Tíminn - 15.11.1975, Síða 1

Tíminn - 15.11.1975, Síða 1
PRIMUS HREYFILHITARAR Í VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR HF HÖRÐUR OUNNARSSON SKÚLATÚNI 6 - SÍMI (91)19460 Tökum nú hæsta lán erlendis sem við höfum tekið Verðbólgan komin niður á svipað stia oa árið 1973 Lánið tekið til að styrkja greiðslustöð- una út á við --------► O OÓ-Reykjavik. Vegna hinna hóf- legu kjarasamninga, sem gerðir voru fyrr á þessu ári, hefur nú dregið mjög verulega úr verð- hækkunum, og verður verðbólgu- hraðinn væntanlega um helmingi minni á síðara helmingi þessa árs en á fyrra helmingi ársins og á árinu 1974. Virðist verðbólgan nú þegar vera komin niður á svipað stig eða lægri en á árinu 1973. Þessar upplýsingar er aðfinna i yfirliti Seðlabankans um efna- hagshorfui, og sagði Jóhannes Nordal, að útlit væri fyrir að verðhækkanir á siðari hluta yfir- standandi árs næmu 12-15%, sem er heldur minna en á árinu 1973. Ekki er útlit fyrir verulegan bata i Utflutningsverðlagi á næsta ári, og ljóst er að innflutnings- verðlag heldur áfram að hækka, þannig að ráðstöfun tekna getur ekki aukizt i hlutfalli við þjóðar- framleiðslu, meðan verið er að vinna að hjöðnun verðbólgunnar. LANDHELGISVIÐRÆÐUR VIÐ BRETA Á AAÁNUDAG OG SÍÐAN VIÐ VESTUR- ÞJÓÐVERJA Á ÞRIÐJUDAG FJ-Reykjavik. Brezku ráðherr- arnir Hattersley og Bishop koma hingað til lands i dag viö áttunda mann til viðræðna um landhelgismálið. Viðræöurnar veröa á mánudag og á þriðjudag heldur Islenzka viðræðunefndin til Bonn, en þar verða viðræður við V-Þjóðverja á miðvikudag. Brezki aðstoðarutanrikisráð- herrann, Hattersley, mun eiga viðræður við Einar Agústsson utanrikisráðherra i kvöld og mánudag koma viðræöunefnd- irnar fullskipaðar saman. Af ts- lands hálfu taka þátt i viðræð- unum sömu menn og viðræðu- nefridina hafa skipað á fyrri viö- ræðufundum. ENGIN UMFERDARFRÆDSLA Verðbólgan virðist nú mjög hafa rénað i flestum viðskipta- löndum íslendinga. Sú þróun gerir það auðveldara og enn brýnna að vinna sem fyrst bug á þeirri hættulegu verðbólgu, sem hér hefur rikt um meira en tveggja ára skeið, segir stjórn Seölabankans. Enginn vafi leikur á, að árangur sá, sem þegar hefur náðst I þessum efnum hefur átt mikinn þátt i þvi að tryggja við- unandi atvinnuástand i landinu og koma i veg fyrir meiri erfiðleika atvinnuveganna. En ný verð- bólguskriða myndi tvimælalaust stefna bæði stöðunni út á við og atvinnuástandinu i landinu i alvarlega hættu. Mörg skip í pöntun, og tæki í stórvirkj- anir verðú flutt inn d næsta óri Oó-Reykjavik. A fundi með bankastjóra Seðlabankans kom fram, að halli á öllum innflutn- ingi i ár er milli 10 og 11 milljarðar kr. Mikið af fram- leiðslutækjum er reiknað með i þessum tölum. Eru það skip og tæki til stórvirkjana, aðallega Sigöldu, svo og flugvélar. Tæp- ast verður hægt að spara ínn- flutning á slikum tækjum á næsta ári, þvi ókomin eru til landsins mörg skip, sem búið er að semja um kaup á, mikið af tækjum til Sigölduvirkjunar er ókomið, og á næsta ári verða einnig fluttar inn vélar i Kröflu- virkjun. Verði um einhvern samdrátt á innflutningi að