Tíminn - 15.11.1975, Qupperneq 7
Laugardagur 15. nóvember 1975.
TÍMINN
7
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
í>órarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Rit-
stjórnarfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri:
Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gisla-
son. Ritstjórnarskrifstofur i Edduhúsinu við Lindargöty,
simar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aðalstræti 7, simi 26500
— afgreiðsiusimi 12323 — auglýsingaslmi 19523. Verð í
lausasölu kr. 40.00. Áskriftargjald kr. 800.00 á mánuði.
BlaðaprentH'.L
Útgjöld ríkisins
Mikið er nú rætt um rikisútgjöldin um þess-
ar mundir. Það á sinn þátt i þessu, að halli var
á rikisrekstrinum i fyrra og sennilega verður
enn meiri halli i ár. Þetta er að sjálfsögðu allt
annað en æskilegt. Hins má þó gæta, að ís-
lendingar eru ekki einir um þetta á þessum
timum. Undantekningarlitið hefur verið halli á
rikisrekstrinum i nágrannalöndum okkar
undanfarin ár, og verður hann þó langmestur i
ár. T.d. verður þessi halli stórfelldur i ár i
Bandarikjunum og Vestur-Þýzkalandi.
Ástæðan er sú, að ekki hefur þótt rétt að þyngja
skattana og jafna hallann á þann hátt, þvi að
það hefði getað leitt til samdráttar. Það hefur
heldur ekki þótt rétt að draga svo mikið úr út-
gjöldum, að jöfnuður næðist á þann hátt. Það
hefði einnig getað hert á kreppunni og aukið at-
vinnuleysið. Það þarf ekki að vera neitt óeðli-
legt, þótt einhver halli sé hjá rikinu á
krepputimum, en að sjálfsögðu á að reyna að
vinna hann upp, þegar vel árar. T.d. getur þá
verið auðveldara að draga úr ýmsum fram-
kvæmdum eða að krefjast meira af skatt-
þegnunum.
Með þessu er ekki verið að halda þvi fram,
að hallinn á rikisrekstrinum hefði ekki mátt .
vera minni i fyrra og i ár. En reynslan annars
staðar sýnir, að slikur halli er ekki óalgengur á
krepputimum.
Nú er mikið rætt um að draga þurfi úr rikis-
útgjöldum og skal þvi ekki mótmælt. Rikis-
stjórnin og flokkar hennar vinna að þessu eftir
föngum. En hér verður þó að gæta hófs, eins og
á öðrum sviðum. Að sjálfsögðu ber að draga úr
hvers konar rekstrarútgjöldum, eins og hægt
er.
Viða hjá rikinu má áreiðanlega spara i
mannahaldi, ef aukinnar aðgæzlu er gætt Það
er alveg furðulegt að sjá hvernig mannahald
eykst hjá ýmsum rikisstofnunum og hvernig
óþörf skrifstofumennska blómgast. Þannig
safnast nú hjá þingmönnum meira og minna af
alls konar skýrslum, sem stafar af þvi, að
engin samræming á sér stað i þessum efnum,
og hver stofnunin virðist setja metnað sinn i að
gefa út skýrslur. Flest er þetta meira og minna
gagnlitið. En þótt hér megi eitthvað spara,
skiptir það ekki stórum upphæðum. Ef draga á
úr útgjöldum rikisins að ráði, verður það ekki
gert, nema á þann hátt að dregið verði úr
þjónustu við almenning á ýmsum sviðum eða
að dregið verði úr þeim millifærslum, sem
rikið reynir að framkvæma til að jafna kjörin i
landinu með þvi að skattleggja þá, sem betur
mega, og styrkja hina, sem verr eru staddir.
Það er alger fjarstæða, þegar rikinu er lýst
sem ræningja, sem sé að draga til sin fjármuni
borgaranna og stinga þeim i eigin vasa. Allt,
sem rikið innheimtir, dreifist aftur með einum
eða öðrum hætti til borgaranna, og stundum
meira til, eins og rekstrarhallinn á þessu ári
ber merki um. Þetta verða menn að gera sér
ljóst, ef ræða á þessi mál i einhverri alvöru. Úr
rikisútgjöldum verður ekki verulega dregið,
nema einhver þjónusta eða tilfærsla milli
borgaranna verði skert. Um þetta stendur
valið og umræður um þessi mál eiga þvi að
snúast um hvað eigi að velja og hverju eigi að
hafna. Annað er óábyrgur áróður. -Þ.Þ
ERLENT YFIRLIT
Verður Roberto eða
Neto sigursælli?
