Tíminn - 15.11.1975, Page 11

Tíminn - 15.11.1975, Page 11
Laugardagur 15. nóvember 1975. TÍMINN 11 GÚSTAF AGNARS- SON.... hefur átt við að striða meiðsl i ökla, sem hann hlaut i Moskvu. SKCLI ÓSKARS- SON...æfir nú af kappi fyrir HM i kraftlyfting- um, sem fer fram í Birmingham. SKÚLI STEFNIR « Birmingham AÐ HEIMSMETI Lyftingakappinn Skúli óskarsson stefnir að þvi að tryggja sér heimsmet i réttstöðulyftingu i kraftlyftingum. Skúli æfir nú af kappi fyrir heimsmeistarakeppn- ina i kraftiyftingum, sem fer fram f Birmingham 21.-23. nóvember. Skúli er nú i mjög góðri æfingu, hann setti nýlega giæsiiegt tslandsmet I réttstöðu- lyftingu — 290 kg, sem er aðeins 15 kg minna en núverandi heims- met — 305 kg. Hann hefur mikla möguleika á að komast á verð- iaunapallinn i Birmingham — og jafnvel að setja heimsmet, ef honum tekst vel upp. GÚSTAF AGNARSSON, sem hefur tryggt sér farseðilinm á Ólympiuleikana i Montreal, hefur ekki getað æft sem skyldi að undanförnu. Gústaf á við meiðsl i ökla að striða, en hann tognaði illa, þegar hann var i keppni i Moskvu. Meiðslin hafa komið i veg fyrir, að Gústaf gæti æft snörun og jafnhendingu — þar sem hann má ekki reyna mikið á fótinn með snöggum hreyfingum. Þrátt fyrir þessi meiðsl hefur Gústaf ekki slegið slöku við, hann æfir léttar æfingar, sem hann þyngir smátt og smátt. Gústaf er nú byrjaður að undirbúa sig fyrir ÓL, og æfir hann eftir rússnesku prögrammi. — SOS FH-INGAR TIL NOREGS íslendi erfiðir sækja — Við gerum okkur ekki alltof miklar vonir um sigur gegn FH-liðinu. Við vitum að það er sterkt og með þvi leika margir snjallir hand- knattleiksmenn, eins og t.d. Geir Hallsteinsson, sagði norski landsliðs- maðurinn Alan Gjerde, sem er einn bezti leik- maður norska liðsins Oppsal, mótherja FH-inga i Evrópukeppni bikarhafa. — Islending- ar eru erfiðir heim að sækja, og þess vegna Haraldur og Steinar til Svíþjóðar HARALDUR KORNELÍUSSON og STEINAR PETERSEN taka þátt i Norðurlandamótinu i bad- minton, sem verður haldið i Stokkhólmi i Sviþjóð um helgina. Haukar mæta Ármanni Haukar og Ármenningar mætast i Hafnarfirði á sunnudagskvöldið i I. deildar keppninni i handkuatt- leik. Þá leika einnig Grótta og ný- liðar Þróttar — sá leikur hefst kl. 20.15. Staðan fyrir þessa leiki er nú þessi i 1. deildar keppninni: Valur............0 4 I 1 122:91 9 FH..............(i 4 0 2 124:113 8 llaukar......... 5 3 1 1 89:78 7 Víkingur.........6 3 0 3 124:123 6 Fram.............6 2 2 2 94:94 6 Grótta.......... 5 2 0 3 88:94 4 Ármann....... .5 1 1 3 69:97 3 Þróttur......... 5 0 1 4 77:97 1 Eins og á þessu sést, geta Haukar skotizt upp að hliðinni á Valsmönnum. ngar eru heim að — segir landsliðsmaðurinn Gjerde, sem gerir sér ekki of miklar vonir um sigur gegn FH verðum við að sigra FH-liðið á heimavelli, ef viðeigumaðgera okkur vonir um að komast áfram i keppninni, sagði Gjerde i viðtali við oorskt blað. Róðurinn verður örugglega þungur fyrir FH-inga á sunnu- daginn, þegar þeir mæta Oppsal i Osló. — Þetta verður erfiður leikur, en við munum gera allt til að halda markatölunni niðri, segir Reynir Ólafsson, þjálfari