Tíminn - 15.08.1975, Blaðsíða 5

Tíminn - 15.08.1975, Blaðsíða 5
Föstudagur 15. ágúst 1975 TÍMINN 5 Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt Valsmenn í undanúrslit markinu brennd og sú afstaOa, sem blaðiö hefur ávallt tekiO viO svipaOar kringumstæOur.” Borin von ÞaO er alveg rétt, sem bent er á i leiðara AlþýOublaOsins, að AlþýðubandalagiO getur ekki hreinsað af sér kommún- istastimpilinn. Foringjar flokksins eru alltaf viö sama heygarðshornið, þótt skipt sé um nafn á flokknum öðru hverju. Og vist er um það, að fari svo, að Alþýðuflokkurinn hverfi af sjónarsviðinu, þá munu jafnaðarmenn ekki fylkja sér um Alþýðubanda- lagiö, eins óg formaöur þess er aö vona. Jafnaðarmenn eru búnir að fá sig fullsadda af kommúnistum i hvaöa gervi, sem þeir birtast. —a.þ. VALSMENN tryggðu sér rétt til að leika i undanúrslitum Bikarkeppni KSl, þegar þeir sigruðu Vestmannaeyinga auðveldlega á Melavelli I gær- kvöldi með fimm mörkum gegn einu. Eins og markatalan gefur til kynna réO Valsliöið öllu um gang leiksins og var sigur þeirra aldrei f hættu. Ingi Björn Albertsson skor- aði þrjú mörk i leiknum, „hat- trick” og voru það fyrstu mörk leiksins. Staðan i hálfleik var 2:0 og skoraði Ingi Björn bæði mörkin og hann' bætti sinu Gsal-Reykjavik — Surtsey VE 2 var staðin að meintum ólöglegum veiðum 0,9 sjómilur fyrir innan leyfileg mörk út af Dyrhólaey i fyrrinótt. Mál skipstjórans var tekið fyrir hjá bæjarfógetaemb- ættinu I Vestmannaeyjum i gær, en ekki er að vænta dómsbirting- þriðja marki við i byrjun sið- ari hálfleiks. Hermann Gunnarsson skoraði siðan mark fyrir Val og Hörður Hilmarsson átti siöasta orð Valsmanna, er hann skoraði örugglega úr vitaspyrnu. Er 5 min. voru til leiksloka tókst Vestmannaeyingum aðeins að rétta úr kútnum, er örn Óskarsson skoraði mark. Liðin, sem leika i undanúr- slitunum, eru þvi KR, Akra- nes, Keflavik og Valur, — en i dag verður dregið um það, hvaða lið muni leika saman. ar fyrr en í dag. Búizt var við að dómur yrði upp kveðinn i máli skipstjóranna á Gusti SH og Gullfaxa SH i Stykkishólmi i gærdag, en svo var þó ekki gert og er búizt við dóms- niðurstöðum i dag, að sögn for- mælenda landhelgisgæzlunnar. Auglýsid' i TÉmanum Enn einn bátur tekinn fyrir landhelgisbrot hætti og Alþýðubandalagið hefur leitt hjá sér að setja sér flokksstefnuskrá, sem sker úr um hvers kyns flokkur það sé. Það er i meira lagi undarlegt, hve forystumönnum Alþýðu- bandalagsins hefur haldizt uppi gagnvart kjósendum flokksins að draga fjööur yfir tviskinnunginn i afstöðu flokksins til pólitiskra grund- vallaratriða. Það er ekki hvað sizt furðulegt þegar mið er tekið af þvi, að engir stjórn- málamenn á islandi hafa opinberlega og afdráttarlaust lofsungið jafn mikil grimmd- ar- og niöingsverk með jafn mikilli mannfyrirlitningu og ýmsir, sem enn skipa forystu- sveit Alþýðubandalagsins.” Með kommúnista marki brennd Þá segir Alþýðublaðið: „En þótt mönnum geti tekizt L um einhverja hrið að leyna skugga sinum fyrir aftan sig, þá er það á einskis manns færi að urða hann fyrir fullt og allt. Það tekst forystumönnum Al- þýðubandalagsins — þeim valdahring, sem stendur að Þjóðviljanum — ekki heldur. Svartur skuggi einræðis- kommúnismans, sem af þeim leggur, kemur nú betur og bet- ur i ljós eins og marka má af skrifum Þjóðviljans um at- burðina i Portúgal. Sú afstaða, sem blaðið tekur i þeim mál- um, er sama kommúnista- A myndinni má sjá Guðmund