Tíminn - 09.03.1976, Blaðsíða 12

Tíminn - 09.03.1976, Blaðsíða 12
lí TÍMINN Þriðjudagur 9. marz 1976 NsySPP i ipf p ? i " • | ,'," Síðasta ónumda land Norður-Ame- riku,sex sinnum stærra en Sam- bandslýðveldið Þýzkaland og með fallegri stöðum á jörðinni, er að opnast. Borpallar standa sem merki um innrás menningarinnar. Olia er drifkrafturinn. Frumbyggj- arnir, eskimóar og indiánar hafa af ótta við hvita manninn selt lönd sin fyrir næstum 1 milljarð dala. Tug- þúsundir af amerikumönnum flutt- ust til Alaska til að setja upp oliu- leiðslu, um alla Alaska allt til Kyrrahafsins. Furðulegt samsafn af mönnum, svipað þvi, sem vann við Kyrrahafs jámbrautina fyrir réttum hundrað árum, en hefur ekki sézt siðan lagningu hennar lauk. Alaska i dag, það þýðir borgir, sem hafa á mjög stuttum tima rokið upp, vændis- kvennabæli, alkóhól og villt nætur- lif, moskitóblóðsugur á stuttum og heitum sumrum, drepkuldi á löng- um pólarvetrum. Alaska er ævin- týraheimur, þar sem margir fara i hundana en fáir komast vel frá. Við enda nýja heimsins, 400 milur austur af Siberiu, á hálendi Alaska, er bær, sem heitir Barrow, og hver sá sem hefur komið þangað einu sinni, hefur áreiðanlega enga löngun til að fara þangaðaftur. Daglega ekur lögreglustjóri staðarins um götur bæjarins og kallar i sifellu i hátalarann: „Eskimóar, tjóðrið hundana ykkar.” En Eskimóun- um dettur ekki í hug að hlýða fyrirmælum hvitra lögreglu- manna. Þá hefur Harry Buccilli frjálsar hendur, og hann skýtur dýrin einfaldlega niður. Allir þeir hundar, sem hann kemst i tæri við, eru skotnir. Auk þessa veitir hann þóknun fyrir hvern dauðan hund. Nýverið skaut einn af mönnum hans 270 skotum á að- eins þremur dögum. Þetta hefði getað komið af stað uppreisn i bænum, en Buccilli segir, að Eskimóarnir æsi sig ekkert yfir þessum drápum. Or þvi að lögin kveði svo á um, að aðeins inn- lendir menn megi skjóta birnina, hljóti þeir hvítu að mega halda sig við hin dýrin — „Fólkið leggur fæð á okkur.” Barrow er hin grimmdarlega og ljóta hlið Alaska. Byggðin, með skakka trékofa og úr sér gengna bila, litur út eins og risa- stór öskuhaugur. Þeir Eskimóar, sem hér búa, komust i kynni við menninguna á tuttugustu öldinni. Nú finnast þarna engin snjóhús lengur, og varla nokkrir hunda- sleðar. Þess i stað sjá ferðamenn fátækrahverfi og máttleysislega dansa! I margar aldir voru þeir veiðimenn. Veiðin færði þeim nóg til llfsviðurværis, þeir voru sjálf- um sér nógir. Nú lifa þeir á fátækrahjálp frá hinu opinbera og óáreiðanlegri vinnu við smáiðn- að. Á föstudögum, þegar þeir fá útborgað, drekka þeir sig útúr- fulla. Aður fyrr bjuggu þeir til Klæðnað úr loðskinnum af svo miklum hagleik, að ekkert jafnaðist á við það. Nú hlaupa börn þeirra um i strigaskóm og gallabuxum sam- kvæmt þeirri fyrirmynd, sem þeir fá I sjónvarpsmyndunum, sem þeim eru sendar að sunnan. Þarna fæst nú kók og franskar kartöflur, og tennurnar eru farn- ar að skemmast og detta úr þeim. Vissulega hefur Alaska einnig fagrar hliðar. Þar er að finna 