Tíminn - 02.10.1975, Qupperneq 12
12________________TÍMINN_______
LÖGREGLUHA TARINN
30 Ed McBaÍn Þýðandi Haraldur Blöndal
— Þannig er herra, að við höfum fengið tvö bréf frá
manninum, sem við grunum um að hafa myrt Cowper
lögreglufulltrúa. ( þessum bréfum er lífi Scanlons
varaborgarstjóra ógnað með morðhótun, svaraði Byrn-
es.
— Hvað ert þú að gera í málinu, spurði lögreglustjór-
inn?
— Við höf um þegar sent bæði bréfin á rannsóknarstof u
okkar til frekari rannsóknar. Einnig höfum við fundið
herbergið, sem skotið var úr í gærkvöldi. Einnig höldum
við að ástæða sé til að ætla að glæpamaðurinn sé þekktur
i þessu lögregluumdæmi.
— Hver er það, spurði lögreglustjórinn.
— Við vitum það ekki.
— Sagðir þú ekki að hann væri þekktur...
— Jú herra. Við höfum átt i höggi við hann fyrr. En
eftir því sem við bezt vitum hafa ekki verið borin kennsl
á hann.
— Hversu mikla peninga heimtar hann nú?
— Fimmtíu þúsund dollara, herra.
— Hvenær á að drepa Scanlon?
— Við vitum það ekki, herra.
— Hvenær vill þessi maður fá peningana sína?
— Við vitum það ekki, herra.
— Hvar eigið þið að afhenda peningana.
— Við vitum það ekki, herra.
— Hvern fjandann VITIÐ ÞIÐ EIGINLEGA, BYRN-
ES?
— Ég veit að við gerum nú okkar bezta til að berjast við
skilyrði, sem aldrei haf a verið f yrir hendi f yrr. Við erum
þess reiðubúnir að fá varaborgarstjóranum alla lög-
reglusveit okkar til umráða ef og þegar hann óskar
verndar. Ennfremur er ég viss um, að ég get fengið
Frick lögregluforingja, sem stjórnar öllu umdæminu
eins og þú veizt, til að.
— Hvað áttu við ,,Eins og þú veizt"?
— Þannig förum við að í þessari borg, herra lögreglu-
stjóri.
— Þannig er f arið að í f lestum borgum, Byrnes.
— Auðvitað, herra. Samt sem áður þykist ég þess f ull-
viss að geta fengið hann til að leysa nokkra einkennis-
klædda lögreglumenn frá daglegum skyldustörfum.
Hann gæti jafnvel kallað þá sem eru í frí til skyldu-
starfa, ef herra lögreglustjóranum finnst það nauðsyn.
— AAér f innst nauðsynlegt að vernda líf og limi vara-
borgarstjórans.
— Auðvitað. Um það erum við allir sammála, herra.
— Hvað er eiginlega að þér, Byrnes? Er þér í nöp við
mig, spurði lögreglustjórinn.
— Ég reyni að blanda ekki persónulegum tilfinningum
mínum inn í störf mín, svaraði Byrnes.— Þetta er miöa
erfitt mál. Ég veit ekki um þig, en sjálfur hef ég aldrei
lent í neinu, sem svipar til þessa. Ég er með góða liðs-
sveit hérna. Við gerum allir okkar bezta. AAeira getum
við ekki gert.
— Svo getur farið, Byrnes, að þið verðið að gera
AAEIRA.
Byrnes ætlaði að andmæla þessu, en lögreglusjórinn
varð fyrri til og lagði tólið á.
XXX
Arthur Brown sat í kjallara gagnfræðaskólans með
heyrnartæki á höfðinu. Hægri hönd hans var á kveikju-
rofa segulbands. Brown var reiðubúinn að taka upp öll
samtöl. Síminn á heimili La Bresca-fólksins, hinum
megin götunnar hringdi í þrítugasta og annað sinn þenn-
an dag. Brown beið þess að Concetta La Bresca lyfti tól-
inu. Það hafði hún gert undanfarið þrjátíu og eitt skipti.
Brown setti upptökuna á og beið þess sem koma skyldi.
Það var mjög kænlegt af lögreglunni að hafa komið
fyrir leynilegum hljóðnema í íbúð La Bresca fólksins
Óeinkennisklæddur lögreglumaður frá rannsóknarstof-
unni, sem kynnti sig sem símaviðgerðarmann vann þetta
óþrifaverk i borðstofu þeirra La Bresca hjúanna. Þar
næst leiddi han víra frá þakinu á húsi þeirra hjúa að
símastaurnum fyrir utan, þaðan í simastaur fyrir utan
skólann og þaðan á þak skólabyggingarinnar, niður
vegginn og inn um kjallaraglugga, jnn í örlítið herbergi.
