Tíminn - 24.01.1976, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Laugardagur 24. janúar 1976
Nýr
húsgagnahönnuður
Miðpunktur hinnar árlegu hús-
gagnasýningar i Milanó i fyrra-
sumar var franski kvikmynda-
leikarinn Alain Delon, sem
fengið hefur griðarlega mikinn
áhuga á húsgagnahönnun.
Þegar frá er talinn hann sjálfur
og vinkona hans, leikkonan
Mireille Darc, vakti mesta
athygli legubekkur, sem hann
hafði hannað, klæddur svina-
leðri og búinn leslampa, sem
hægt er að færa að vild eftir þar
til gerðum teinum! Þvi miður
eigum við ekki mynd af þessum
merkisgrip, enda skilst okkur
að hönnuðurinn og vinkona hans
hafi dragið svo mjög að sér at-
hygli viðstaddra ljósmyndara,
að þeir hafi næstum gleymt að
taka myndir af hinum raun-
verulegu sýningargripum. Þess
vegna látum við þessa mynd af
þeim, sem auðvitað var tekin á
umræddri sýningum fljóta hér
með. Þegar sýningargestir
höfðu orð á þvi að þeim þætti
legubekkurinn hans Delons
nokkuð dýr (650.000.00 isl. kr.),
svaraði hann þvi til, að þetta
mætti ekki minna vera fyrir
allan þann tima og erfiði, sem
bekkurinn hefði kostað sig.
Annað húsgagn, sem kostaði
reyndar ekki nema hálfa
milljón, áttu þau Alain og
Mireille sameiginlega á þessari
sýningu. Það var voldug himin-
sæng með útsaumuðum satin-
tjöldum. Gamalgrónir og hátt-
skrifaðir húsgagnaarkitektar og
-hönnuðir virtust hálfmóðgaðir
yfir allri athyglinni, sem
Mireille og Alain vöktu á sýn-
ingunni, og einum þeirra varð á
orði, að hann hygðist fá Raquel
Welch eða Soffiu Loren til liðs
við sig fyrir næstu sýningu.
¥
Til hamingju
með afmælið
1 brezku blaði nú I janúar, sáum
við upptalningu á frægu fólki,
sem átti afmæli sama dag og
blaðið kom út. Þar voru ýmis
fræg nöfn, eins og til dæmis
Lady Bird Johnson, ekkja
Johnsons forseta og varð hún 63
ára — að þvi að sagt var —
Peggy Ashcroft, sem er fræg
ensk leikkona, varð 68 ára
þennan dag og ýmsir lordar og
jarlar áttu afmæli. En blaðið
birti mynd af þessu afmælis-
barni (og er það vel skiljanlegt)
Hún heitir Robin Gibb og var
áður söngkonan með hljóm-
sveitinni Bee Gee. Robin varð 26
ára þennan dag. Óliklegt er að
hún hafi verið I þessum
klæðnaði á afmælinu sínu, sem
var snemma i janúar, en
búningurinn klæðir hana vel, og
ef til vill geta duglegar hann-
yrðakonur byrjað að hekla eitt-
hvað svipað fyrir næsta sumar.
DENNI
DÆMALAUSI
— Ég ber ekki kviðboga fyrir
neinum erfiðleikum, frú
Mitchell.
— Jæja, nú skal ég þýða þessa
setningu fyrir þig, svo þú skiljir
hvað ég á við, góði minn!