300 vötn og 500 jökla, sem samanlagt eru svo viðáttumikil, að þau eru stærri en Sviss. Þarna á túndr- unni er mikið og óspjallað land. Enginn annar staður á jörðinni jafnast á við þennan hvað náttúrufegurð snertir. Þegar nú er rætt um Alaska, eru það ekki unaðssemdir náttúrunnar, sem hæst ber. Ekki er heldur rætt um fall menningar frumbyggjanna, 75000 Eskimóa og Indiána. Nei, nú er það olían, sem rætt er um, þvi það á að byggja 1300 km langa lei&slu, allt frá Prudhe Bay við Is- hafið til islausra hafna i Valdez við Kyrrahafið. Leiðslan er leidd yfir þrjá fjallgarða, i gegnum fjögur jarðskjálftasvæði, yfir 34 fljótog 350 minni ár. Þetta verður stærsta byggingarfyrirtæki sög- unnar, og alls munu vinna þarna um 22000 manns. Og allir sækjast eftir gullinu, sem úr leiðslunni fæst — verkamaðurinn, fjármála- maðurinn og umboðsmaður jarð- eigenda. — Frá hagfræðilegu sjónarmiði séð er Alaska áhuga- verðasti staður á jörðinni, segir Neil Bergt, forseti Alaska Inter- national Industries. Hagfræðilega séð var Alaska einu sinni paradis skinnaveiðara. Hún tilheyrði rússncska rikinu, en Alexander keisari, sem taldi hana verðlausa og einskis nýta, seldi Bandarikja- mönnum hana árið 1867 fyrir 72 milljónir dala. Um aldamótin hófst gullæði i Ameriku. Fólk streymdi til Alaska svo þúsund- um skipti hvaðanæva úr heimin- um. Gullið, sem það gróf, var 800 milljón dala virði. Þegar gullæðið hætti um 1914, hljóðnaði aftur á auðnum Alaska, eða þangað til seinni heimsstyrjöldin brauzt út. Þá varð Alaska mjög mikilvæg vegna landfræðilegrar legu sinn- ar. Herstöðvum var komið upp og herlið settist þar að. Siðan, eftir að Kóreustyrjöldinni og kalda striðinu lauk og engin striðshætta lá I loftinu, hvarf áhuginn á Alaska aftur. Þetta varð aftur land veiðimanna og draumaland fyrir þá, sem vildu komast burt frá ys og þys borgarlifsins og lifa einföldu lífi i náinni snertingu við náttúruna. 90% af nauðsynjavör- um og 99% af öllum iðnaðarvör- um varð að flytja inn. Sjónvarps- fréttirnar, sem sendar voru út i 500 km fjarlægð, voru alltaf frá deginum áður. 18. febrúar 1968 var svo friður- inn úti. Það höfðu fundizt 10 milljarðar tunna af oliu á botni íshafsins, en það var þriðjungur þeirra birgða, sem Bandarikja- menn höfðu yfir að ráða. Stjórn Alaska seldi oliufélögum einka- réttindi til borunar á svæðinu og tryggði einnig rikinu einn mili- jarð dala sem árlega skattainn- komu — upphæð, sem var jafnhá, rekstrarkostnaði alls Alaska hingað til. Uppreisn náttúru- verndarmanna, Indiána og Eskimóa Aftur flykktust þúsundir manna til Alaska — i norðurátt, þar sem framtiðin er — eins og sagt var forðum. Það átti að setja upp rör- leiðslu rándýra og hannaða i Japan. En verkið komst ekki af stað. Náttúruverndarmenn höfðu Hvergi annars staðar I heiminum eru til eins margar einkaflugvélar og x Alaska. Fjórði hver Alaskabúi hefur flugpróf, þvi ekki er hægt að komast á flesta bæi og byggðir við heimskautsbauginn nema með flugvél.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.