Tíminn - 09.03.1976, Side 1
Aætlunarstaðír:
Blönduós — Siglufjörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
hólmur — Rif Súgandafj:
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
Sextán björguðust naumlega — einn fórst
SEKÚNDUSPURSAAÁL
— segir eigandi bifreiðarinnar,
sem sfeyptist niður snarbrafta
fjallshlíð við mynni Strákaganga
gébéRvik — Tuttugu og tveggja
ára gamall piltur, Magnús
Sævar Viöarsson, lézt er fólks-
flutningabifreið hrapaöi niöur
snarbratta fjallshliö viö mynni
Strákaganga, Siglufjaröarmeg-
in, aöfaranótt sunnudags.
Vegna snarræöis bifreiöastjór-
ans og farþega, varö komiö I
veg fyrir stórslys, en 16 manns
tókst að komast út úr bifreiöinni
áður en hún steyptist fram af.
Magnús heitinn sat framarlega i
bifreiðinni og var sofandi, en
enginn timi gafst tii aö vekja
hann. — Þetta var sekúndu-
spursmál, sagöi Sturlaugur
Kristjánsson, eigandi bifreiöar-
innar, en Sturlaugur var farþegi
i bifreiöinni. Stýrið og hemlarn-
ir biluöu samtimis, og er bif-
reiðin kom út úr Strákagöngun-
um skipaði bifreiöarstjórinn
farþegunum út úr henni. Um
þaö bil fimmtiu metra kafli er
beinn þegar komið er út úr
göngunum og tókst ölium aö
komast út úr hifreiðinni
ómeiddum, nema Magnúsi
heitnum.
Farþegarnir i bifreiöinni voru
Siglfirðingar, sem voru á heim-
leiö frá Hofsósi, en þar höfðu
gagnfræðaskólanemar á Siglu-
firði verið með leiksýningu um
kvöldið og var haldinn dansleik-
ur á eftir. Tvær 18-manna bif-
reiðar höfðu samflot frá Hofsósi
til Siglufjarðar, og var bifreiðin
sem fyrir óhappinu varð, á eftir.
Sturlaugur Kristjánsson
sagði, að bifreiðarstjórinn hefði
orðið bilunarinnar var rétt áður
en komið var út úr göngunum,
en bæði stýri og hemlar urðu
samtimis óvirk. Sagði hann, að
það hefði aðeins skipt nokkrum
sekúndum þangað til dyrnar
voru opnaðar og farþegarnir
stukku út. Bifreiðin steyptist
fram af og niður snarbratta
fjallshliðina, um eitt hundrað
metra fall og fór margar veltur.
Talið er að Magnús Sævar
Viðarsson hafi látizt sam-
stundis, en hann féll úr bifreið-
inni þegar hún valt niður fjalls-
hllðina. Bifreiðin staðnæmdist I
stórgrýttri fjörunni og er talin
gjörónýt. Magnús Sævar
Viðarsson var 22 ára gamall, til
heimilis að Suðurgötu 22 á
Siglufirði, ókvæntur.
Strákagöng Siglufjaröannegin. Punktalinan sýnir leiöina sem rút-
an vait niöur i fjöru. Ljósm: Jónas Ragnarsson
Hafrún falin af.
Áffa manns fór-
ust með skipinu
gébé Rvik — Skipulagðri leit af Hafrúnu AR 28 var hætt á laug-
ardagskviild, og var þá skipiö — og sjö manns af áhöfn þess —
talin af, en lik eins skipverja hafði fundizt áöur.
Með Hafrúnu AR 28 fórust átta manns: Valdimar Eiðsson,
skipstjóri, Eyrarbakka, fæddur 1945, lætur eftir sig konu og tvö
börn, Ingibjörg Guðlaugsdóttir matsveinn, Reykjavik, fædd 6.
júli 1935, lætur eftir sig átta börn, Agúst ólafsson stýrimaöur
Eyrarbakka fæddur 1949 lætur eftir sig konu og eitt barn, Þórður
Þórisson, I vélstjóri, Eyrarbakka fæddur 1943, lætur eftir sig
konu og eitt barn, Július Stefánsson, II véistjóri Eyrarbakka
fæddur 1955 lætur eftir sig unnustu, Haraldur Jónsson háseti
Eyrarbakka fæddur 1955, lætur eftir sig unnustu og eitt barn,
Guömundur E. Sigursteinsson, háseti, Hafnarfiröi, fæddur 1957
lætur eftir sig unnustu, og Jakob Zophoniusson, háseti
Reykjavik, fæddur 1931, lætur eftir sig einn uppkominn son.
Að sögn Hannesar Hafstein framkvæmdatjóra Slysavarna -
félags islands, verður hins vegar fylgzt með reka á Reykjancsi
og norður um Mýrar á næstu dögum, og sagði hann aö landeig-
endur á Snæfellssnesi og viðar heföu veriö beönir að fylgjast með
reka. Fjöldi manna hefur tekiö þátt i leitinni, á landi, sjó og úr
lofti, en án árangurs. Það eina sem fundizt hefur, er rekhald úr
gúmmibjörgunarbát, sem fannst i Sandvikinni á Reykjanesi.
Taliö er að báturinn hafi farizt um þrjá til fjórar sjómilur suður
af Ilópsnesi, en þar festi Höfrungur II frá Grindavik net I flaki og
upp kom sjónvarpskúpull sem sannað þykir aö sé af Hafrúnu AR
28.
Geir Hallgrímsson um framferðí Breta:
Gæti mjög vel skaðað
stöðu NATO á íslandi
„Brezku freigáturnar og könn-
unarflugvélarnar, sem eru þeim
til aðstoðar tengjast Atlanzhafs-
bandalaginu i hugum margra ís-
lendinga. Aðgerðir Breta gætu
auðveldlega leitt til ómetanlegs
tjóns fyrir stööu Atlanzhafs-
bandalagsins á íslandi og fram-
tiðaráhrif þess á þessu mjög
mikilvæga svæði,” segir I grein
eftir Geir Hallgrimsson, forsætis-
ráðherra, sem birtist i gær m.a. i
brezka blaðinu The Guardian, en
greinin var rituð að beiðni Victors
Zorsa, dálkahöfundar Washing-
ton Post i dálk hans „Inter-
national Dialogue”, sem blöö um
allan heim eru áskrifendur aö.
t greininni rekur forsætisráð-
herra útfærsluna i 200 milur, seg-
ir frá áliti fiskifræðinga á þorsk-
stofninum og rekur gang við-
ræðna við Breta og landhelgis-
striðið nú.
Grein forsætisráðherra byrjar
svo:
„tslenzka þjóðin, sem byggir
efnahagsafkomu sina algjörlega
á fiskveiðum og ræður i raun ekki
yfir öðrum náttúruauðlindum,
berst nú fyrir þvi að verja fisk-
stofnana við tsland gegn ásókn
Breta.”
1 greininni segir og m.a.:
„Lausn á deilu okkar við Breta
finnst ekki, nema það sé viður-
kennt, að fiskveiðar skipta sköp-
um fyrir lifsafkomu okkar en
mjög litlu máli fyrir efnahag
Bre ta. ”
Greininni lýkur forsætisráð-
herra svo:
„Enginn vafi leikur á þvi, að
við stöndum nú á örlagarikum
timamótum i baráttunni fyrir
lifsbjörg okkar. tsland getur ekki
og mun ekki gefast upp.”
Maður drukknar á
Akureyri ------> ®
Ólafur Jóhannesson,
OPIÐ BREF
til Þorsteins Pdlssonar, ritstjóra
SJA
BLAÐSÍÐU