Tíminn - 15.11.1975, Blaðsíða 3
Laugardagur 15. nóvember 1975.
TÍMINN
3
Frá ráðstefnunni um atvinnumál háskólamanna
/ r
Timamynd GE
A
HASKOLAAAENNTUÐU FOLKI
Bifreiðastióror á BSR:
Vilja tryggja stað-
setningu stöðvarinnar
BH-Reykjavik. — Bilstjórarnir á
Bifreiðastöð Reykjavikur, sem
hefur aðsetur sitt á allstórri lóð
við Lækjargötu, hafa skrifað
borgarráði bréf varðandi aðstöðu
bifreiðarstöðvarinnar, en heil-
brigðiseftirlit borgarinnar hefur
hótað lokun afgreiðsluskúrs
stöðvarinnar vegna ófullnægjandi
hreinlætisaðstöðu. Bifreiðastöð
lleykjavikur er rekin af einka-
aðila, en borgin á lóðina, sem
stöðin hefur haft undir rekstur
sinn. Bjóðast bilstjórarnir til að
koma upp flytjanlegu af-
greiðsluliúsnæði og malbika lóð-
ina, gegn tryggingu uin áfram-
haldandiveru stövarinnar þarna.
Það er ljóst, að ef heilbrigðis-
FJÖLGAR
eftirlitið lætur loka afgreiðslu-
skúrnum, er aðstaða stöðvarinn-
ar öll önnur en nú, og óttast bif-
reiðastjórarnir, að það dragi til-
finnanlega úr starfseminni. Þess
vegna vilja þeir allt til vinna, og
bjóðast sjálfir til að malbika port-
ið og koma þar upp flytjanlegp af-
greiðsluhúsi, i stað þess sem nú er
notazt við. Hins vegar fara þeir
fram á að fá tryggingu fyrir á-
framhaldandi dvöl þarna, og
hefur heyrzt, að rætt sé um 10—15
ár.
Mál þetta er nú i athugun hjá
borginni. Það hefur verið rætt i
borgarráði, og var vinsamlega
tekið, og kom fram sú skoðun, að
gamli bærinn mætti ekki missa
BSR úr hatti sinum, nógu lifvana
væri hann samt. Samþykkti
borgarráð að visa erindinu til
umsagnar borgarverkfræðings á
fundi sinum sl. þriðjudag.
MEIRA EN GERT VAR RAÐ FYRIR
— Vart er þó hægt að tala um atvinnuleysi meðal hóskólamanna
SJ—Reykjavik — Háskólamennt-
uðum mönnum hefur fjölgað mun
örar hér á landi heldur en áætlað
var fyrir nokkrum árum. i áætl-
unum svonefndrar Háskólanefnd-
ar 1968 var gert ráð fyrir að há-
skólamenntuðu fólki myndi fjölga
um 6-7% að meðaitali á ári á
timabilinu 1968-’85. Samkvæmt
nýgerðri talningu og áætlun kem-
ur hinsvegar i ljós, að fjölgunin er
að meðaitaii um 8,5% á ári 1968-
1980. Háskólamenntuðum fjölgar
örar hér en i Danmörku, en þar
var fjölgunin 4-5% að meðaltali á
ári 1950-’72, og gert er ráð fyrir að
hún verði um 7% á timabiiinu
1972-’87.
Þetta kom ma. fram i yfirliti
um tölfræðilegar athuganir
Bandalags háskólamanna á
fjölda háskólamenntaðra manna
nú og spá fyrir 1980, sem Magnús
Skúlason gerði grein fyrir á ráð-
stefnu um atvinnumál háskóla-
manna, sem hófst i Ráðstefnusal
Hótel Loftleiða I gær og lýkur nú i
kvöld.
1 yfirlitinu er bent á, að veldi
gamalla og virðulegra náms-
greina, guðfræði, lögfræði og
læknisfræði, fari siminnkandi.
Þannig voru guðfræðingar 6.6%
af heildarfjölda háskólamennt-
aðra manna 1. nóv. 1968, en við
áramót 1980/1981 er áætlað, að
þeir verði aðeins 3,3% af heildar-
fjöldanum. Á sama timabili lækk-
ar hlutur lögfræðinga úr 17,4% I
11,0% og lækna úr 16,8% I 11,0%.
