Tíminn - 15.08.1975, Síða 3
Föstudagur 15. ágúst 1975
TÍMINN
3
„STÓRHÆTTULEGT FYRIR
GJALDKERA AÐ VERÐA VIÐ
TILMÆLUM SEÐLABANKANS"
Gsal — Reykjavik. — Einn af
útibússtjórum Búnaöarbanka
islands hafði samband viö
Timann vegna fréttarinnar i gær
um ávisanir Gjaldheimtunnar —
og kvað hann eitt veigamikiö
atriði ekki hafa komið þar fram.
,,Það er ætlast til þess að gjald-
kerar beri ábyrgð á þvi að fram-
sal ávisana sé rétt, en ekki Seðla-
bankinn. Þar af leiðandi er það
stórhættulegt fyrir gjaldkera að
verða við þessum tilmælum
Seðlabankans og taka við strikuð-
um ávisunum frá öðrum en
viðskiptamönnum bankans, sagði
hann.
Sagði útibússtjórinn, að
meirihluti fólks kæmi með ófull-
komin persónuskilriki, s.s.
sjúkrasamlagsskirteini og fleiri
slik, sem engar myndir væru i af
viðkomandi. „Það á eftir að koma
i ljós, hver á að bera ábyrgðina,
ef eitthvað af þessum Gjald-
heimtuávisunum hefur verið
ranglega framselt.”
Kvað útibússtjórinn, að fljót-
færnislega hefði verið að þessu
staðið af hálfu Seðlabankans.
Þrír Norðursjávarbátar sviptir leyfi:
,,Eiga skipstjórarnir að
hirða aflann eða henda
fiskinum dauðum í sjóinn?"
Gsal-Reykjavik. — Nú hafa þrir
islenzkir sildveiðibátar, sem hafa
verið á veiðum i Norðursjó, verið
sviptir veiðileyfum vegna brota á
hámarksveiðikvóta, en sem
kunnugt er af fréttum mega sild-
veiðiskipin ekki veiða meira en
135 tonn á þessum slóðum. Loftur
Baldvinsson EA var fyrst sviptur
veiðiheimild, en i fyrradag voru
leyfin afturkölluð hjá tveimur
öðrum islenzkum bátum, Erni
KE og Skarðsvik SH.
Eftir þeim upplýsingum, sem
Timinn hefur aflað sér, eru nú að-
eins 2-3 islenzkir sildveiðibátar
eftir i Norðursjónum. Hefur þvi
um helmingur islenzku bátanna
verið sviptur veiðileyfi.
Þórður Ásgeirsson, hjá
sjávarútvegsráðuneytinu, taldi
að margar ástæður gætu legið að
baki brotum af þessu tagi, og
sagði að 135 tonn væru ekki mikið
magn. „Ef bátur er t.d. kominn
með 100 tonn og fær siðan 60 tonna
kast, hlýtur skipstjórinn að velta
þvi fyrir sér hvort betra sé að
hirða aflann eða henda fiskinum
dauðum i sjóinn. Þá er lika
kannski erfiðleikum bundið fyrir
skipstjórnarmenn að meta fisk-
magnið i n’ótinni, þegar þeir eru
komnir nálægt hámarksveiðitak-
mörkunum,” sagði Þórður.
Sinfóníuhljómsveit
ungmenna heldur tón
Sígljái til Sovét
BH-Reykjavik. — Málningar-
verksmiðjan Harpa hefur nýlega
gert samninga um sölu á 5000
tunnum af hinum svokallaða
„Sigljáa”, sem kunnur er hér á
markaði og er þetta stærsti
samningur, sem málningarverk-
smiðjan hefur gert við Sovét-
menn, að þvi er Magnús Helga-
son, framkvæmdastjóri Hörpu,
tjáði Timanum i gær.
Sagði Magnús, að Harpa hefði
selt málningu til Sovétrikjanna i
tiu ár, eða frá 1965 og hefði fyrsta
sendingin verið 2500 eins litra
dósir, sem hefðu strax vakið slika
eftirtekt, að þær hefðu selzt á
einni viku i verzlunum i Moskvu.