Það var stafli stílabóka og sextán millimetra mynd-
varpa, sem skólinn átti. Þarna hafði Arthur Brown
stjórnstöð sína.
Þá var það ekki síður kænlegt af lögreglunni að láta
Arthur Brown sjá um þessar hleranir. Brown var þraut-
reyndur lögreglumaður og hafði fyrr haft umsjón eð
hlerunum. Hann var fljótur að greina aðalatriði frá
aukaatriðum í símtölum manna.
Þó var einn galli á þessu öllu.
Arthur Brown skildi ekki stakt orð í ítölsku. Concetta
La Bresca talaði hins vegar nær eingöngu ítölsku er hún
Fimmtudagur 2. október 1975
111
iiliii:
Fimmtudagur
2.október
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Sigrún Sigurðardóttir
les „Dísu og söguna af
Svartskegg” eftir Kára
Tryggvason (2). Tilkynn-
ingar kl. 9.30. Létt lög milli
atriða. Við sjóinn kl. 10.25:
Ingólfur Stefánsson ræðir
við Tómas Þorvaldsson i
Grindavik. Morguntónleik-
arkl. 11.00: Concertgebouw-
hljómsveitin i Amsterdam
leikur Spánska rapsódiu eft-
ir Ravel, Bernard Haitink
stj. Janos Starker og
Sinfóniuhljómsveit
Lundúna leika Sellókonsert
i d-moll eftir Lalo, Stanis-
law Skrowaczenski stjórn-
ar/ Artur Rubinstein og
Sinfóniuhljómsveitin i St.
Louis leika „Nætur i görð-
um Spánar” eftir Manuel de
Falla, Vladimir Golsch-
mann stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. A frívaktinni
Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan: „Dag-
bók Þeódórakis” Málfriður
Einarsdóttir þýddi. Nanna
ólafsdóttir les (22).'Einnig
les Ingibjörg Stephensen
ljóð eftir Þeódórakis og flutt
er tónlist við þau.
15.00 Miðdegistónleikar Ingrid
Haebler leikur Pianósónötu
i a-moll op. 42 eftir Schu-
bert. Jacqueline Du Pré og
Stephen Bishop leika Sónötu
nr. 5 i D-dúr fyrir selló og
pianó eftir Bt__.hoven.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatiminn Finn-
borg Scheving fóstra sér um
þáttinn.
17.00 Tónleikar.
17.30 Mannlif i mótun Sæ-
mundur G. Jóhannesson rit-
stjóri rekur endurminning-
ar sinar frá uppvaxtarárum
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fr.éttaauki. Til-
kynningar
19.35 Svipast um á Suðurlandi
Jón R. Hjálmarsson
fræðslustjóri ræðir við tvo
þykkvbæinga, Sigurbjart
Guöjónsson oddvita og
Ingva Markússon, formann
búnaðarfélagsins.
20.00 Frá sumartónleikum i
Skálholti Elin Guðmunds-
dóttir og Helga Ingólfsdóttir
leika á tvo sembala. a. „For
two virginals” eftir Farna-
by. b. „A verse for two to
play” eftir Carlton. c. „A
fancy for two to play” eftir
Tomkins. d. Svita fyrir tvo
sembala eftir Couperin.
20.25 Leikrit: „Albert á brúnn-
i” eftir Tom Stoppard Þýð-
andi: Olga Guðrún Arna-
dóttir. Leikstjóri: Þórhallur
Sigurðsson. Persónur og
leikendur: Albert: Hjalti
Rögnvaldsson. Fraser:
Gisli Alfreðsson. Fitch:
Bessi Bjarnason. Kata:
Guðrún Alfreðsdóttir. For-
maðurinn: Valur Gislason.
Georg: Ævar Kvaran.
Móðirin: Þóra Friðriksdótt-
ir. Faðirinn: Arni Tryggva-
son. Aðrir leikendur: Valde-
mar Helgason, Pétur
Einarsson, Jón Aðils, Rand-
ver Þorláksson og Klemenz
Jónsson.
21.25 Strengjakvintett i G-dúr
op. 77 eftir Antonin Dvorák
Dvorák-kvartettinn og
Frantisek Posta leika.
• 22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Rúbrúk” eftir Paul
VadÞýðandinn, Úlfur Hjör-
var, les (23).
22.35 Létt tónlist á siðkvöldi
Frægir pianóleikarar leika
rómantiska tónlist.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.