Mest hlutfallsleg fjölgun háskóla-
manna er hins vegar i þeim
greinum raunvisinda, sem hafin
var kennsla i til B.S.-prófs við Há-
skóla Islands árið 1970. Þá er gert
ráð fyrir, að kennarar, sem út-
skrifazt hafa frá Kennaraháskóla
Islands, verði um 4,5% af heildar-
fjölda háskólamenntaðra tslend-
inga við áramót 1980/1981, en
fyrstu kennarar útskrifuðust frá
K.H.l. 1974. Enn fremur eru i ný-
gerðri talningu taldir með tækni-
fræðingar og sjúkraþjálfarar, en
þeir voru ekki taldir með i könnun
háskólanefndar. Áætlað er, að
tæknifræðingar verði um 7% af
heildarfjölda háskólamanna við
áramót 1980/1981, en sjúkraþjálf-
arar um 1%.
Að mati Iðnþróunarnefndar og
áætlanadeildar Framkvæmda-
stofnunar rikisins verður megin-
einkenni mannaflaþróunar næstu
ára vöxtur mannafla þjónustu-
greina i hlutfalli við heildar-
mannaflann. Háskólamenn telja,
að þeir hljóti að verða sifellt
stærri hluti mannaflans i þjón-
ustugreinum, jafnframt þvi sem
þeir hljóti að ryðja sér meira til
rúms i ýmsum úrvinnslugreinum,
t.d. fiskiðnaði, þó erfiðlega hafi
gengið hingað til. 1968 voru há-
skólamenntaðir menn 7,9%
mannaflans i þjónustugreinum,
1975 10,4% og 1980 er áætlað að
þeir verði 13,5% mannaflans i
þjónustugreinum. Er þá miðað
við að allir háskólamenntaðir
menn starfi við þjónustugreinar.
Af upplýsingum frá aðildar-
félögum BHM má ráða, að svo til
allir háskólamenntaðir menn
sinni störfum, þar sem menntun
þeirra nýtist i starfi. Vart er þvi
hægt að tala um atvinnuleysi
meðal háskólamanna. Yfirleitt
rikir jafnvægi á vinnumarkaði
háskólamanna eða eftirspurn er
meiri en framboö. Jafnvægi rikir
á vinnumarkaði náttúrufræðinga,
tæknifræðinga, verkfræðinga og
arkitekta. Hins vegar er eftir-
spurn meiri en framboð meðal
bókasafnsfræðinga, sjúkraþjálf-
ara, lyfjafræðinga, dýralækna,
sálfræðinga og viðskipta- og hag-
fræðinga. Ekki er um að ræða, að
framboð sé meira en eftirspurn
nema á vinnumarkaði lög-
fræðinga, og er þá miðað við
hrein lögfræðistörf. Talin er
hætta á offjölgun meðal náttúru-
fræðinga, lyfjafræðinga, lækna,
sálfræðinga og lögfræðinga. Þótt
talin sé hætta á offjölgun meðal
Ferðalögum ís-
lendinga fækkar
útlendingum fjölgar
gébé—Rvik —Tala farþega til Is-
lands, með skipum eða fiugvél-
um, er nokkuð minni I ár heidur
en i fyrra, og eru ferðaiög tslend-
inga mun minni. Frá áramótum
til 1. nóvember 1975 komu 45.563
islendingar til landsins en á sama
tima árið 1974 voru þeir 48.899.
Tala útlendinga á þessu saina
timabili i ár er þó nokkru hærri
nú, eða 66.767, en var 64.154 I
fyrra.
í októbermánuði s.l. komu,
samkvæmt tölum frá útlendinga-
eftirlitinu, 3.831 útlendingar hing-
að til lands, og er fjöldi Banda-
rikjamanna þar mestur, eða 1900.