FH-liðs- ins. FH-ingar munu þvi ekki tefla á tvær hættur, þeir ætla sér að leika yfirvegaðan handknattleik, halda knettinum eins og þeir mögulega geta og skjóta ekki nema i góðum færum. Ef FH-ing- um tekst vel upp, ætti þeim að takast að veita leikmönnum Oppsal harða keppni. Og þeir Geir Hallsteinsson og Viðar Simonarson ættu að geta hrellt markvörð Oppsal-liðsins — með lúmskum skotum sinum. _sos GEIR HALL- STEINSSON... son...... hvernig tekst honum og félög- um hans i FH upp á móti Opp- sal i Osló? Okkar beztu skjðamenn farnir til Áusturríkis o ° ° o o og Norégs til æfinga fyrir OL i Innsbruch Skiðamenn okkar eru nú á faraldsfæti — 9 af okkar beztu skiðamönnum héldu til Noregs og Austurrikis i morg- un, þar sem þeir munu dveljast við æf- ingar og keppni fram að jólum. Þetta er landsliðshópur islands, sem æfir fyrir vetrarólympiuleikana i Inns- bruch i Austurriki. Alpagreina-liðið, sem mun dveljast i Austurriki, er skipaö þessu skiðafólki: Akureyringunum Margréti Baldurs- dóttur, Árna Óðinssyni, Hauki Jó- hannssyni, Tómasi Leifssyni og tsfirð- ingunum Sigurði Jónssyni og Hafþóri Júliussyni, Reykjavikurstúlkunum Jórunni Viggósdóttur og Steinunni Sæmundsdóttur. Þessi hópur mun væntanlega fá að ferðast með landsliði Austurrikis og þjálfa með þvi, en þjálfari hópsins verður Austurrikismaðurinn Kurt Jennv. G ö n g u m e n n i r n i r II a 11 d ó r Matthiasson frá Akureyri og Fljóta- maðurinn Trausti Sveinsson héldu til N'oregsm þar sem þeir æfa og keppa. — SOS • MARSH FER EKKI TIL BELGÍU B E L G i A . _ Belgíska stórliðið Anderlecht hefur hætt við að kaupa Rodney Marsh — fyrrum fyrirliða Manchester City. Ástæðan er sú, að forráðamönnum félagsins finnst of mikið að borga 100 þús. pund fyrir Marsh. Aston Villa hefur augastað á Marsh, en Birmingham-liðið hefur boðið Manchester City 60 þús. pund fyrir hann. • AAANSFIELD MÆTIR CITY I.ONDON.— Mansfield. 3. deild- arliðið sem vann óvæntan sigur (1:0) I leik gegn Úifunum i deild- ar b i k a r k ep p ni n n i, mætir Manchester City á heimavelli sin- um — Field Mill Ground — i 8-liða úrslitum keppninnar, en þá mæt- ast þessi lið: Doncastle—Tottenham eða W'est Ham Notts C. eða Everton—Neweastle Mansfield—Man.City Burnley—Middlesborough • AAcFARLAND ER AAEIDDUR DERBY. _ Ray McFarland, fyrirliði Engiandsmeistara Derby, mun að öllum likindum ekki leika með enska landsliðinu gegn Portúgölum i Lissabon á miðvikudaginn — hann á við meiðsl að striða i fæti. Þrir af lykilmönnum enska liðsins — Colin Bell, Stan Bowles og Ray McFraland — leika ekki i Lissa- bon. • AAARTEINN ÆFIR Á FULLU REYKJAVÍK — Martein n Geirsson, landsliðsmið- vörður Fram, sem æfði með v - þý z k a 1 . deildar liðinu Kicken Offen- b a c h , f y r i r stuttu, æfir nú MARTEINN þrisvar sinnum i viku. Offenbach hefur sýnt áhuga á að fá Martein tit liðs við sig, og ætlar félagið að hafa samband við Martein um áramót — en þá mega v-þýzk lið kaupa leikmenn. Marteinnheldur sér i æfingu á meðan, ef svo skyldi fara að hann tæki boði Offenbach um að gerast leikmað- ur með liðinu. MARSH

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.