Tíminn - 13.02.1976, Page 24
[
Föstudagur 13. febrúar 1976
METSflUIUERDR
ÁENSKUÍ
VASABROTI ll
GÉÐI
fyrirgóóan nmt
^ KJÖTIONAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Hörð átök innan
kínverska komm-
únistaflokksins?
— Teng sætir mjög harðri gagnrýni
stúdenta
Ntb/Peking. Teng Hsiao Ping,
varaforsætisráðherra Kfna, sem
lengi var talinn hugsanlegur
eftirmaöur Chou en lai, fyrrum
fors æti sráðherra, hefur að
undanförnu orðið fyrir harðri
gagnrýni, sem birzt hefur á
spjöldum, sem hengd hafa verið
upp á veggi háskólabyggingar-
innar I Peking. Er fréttin höfö eft-
ir áreiöanlegum heimildum i
Peking.
Nafn Tengs hefur að visu ekki
veríð nefnt beint á nafn, en af
málatilbúnaði öllum má glöggt
greina, við hvern er átt. Hann er
meðal annars ásakaður um að
hafa verið andsnúinn stefnu Maos
formanns i menntamálum og
sagður hafa kallað alla þá, sem
hlotið hafa menntun eftir að
menningarbyltingunni lauk,
ónytjunga.
Teng er sagður hafa ráfað lengi
um á vegi kapitalismans, barizt
gegn umbótum Maos i mennta-
málum, og lagt alla áherzlu á
framleiðsluna istað stéttabarátt-
unnar.
Asakanir þessar birtust fyrst i
45 siðna veggspjaldi, sem hengt
var upp sl. miðvikudag, en mörg
fleiri hafa komið i kjölfarið.
í dagblaði alþýðunnar i gær er
ráðizt harkalega á hægritæki-
færissinna i flokknum, og krafizt
harkalegra aðgerða gegn þeim,
sem gangi veg kapitalismans.
Fréttaskýrendur telja, að þetta
tákni, að heiftug valdabarátta sé
nú hafin meðal æðstu ráðamanna
kinverska kommúnistaflokksins.
Þar til i siðustu viku var Teng
álitinn liklegasti eftirmaður Chou
en Lai, en mjög óvænt var Hua
Kuo Feng, landbúnaðarsérfræð-
ingur, skipaður i embættið.
Prescott væntanlegur í dag:
Fordæmir
flotaíhlutun
Breta
Reuter/Strassbourg. John
Prescott, þingmaður brezka
verkamannaflokksins, og ein-
dreginn stuðningsmaður is-
lendinga I landhelgismálinu, er
væntanlegur til Reykjavikur i
dag til viðræðna við Geir
Hallgrimsson forsætisráðherra
um landhelgismálið. Prescott,
sagði i Strassbourg i gær, að
hann myndi eiga viðræður við
Geir n.k. mánudag.
Prescott fór hörðum orðum
um þá ákvörðun stjórnar
Verkamannaflokksins að senda
freigátur á íslandsmið til
verndar brezku togurunum,
sem þar stunda ólöglegar
veiðar. „Það gengur krafta-
verki næst, að enginn skuli hafa
látið lifið i fiskveiðideilunni,”
sagði hann.
Prescott lagði á það áherzlu,
að hann kæmi á eigin vegum til
Reykjavikur, en hvorki i um-
boði Wilsons forsætisráðherra
né flokks sins.
Áform frönsku stjórnarinnar:
Djibouti sjólfstætt
fyrir árslok 1976
Reuter/Paris. Talsmaður þess
ráöuneytis frönsku stjórnarinn-
ar, sem hefur með nýlendumál
að gera, sagði i gær, aö franska
stjórnin væri reiðubúin til að
láta þjóðaratkvæðagreiðslu
fara framum framtið svæðanna
Afars og Issas við Rauðahafið,
en þar eru sfðustu itök Frakka i
Afríku.
