Tíminn - 15.11.1975, Síða 4

Tíminn - 15.11.1975, Síða 4
4 TÍMINN Laugardagur 15. nóvember 1975 " Jackie vili giftast Ted mági sínum Nú er Kennedy-fjölskyldan i þann veginn að springa i loft upp, vegna þess að Jackie Onassis hefur hugsað sér að giftast mági sinum, Ted Kenne- dy, að þvi er fréttir herma. Frá þessu segja blööin Chicago National og London Daily Ex- press. Þegar Ted hefur fengið skilnað frá Joan konu sinni mun Jackie enn einu sinni verða briíður. Nú er Jackie ein af þeim, sem hafa hæfileika til þess að krefjast og fá það sem þeir hafa hugsað sér. Hún hefur heldur ekki minnstu áhyggjur af þvi, hvað fólk hugs- ar um hana eða segir. Það verð- ur lfka að viðurkennast, að hún er kjarkmikil kona. Ted hefur ekki búið með konu sinni i nær þvi eitt ár. Og þegar á skilnaðarviðræðunum stóð, sagði faðir Joan við blaðamenn, að það eina sem gæti bjargað dóttur hans frá algjörri glötun væri að losna undan áhrifavaldi Kennedy-fjölskyldunnar, en Joan hefur bæði drukkið úr hófi fram að undanförnu og er mjög langt leidd andlega. Jackie og Ted hafa umgengizt hvort annað mjög mikið frá þvi að Ari Onassis dó á siðasta vetri. Þau hafa farið saman f ferðalög til útlanda, og einnig hafa þau fylgzt að i veizlum og á opinber- um skemmtistöðum. Ted fer meira að segja með Jackie i búðir, og þau leika saman tenn- is. Illar tungur segja, að Ted haldi, að hann eigi meiri mögu- leika á að komast i forsetafram- boð, ef hann gengur að eiga Jackie. Þau yrðu sannarlega óvenjuleg hjón, sem fólk hefði gaman af að tala um. Það mun þó vera staðreynd, að öll Kenne- Það er eins gött að í töskuna sína Golda Meir, fyrrum forsætis- ráðherra Israels, var eitt sinn svofátæk, aðhún átti varla fyrir mat handa sér og börnum sin- um. 1 dag er hún 77 ára gömul og orðin milljónamæringur. Sjálfsævisaga hennar ,,Lif mitt” hefur komið út i 17 lönd- um, og fram til þessa hefur hún fengið 450 þúsund dollara frá út- gefandanum, Weidenfeld & halda fast Nicholson i London. Fari svo, að hún selji kvikmyndaréttinn að ævisögunni, mun hún fá álika mikið fyrir það eitt. Fyrir hluta peninganna hefur Golda hugsað sér að lagfæra tveggja her- bergja fbúðina sina i einu af út- hverfum Tel Aviv, en svo veit hún ekki, hvað hún á að gera við afganginn. dy-fjölskyldan hefur iýst yfir stuðningi við framboð mágs hans, Sargent Shriver, sem einnig vill verða forseti. Þau Ted og Jackie, eru sannarlega vinaleg hvort við annað hér á myndinni eins og þið getið séð. Jackie ætti enn aö ganga i svört- um sorgarklæðum samkvæmt griskri venju, en hún er fyrir löngu búin að kasta sorgarslæð- unni og farin að ganga klædd eins og henni bezt likar sjálfri. Hér er svo að lokum mynd af hinni óhamingjusömu Joan Kennedy, sem hefur sannarlega ekki átt sjö dagana sæla undan- farin ár, og hún hefur vist ekki þrifizt innan Kennedy-fjölskyld- unnar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.