Tíminn - 15.08.1975, Blaðsíða 19
Föstudagur 15. ágúst 1975
TÍMINN
19
I
Framhaldssaga
íFYRIR
RÖRN
Herbert Strang:
Fífldjarfi
drengurinn
Hjá honum var öll
von úti. Niðri i garðin-
um hafði lið hans
tvistrazt, og nú flýði
það i allar áttir. Ým-
ist klifruðu menn yfir
virkisgarðana eða
þeir stukku út á flek-
ana. Greifinn af Brent
var nú kominn i kast-
alann og ruddist
gegnum þvöguna,
sem var óðum að
þynnast. Hann þaut
upp stigann og mætti
óvini sinum einsöml-
um við dyrnar á litla
herberginu.
Þarna á litla stein-
þrepinu hófst nú ná-
vigi milli þessara
tveggja manna. Það
var hörð viðureign, en
skammvinn. Margeir
greifi féll fyrir heljar-
miklu axarhöggi af
hálfu andstæðings
sins, og siðan berg-
málaði kastalinn af
sigurópum fylgis-
manna sigurvegar-
ans.
Greifinn af Brent
hafði skilið Alan eftir
úti fyrir kastalanum.
Konungurinn beið þar
lika meðal riddara
sinna og hermanna.
Þeir heyrðu óp og
vopnabrak innan úr
kastalagarðinum.
Brátt sáu þeir, að
menn Margeirs greifa
voru lagðir á flótta.
Þeir klifruðu yfir
virkisveggina og
stukku út á flekana,
sem þeir höfðu fleytt
sér á yfir vigisgröf-
ina. En flótti þeirra
var stöðvaður. Bakki
vigisgrafarinnar var
þéttskipaður mönnum
konungs sem tóku alla
flóttamennina til
fanga.
ísafjörður
Framsóknarfélag ísafjarðar heldur héraðsmót kl. 20,30 í félags-
heimilinu Hnifsdal 23. ágúst. Eirikur Sigurðsson setur mótið.
Ræður flytja Steingrimur Hermannsson og Ólafur Jóhannesson.
Óperusöngvararnir
Svala Nielsen og Guðmundur Jónsson syngja við undirleik Carl
Billich. Villi, Gunnar og Haukur leika fyrir dansi. Allir velkomn-
ir.
Stjórnin.
Strandasýsla
Héraðsmót framsóknarmanna i Strandasýslu verður haldið
laugardaginn 16. ágúst i Arnesi. Ræður flytja Gunnlaugur Finns-
son, alþingismaður og Pétur Einarsson. Karl Einarsson
skemmtir.
Þyrlar leika fyrir dansi.
Árnessýsla
Sumarhátið Framsóknarmanna i Árnessýslu verður haldin að
Arnesi 30. ágústog hefst kl. 9. Nánar auglýst siðar.
Fundur framkvæmdastjórnar
Fundur verðurhaldinn i framkvæmdastjórn Framsóknarflokks-
ins á I dag,. föstudag kl. 4, á skrifstofu flokksins að Rauðarár-
stig 18.
O Fjallkona
I lok januármánaðar 1878,
fæddist fimmta barn þeirra, Páll.
Þegar hann var tveggja vikna
gamall, tóku þau sig upp með
nokkrum nágrönnum sinum, og
lögðu upp i vetrarhörkunni til að
nema land á ný i Cavilier i Norður
Dakota. — Konur og börn fengu
að sitja i farartækjúm sem uxar
drógu, en karlar löbbuðu alla
leiðina. Margir sneru aftur heim
að vötnunum i Manitoba, en Gott-
skálkur og Hólmfriður bjuggu
fjögur ár i grennd við Cavilier,
fluttu svo aftur til Nýja Islands og
námu land á Willow Point. Þar
stundaði Gottskálkur fiskiveiðar
og landbúnað i 14 ár.
Ung fór Guðrún móðir Violet til
Winnipeg og fékk vinnu i herbúð-
unum, Fort Osborne Barracks. —
Þar kynntist hún William Brist-
ow, sem lék á „coronet” i lúðra-
sveit hersins. Unglingarnir fellu
hugi saman, giftust á Fort Osb.
Barracks og bjuggu þar um skeið,
en þegar fyrsta barn þeirra var
fjögurra ára gamalt, fluttu þau á
æskustöðvar Guðrúnar á Viðir-
nesi. William var prestssonur og
móðir hans af prestaættum. —
Hann kunni illa hinum stranga
aga, sem unglingar urðu að lúta i
Christ Church prestakalli og
Balliol College i Oxford,þoldi ekki
aðhaldiðog flutti 15 ára gamall til
Kanada.
