Tíminn - 13.02.1976, Blaðsíða 21
Föstudagur 13. febrúar 1976
TÍMINN
21
Glaður eiginmaður — smurði skíðin
fyrir Helenu Takalo;
„Nú get ég með
góðri sam-
vizku hætt"
HELENA TAKALO.........veifar til áhorfenda úr örmum manns sins, eftir að hún hafði unnið gullið i 5 km
göngunni. Ánægja þeirra leynir sér ekki.
— sagði hin 28 óra sölukona, Takalo, frá Pyhaejaervi í
Finnlandi, þegar hún hafði unnið sín þriðju verðlaun.
— Nú getég meðgóðri samvizku hætt—og snúið mérað barneignum. Ég er ákveð-
in i að hætta eftir þetta keppnistímabil — ég verð einnig að hugsa um manninn
minn# en við höfum verið gift í 5 ár. Hann á stóran þátt í árangri mínum, því að
hann hefur hvatt mig til dáða og veitt mér ómetanlegan styrk. Nú hefur draumur
okkar rætzt, og ég get með ánægju lagt skíðin á hilluna — einhvern tíma verður
maður hvort sem er að hætta, sagði þessi glaðlega 28 ára finnska göngukona,
Takalo hefur komið skemmti-
lega á óvart á ólympiuleikunum i
Innsbruck, þar sem hún hefur
veitt sovézku valkyrjunum haröa
keppni — og tryggt sér ein gull-
verölaun og tvenn silfurverölaun.
— Takalo er einfaldlega betri en
viö, sagöi hin fræga göngukona
frá Sovétrikjunum, Galina Kula-
kova, þegar hún var spurö um
Takalo.
Þaö lék aldrei vafi á, hver
myndi vinna gullverölaunin i 4x5
km göngunni. Sovézku valkyrj-
urnar höföu algjöra yfirburöi i
göngunni og komu i mark 46 sek.
á undan finnsku stúlkunum.
Keppnin um bronsiö var aftur á
móti spennandi — þar háöu a-
þýzku og sænsku stúlkurnar
haröa keppni. A-þýzku stúlkurnar
báru sigur úr býtum, en sigurinn
vannst þó ekki fyrr en á tveimur
siðustu km. Ung og stórefnileg
stúlka frá Sviþjóö, Lena Carlzon,
kom mest á óvart i keppninni.
Hún náði stórkostlegum spretti —
barðist eins og hlaupahundur og
fór fram úr Ninu Balditsjevu frá
Sovétrikjunum og finnsku stúlk-
unni Liisu Suihkonenog kom fyrst
i mark.
Verðlaunahafar i 4x5 km boð-
göngunni urðu:
Sovétrikin.............1:07,49
Finnland...............1:08,36
A-Þýzkaland............1:09,57
—SOS
GULL SILFUR
OG BRONS
SKIPTING verðlauna á Olympiu-
leikunum i Innsbruck eftir
keppnisgreinarnar I gær, er
þessi:
Sovétrikin .. 11—5—8
A-Þýzkaland .. 6—4—4
V-Þýzkaland .. 2—4—1
Bandarikin .. 2—3—4
Finnland .. 2—3—1
Noregur .. 1—2—1
Sviss .. 1—2—1
Austurriki .. 1—1—2
Bretland .. 1—0—0
Holland .. 0—1—1
ítalía .. .0—1—1
Kanada .. 0—1—1
Liechtenstein .. 0—0—1
Sviþjóð .. 0—0—1
Nú eru eftir fjórir keppnisdagar
á Olympiuleikunum.
Steinunn og
Sigurður vekja
mikla athygli
STEINUNN Sæmundsdóttir, skiöastúikan unga frá Reykjavik, hefur
vakið geysilega athygli I Innsbruck. Þessi 15 ára stúlka, sem náði mjög
góðum árangri I sviginu — varð sextánda, hefur fengið boð frá Italiu,
um að koma þangað og æfa og keppa með Italska landsliðinu. Það er
italska skiðaverksmiðjan Sarner, sem hefur boðið Steinunni þetta.
Arangur Steinunnar — 1:44,72 — hefur vakið mikla athygli — sér-
staklega, þar sem hún var næst siðust allra keppenda I brautinni. Is-
firðingurinn Sigurður Jónsson (16 ára) hefur einnig vakið mikla
athygli. — Þetta er eitthvað mesta skiðakappaefni, sem ég hef séð i
alpagreinum i Evrópu sl. 2-3 árin, sagði landsliðsþjálfari Svia. Hann
segist geta gert Sigurð að miklum afreksmanni — nýjum Stenmerk —
ef hann fái að þjálfa hann næstu 2-3 árin.
PETER MÚLLER............varð sigurvegari i hinni hörðu baráttu i
1000 m skautahlaupinu.
— Eg geroi mér miklar
vonir um að komast á
verðlaunapallinn, en ég
hafði aldrei látið mér
detta það í hug að ég
myndi sigra. Þetta var
stórkostlegt — ég á varla
til nógu sterk orð, til að
lýsa ánægju minni, sagði
Bandaríkjamaðurinn
Peter Múller. Hann varð
sigurvegari í 1000 m
skautahlaupinu, sem var
geysilega tvísýnt og
spennandi. Norðmenn
fengu silfrið, eftir harða
keppni við Sovétmenn,
sem urðu að láta sér
nægja bronsið, að þessu
sinni.
Jörn Didriksen, 22 ára
sölumaður frá Osló, sem
er sérfræðingur í 1000 m
hlaupi, hefur sýnt ótrú-
legar framfarir að
undanförnu. — Síðustu
fjórar vikurnar hefur
honum farið fram með
hverjum deginum. Þess
vegna var það engin stór-
frétt— þegar hann nældi
sér í silfrið. Didriksen,
sem varð f jórði — á eftir
þremur Sovétmönnum í
síðustu heimsmeistara-
keppni — sigraði alla
sovésku hlauparana í
Inzell fyrir viku síðan .
Verðlaunahafar i 1000 m
skautahlaupi karla, urðu:
JÖRN OinRIKSEN......nældi
i silfurverðlaun fyrir Norð-
menn.
Múller, Bandar.......
Didriksen, Noregi...,
Muratov, Sovét.......
.. .1:19,32
.. .1:20,45
.. .1:20,57
— SOS
„Gerði mér
miklar
vonir...
— en reiknaði þó ekki með að sigra,
sagði Bandaríkjamaðurinn Peter
Muller, sem sigraði í 1000 m
skautahlaupi