Tíminn - 15.08.1975, Blaðsíða 1
sáttasemjari Múlakvíslarbrú
BAÐ UM FREST
BH-Reykjavík. — Það var engin ákvörðun tekin i dag,
sagði Hilmar Jónsson, formaður Sjómannafélags Reykja-
vikur i viðtali við Timann i gærkvöldi. — Við mættum á
fundi hjá sáttasemjara, Guðlaugi Þorvaldssyni, háskóla-
rektor, og hann fór þess á leit við okkur, að við gerðum
ekkert i málinu fyrr en honum hefði gefizt tækifæri til að
kanna stöðuna hjá báðum aðilum. Hann kvað nýjan fund
sjómanna og útgerðarmanna aftur verða haldinn á mánu-
dag kl. 2, og væntanlega lægi þá eitthvað fyrir, a.m.k.
þyrfti hann helgina til þess að athuga möguleikana. Þetta
fannst okkur, fulltrúum undirmanna á kaupskipunum
ósköp anngrörn málalitan, og amþhkktim þett nyrir
okkar leyti, þannig að það er ekki búið að boða til verkfalls
enn, og verður ekki gert fyrr en i fyrsta lagi eftir að við
sjáum, hvað kemur út úr þessum fundi á mánudaginn.
DOLLAR HÆKKAR
Gsal-Reykjavik — Bandariski
doilarinn er nú skráður á 159,80
islenzkar krónur, og hefur hann
hækkað verulega á siðustu vikum
sem sézt bezt á þvi, að um
mánaðamótin mai—júni var hann
skráður á rúmlega 150 krónur
islenzkar. Þessar breytingar á
dollaranum eru okkur islending-
um hagstæðar, að þvi leyti til, að
við höfum selt verulegan hluta af
okkar útflutningi fyrir dollara,
eða um 60% — en keypt mun
minna inn af vörum fyrir þá
mynt. Doliurunum hefur siðan
veriðskipt i aðrar erlendar mynt-
ir, — og þvi er það ágóði fyrir
okkur þegar hann stigur i verði.
Sérfræðingar i fjármálum hafa
talið, að Bandarikjadalur hafi um
langan tima verið of lágt skráður
og þvi sé þessi hækkun hans eðli-
leg.
Telja þeir, að dollarinn geti
enn hækkað eitthvað.
komin í lag
ö.B. Reykjavik. — Tekizt hefur
aö koma upp bráðabirgðaoka
undir Múlakvislarbrúna, og var
allri léttari umferð hleypt yfir
brúna klukkan átta i gærkvöldi.
Að sögn Helga Hallgrimssonar
yfirverkfræðings hjá Vega-
gerðinni er vonazt til að hægt
verði að hleypa allri umferð yfir
brúna einhvern tima i dag.
Ekki mun vera búið að ganga
endanlega frá viðgerð brúarinnar
og mun það taka nokkurn tima að
gera varanlega við skemmdirnar
sem urðu.
Eins og kunnugt er tók áin með
sér vestasta stöpul brúarinnar og
seig brúin talsvert við það. Um
það bil ein vika er liðin siðan
þetta gerðist og hefur verið unnið
af kappi við að koma hringvegin-
um I samband að nýju. Hefur
verkið sótzt mjög erfiðlega sakir
mikils vatns i ánni, og hefur áin
hvað eftir annað brotið sér nýjan
farveg þótt reynt hafi verið að
hemja hana með þvi að ryðja af
henni möl.
Utibússtjóri:
Ábyrgðin
gjaldker-
anna en
ekki
Seðla-
bankans
Brúarvinnumenn hafa unnið
nær sleitulaust að bráðabirgða-
viðgerð á brúnni yfir Múlakvisl,
og hefur verið stefnt að því, að
opna brúna fyrir umferð i dag.
Þessi mynd var tekin af við-
gerðarmönnum við vinnu sina i
gærdag.
ÞURRKA HEYIÐ
VIÐ HVERAHITA
i dag gengur I gildi nýtt verð á fargjöldum innanlands og nemur
hækkunin sautján af hundraði. Myndin sýnir eina af Fokker-vélum
Flugfélagsins.
17% HÆKKUN
FLUGFARGJALDA
INNANLANDS
Gsal -Reykjavik — Það er kunn-
ara en frá þurfi að segja, að
óþurrkatið hefur verið með ein-
dæmum mikil sunnanlands i sum-
ar og það segir sina sögu, að sum-
ir bændur hafa ekki komið inn
stingandi strái, — og er þó kom-
inn miður ágúst. Feðgarnir á
Spóastöðum i Biskupstungum,
Þórarinn Þorfinnsson og Þorfinn-
ur Þórarinsson hafa gripið til
þess ráðs i óþurrkatíðinni að
þurrka heyið með hverahita og
hefur sú aðferð þeirra heppnazt
með ágætum og eru þeir feðgar
nú langt komnir með heyskap.
