Tíminn - 15.08.1975, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Föstudagur 15. ágúst 1975
ALBERT FÍNNEY AS POIROT
Óheillakrdkan Lee Radziwill |
Litla systir Jackie Onassis heit-
ir Lee Radziwill, og er 41 árs
gömul. Henni gengur ekki sem
bezt þessa dagana, en hún er að
reyna að bjarga sér eins og bezt
gengur eftir að hafa skilið við
pólska prinsinn Stanislaus. Þvi
miður er það staðreynd, að allt
sem hún tekur sér fyrir hendur
misheppnast, og allir fjármála-
menn hvar sem þeir eru leggja
á flótta þegar þeir sjá frúna af
ótta við að óheppni hennar i
fjármálum sé smitandi, og þeir
taki veikina sjálfir. Lee skrifaði
bók sem algjörlega misheppn-
aðist. Hún var ómöguleg frá
sjónarhóli gagnrýnenda, og það
tókst heldur ekki að selja hana.
Þrátt fyrir það hafði Lee tekizt
að hafa mikið fé út úr útgáfu-
fyrjrtækjum fyrirfram, en for-
stöðumönnum þeirra hafði hún
talið trú um, að bókin myndi
seljast eins og heitar lummur.
Nú er Lee byrjuð að skrifa ævi-
sögu sina. Hún dvelst til skiptis i
ibúð sinni við Fimmtu breiðgötu
i New York og i sumarhúsi sinu
á Long Isiand. Lee þarf á hverj-
um einasta eyri að halda, sem
hún getur skrapað saman, þar
sem hún hefur skapað sér slikar
lifsvenjur, að venjulegar tekjur
hrökkva þar skammt. Hún fékk
töluverða fjárupphæð i arf, þeg-
ar faðir hennar dó, og einnig fær
hún peninga frá fyrrverandi
eiginmanni sinum, en þetta er
ekki nóg fyrir hana, þótt venju-
legu fólki fyndist ekki um neinar
smáupphæðir að ræða. Ævi-
minningar Lee eru einskis virði,
þar sem enginn útgefandi hefur
enn fengizt til þess að gefa þær
út, svo varla græðir hún á þeim
skrifunum. Nú virðist ekki vera
um annað að ræða fyrir hana en
gifta sig á ný, og það ekki nein-
um fátæklingi. Reyndar er einn
maður reiðubúinn til þess að
giftast henni, en það er
Lundúna-Grikkinn John C.
Carras. Hann er sextugur
milljónamæringur og skipseig-
andi, og sagt er að hann sé ekki
miklu fátækari heldur en Onass-
is maður Jackiear var. Carras
hefur tvivegis verið giftur og á-
stóra eyju i Eyjahafinu, rétt
eins og Onassis. Einnig á hann
lystisnekkju fallega mjög.
Carras hefur meira að segja lát-
ið hafa það eftir sér, að hann
vilji ganga að eiga Lee, eða
Jackie, eftir þvi sem þær óski
sjálfar, honum er nokkurn veg-
inn sama hvor þeirra það verö-
ur. En hver veit nema Carras
snúist hugur, þegar hann fer að
hugsa meira um Lee, og reynd-
ar alla þá, sem einhvern tima
Nýlega mátti sjá i bandarisku
blaði viðtal við Agötu Christie,
hinn fræga rithöfund, þar sem
hún sagðist vera að skrifa sið-
ustu bók sina um leynilögreglu-
manninn heimsfræga, sem hún
skóp fyrir mörgum áratugum,
— Hercule Poirot. í þessari bók
segist rithöfundurinn ætla að
láta Poirot andast. Agatha
Christie segist ekki vilja að
Poirot hljóti sömu örlög og
margar aðrar frægar söguhetj-
ur — sem sagt að aðrir haldi á-
fram að skrifa um hann þegar
hún sjálf er fallín frá. Sú var
raunin með Tarzan — bækur
komu út um hann eftir að Edgar
Rice Burroughs féll frá,
og endalausar myndasögur hafa
birzt um Tarzan siðan. Svipað
má segja um hetjuna James
Bond. Jan Fleming höfundur
bókanna um Bond, andaðist, en
þá tóku aðrir við og skrifuðu hin
æsilegustu kvikmyndahandrit
um James Bond, og breyttu
bæði efni bóka og persónum eins
og þeim sýndist, og hreinlega
skrifuðu nýjar sögur. — Nei,
þannig vil ég ekki að farið sé
með hann Hercule minn, sagði
Agatha. Agatha Christie verður
85 ára þann 15. sept. næstk., en
hún segist ætla að halda áfram
að skrifa, meðan hún hafi þetta
góða heilsu. — En fleiri bækur
um Poirot skrifa ég ei, sagði
hún, — þvi að hann deyr i bók,
sem nú er að koma út og heitir
„Curtains” (Tjaldið fellur, get-
um við kallað hana). Hér sjáum
við mynd af Agötu sjálfri og
leikaranum Albert Finney I
gervi Poirot i kvikmyndinni
Austurlandahraðlestin (Murder
on the Orient Express). Einnig
birtum við hér mynd af mál-
verki, sem var málað um 1925 af
W. Smithson Broadhead list-
málara, og á það að sýna per-
sónuna Hercule Poirot, sam-
kvæmt lýsingu höfundar og I-
myndun málarans.
AGATHA CHRiSTiE
hafa tengzt Kennedy-fjölskyld-
unni á einhvern hátt. Kannski
Carras þori ekki að hætta auð-
æfum sinum. Hér er svo mynd
af Lee og John Kennedy yngri
og einum vina hans
☆
Síðasta bókin um
leynilögreglumann-
inn Hercule Poirot
— Við söfnum nú fyrirþrennu I einu handa henni:
Hún er að hætta á skrifstofunni, hún er komin
að þvi að eiga Barn, — og svo ætlar hún að gifta sig.
— Ég var að snyrta kringum
beðið þegar skrimslið þaut út úr
höndunum á mér.