1 október 1974 komu aftur á móti
nokkuð fleiri útlendingar, eða
4.012 talsins. I október 1974 komu
4.634 íslendingar til landsins, en
voru 4.136 I október s.l. Alls ferð-
uðust með skipum eða flugvélum
7.967 farþegar i október i ár, en
voru mun fleiri i fyrra, eða alls
8.646 manns, erlendir og islenzkir
farþegar.
náttúrufræðinga og lyfja-
fræðinga, er það ekki vegna verk-
efnaskorts, heldur bendir margt
til þess, að atvinnumöguleikar
þeirra fari versnandi. Allt fer
þetta þó eftir þvi, hvaða stefnu
verður fylgt i atvinnu- og rann-
sóknamálum I framtiðinni.
Ný starfssvið fyrir náttúru-
fræðinga, sem benda má á, eru á
sviði matvælafræða- og mat-
væðagerlafræða og á sviði vatna-
mála- og búvisinda fyrir veður-
fræðinga.
Hugsanleg riý starfssvið fyrir
lyfjafræðinga eru á sviði um-
hverfisverndar, matvælaeftirlits
og ýmis störf við sjúkrahús. Þess
má geta, að viða erlendis eru
störf við lyfja- og efnaiðnað tvö af
þrem aðalstarfssviðum lyfja-
fræðinga, en hér á landi eru
starfsmöguleikar við slikan iðnað
takmarkaðir.
Sem ný starfssvið fyrir arki-
tekta má benda á ýmis svið opin-
berrar þjónustu, t.d. rannsókna-
starfsemi, upplýsingasöfnun og -
miðlun. Fyrir dýralækna má
benda á ýmis rannsóknastörf á
sviði matvæla- og heilbrigðiseft-
irlits. Verkfræðingar benda á
störf I fiskiðnaði, við útgerð og við
landmælingar.
Félag islenzkra fræða bendir á,
sem ný starfssvið fyrir sina
félagsmenn, hvers konar fjöl-
miðlun og störf i utanrikisþjón-
ustunni. Sjúkraþjálfarar benda á,
sem ný starfssvið, sjúkraþjálfun
og fyrirbyggjandi starf i skólum,
leiðbeiningar um hagnýtar
starfsaðferðir og vinnutilhögun,
auk fyrirbyggingar atvinnusjúk-
dóma. Þá benda bókasafnsfræð-
ingar á störf við rannsókna- og
þjónustustofnanir, skóla, skjala-
söfn, almenningsbókasöfn, o.fl.
Sem ný starfssvið fyrir sálfræð-
inga, má benda á starfsmanna-
hald (vinnusálfræði), störf við fé-
lagsmálastofnanir og störf að
barnaverndármálum. Guðfræð-
ingar benda á störf á sviði félags-
ráðgjafar og aðstoð við sjúklinga.
Hugsanleg ný starfssvið fyrir
lögfræðinga eru ýmis stjórnsýslu-
svið, bæði störf á vegum rikis og
sveitarfélaga, einkum viö samn-
ingu lagafrumvarpa og almennra
stjórnsýsluframkvæmda, svo og
við uppkvaðningu úrskurða.
A undanförnum árum hefur
orðið sú breyting helzt á starfs-
sviði viðskiptafræðinga og hag-
fræðinga, að þeir hafa i auknum
mæli tekið við almennum stjórn-
sýslustörfum á vegum hins opin-
bera. Breyttir atvinnuhættir og
breytt skipulag atvinnustarfsemi
hefur einnig aukið þörfina á við-
skiptafræði- og hagfræðimennt-
uðu fólki. Flest bendir til, að þessi
þróun haldi áfram.
Formaður Bandalags háskóla-
manna, Jónas Bjarnason, setti
ráðstefnuna, en siðan flutti Birgir
Thorlacius ráðuneytisstjóri er-
indi. Auk þess töluðu prófessor
Þórir Einarsson um Hvað hefur
ráðið þróun kennslu á háskóla-
stigifram til þessa? Ragnar Hall-
dórsson um stjórnun i þjóðfélag-
inu og nýtingu háskólamenntaðs
starfsfólks.Bjarni Bragi Jónsson
um mannaflaspár og notkun
þeirra við áætlanagerðir, Jóhann
Hannesson um aðgang að há-
skólanámi og hvort stjórna eigi
honum, og fulltrúi Stúdentaráðs
Háskóla tslands um námsval stú-
denta. Þá fóru fram umræður.