Talsmaðurinn sagði, að
franska stjórnin hefði i megin-
atriðum fallizt á hugmyndir um
að veita þessum tveimur svæð-
um sjálfstæöi, en hygðist engu
að siður hefja diplomatiskar
viðræður á næstu mánuðum til
þess að tryggja réttindi minni-
hlutahópa á svæðunum og eins
það, að ekki komi til ihlutunar
erlendra rikja i' innanrikismál
svæðanna, eftir að þau hafa
fengið sjálfstæði.
„Við erum reiöubúnir til að
veita Djibouti sjálfstæði, en
sjáffstæði þess verður ekki
tryggt, nema þvi aðeins að það
verði veitt undir alþjóðlegu
eftirliti.”
Ákvörðun þessi þykir benda
til þess, að Frakkland vilji leysa
vandamálþau, er tengd eru Dji-
bouti, áður en til frekari vand-
ræða og átaka kemur þar, eða i
nágrannarikjum þess.
SOVÉTSTJÓRNIN STYÐUR
200 MÍLNA EFNAHAGS-
LÖGSÖGU STRANDRÍKJA
NTB/Moskvu. Sovézka stjórnin
lýsti þvi yfir I gær, að hún væri
fylgjandi áformum um 200 milna
efnahagslögsögu, þar sem
strandrlkjum væri veittur for-
gangsréttur yfir náttúrulegum
auðæfum og öðru verðmæti, er á
þvi svæði væri að finna. Útfærsl-
an í 200 milur á hins vegar aö vera
framkvæmd á þann hátt sem haf-
réttarráðstefna Sameinuðu þjóð-
anna mælir fyrir um.
Skoðun sovézku stjórnarinnar á
máli þessu var vandlega útskýrð i
flokksmálgagninu Pravda. Þar
segir m.a., aö hin alþjóðlega lög-
gjöf um viðáttu efnahagslögsögu
eigi að hafa það markmið að
koma i veg fyrir einokun heims-
valdasinnayfirþeim auðæfum.er
tengd væru hafsbotninum. Eina
landið, sem harðlega var gagn-
rýnt fyrir stefnu sina i þessum
málum, var Kina, sem Pravda
sagði að hefði haldið uppi óhaf-
andi áróðri i málinu.
Það mikilvægast i málinu er,
sagði Pravda, að hafréttarráð-
stefnán leysi ágreininginn með
gagnkvæmri virðingu fyrir rétti
þeirra rikja, er lögverndaðra
hagsmuna hefðu að gæta i þessu
sambandi. Pravda sagði, að
árangur sá er náðstheföi á vett-
vangi alþjóðamála að undanförnu
þyrfti einnig að ná til mála, er
snertu hafsbotninn.
Eins og fyrr er sagt, lagði
Pravda á það áherzlu, að útfærsla
efnahagslögsögu rikja færi fram
innan þeirra marka er hafréttar-
ráðstefna Sameinuðu þjóðanna
segði til um.
Þrátt fyrir þessa skoðun
sovézku stjórnarinnar, var ekkert
sagt um ákvörðun þeirra rikja, er
fært hefðu einhliða út i 200 milur,
eða þeirra rikja, er það hafa i
huga, þ.e. Bandarikin, Mexikó og
Kanada.
AÐEINS 130 KM A MILLI
MPLA HREYFINGARINNAR
OG HERJA SUÐUR-AFRIKU
Reuter/London. Silva Porto, síö-
asta stóra vigi andstæðinga
MPLA hreyfingarinnar I Angola,
sem nýtur stuönings stjórna
Sovétrikjanna og Kúbu, féll i
hendur MPLA i gær. Viröist nú
ekki vanta nema herzlumuninn á,
að MPLA nái völdum I öllu land-
inu.
Talsmenn MPLA hafa lýst þvi
yfir, að næsta verkefni þeirra
verði að reka af höndum sér þá
4000 suður-afrisku hermenn, sem
enn eru taldir vera innan landa-
mæra Angola, skammt norðan
landamæranna við Namibiu
(Suðvestur-Afriku).
