Tíminn - 02.10.1975, Qupperneq 3
Fimmtudagur 2. október 1975
TÍMINN
3
Sjö manna
nefnd til
aó fjalla
um lóða-
úthlutanir
ÞEIR Kristján Benediktsson
og Sigurjón Pétursson munu
á borgarstjórnarfundi i dag
leggja fram tillögu um sjö
manna nefnd til að fjalla um
lóðaúthlutanir.
Tillaga þeirra Kristjáns og
Sigurjóns er svohljóðandi:
„Borgarstjórn samþykkir
að kjósa sjö manna nefnd, er
hafi það verkefni að gera til-
lögur til borgarráðs og borg-
arstjómar um lóðaúthlutan-
ir.
Kjörtimabil nefndarinnar
skal vera það sama og borg-
arstjórnar.”
ER GULLSKIPIÐ LOKSINS FUNDIÐ?
Þ.O.-Reykjavik — Fyrirtækið
Björgun hf. hefur enn í sumar
gert út leiðangur til þess að leita
að gullskipinu holienzka, sem
talið er vera á Skeiðarársandi —
og leitarmenn telja sig nú vera
búna að finna skipið.
Kristinn Guðbrandsson, for-
stjóri Björgunar hf., hefur ekki
viljað gefa neinar upplýsingar
um leitina. Hins vegar hefur Tim-
inn fregnað, að áður en leit hófst i
sumar hafi forráðamenn Björg-
unar hf. fengið sérfræðinga
vamarliðsins á Keflavikurflug-
velli til að staðsetja skip á af-
mörkuðu svæði á sandinum með
segulmælingum. Þegar sú skrá
hefði legið fyrir, hafi verið leitað i
gömul skjöl og annála i þeim til-
gangi að nafngreina hvert og eitt
skip. Þeim hafi siðan tekizt með
útilokunaraðferð að ákvarða
þann stað er gullskipið er að
finna. I sumar hófst svo leit og
hefur hún staðið yfir nær sleitu-
laust, en þó með litilsháttar töf-
um.
Við sanddælinguna er notaður
afkastamikill prammi, en grafa
þarf mjög stóran ,,gig” niður að
skipinu, sem talið er vera á rúm-
lega 20 metra dýpi. Siðast er
fréttist höfðu leitarmenn verið
búnir að grafa um 14 metra og
áttu þá von á þvi hvað úr hverju
að sjá glitta i efstu toppa skipsins.
Það óhapp varð fyrr i sumar,
þegar grafið hafði verið niður á 10
metra dýpi, að bakkarnir hrundu
og tafði það leitina nokkuö.
Búrfell:
LEIÐARI BRANN I RAFAL
gébé Rvik — Leiðari brann i rafal
I Búrfellsvirkjun og olli skemmd-
um. Tók það starfsmenn virkjun-
arinnar þrjá daga að vera við
skemmdirnar. —Að þessu sinni
kom ekki til neinna truflana frá
biluninni, sagði Gisli Gislason
stöðvarstjóri, þvi að álagið var
ekki mikið.
Það var á föstudaginn var, að
leiðari brann i rafalnum, sem
gerður er i Japan. Sagði Gisli að
talið væri að bruninn hefði stafað
frá galla i lóðningu. Starfsmönn-
um Búrfellsvirkjunar tókst
að gera við skemmdirnar- Sagði
Gisli að bilunarinnar hefði án efa
gætt, ef um miðjan vetur hefði mikið á þessum tima, gætti bil-
verið, en þar sem álag er ekki unarinnar ekki i þetta skipti.
Sovézkir togarar
eru farnir að
sækja Jónsmið
Ármannsfelli bannað
að byggja meðan
á rannsókn stendur?
„MEÐAN rannsókn Ármanns-
fellsmálsins stendur yfir sam-
þykkir borgarstjórn, að ekki skuli
gefið út leyfi fyrir byggingum á
5000 ferm. lóð þeirri neðan Hæð-
argarðs og austan Grensásvegar,
sem Byggingarfélaginu Ar-
mannsfelli h.f. var úthlutað á
fundi í borgarráði hinn 26. ágúst
s.l. Jafnframt samþykkir borgar-
stjórn, að taka ekki á móti frekari
greiðslu á gatnagerðargjaldi
fyrir umrædda lóð, fyrr en rann-
sókn málsins er að fullu lokið og
niðurstöður liggja fyrir.”
Þannig hljóðar tillaga frá
Kristjáni Benediktssyni borgar-
ráðsmanni, sem hann mun flytja
á borgarstjórnarfundi i dag.
