Tíminn - 15.11.1975, Side 15
Laugardagur 15. nóvember 1975.
TÍMINN
15
liiiii
M
Viðtalstímar
alþingismanna
og
borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins
Sverrir Bergmann varaþingmaður og Guðmundur G. Þórarins-
son varaborgarfulltrúi verða til viðtals að Rauðarárstig 18
laugardaginn 15. nóv. kl. 10-12.
Akranes
Framsóknarfélag Akraness heldur Framsóknarvist i félags-
heimili sinu að Sunnubraut 21, sunnudaginn 16. nóvember kl. 16.
Kvöldverðlaun og heildarverðlaun að loknum fimm vistum.
Þetta er þriðja vistin af fimm. öllum heimill aðgangur meðan
húsrúm leyfir.
Mýrarsýsla
Aðalfundur Framsóknarfélags Mýrarsýslu verður haldinn i
Snorrabúð Borgarnesi, sunnudaginn 16. nóvember kl. 9 siðdegis.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á
kjördæmisþing. 3. önnur mál. Stefán Valgeirsson alþingismaður
mætir á fundinn. Stjórnin.
Snæfellsnes
Aðalfundur Framsóknarfélaganna á Snæfellsnesi verður að
Breiðabliki sunnudaginn 14. nóvember og hefst kl. 15. Venjuleg
aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing. Stjórnirnar.
Austur-Húnvetningar
Aðalfundur Félags ungra framsóknarmanna i A.-Hún. verður
haldinn að Hótel Blönduósi, mánudaginn 17. nóv. og hefst kl. 21.
Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
Magnús Ólafsson form. SUF, kemur á fundinn. Stjórnin.
Félag framsóknarkvenna
í Reykjavík
Basarinn verður aö Hallveigarstöðum, sunnudaginn 23. nóvem-
ber næstkomandi. Tekið verður á móti varningi að Rauðarárstig
18, alla daga vikunnar til kl. 17, og á fimmtudaginn einnig kl. 20-
22 um kvöldið. Þær, sem hafa hugsað sér að gefa kökur, komi
þeim á sunnudagsmorgun 23. nóv. að Hallveigarstöðum. Basar-
nefndin.
SUNN vill lóta friða rösklega
100 staði á Norðurlandi vestra
SAMTÖK um náttúruvernd á
Norðurlandi (SUNN) hafa á
undanförnum árum unnið áð
skrásetningu náttúruminja á
Norðurlandi i samvinnu við
Náttúruverndarráð.
Með náttúruminjum er átt við
hvers konar sérstakar lands-
lagsmyndir, svo sem fossa,
hella, dranga, gil framhlaups-
hóla o.s.frv., jarðfraéðilegar
minjar, svo sem fundarstaði
steingervinga, svo og staði með
rikulegum eða sérstökum
gróðri, dýralifi o.s.frv., en þar
má nefna t.d. flæðiengjar.
Félagið hefur nú sent frá sér
Kynlegir
kvistir
— dagbókarþættir
Maxims Gorki
komnir út
KYNLEGIR KVISTIR nefnist ný-
útkomin bók hjá Máli og menn-
ingu, eftir Maxim Gorki. Bókina
þýddi Kjartan ólafsson úr rúss-
nesku, en Elias Mar þýddi visur i
bókinni.
Kynlegir kvistir eru þættir úr
dagbók Gorkis, en bókina gaf
hann út árið 1925. Bók sú, sem nú
kemur út á islenzku, er nokkuð
stytt útgáfa dagbókarþáttanna.
Frásagnir þessar bera mörg
sömu einkenni og endurminning-
ar Gorkis: Alls staðar eys hann af
brunni sinnar viðtæku lifs-
reynslu og mannþekkingar, sér-
hver maður sem hann hitti, virð-
ist hafa vakið forvitni hans
og samúð. Þó að lýsingar Gork-
is séu einatt ömurlegar, eru
þær ekki markaðar bölsýni,
heldur bera þær vott um áhuga
hans og ást á fólki. Um lýsingar
Gorkis eiga einmitt við þessi orð
hans: „Sannleikurinn er vor-
kunnseminni æðri”.
Bókin er prentuð i Prentsmiðj-
unni Hólar hf. og er 239 bls.
Ljóð vega
salt
Sigurður Pálsson hefur nýverið
sent frá sér ljóðabók sem hann
nefnir Ljóð vega salt: Bókin er i
pappirskiljuformi, 90 bls. gefin út
hjá Heimskringlu, en prentun
annaðist Prentsmiðjan Hólar
h.f. — I bókinni eru nokkur eldri
ljóð höfundar, ásamt nýjum, alls
um 23 talsins.