Siðan hefðu verið gerðir margir
málningarsölusamningar við
Sovétmenn en þessi nýjasti væri
sá stærsti.
„Sigljáinn” hefur um langt
skeið verið i framleiðslu hjá
Hörpu, og kvað Magnús hann
hafa verið keyptan fyrir
verksmiðjur eystra, sem sæju um
framleiðslu alls konar húshluta,
svo sem hurða.
Hitabeltisloftslag
á Egilsstöðum
40 einbýlishús í byggingu og
sveitarfélagið byggir
16 íbúða fjölbýlishús
J.K. Egilsstöðum.— Um 40 ein-
býlishús eru i byggingu hér á
Egilsstöðum, og er sveitarfélagið
að byggja 16 ibúða fjölbýlishús
samkvæmt lögum um leiguibúðir
sveitarfélaga. Lokið hefur verið
við ab steypa jarðhæðina, en hús-
ið verður á þrem hæðum.
Verið er að byggja við bama-
skólann, og verður þvi verki lokið
Ihaust en sex skólastofur eiga að
vera i þessari nýju álmu.
Unnið er að byggingu mjólkur-
stöðvar á vegum Kaupfélags
Héraðsbúa. Búið er að steypa upp
grunninn en slegið verður upp
fyrir vélasal og honum verður
lokið innan tiðar.
Byrjað er að byggja nýja álmu
við íéiagsheimilíð Valaskjálf. Þar
á aðkoma veitingasalur og gisti-
rými.
Unnið er af kappi við að grafa
fyrir nýrri plastsundlaug og verið
er að leggja siðustu hönd á bún-
ingsherbergi og baðhús sem
standa á við sundlaugina. Sund-
laugin mun verða opnuð innan
tiðar.
Hér er má segja hitabeJtisveð-
ur, um 20-25 stiga hiti og mikið
mistur. Sláttur og hirða hefur
gengið mjög vel siðustu vikuna.
Spretta var seint á ferð hér vegna
vorkulda og hófst þess vegna
sláttur ekki fyrr en seinni partinn
í jýli. Tók þá að verða votviðra-
samt eg gekk erfiðlega að hirða.
leika ó 20
þar i landi með Sinfoniuhljóm-
sveit ungmenna, sem Karsten
Andersen stjórnar, en honum til
aðstoðar á æfingum voru Harry
Kvæbæk og Leif Jörgensen,
prófessorar við Tónlistarháskól-
ann I Osló.
Opnunarhljómleikar voru
haldnir i Elverumhallen 10.
ágúst, að viðstöddu fjölmenni,
sem tók hinni 100 manna hljóm-
sveit og einleikurum frábærlega
vel.Meðal gesta var Willy Brandt
fyrrum kanslari og frú.
Mánudaginn 18. ágúst kemur
hópurinn til íslands til viku tón-
leikahalds og eru fyrstu tón-
leikarnir i Háskólabiói kl. 21 þá
um kvöldið.
Auk stjórnandans og leiðbein-
enda eru með i förinni ein-
leikararnir Camilla Wichs, Ragin
Wenk Wolff, Harald Gullichsen og
GIsli Magnússon.
Einnig koma fréttamenn blaða
og annarra fjölmiðla. Fararstjóri
lslendinganna er formaður F.Í.H.
Sverrir Garðarsson, en hann'h’ef-
ur veg og vanda af Tónlistar-
hátiðinni Noregur — Island 1975
af Islands hálfu, sem verður dag-
ana 18. til 23. ágúst að báðum dög-
um meðtöldum.
A þessum stutta tima mun tón-
listarfólkið koma fram á um 20
stöðum.
Eins og komið hefur fram I fjöl-
miðlum fóru 15 ungmenni til
Elverum i Noregi á vegum
Félags isl. hljómlistarmanna i
byrjun mánaðarins. Var förinni
heitið til æfinga og tónlistarhalds
Sverrir Garðarsson formaður
Félags Islenzkra hljóðfæra-
leikara.
Ragin Wenk-Wolff er sextán ára og yngsti einleikarinn á tónleikunum.