1 greinargerð með tillögunni
.kemst Kristján svo að orði:
„Eins og kunnugt er hefur hinu
svokallaða Armannsfellsmáli
verið visað til opinberrar
rannsóknar hjá Sakadómi
Reykjavikur.
Ekki verður séð á þessu stigi
málsins, hve langan tima sú
rannsókn kann að taka og hvenær
niðurstöðurnar liggja fyrir. Þá
má fastlega gera ráð fyrir, að
borgarfulltrúar telji sig þurfa að
fá eitt og annað upplýst frekar,
eftir að rannsókn sakadóms er
lokið. Sú varð a.m.k. reyndin
varðandi mál, sem borgaryfir-
völd visuðu til sakadóms á s.l. ári.
Umræddri lóð á horni Grensás-
vegar og Hæðargarðs var úthlut-
aö 26. ágúst sl. Innan mánaðar
átti að greiða helming gatnagerð-
argjaldsins, kr. 1.825.050.-. Eftir-
stöðvar áttu að greiðast, áður en
byggingarleyfi yrði gefið út.
Óeðlilegt verður að teljast, að
byggingarframkvæmdir hefjist á
lóöinni, meðan málið er i rann-
sókn. Til að koma i veg fyrir slikt
er framangreind tillaga flutt.”
JG RVK. — Sjómenn,
sem verið hafa að veið-
um við Austur-Græn-
land hafa tjáð okkur að
ný þjóð hafi nú bætzt i
togaraflotann þar —
Rússar — en rússneskir
togarar hafa ekki áður
sé;zt á þessum slóðum.
Var þarna um að ræða 2 eða 3
mjög stóra verksmiðjutogara
,ryksuguskip” eins og þau eru
stundum nefnd, og mun nafnið
dregið af þvi, að skipin hafa fiski-
mjölsverksmiðju um borð og geta
þvlhagnýtt minnstu seiði, án þess
að verið sé að halda þvi fram að
rússnesku skipin veiði smáfisk.
Togarar þessir voru að veiðum
á Jónsmiðum, sem eru skammt
utan viðnýju 200 milna landhelgi
tslands.
Blaðið bar fregn þessa undir
Auðunn Auðunsson skipstjóra
sem nú stýrir Karlsefni, og kvað
hann þetta vera rétt og hefðu is-
lenzkir togarasjómenn nú
áhyggjur af aukinni sókn á þessi
mið.
Nokkuð mun farið að þrengja
að rússneska úthafsflotanum, þar
eð veiðar þeirra við strendur
Bandarikjanna og Kanada hafa
verið harðlega gagnrýndar, og
jafnveí taldar hafa útrýmt sum-
um fiskistofnum viö strendur
Norður-Ameriku. Kanadamenn
settu hafnbann á rússnesk fiski-
skip og hafa Rússar nú fallizt á að
draga úr sókn á kanadfsku miðin.
Þá verða skipin að leita annað og
ef til vill á miðin við Austur-
Grænland og tsland.
Nýr borbíll, sem
fer til Blönduóss
BH-Reykjavik — Jarðboranir
rikisins eru heldur betur að bæta
við tækjakost sinn þessa dagana,
en á þriðjudag kom með Bakka-
fossi borbifreið frá Failing-verk-
smiðjunum i Bandarikjunum og
vakti strax athygli við komuna
fyrir stærð og þyngd, en billinn er
á sextán hjólum, með fimm hás-
ingar og vegur um 35 tonn núna,
en svo er eftir að setja á hann
mastur, sem er 50 mctra hátt og
vegur með útbúnaði um 5 tonn,
svo að þyngd borbílsins með öllu
verður um 40 tonn.
Hjá Jarðborunum rikisins fékk
Timinn þær upplýsingar, að þetta
væri þriðja borbifreiðin, sem
Jarðboranirnar tækju i notkun, og
sú stærsta. Með borum þessarar
bifreiðar væri hægt að bora allt
niður á 2000 metra dýpi, en borar
hinna bifreiðanna ná niður á 600
og 1000 metra dýpi. Þeir borar
eru staðsettir núna á Siglufirði og
Súgandafirði, og trúlega verður
nýja borbifreiðin send til Blöndu-
óss að uppsetningu mastursins
lokinni, en hvenær þvi verki verð-
ur lokið og bifreiðin tilbúin til
starfa, er ekki unnt að segja enn.
Hin nýja borbifreið Jarðborana rikisins.
Timamyr.d: Gunnar.
1
wfl
!
1.
i
lilllTTTit
VEIÐIMANNAKASTMOT á
Akranesi laugardaginn 11.
október.
