Tíminn - 02.10.1975, Blaðsíða 6

Tíminn - 02.10.1975, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Fimmtudagur 2, október 1975 Geta eða getuleysi íslenzkra byggingarmanna „By ggingar- iðnaðurinn er einskorðaður við gamlar venjur sem munu valda þvi að hér er bæði efnisnotkun, og þó sér- staklega vinnustunda- notkun, miklu meiri á byggingareiningu, en hjá nágrannaþjóðum okkar.” Þessa yfirlýsingu mina i smá fréttaklausu um starfsemi Rann- sóknarstofnunar byggingar- iðnaðarins kallar Arni Brynjólfs- son vitnisburð um getuleysi iðnaðarmanna. Ég verö hins vegar að lýsa þvi yfir, að slika túlkun get ég ekki fundið i setningunni hér að framan. Til þess þyrfti byggingariðnaöur að vera sama og iðnaðarmenn. Þrátt fyrir það er ég Arna Brynjólfs- syni raunverulega þakklátur fyrir að gefa mér þetta tækifæri til þess aö finna oröum minum nokkurn stað þvi vera má að orð min nái næmari eyfum, ef þau eru sögö sem svar við áskorun byggingameistra heldur en þau á undanförnum árum hafa náð I hrópum minum til opinberra aðila umlagfæringu á rannsókna- starfsemi fyrir byggingar- iðnaðinn. Arni Brynjólfsson er ekki heldur einn um það að hafa lítils- virðingu fyrir rannsóknum setja orðin i gæsalappir og gefa til kynna að þar sé nú um vinnubrögö að ræða, sem minni stéttvislega á fúsk. Vera má að skoðun hans eigi fylgi að fagna meðal byggingarmeistara, og kannski ekki siður utan byggingariönaðar, t.d. sennilega meirihlutafylgi meðal stjórn- málamanna, enda má lita svo á, aðstaða rannsóknastarfseminnar I islenzku samfélagi sé klárlega sönnun þess. Byggingameistari getur ef til vill hugsað til eigin stöðu i sam- félaginu til þess að átta sig á hlutunum. Honum er þá ljóst aöhann myndi ekki marka sér háan sess i þjóðfélaginu, ef hann hlyti aðeins brot af þóknun sinni. Samt gæti þetta brot nægt honum til einhverra umsýslustarfa, en sjálfur myndi maðurinn þá ekki vera i verktakastöðu, heldur handverksmaður, ef hann þá ekki hyrfi úr starfsgreininni. Likt er á komið I islenzkri rannsóknastarfsemi. Til hennar rennur aðeins brot af þvi fjár- magni, sem henni er nauösynlegt til þess að gegna sómasamlega hlutverki sínu. Til staðfestingar á þessari umsögn minni visa ég til töflunnar hér á eftir um rannsókna- og þróunarstarfsemi á Noröurlöndum á árinu 1971. Tafla 1 — Rannsókna- og þróunarstarfsemi á Noröurlönd- um 1971 Framlög til rannsóknastarfsemi Heildarframlög % af þjóðartekjum (GNP) Útgjöld á ibúa, reiknaö i dollurum Reiknuð i vinnuárum á 10.000 Ibúa Þar af vinnuár háskólaborgara :0 E s rt Q 0,9 32 26 Ljóst er af þessari töflu, að við leggjum almennt minna fé i rannsóknir en hinar Noröur- landaþjóðirnar. Taflan gerir þó ekki grein fyrir þvl, hvernig þetta fé skiptist á hina einstöku at- vinnugreinar. Það kemur hins vegar fram i upplýsingum frá Rannsóknaráði fyrir sama ár. Þvi er stundum haldið fram, að við þurfum ekki að leggja eins mikið i rannsóknir og aðrar þjóðir, vegna þess að við erum meira háðir fiskveiðum og sauðfjárrækt, þ.e. veiði- og hjarðmenn. 1 skýrslu Rannsóknarráðs kemur þó fram, að tiitölulega miklu betur er séð einmitt fyrir þessum at- vinnugreinum, og að byggingar- iðnaður fær tiltölulega lang- minnst rannsóknafé, eða aðeins 0,07% af virðisviðauka i atvinnu- greininni.