ræða á næsta ári, mun það bitna á öðrum innflutn- ingi en hér er talinn. Greiðslubyrði gjaldeyrisstöð- unnar er nú um 15%, og verður milli 16 og 17% á næsta ári, og hún stefnir upp á viö vegna þeirra lána, sem nú er búið að taka. í SKÓLUM OKKAR gébé Rvik — Engin umferðar- fræðsla er i skólum á tslandi, hvorki i barna-, unglinga- né framhalds skólum. Þetta er ógn- vekjandi staðreynd, sérstaklega nú, þegar slysafaraldurinn er geigvænlegur. Tuttugu og niu manns hafa látizt af völdum um- ferðarslysa það sem af er þessu ári, og tugir manna slasast. Mikið hefur veriö rætt um að veita gömlu fólki umferðarfræðslu, þvi eins og kunnugt er, hafa fjölmörg siys i umferðinni undanfarið ein- mitt oröiö á gömlu fólki. Þetta hefur þó aðeins verið gert á ein- um stað á landinu i Kópavogi, þar sem Klúbburinn öruggur akstur hefur haft einn fund með gamla fólkinu þar I bæ um umferðarmál. — Klúbbarnir Oruggur akstur hafa lengi barizt fyrir þvi, að kennsla i umferðarfræðslu verði tekin upp i öllum skólum lands- ins, og þá sérstaklega barnaskól- um, sagði Ingjaldur ísaksson for- maður klúbbsins Oruggur akstur i Kópavogi á blaðamannafundi i gær. Hann hefur átt sæti i stjórn Landssamtakanna Klúbbanna öruggur akstur frá upphafi, en einmitt um þessar mundir eru liðin tiu ár frá þvi að fyrsti klúbburinn var stofnaður. Ingjaldur Isaksson sagði einnig, að klúbbarnir berðust fyrir þvi að bókleg ökukennsla yrði tekin upp i unglingaskólum, þvi að það væri staðreynd, að langhættulegustu ökumennirnir i umferðinni væri 17 ára unglingar, sem væru nýbúnir að taka öku- próf. — ökukennslu i landinu hefur verið mjög áfátt, sagði hann. Til eru dæmi um það, að unglingar hafi fengið ökuskir- teini, eftir að hafa sótt aðeins eina kennslustund hjá ökukennara. Þá geta þeir einnig hafið nám i bif- reiðaakstri,áðurenþeirná 17ára aldri. Annað atriði benti Ingjaldur á, og það er að Islendingar læra flestir á bil að sumrinu til, og læra þvi ekki hvernig haga skuli akstri i hálku og snjó. Hefur reynslu- leysi ökumanna i þessum efnum margsinnis orðið orsök alvar- legra slysa. Umferðin er með ógn- þrungnasta móti — og þá kemur i ljós, að umferðarfræðsla meðai yngstu borgaranna er engin i skólum. Von er að mönn- um bregði i brún, og hugsar vist I margur sem svo, að eitthvað mætti fremur sitja á hakanum en fræðsla, sem kynni að geta orðið til þess, að forða börnun- um okkar frá örkumlum eða jafnvel dauða. — Timamynd: Róbert. Uppspuni að Breta hafi ver- ið vísað út fyrir BH-Reykjavik — Pétur Sigurðs- son, forstjóri Landhelgisgæzlunn- ar, veitti Timanum þær upplýs- ingar i gærkvöldi, að allt væri tíð- indalaust i landhelginni. Brezka útvarpið hefði að visu sagt, að Landhelgisgæzlan hefði visað brezkum togara út fyrir, en Pétur kvað þá fregn ekki hafa við rök að styðjast. Hins vegar sagði Pétur okkur, að Islenzkur togari hefði fengið dufl i vörpuna fyrir vestan. Var þegar settur maöur um borö i tog- arann til að gcra dufliö óvirkt, en það kom þá i ljós, að það hafði verið gert óvirkt áður, svo að þvi var sökkt.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.