1 dag eru flutt erindi og rætt um
framtiðarverkefni og þarfir fyrir
háskólamenntað starfsfólk i ýms-
um greinum.
Loks verður starfað i vinnuhóp-
um um viðfangsefni ráðstefnunn-
ar.
Bindindisdagur-
inn í Hafnarfirði
gébé—Rvik — Hafnfirðingar
halda bindindisdaginn hátiðlegan
á sunnudaginn, 16. nóv. Messa
verður i Hafnarfjarðarkirkju kl.
14:00. Sr. Helgi Tryggvason pré-
dikar og sr. Bragi Friðriksson
þjónar fyrir altari. Einsöng syng-
ur frú Inga Maria Eyjólfsdóttir.
Skemmtisamkoma verður um
kvöldið á vegum Ungtemplarafé-
lagsins Depils i Góðtemplarahús-
Vilja breytingar
á skattalögunum
BLAÐINU hefur borizt eftirfar-
andi ályktun:
„Aðalfundur Félags isl. nátt-
úrufræöinga, haldinn nýlega,
fagnar aðgerðum skattgreiðenda
i Bolungavik og viðar, sem miða
að þvf, að launþegar séu ekki
endalaust látnir greiða mun hærri
skatta en þeir, sem mun betur eru
stæðir og hafa atvinnurekstur
með höndum. Fundurinn vill
benda á, að misgerðir i skattlagn-
ingu eru fyrst og fremst að kenna
gloppóttum skattalögum, og
skorar fundurinná launþegasam-
tök og allan almenning að knýja
fast á við þingmenn að fá fram
nauðsynlegar breytingar á
skattalögum, þannig að launþeg-
ar séu ekki beittir áframhaldandi
misrétti i skattlagningu.”
Áætlunarflug Vængja
til Súgandafjarðar
hefst í næstu viku
gébé Rvik — 1 næstu viku áætlar
Flugfélagið Vængir að hefja áætl-
unarflug til Súgandafjarðar, að
sögn Hafliða Ilelgasonar fram-
kvæmdastjóra. Bætir þetta mjög
úr samgöngum viö Súgandafjörð,
og þá sérstakiega aö vetrarlagi.
Nýlokið er við gerð flugbrautar i
Súgandafirði, og hún lögiega
viðurkennd nú fyrir nokkrum
dögum. Fiugbrautin er 525 metr-
ar að lengd.
Hafliði sagði blaðamanni Tim-
ans, að Vængir áætluðu að vera
með ferðir þrisvar i viku tf
Súgandafjarðar, og myndu þeii
þá flytja farþega, póst og fragt
— Til þessara ferða munum við
nota Twin Otter skrúfuþotur, sem
taka 19 farþega, og Islander-vél-
ar, sem taka 9 farþega. Þetta
gjörbreytir samgöngumöguleik-
um Súgfirðinga, og þá sérstak-
lega yfir vetrartimann, þegar oft
er erfitt fyrir þá að hafa samband
við umheiminn.
ENN FJOLGAR FORNAR-
LÖMBUM UMFERDARINNAR
Gsal-Reykjavik — Enn liækkar
tala þeirra, sem látizt hafa i
umferðarslysum á þessu ári. f
gærmorgun lézt á gjörgæzlu-
deild Borgarspitalans Ingunn
Ilalldórsdóttir frá Einarstöðum,
Prestshólahreppi i Núpasveit,
N-Þing., af völdum meiðsla, er
hún hlaut i bilslysi á Húsavik 3.
þessa mánaðar. Ingunn hlaut
mjög alvarleg höfuömeiðsl og
komst aldrei tii meðvitundar.
Hún var sextán ára gömul.
I fyrradag lézt einnig Sigur-
björn Arason, sem varð fyrir bil
á Kleppsvegi, rétt innan við
Dalbraut 7. október sl. Sigur-
björn var 76 ára.
Það sem af er þessu ári hafa
þvi 29 látizt i umferðarslysum,
og er það hærri tala en um getur
á einu ári — og er þó hálfur ann-
ar mánuður til ársloka.