Það hefur ekki hvarflað að mér að kenna byggingar- meisturum eða byggingarmönn- um almennt um þessa óhagstæöu niðurstöðu, en ekki er heldur hægt að þakka þeim hagstæða fram- vindu i rannsóknastarfsemi i þágu byggingariðnaðarins. Framkvæmdastofnun rikisins hefur nýlega látið frá séra fara greinargerö fyrir áætlaðri hús- næðisþörf á árunum 1976 til 1985 og eru niðurstöður þær, að þörf sé fyrir framleiðslu á 2778 Ibúðum á ári yfir timabiliö. Þetta sam- svarar 68% aukningu frá þvi meðaltali, sem gildir fyrir árin 1965 til 1971, en þá voru 1608 Ibúöir byggðar á ári. Þetta meðaltal er skv. upplýsingum úr Nordisk Statistisk Arbok 1973 töflu 60. Ef gluggað er nánar i þessa töflu, má sjá að Ibúðaframleiðsla á Norður- löndum hefur verið svo sem fram kemur I töflu 2 hér á eftir. Þá er i töflu þessarar sömu ársskýslu að finna skiptingu starfsmanna eftir atvinnugreinum, annars vegar iQfiOoe hins "egar 1970 og eru þær £9;ÍJF !i’ka sýndar i töflu 2. Tafla 2 — tbúðaframleiðsla og starfsfólk I byggingariðnaöi og við mannvirkjagerð (Hundraðs- hluti starfandi borgara) viðbrögðum mlnum við áskorun Árna Brynjólfssonar er sú, að ég sat á þessum tima þing norrænna byggingarrannsóknarmanna, sem haldið er þriðja hvert ár. Á þessu þingi kom fram, að hvergi nema á íslandi er þörf fyrir f r a m 1 e ið s 1 u a u k n i ng u i byggingariðnaði, og að sums staðar eru íbúðamarkaðirnir yfirmettaðir. 1 töflu 3 hér á eftir er sýnt verð á efni og vinnu, eins og það var I júnlmánuði 1973 og. er nú i septembermánuði 1975, og hundraðshlutahækkun á tima- bilinu- Einnig eru sýndar breytingar á framfærsluvisitölu og vísitölu byggingarkostnaðar. Upplýsingar þessar eru að hluta unnar við Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, en megnið af þeim kemur frá Hagstofu Is- lands úr Hagskýrslum. Efni: Júni 1973 Sept. 1973 % hækkun Mótatimbur 25x150 mm kr/lm 50 159 218 Steypujárn 10 mm kr/kg 32 95 197 Steinsteypa, S160 rúmm. 2820 6978 150 Sement, 50 kg pokar 202 600 197 Utseld vinna: Trésmiða kr/ein. 225,08 453,85 102 Múrara ” 53,17 110,11 107 Málara »> 248,61 530,35 113 Rafvirkja > > 302,00 620,00 105 Pipulagningamanna 245,17 494,98 102 Visitöluhækkanir: Framfærsluvisitala 201 459 128 Byggingavisitala 853 1881 120 Gengi isl. krónunnar kr/DM 34,74 61,38 77 Timakaupshækkanir: Aðstoðarm. i byggingav. kr/klst 135,70 279,90 106 Alm. hafnarverkamaður ” 160,12 323,21 102 BSRB, sérhæfðir smiðir > > 204,52 409,81 100 Ég viðurkenni það, að byggingarmáti okkar hefur að mestu leyti þróazt i núverandi form vegna þess aö hann hefur reynzt hagkvæmastur fyrir byggingariðnaðinn. Valið gerðist hins vegar á allmörgum árum og fyrir löngu, t.d áður en þreföldun Danmörk Finnland island Noregur Sviþjóð Meðalframl. Ibúða 9,47 9,36 7,98 8,75 12,93 1960 starfsf., 7,5 8,7 10,7 9,5 9,1 1970 starfsf. 9,2 9,3 10,6 8,7 9,7 Tölurnar sýna meðalfram- á timburverði kom fram nú á s leiösluá 1000 Ibúa 1965-1970, Tafla 60. Við þessa skráningu verður ljóst, að tiltölulega flest fólk er bundið i byggingariðnaði og við mannvirkjagerö á íslandi, eða um 20% fleiri en á hinum Norður- löndunum, þrátt fyrir að hér eru framleiddar verulega færri Ibúðir að tiltölu en þar. Það að framleiðslutala okkar er -c s u s >o cs -o w> ;° s G s — V u S u* C/3 Z. tn 0,9 0,5 1,1 1,5 23 12 32 65 22 13 25 38 9 6 - 11 11 Taflan er dregin út úr skýrslu Nordforsk, sem útkom á sl. ári og nefndist