Tvær ríkisstjórnir keppa í Angóla
HINN 10. þ.m. gerðist sögu-
legur atburður i Luanda,
höfuðborg Angola. Landshöfð-
ingi Portúgala þar, Leonel
Cardoso, flutti þá ræðu, þar
sem hann lýsti yfirráðum
Portúgala lokið og dró niður
fána Portúgals að henni lok-
inni. Með þessari athöfn lauk
langri sögu Portúgals sem ný-
lenduveldis. Það hófst 1485,
þegar Portúgalar lýstu yfir
yfirráðum sinum i Angola.
Angola varð lika siðasta ný-
lenda þeirra.
Það hafði verið von Portú-
gala, að þeir gætu afhent inn-
lendri stjórn völdin i hendur.
Um skeið voru góðar horfur á
þvi. I janúarmánuði siðastl.
náðist samkomulag milli
hinna þriggja frelsishreyfinga
I landinu um myndun sam-
eiginlegrar stjórnar. Þetta
samkomulag fór þó fljótt út
um þúfur og hófst þá blóðug
barátta milli þeirra um yfir-
ráðin i landinu. Formlega fékk
Angola sjálfstæði 13. þ.m. Þá
stóðu málin þannig, að
MPLA-hreyfingin réði yfir
höfuðborginni og miðhluta
landsins. FNLA-hreyfingin
réði yfir norðurhluta landsins,
en UNITA-hreyfingin yfir
suðurhlutanum. Erfitt er að
gera nána grein fyrir þessum
hreyfingum, en allar segjast
þær berjast fyrir sjálfstæði
Angola og stefna að meira eða
minni sósialisma. MPLA er
talin lengst til vinstri, en hún
hefur notið stuðnings Rússa
og Austur-Evrópuþjóða og er
sögð bezt vopnum búin. FNLA
er talin lengst til hægri og nýt-
ur lika stuðnings Bandarikj-
anna og Kína. UNITA er talin
fara bil beggja en hún er sögð
njóta stuðnings frá Zambiu og
fleiri Afrikurikjum.
Strax hinn 13. þ.m. var lýst
yfir stofnun tveggja rikis-
stjórna i landinu. 1 Luanda
lýsti MPLA yfir stjórnar-
myndun og tók foringi hennar,
Agostinho Neto, sér forseta-
nafnbót. FNLA lýsti yfir
stjórnarmyndun i hafnarborg-
inni Ambritz, sem ,er um 150
km fyrir norðan Luanda, und-
ir forustu Holden Roberto.
Þriðja hreyfingin, UNITA,
gekk ekki svo langt til verks,
enda hefur náðst eins konar
Jonas Savimba
Agostinho Neto
samkomulag milli hennar og
FNLA. Foringi hennar, Jonas
Savimba, var áður háttsettur I
FNLA, en klauf sig úr henni og
stofnaði eigin hreyfingu. Ýms-
ir blaðamenn, sem hafa dval-
izt i Angola, telja hann einna
vænlegastan til ^-forustu, ef
friður kæmist á i landinu.
Vera má, að hann fari því
hægara i sakirnar en þeir Neto
og Roberto.
ÞEIR Nefo og Roberto eru
á ýmsan hátt hinir merkustu
menn. Neto, sem er 54 ára
gamall, hefur verið leiðtogi
MPLA síðan 1962. Hann segir,
að hreyfingin sé fylgjandi rót-
tækum sósialisma, en taki
ekki mið af neinum erlendum
fyrirmyndum. Hún þiggi að
visu hjálp frá Rússum, en sé
þó óháð þeim og hafi sósial-
isma þeirra ekki sem fyrir-
mynd. Netolærði læknisfræði i
Portúgal, en námið tók hann
lengri tima en ella vegna þess,
að hann sat i fangelsi um
skeið, grunaður um þátttöku i
ólöglegum stjórnmálafélög-
um. Honum tókst þó að ljúka
prófi og starfaði hann sem
læknir i fátækrahverfum
Lissabon i nokkur misseri. Ar-
ið 1960 hélt hann heim til An-
gola, en var fljótlega tekinn
höndum og fluttur til Portú-
gal, þar sem hann sat i
fangelsi um skeið, grunaður
um ólöglegan undirróður.