Hjá Hákoni Jóhannssyni, for-
manni Landssambands stanga-
veiðifélaga, hefur Veiðihornið
aflað sér eftirfarandi upplýs-
inga:
„Veiðimannakastmót verður
haldið á vegum Landssambands
stangaveiðifélaga laugardaginn
þann 11. okt. n.k. á Iþróttavell-
inum á Akranesi og hefst kl. 1
e.h.
Keppt verður I kvenna, ungl.
og karlaflokkum eftir þvl sem
þátttaka verður I eftirfarandi
greinum:
Flugulengdarköst, einhendis.
Stöng: 9 1/2 fet eða styttri,
Lína: Venjuleg veiðilina
AFTM 10 (18 gr) eða léttari,
ekki skotlina.
2. Beitulengdarköst, einhend-
is með 12. gr. spún Stöng frjáls,
nema hvað kasta skal með ann-
arri hendi.
3. Beitulengdarköst, tvihendis
með 18 gr. spún.
Stöng: hámark 10 fet.
Linur i beitulengdarköstum
eru frjálsar að öðru leyti en þvi,
að enginn hluti hennar má vera
grennri en sá, sem festur er viö
beitu.
Athugið!' Aðeins venjuleg
stangaveiðitæki leyfö.
Þátttaka er öllum stanga-
veiðimönnum heimil (nema
hvað menn, sem tekið hafa þátt
I mótum, þar sém keppt hefur
verið eftir I.C.F. kastreglum
verða ekki með).
Það skal tekið fram, til þess
að fyrirbyggja misskilning, sem
hefur orðið vart við, að þátttak-
endur verða aðeins með sin
venjulegu stangaveiðitæki, sem
þeir nota til veiða, en alls ekki
keppnistæki, eins og reyndar er
tekíð fram hér að ofan. Þá geta
þátttakendur fengið lánuð
stangaveiðitæki, á staðnum til
afnota i keppninni.
Á veiðimannakstamótinu i
fyrra I Keflavik, var kona, i
fyrsta sinn meðal þátttakenda,
og stóð sig vel, þrátt fyrir kalsa-
veður. Nú, á kvennaárinu, von-
um við að konur láti ekki sinn
hlut eftir liggja, heldur mæti til
þátttöku.
Þá skal bent á aö „Akraborg-
in” fer frá Reykjavik kl. 10 ár-
degis og frá Akranesi kl. 5.30
e.h. mótsdaginn, samkv, áætl-
un.”
Við röbbuðum við Hákon og
báðum hann að segja okkur
nánar af kastmótum fyrr og
siðar.
— Það er að sjálfsögðu eitt af
verkefnum Landssambandsins
að stuðla að kastiþróttinni, og
við höfum gengizt fyrir kast-
keppni frá 1964. Fyrstu árin
voru þau mót fyrir keppnis-
menn eftir reglum Alþjóölega
kastsambandsins ICF, en þegar
Kastklúbburinn gekk i 1S1, þá
breyttum við um form og höfum
haldið veiðimannakastmót
siðan, en það fyrsta var haldið I
Hafnarfirði 1972. Nú, þessi mót
hafa verið haldin I Reykjavik og
nágrannabæjunum, og njóta
mikilla vinsælda og hafa tvi-
mælalaust orðið til að auka gildi
kastiþróttarinnar. svo sem sjá
má á þvi, að íyrir t.uttugu árum
var bezti árangunnn á kast-
móti hér, einhendis með flugu-
stöng 23 metrar, en sami áraug-
ur á mótinu i fyrra hjá okkur
30,9 metrar. Að visu bafa orðið
miklar framfarir i veiðitækjum,
og núna er til dæmis notuð
framþung lina, sem gefur meiri
möguleika, en það er lika um að
ræða miklar framfarir hjá
veiöimönnunum sjálfum.
Við biðjum Hákon að svara
okkur samvizkuspurningu eftir
beztu getu, og hann hugsar sig
vel um.
— Ja, ætli það séu ekki eitt-
hvað I kringum 20.000 manns,
sem stundar stangveiðar hér á
íslandi. Það er að visu erfitt að
segja um þetta, en ég held, að
það sé ekki fjarri lagi að nefna
þessa tölu. Og af þessum fjölda
eru um 5.000 laxveiðimenn. Alla
vega er óhætt að fullyrða, aö
það • er mikill áhugi á stang-
veiðum hér á landi.
Jón Finnsson hrl. að veiðum I veiðivatni Hafnfirðina, Hliðarvatni.
Jón er mjög snjall fluguveiðimaður, og fyrrverandi formaður
Landssambands stangaveiðifélaga.