Þau Guðrún og William Bristow
eignuðust 13 börn og er Violet hin
ellefta i röðinni. — Tveir eldri
bræður hennar fórust i ofviðri á
Winnipegvatni i ágúst 1916, annar
21 árs að aldri en hinn 19 ára.
„Mér þykir vænt um fólk og það
er min lifsgæfa,” segir, Violet, ég
ann Gimli og umhverfinu þar og
vil helzt ekki þaðan vikja.” Hún
fer heldur ekki i langferðir nema
hún bregðii sér til Óttawa i
embættiserindum, og aldrei hefur
hún tekið sér hvild frá opinberum
störfum, að undanskildum sex ár-
um frá þvi einkadóttir hennar,
Donna Mae.fæddist og þar til hún
náði aldri til að fara i skóla.
Donna Mae skaraði fram úr við
námið, hlaut „Governor-Gene-
ral’s Medal” þegar hún lauk
menntaskólanámi. Siðan lauk
hún námi i hjúkrunarfræði við
Winnipeg General Hospital. Hún
er gift Wilfred Leonard Arnason ,
frá Gimli, menntaskólakennara,
sem kennir hagfræði i efsta bekk i
St. John’s High School i Winnipeg.
— Hann hefur meistaragráðu i
hagfræði, er Bachelor of Educati-
on, Bachelor og Pedagogy og
Bachelor of Science i landbúnað-
arfræði (agriculture).
Þau Wilfred og Donna Mae
Arnason eiga einn son og fjórar
dætur. Tvær dæturnar, Tracy og
Christie, vikja ekki frá ömmu
sinni á Islendingadaginn, verða
hirðmeyjar Fjallkonunnar.
„Báðar bjarthærðar,” segir Vio-
let.”
GENGISSKRÁNING
NR. 148 - 14. ágúst 1975.
Kaup
1 Banda ríkjadolla r 159, 80
1 Sterlingspund 336, 75
1 Kanadadollar 154, 10
100 Danskar krónur 2680, 50
100 Norskar krónur 2924, 45
100 Sænskar krónur 3706, 50
100 Finnsk mörk 4219, 50
100 Franskir frankar 3644, 75
100 Belg. frankar 416, 70
100 Svissn. frankar 5962, 45
100 Gyllini 6042, 00
100 V.- Þýzk mörk 6191, 25
100 Lírur 23, 88
100 Austurr. Sch. 877, 95
100 Escudos 602, 40
100 Pesetar 274, 00
100 Yen 53, 62
100 Reikningskrónur
Vöruskiptalönd 99, 86
1 Reikningsdollar -
Vöruskiptalönd 159, 80
Vestur-Skaftafellssýsla
Vegna samgönguerfiðleika neyðumst við tii að fresta héraðsmóti
framsóknarmanna i Vestur-Skaftafellssýslu, sem halda átti i Vik
I Mýrdal föstudaginn 15. ágúst.
Vestfirðir
Kjördæmisþing framsóknarmanna i Vestfjarðakjördæmi verður
haldið I sjómannastofunni, Alþýðuhúsinu Isafirði og hefst kl. 3
e.h. föstudaginn 22. ágúst. Meðal annars verður rætt um laga-
breytingar. Þeir fulltrúar, sem þarfnast fyrirgreiðslu vegna
gistingar og fæðis, eru beðnir að hafa samband við Fylki Ágústs-
son ísafirði i sima 3745.
Framsóknarfélaganna í Reykjavík
Sumarferð Framsóknarfélaganna i Reykjavfk, sunnudaginn 17.
ágúst. Ekið um Þingvelli, Laugarvatn, Gullfoss, Geysi, Brúar-
hlöð, Hreppa, Búrfellsvirkjun að Sigöldu og Hrauneyjarfossum.
Framkvæmdir við Sigöldu skoðaðar undir leiðsögn verk-
fræðings. Ekið um Galtalækjarskóg og um Landssveit á heim-
leið. Vekið athygli vina ykkar á þessari ágætu ferð og bezt að
gera það strax.
Farmiðar verða seldir
í dag
til kl. 18 á skrifstofu Framsóknar-
flokksins að Rauðardrstíg 18.
Sími 2-44-80
UTANLANDSFERÐIR
Ferð til Vínarborgar 4.
til 13. sept.
Þeir sem
áhuga hafa á þessari ferð, hafi
samband við flokksskrifstofuna.
Síðustu forvöð
Kaupmanna-
hafnarferð
17.-24. ógúst
Sérstakt tækifæri — síðustu forvöð
Nánari upplýsingar um ferðirnar á flokksákrifstofunni Si'mi-
24480.