F’egnirnar um þann ógnvekj-
andi hraða, sem hermenn MPLA
geysast nú með til suðurs hafa
vakið upp ótta meðal ráðamanna
i Jóhannesarborg um, að til
beinna átaka hermanna frá
Suður-Afriku og MPLA komi
brátt. í fararbroddi MPLA her-
mannanna eru kúbanskir her-
menn. Nú eru aðeins um 130 km á
milli herja þessara.Varnarmála-
ráðherra Suður-Afriku, Pierre
Bota,sagði i gær, að suður-afriski
herinngæti gert betur en að verja
þá vfglinu, er hann hefði myndað.
Ástralía:
Fraser vill
ekki reka
S.Afriku úr
S.þjóðunum
Reuter/Canberra. Malcolm
Fraser, forsætisráðherra
Astraliu, lýsti þvi yfir i gær, að
hann væri andsnúinn hug-
myndum um að reka
Suður-Afriku úr Sameinuðu
þjóðunum. Fyrirrennari hans
i starfi, Whitlam, var á önd-
verðri skoðun. Þá sagðist
Fraser og vera á móti hug-
myndum um viðskiptabann og
efnahagsþvinganir gagnvart
stjórn Suður-Afriku. Hann
taldi rangt, að ætla sér að úti-
loka eitt af rikjum veraldar
Fraser.
frá þvi að vera aðili að hinum
Sameinuðu þjóðum, af þeirri
einu ástæðu, að mönnum
geðjaðist ekki að hugmynda-
fræðilegum grundvelli
stjórnarstefnu landsins.
VOPNUÐ ÁTÖK KÍN-
VERJA OG RÚSSA
Reuter/Hong Kong. Hin opinbera
fréttastofa Nýja Kina i Peking
skýrði frá þvi i gær i útsendingu,
sem heyrðist i Hong Kong, að kin-
verskar hersveitir hefðu oft lent I
átökum við sovézka hermenn á
Sinkiang svæðinu í Kina. Ekki var
skýrt frá þvi, hversu oft til átaka
hefði koiniö, né hvort um
mannfall hefði veriö að ræða.
Kinverjar segja, aö Sovétnienn
liafi truflað hjarðinenn við störf
sin.
Kjarnorkutilraunir Kinverja
hafa farið fram á Sinkiang svæð-
inu. Herafli hcfur verið styrktur
mjög þar.
Leynivopn
Púís pdfa
Reuter/Róm. Lifveröir vati-
kansins hafa fengið nýtt leyni-
vopn til að verja Pál páfa. Er
þctta brúsi á stærð við brúsa
þá, sem hafa að geyma
„svitaspray” og fela verðirnir
brúsa þessa innan á búningi
sinum, sem teiknaður var af
Michclangelo á 15. öld. Brús-
inn hefur að geyma táragas,
sem verðirnir eiga að úða á
þá, sem of nærgöngulir gerast.
Lifveröir páfa bcra ekki byss-
ur á sér.
Sprengjugabb í
Þrándheimi
Þrándheimi/Ntb. öllum starfs-
mönnum i þinghúsinu i Þránd-
heimi og fylkishúsi Suð-
ur-Þrændalaga, var skipað að
yfirgefa húsið um hádegisbiliö i
gær, þar sem tiikynnt var i sima,
aö sprengju hefði veriö komið
fyrir i kjallara þinghússins.
Hringt var i skiptiborð þing-
hússins og tilkynnt um sprengj-
una. Eins og fyrr segir voru allir
látnir yfirgefa húsin i klukku-
stund (húsin standa hlið við hlið)
meðan lögreglan gerði nákvæma
leit að sprengjunni.
Engin sprengja fannst i húsinu.
Lögreglunni hefur ekki tekizt að
komast aö þvi, hver tilkynnti um
sprengjuna eða hvaðan var
hringt. Sprengjugabb sem þetta
hefur eldrei fyrr verið gert i
Þrándheimi.