„Fólk hefur komið hingað með
frumstæðar hugmyndir"
— norræna tónlistarráðið þingar í Reykjavík
Ö.B.Reykjavik. — Þann 11. þessa
mánaðar hófst i Reykiavik fund-
ur Norræna Tónskáldaráðsins og
lauk honum i gær. Megin tilgang-
ur þessa fundar var að velja úr
verk.sem félögunum hefur borizt
og leikin munu verða á Tónlistar-
hátið Norðurianda.sem hér verð-
ur haldin 19.-26. júní 1976. Slikar
tónlistarhátiðir eru haldnar ann-
aðhvert ár á hinum ýmsu Norður-
löndum þannig að þær eru á 10
ára fresti hér á landi og var ein
slik haldin hér haustið 1967.
Fund þennan sóttu mörg þekkt-
ustu tónskáld Norðurlanda svo
sem Per Nörgaard og Arne Nord-
heim svo einhver séu nefnd, en
þeir eru þekktir um viða veröld
fyrir frábæra músiksmið sina.
A fundinum voru va'lin sex verk
en það eru: tveir hljómsveitar-
konsertar, tveir kammerkonsert-
ar, einn kirkjukonsert og einn
electróniskur konsert.
Að sögn Þorkels Sigurbjörns-
sonar, tönskáldsmunoft og tiðum
vera erfitt að flytja ýmis verk hér
á landi sakir manneklu. Sem
dæmi um þetta má nefna að ef
verk krefst t.d. fjögurra gitar-
leikara, þá er ekki björgulegt, þvi
viðhöfum aðeins einn.sem er sér-
hæfður i klassik, eða ef sex
flautuleikara þarf, þá er komið að
sama vandamáli. Sagði Þorkell
að venjulega væru 85-110 hljóð-
færaleikarar i sinfóniuhljómsveit
en hér væru innan við 70 manns I
hljómsveitinni. Þorkell sagði er
blaðamaður innti hann eftir þvi
hvort hann væri ekki bjartsýnn á
góða þátttöku á Tónlistarhátið
Norðurlanda: — Við vonum að
þetta verði vel sótt og það muni
takast jafn vel og áður. Fólk hef-
ur komið hingað með mjög frum-
stæðar hugmyndir um hvað Is-
lendingar geti. Siðan er þetta
sama fólk undrandi á hvað við
höfum getað afkastað og spyr þá
gjarnan hver meiningin sé að fela
slik ágætis tónskáld hér.
Dómnefndina skipa: Þorkell
Sigurbjörnsson, formaður, Svend
Nielson, Danmörk, Egil Hovland,
Noregi, Miklas Maros, Sviþjóð, Noregur, Kjell Mörke Karlsen,
og Aulis Sallinen, Finnland. Noregur, Eskil Hemberg, Svi-
A fundi norræna Tónskálda- þjóð, Daniel Börtz, Sviþjóð,
ráðsins sátu: Atli Heimir Sveins- Paavo Heininen, Finnland, Leifur
son, formaður, Per Nörgaard, Þórarinsson, og Jónas Kristjáns-
Danmörk, Arne Nordheim, Son.
White-Backman-T rio
í ferð um landið
Gsai-Reykjavik. — Hingað til
lands er komin brezk-íslenzka
hljómsveitin White-Backman
Trio, sem stofnuð var af Jakobi
Magnússyni, pianóleikara, ekki
alls fyrir löngu. Hljómsveitin
mun dveljast hér á landi um
þriggja vikna skeið, en eins og sjá
má á meðfylgjandi mynd, er hér
ekki um raunverulegt trió að
ræða, þvi hljóðfæraleikararnir
eru fjórir og söngkonurnar tvær!
White-Backman-Trio mun fara i
reisu um landið óg hefst sú ferð
strax um þessa helgi. Hljóm-
sveitinni tilhalds og trausts verða
Stuðmenn og Steinunn Bjarna-
dóttir. Skemmta hljómsveitirnar
á Norðurlandi um helgina, en
halda siðan á Austfirði.
Orðrómur hermir aö Stuðmenn
ætli nú enn einu sinni aö koma
landsmönnum á óvart!
White-Backman-Trio — Jakob Magnússon er lengst tii hægri á
myndinni.