Honum var sleppt lausum og
tókst honum að komast aftur
til Angola. Skömmu eftir
heimkomuna sat hann fyrsta
landsfund MPLA og var kos-
inn íormaður hennar. Hann
vann sér m.a. frægð fyrir það
á þessum tima að yrkja
baráttukvæði og að semja iög
við þau. Neto hefur skrifað
mikið og þykir góður rit-
höfundur.
Holden Roberto er listrænn,
eins og keppinautur hans, en á
annan hátt. Hann hefur mikið
yndi af tónlist og er sagður
geta hlustað á lög eftir Mozart
timum saman. Roberto flutti
ungur með foreldrum sinum
til Zaire (þá belgiska Kongo)
og þar hefur hann dvalið
mestan hluta ævinnar.
Hann stofnaði FNLA-
hreyfinguna um 1960 og
var hún um skeið öflugasta
frelsishreyfingin i Angola eða
áður en Jonas Savimba klauf
sig úr henni og stofnaði
Holden Roberto
UNITA. Sögusagnir herma, að
þeir séu svilar. Roberto og
Mobuto einræðishr. i Zaire.
Vist er það, að Mobutu styður
Roberto, ásamt Bandarikja-
mönnum og Kinverjum. Ro-
berto neitar þvi, að hann sé
nokkuð háður Bandarikjunum
eða öðrum vestrænum rikjum,
eða sæki hugmyndir sinar
þangað. Þvi til sönnunar
bendir hann á, að hann sé
einnig studdur af Kinverjum.
A ÞESSU stigi er erfitt að
spá þvi, hvernig borgara-
styrjöldinni i Angola muni
lykta. Mikið getur oltið á
þeirri hjálp, sem þeim berzt
utan frá, og á viðbrögðum
annarra Afrikurikja. Þau riki,
sem áður voru nýlendur
Portúgala, munu öll hafa
viðurkennt stjórn Neto. Þetta
hafa Sovétrikin og önnur Aust-
ur-Evrópuriki einnig gert.
Hins vegar mun stjórn Ro-
bertos enn ekki hafa hlotið
formlega viðurkenningu.
Þetta kann nokkuð að stafa af
þvi, að hún er enn tæpast kom-
in formlega á laggirnar. Ro-
berto hefur lýst yfir myndun
rikisstjórnar i Ambritz, en
jafnframthefur verið tilkynnt,
að sameiginleg stjórn FNLA
og UNITA muni hafa bæki-
stöðvar sinar i Nova Lisboa,
sem er á yfirráðasvæði
UNITA: Þá hefur talsmaður
UNITA lýst yfir þvi, að raun-
verulega sé minni stefnu-
ágreiningur milli UNITA og
MPLA en á milli UNITA og
F'NLA, en siðari hreyfingarn-
ar hafi þó tekið höndum sam-
an sökum yfirgangs MPLA.
Þannig virðist samvinnan
milli FNLA og UNITA tæpast
vera nógu traust.
Angola er stóft land og
náttúruauðugt, sennilega eitt
af auðugustu löndum Afriku.
Þar er m.a. miklar oliulindir,
sem enn eru litið‘hagnýttar.
Það er þvi eftir talsverðu að
sækjast fyrir stórveldin, sem
styðja hinar andstæðu
hreyfingar þar. Sennilega
reyna stórveldin þó að halda
þessum stuðningi sinum innan
hóflegra marka, svo að það
verður endanlega heimamenn
sjálfir og afstaða þeirra til
hinna einstöku hreyfinga, sem
ræður úrslitum. Vafalaust
væri það lika heppilegasta
lausnin.
Þ.Þ.