Ný bók eftir dr. Kristjón Eldjórn:
HAGLEIKSVERK HJÁLMARS
í BÓLU
HELGAFELL hefur gefið út bók
eftir dr. Kristján Eldjárn, og
nefnist hún Hagleiksverk Hjálm-
ars i Bólu. Telur bókarhöfundur,
að enn séu til fimmtíu og fimm
munir útskornir af Bólu-Hjálm-
ari, svo að kunnugt sé.
Allir vita, að Bólu-Hjálmar var
skáld, sem nýtur hylli enn þann
dag i dag, þótt sumt af kveðskap
hans sé nokkuð fornlegt orðið i
vitund fólks, og hafa ekki aðrir
ort meiri kjarnakvæði en sum ljóð
hans eru. Margir vita einnig, að
hann var mikill iþróttamaður við
útskurð, þótt þeir séu óneitanlega
miklu færri, er gera sér grein
fyrir þvi, hve hátt hann gnæfir
þar.
Nú hefur dr. Kristján Eldjárn
reist hinu oddhaga skáldi bauta-
stein, þar sem listfengi þess á þvi
sviði eru gerð rækileg skil. Er
hverjum grip, sem vitað er, að
Hjálmar hefur skorið og skreytt,
lýst i bókinni og ferillinn rakinn
eins og unnt hefur reynzt.
Bókina prýður fjöldi ljósmynda
af munum Hjálmars, og mega
þar allir sjá, hvað hann hefur
kunnað fyrir sér á þvi efni.
fyrsta hluta þessarar svonefndu
náttúruminjaskrár, þ.e.
Náttúruminjaskrá Norðurlands
vestra (Húnaþings og Skaga-
fjarðar) i fjölrituðu formi.
I skránni eru tilgreindir rúm-
lega eitt hundrað staðir og
svæði, sem félagið telur mikil-
vægt að vernda i vestursýslum
Norðurlands. Er þeim skipt i
fjóra flokka I Stór landslags-
svæði II Strandlendi og eyjar, II
Votlendi og vötn og IV Ýmsar
landslagsminjar.
Af stærri svæðum, sem SUNN
leggur til að vernduð verði sér-
staklega, má nefna Bjarga-
svæðið i V-Hún., hluta Vatns-
dals og Þings i A .Hún og hluta af
Hegranesi i Skagafirði.
1 formála skrárinnar kemur
fram, að tilgangur hennar sé
fyrst og fremst að vekja athygli
á náttúruverdnargildi hinna
skráðu minja. Félagið vonar, að
vitneskjan um þetta gildi geti
orðið minjunum einhver vernd,
eða a.m.k. orðið til þess að
menn hugsa sig um, áður en
þeir raska þeim.
Burstar, lyftir, „touperar'
bylgjar, leggur, sléttir og
þurrkar hór þitt —
FLJÓTT OG VEL
\
Lady
Braun
HÁRGREIÐSLUSETTIÐ
Verð um
kr. 8.350
BRAUN-UMBOÐIÐ:
Sími sölumanns er 1-87-85
Raftækjaverzlun íslands h.f.
Ægisgötu 7 — Reykjavík — Simar 1-79-75/76
Félag éhugamanna
um fiskirækt
heldur fund að Hótel Loftleiðum (Kristal-
sal), mánudaginn 17. þ.m. kl. 20.30. Allir
áhugamenn um fiskirækt velkomnir á
fundinn.
FUNDAREFNI:
2. Árbók félagsins fyrir árið 1974 afhent.
2. Árni ísaksson fiskifræðingur skýrir frá
endurheimtu á laxi i Kollafjarðarstöðinni
árið 1975.
3. Þór Guðjónsson, veiðimálastjóri ræðir
um eftirlit með ólöglegri laxveiði.
4. Önnur mál.
Stjórnin.
Rafmagnið
— fjórða fjölfræðibókin komin út
ALMENNA bókafélagið hefur
gefið út fjórðu bókina i fjölfræði-
bókaflokknum, og er þessi um
rafmagnið, eftir D.R.G. Melviile.
Prentstofa G. Benediktssonar sá
um setningu, en bókin er prentuð
og bundin á Italiu hjá Arnoldo
Mondadori, Officine Grafiche,
Verona, og er skrýdd fjölda lit-
mynda. Þýðingu annaðist Aðal-
steinn Guðjohnsen, og segir hann
m.a. i formála bókarinnar, að til-
gangur hennar sé að skýra hvað
rafmagn er, hvernig það birtist
og hver áhrif þess eru —- einnig að
sýna hvernig það er framleitt,
hvernig þvi er dreift og hvernig
það er notað nú á dögum.
Anglýsitf
iTímanúm
INNKAUPASTJÓRAR
AAunið að gera pantanir fyrir jól
TlMANLEGA
GLIT HF
HÖFÐABAKKA9
REYKJAVlK
ICELAND
listrœn gjöf
VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI