð heimildar-
maður NTB neytendum frá
þvi að hamstra kaffi.
Ný stjórnarkreppa
í aðsigi á Ítalíu
— Dökkt útlit í ítölskum efnahagsmálum
Reuter-Róm Italiustjórn lagði
fram í gær nýjar tillögur til lausn-
ar á aðsteðjandi efnahagsvanda.
Tillögúrnar — sem álitnar eru
siðasta tilraun núverandi stjórn-
ar til að sigrast á efnahagsvand-
anum — gera ráð fyrir, að 3500
milljörðum lira (u.þ.b. 800
milljörðum Isl. króna) verði veitt
úti efnahagslifið, til að lifga það
við.
Fréttaskýrendur eru á einu
máli um, að dagar minnihluta-
stjórnar kristilegra demókrata og
lýöræðissinna séu senn taldir.
Italskir stjórnmálamenn virðast
þó ekki almennilega hafa áttað
sig á hinum mikla sigri kommún-
ista i héraðs- og sveitarstjórnar-
kosningunum fyrr I sumar —
sigri, er hlýtur að hafa mikil áhrif
á stjórnmálaþróun á Italiu á
næstunni.
Sérfræðingar segja, að útlit i
itölskum efnahagsmálum sé
dökkt. Atvinnuleysi er mikið — á
að gizka tiu milljónir ítala eru nú
atvinnulausir — og að öllum lik-
indum á atvinnuleysið eftir að
aukast.
Það er þvi sýnt, að hverju
stefnir á ttaliu: Nýrri stjórnar-
kreppu með ófyrirsjáanlegum af-
leiðingum.
Marchais, leiðtogi franskra kommúnista:
Förum okkar eigin
leiðir án afskipta
sovézkra ráðamanna
Reuter—Paris — Georges Mar-
chais, leiðtogi franskra kommún-
ista, lét svo um mælt I gær, að
kommúnistar i Frakklandi færu
sinar eigin leiðir — óháð þvi, er
sovézkir ráðamenn kysu.
og sósialista, er ógnað hefur
áframhaldandi samvinnu flokk-
anna. Agreiningurinn virðist þó
ekki vera eins djúpstæður og af
hefur verið látið, ef marka má orð
Marchais.)
Þetta kom fram á fundi með
fréttamönnum i gær. Nýlega birti
Pravda málgagn sovézka komm-
únistaflokksins grein, þar sem öll
frávik frá hinni leninisku stefnu
eru harðlega fordæmd. Frétta-
skýrendur lita svoá, að greinin sé
dulbúin árás á þá stefnu franskra
kommúnista að hafa nána sam-
vinnu við sósialista.
Marchais vék að greininni og
sagði: — Stefna franskra komm-
únistaflokksins er mótuð I Parls,
en ekki I Moskvu...... afstaða
okkar er byggð á þeim forsend-
um, sem eru fyrir hendi i Frakk-
landi, ekki utan þess.
Fréttamannafundurinn var
annars boðaður, til að kynna
efnahagsstefnu franskra komm-
únista. Marchais sagði I þvi sam-
bandi, að kommúnistar stefndu
enn að þvi að ná völdum I sam-
vinnu við sósialista og önnur öfl á
vinstri væng franskra stjórn-
mála. (Að undanförnu hefur kom-
ið upp alvarlegur ágreiningur
milli forystumanna kommúnista
Marchais: Gefur Sovétmönnum
langt nef.
íhaldsmenn
14% yfir
í Bretlandi
Reuter-London. Samkvæmt
niðurstöðum skoðanakönn-
unar, er birtar voru I gær, nýt-
ur thaldsflokkurinn nú 14%
meira fylgis meðal brezkra
kjósenda en Verkamanna-
flokkurinn.
Niu mánuðir eru siðan
Bretar gengu að kjörborðinu,
svo að Ihaldsmenn, sem að
vonum eru ánægðir með
niðurstöðurnar, þurfa að biða
rúm fjögur ár, unz þeir fá
tækifæri til að leggja stjórn
Verkamannaflokksins að
velli. (Að sjálfsögðu getur
stjórnin sagt af sér fyrr.)
Minnkandi
uppskera
innan EBE
Reuter-Luxemborg. I skýrslu,
er nýlega var gefin út á vegum
Efnahagsbandalags Evrópu,
er áætlað, að kornuppskera i
aðildarrikjum bandalagsins
minnki I ár — samanborið við
fyrra ár. Það er I fyrsta sinn
frá þvi 1970, að kornuppskera
dregst saman I EBE-rikjum.
Búizt er við, að kornupp-
skera i ár nemi 101-102
milljónum tonna, sem er 5-6%
samdráltur miðað við árið
1974. Hinir miklu þurrkar i
Evrópu nú 1 sumar eiga ef-
laust sinn þátt i minnkandi
uppskeru innan vébanda
EBE.