Magnússon, sveitarstjóra ásamt full- trúum gefenda og Pétri Traustasyni, augniækni. Lionsfélagar á Egilsstöðum gefa augnskoðunartæki J.K. Egilsstöðum. — IIcilsu- gæzlustöðin á Egilsstöðum hefur nú fengið augnskoðunartæki sem Lionsklúbburinn Múli festi kaup á og gaf til stöðvarinnar. Björn Agústsson formaður klúbbsins afhenti tækin og Guðmundur Magnússon sveitarstjóri á Egils- stöðum veitti þeim móttöku fyrir hönd stjórnar heilsugæzlu- stöðvarinnar. Pétur Traustason augnlæknir sem er að störfum hér þessa dagana skýrði notagildi tækjanna fyrir gestum sem viðstaddir voru afhendinguna. Tækin eru sviss- nesk af vönduðustu gerð. Með þeim má mæla sjónskekkju og þá er einnig hægt að rannsaka gláku i tækjunum auk annarra augn- skoðana. Þetta eru einu tækin sem til eru utan Reykjavikur og Akureyrar til þessara nota og verða þau til afnota fyrir augn- lækna sem fara hér um i skoðana- ferðir á vegum landlæknis. Lions- klúbburinn Múli bauð gestum til kaffidrykkju að lokinni afhend- ingu og voru þar flutt ávörp. Kom þar m.a. fram að Lionshreyfingin hefur haft sjónvernd sérstaklega á stefnuskrá sinni og árið 1972 var efnt til landssöfnunar i þessu skyni og svo kölluð rauð fjöður seld . þessu málefni til styrktar. Söfnunarféð nam um 5 millj. króna og fékk Lionsklúbburinn hér 200 þús. krónur til þessara tækjakaupa og lagði 200 þús. krónur á móti. Aðflutningsgjöld voru felld niður af tækjunum. Heilsugæzlustöðin hér er nær full búin, frágangi húsnæðis er aö fullu lokið og tækjabúnaður að mestu kominn upp, þar á meðal ný röntgentæki og ný tannlækna- tæki. Ragnar Steinarsson tann- læknir er nýtekinn til starfa hér. Heimild hefur nú fengizt til að þrir læknar starfi við stöðina og tekur Guðfinnur Sigursteinsson læknir til starfa hér um næstu áramót og mun starfa við stöðina auk héraðslæknanna tveggja, þeirra Guðmundar Sigurðssonar og Þorsteins Sigurðssonar. Á þessu ári eru 70 ár. liðin frá þvi að fyrsta sjúkraskýlið á Héraði var byggt, en það vár á Brekku i Fljótsdal. Byggingu þess var lok- ið haustið 1905 og kostaði húsið fullgert tæpar 16 þúsund krónur. Aðal hvatamaður að byggingu þess var Jónas Kristjánsson, sem þá var laékiiir á Brekku. Nýkomið — Nýkomið Að fela skuggann sinn Á landsfundi Alþýðubanda- lagsins sl. haust mun formað- ur þess, Ilagnar Arnalds, hafa látið i Ijós þá skoðun, að Al- þýðuflokkurinn væri að deyja út og það væri hlutverk Al- þýðubanda- lagsins aö f y 11 a þa ð tómarúm, sem Alþýðu- flokkurinn skildi eftir sig. Eftir að Al- þýðublaðið hóf útkomu sina aftur, hefur þaö bent á það djúp, sem staðfest er milli jafnaðarstefnunnar og komm- únismans og tilraunir forystu- manna Alþýðubandalagsins að fela skugga sinn. Um þetta er fjallað i leiðara i Alþýðu- blaðinu i gær og þar segir m.a.: „Þeir hafa komið fram fyrir almenning, barið sér á brjóst og þótzt vera róttækir en hreinhjartaðir þjóðernissinn- ar, stuðningsmenn þjóðfrelsis og mannréttinda. Margsinnis hafa ýmsir forystumenn Al- þýðubandalagsins látið eftir sér hafa, að eiginlega væru þeir svona hér um bil jafnað- armenn en leitt hjá sér að svara öllum frekari spurning- um um grundvallarafstöðu sina i stjórnmálum með sama Tökum upp í dag margar nýjar gerðir af sófasettum á mjög hagstæðu verði Opið til kl. 7 d föstudögum — Lokað ó laugardögum 28-600 Byggingavörukjördeild 28-602 Raftækjadeild 28-601 Húsgagnadeild 28-603 Teppadeild

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.