Þorfinnur sagði i viðtali við
Timann i gær, að þeir hefðu ekki
reynt þessa aðferð að neinu
marki fyrr, en I sumar hefðu þeir
fest kaup á elementum úr blikk-
smiðju, leitt heitavatnsrör i aðra
hlöðuna og tengt þennan útbúnað
við súgþurrkunina.
— Loftið I hlöðunni hitnar með
þessari aðferð upp i 10—12 gráð-
ur, mismunamdi eftir þvi hversu
heitt er I veðri, og það virðist
muna mjög miklu um þessa hita-
aukningu, hvað heyið þornar fyrr.
Þorfinnur sagði, að allt vatn
yrði að vera farið úr heyinu, áður
en það væri sett I hlöðuna, og
nefndi, að yfirleitt dygði að láta
heyið liggja úti daglangt, áður en
það væri sett i hlööu. „Við ótt-
umst talsvert, að heyið kunni að
ofþurrkast með þessari aðferð, en
það á eftir að koma I ljós”, sagði
hann.
Þorfinnur sagði, að þeir væru
búnir að fylla þá hlöðu, sem þessi
útbúnaður væri i, en ekki k.vaðst
hann vilja gizka á hvað marga
hestburði þeir hefðu þurrkað á
þennan máta. Þorfinnur sagði, að
stofnkostnaður væri talsverður,
og kvað t.d. elementin hafa kost-
að um 180 þús. kr. ,,En þetta
getur borgað sig ef mikið af heyi
bjargast fyrir þetta eitt”, sagði
hann.
HHJ-Rvik — A rikisstjórnarfundi
i gær var m.a. fjallað um mála-
ieitan brezkra stjórnvalda þess
efnis, að hafnar yrðu viðræður
um útfærslu Islenzku fiskveiðilög-
sögunnar. Að sögn Einars
Agústssonar var ákveðið að biða
frekari skýrslu um málaleitan
Breta frá Nielsi P. Sigurðssyni
sendiherra, en hans er von til
landsins i dag, og taka siðan
ákvörðun um hugsanlegar við-
ræður við Breta.
Þorfinnur sagði, að hey hefði
hrakið mikið i Biskupstungum og
mikið af heyi bænda væri ekki
nema hálfvirði. „Það hefur ekk-
ert hrakið hjá okkur fram að
þessu, en við eigum enn eftir að
hirða tæpan 1/3 og komum ekki
meiru i þessa hlöðu, en hin hlaðan
er ekki búin svona útbúnaði”,
sagði hann.
Þorfinnur sagði að lokum, að
þeir feðgar myndu nota þessa
aðferð áfram á næstu árum, jafn-
vel þótt tið yrði góð. Kosturinn
væri aðallega sá að geta hirt
heyin fyrr en ella.
Auk Breta hafa aðeins
Vestur-Þjóðverjar farið fram á
viðræður um þessi mál.
Þá var á fundi rfkisstjórnarinn-
ar ákveðið að fela utanrikisráðu-
neytinu að svara þeim mótmæl-
um Sovétmanna við einhliða út-
færslu, sem sagt var frá i blaðinu
i gær. Utanrikisráðherra sagði,
að I svarinu yrði ítrekað, að við
hygðumst færa út I 200 sjómilur
eftir tvo mánuði.
Gsal-Reykjavlk — Flugfargjöld á
öiium fiugieiðum innanlands hafa
verið hækkuö um 17% og tekur
hækkunin gildi frá og með degin-
um i dag. Þessi hækkun var sam-
þykkt á fundi verðlagsnefndar i
fyrradag, en þá var ennfremur
samþykkt að heimila dagblöðun-
um að hækka áskriftarverð um
kr. 100 á mánuði, þ.e. úr kr. 700.- i
kr. 800.- Verðlagsnefnd ákvað
einnig á þessum fundi sinum að
lækka verð á smjörliki allveru-
lega.
Hjá Flugfélagi Islands fékk Timinn þær upplýsingar i gærkvöldi
að verðbreytingar á helztu flugleiðunum væru þessar, og er mið-
að við flug frá Reykjavfk. fyrir eftir
hækkun hækkun
Akureyri 2870,- 3360,-
Hornafjörður 3460.- 4040,-
Húsavik 3230,- 3770.-
ísafjörður 2660,- 3110.-
Vestmannaeyjar 1810.- 2120.-
Sauðárkrókur 2560.- 2990.-
Egilsstaðir 3900.- 4550,-
Tekið skal fram að verð það, sem hér hefur verið skráð á einstök-
um fargjöldum er án flugvallarskatts, en hann nemur kr. 350 fyrir
hvora leið.
Beðið eftir Níels