Forskningsvirksomhet I Norden I 1971. svo lág, skýrir vissulega nokkuð ibúöaskortinn hér á landi. Ég skýt þvi hér inn i, að ástæðan fyrir síðbúnum ustu tveim árum. Þvi er ekki heldur að leyna, að greiöslur fyrir einstaka verkþætti á þessu sama timabili hafa lítið lækkað, þrátt fyrir iðnþróun. Islenzkur almenningur þarf ekki að fara i neinar grafgötur með það, að það er einmitt hús- næðiskostnaður, sem hrifsar til sin hvað stærstan hluta af peningatekjum meðalheimilisins. Og þá er ef til vill lika rétt að hafa I huga, að kröfurnar um lág- markstekjur hljóta að bera keim einmitt af þessum útgjöldum. Mikið er rætt og ritað um það aö við göngum I efnahagsbandalög, og þyrftum þá að sitja við sama borð og framleiða vörur fyrir sama markað og nágrannaþjóð- irnar. Þegar svo er komið, blasir við að við sitjum eftir með minni ráðstöfunartekjur en hinir, ef við þurfum að verja svo stórum hluta af tekjum okkar i húsnæðiskostn- að. Byggingarmáti okkar er þannig, að við byrjum fyrst á þvi að slá upp timburmótum fyrir steinsteypu, og timbrið I þessum mótum slagar hátt upp I að vera jafnmikið, og ef við byggðum jafn stórt timburhús. Siðan steypum við i þessi mót, rifum mótin I burtu, og byrjum þá að múra utan á steypuna. Við éinangrum siðan að innan, og bleytum siðan allt húsið upp með þvi að múra innan á þessa einajigrun. Svo verðum við að biða alllangan tima, áður en við getum hafið það að marg- mála yfir þessa múruðu fleti. Þótt þessi aðferð hafi einhvern tima verið okkur ódýrust, þá dreg ég i efa, að hún sé það enn, og þvi eru aðrar byggingaraðferðir vissu- lega til yfirvegunar. Verksmiöjuframleidd eininga- hús eru nú farin að hafa veruleg áhrif i byggingariðnaðinum, og margt bendir til að með slikri verksmiðjuframleiðslu komi fram lækkun byggingarkostnað- ar. Einingahús þurfa þó að standa á grunni, og stundum verður grunnurinn jafn dýr einingahús- inu, sem á honum á að standa. Lang algengast er á Norðurlönd- um að þessir grunnar séu hlaðnir. Gætum við ef til vill gert það lika? Ég fagna þvi, að þessi mál eru nú vissulega komin i sviðsljósið, markviss þróun byggingariðnað- ar er vis til þess að hafa hagkvæm áhrif á allan efnahag lands- manna. Hverjum manni má vera ljóst, að það efnahagsástand, sem við búum nú við, er varla til frambúðar. Við höfum algerlega misst sjónar á gildi gjaldmiðils- ins, og samræmið milli reikninga, og þess sem að baki reikningi stendur er rofið. Verktaki getur nú varla staldrað við til þess að leita uppi hagkvæmustu fram- kvæmdaleiðir. Hann verður helzt að kasta sér út i framkvæmdirnar og nýta framkvæmdaféð, áður en verðbólgan gleypir það. . Ég fagna þvi lika, að þróun byggingariðnaðar verður tekin til hringborðsumræðu á vegum Rannsóknaráðs, og vænti mikils af tillögugerð byggingarmeistara þar. A þessum fundi verða málin rædd frá ýmsum hliðum. Ég skal þvi ekki gerast hér talsmaður eða andófsmaður neinnar stéttar. All- ar verða sjálfsagt að sæta gagn- rýni, en ég tel það undirstöðuat- riði að ná samstööu til stefnu- mörkunar i þessu þýðingarmikla máli. Það gæti forðað okkar sam- eignarskútu frá frekari óförum. Reykjavik, 1975-09-29, Haraldur Asgeirsson, forstjóri. Nokkrar hugleiðingar að gefnu tilefni Árna Brynjólfssonar, frkvstj. Landssambands ísl. rafverktaka

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.