Tíminn - 13.02.1976, Síða 9

Tíminn - 13.02.1976, Síða 9
Föstudagur 13. febrúar 1976 TÍMINN 9 gébé Rvik — Þrjátiu og sex bát- ar höfðu tilkynnt loðnunefnd um vciði klukkan nftján i gærkvöld frá miðnætti á miðvikudag og var afli þeirra 11.030 tonn. Heildarloðnuaflinn á þessari vertiö var þá orðinn um 123-124 þúsund tonn, sem cr svipað magn og á sama tima I fyrra. Afli metsólarhringsins 11. febrúar reyndist vera 19.330 tonn sem 58 bátar fengu. Þeir bátar sem lönduðu afla sinum i fyrrinótt eru allir komnir út á miðin aftur og i gærkvöld voru tiltölulega fáir bátar að landa og eru þvi margir á miðunum út af Ingólfshöfða. Alls hafa 68 bátar fengið einhvem loðnuafla það sem af er þessari vertið. Viða er orðið þröngt um þróarrými á löndunarstöðum, en að sögn starfsmanns loðnu- nefndar, er útlitið þó ekki orðið svart ennþá. Búist var við að Norglobal myndi fyllast s.l. nótt svo og Eskifjörður og Nes- kaupstaður og löndunarbið var i Vestmannaeyjum. Enn var til rými fyrir 2500 tonn bæði i Þor- lákshöfn og Grindavik. 1 dag losnar svo pláss i Norglobal, á Stöðvarfirði og i Vestmannaeyj- um, eða samtals 3600 tonn. mmgœ ' • i Landburður f loðnu A Neskaupstað er heildar- þróarrými 7000 tonn, en til að byrja með verður ekki tekið á móti meira en 1200 tonnum, þar sem bræðsla hefur ekki hafist þar enn. Þar átti aö gera tilraun i gær með frystingu á loðnu, en talið er að nú liði óðum að þvi að hrognamagnið i loðnunni sé orð- ið það mikið að hægt sé að fara að frysta hana. Hér má sjá nokkrar myndir frá loðnuveiðum og löndunar- stöðum, sem GunnarV. Andrés- son hefur tekið. i&m. f- Jl

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.