Tíminn - 09.03.1976, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Þriðjudagur !), marz, I!)7(i
r
A FLOTTA FRA ASTINNI
Eftir Rona Randall
l
y
1. kaf li.
Doktor Harwey var gramur. Auövitaö haföi yfir-
hjúkrunarkonan allan rétt til að géfa honum hæðnislega
hornauga og segja sem svo: — Þú átt frí síðdegis. Þá er
ég viss um að þú hef ur ekkert á móti því að fara út á Le
Bourget og taka á móti nýja aðstoðarlækninum. Það er
enginn annar, sem getur það i dag. Hún vissi ekkiv að
hann átti stef numót við AAimi og að AAimi var ekki stúlka,
sem lét sér lynda að biða.
En auðvitað gat hann ekki neitað. Hann var yngsti
læknirinn við St. Georges-sjúkrahúsið og bar því að hlýða
fyrirmælum. En hann var ekki kvæntur sjúkrahúsinu
eins og yf irlæknirinn, AAark Lowell. Hann, dr. Harwey
hafði önnur áhugamál, einkum þó konur.
Auðvitað gat hann skilið að AAark Lowell væri stoltur
af þessu sjúkrahúsi. Frændi hans, sir Edward Lowell
hafði látið eftir sig sjóð mikinn til styrktar því og það var
ódauðleg venja, að allir í Lowell-fjölskyldunni störfuðu
þar og elskuðu stofnunina eins og hann hafði sjálfur
gert. Auk þess var þetta eina enska sjúkrahúsið í París
og þarna var andrúmsloftið mun persónulegra en gengur
og gerist á sjúkrahúsum í Englandi.
David gat ekki hugsað sér yfirhjúkrunarkonu á
sjúkrahúsi i Englandi leggja sig niður við að standa í eld-
húsinu og búa til mat, en slíkt kom fyrir hér á St.
Georges. Þegar nauðsyn krafði, hjálpuðust allir að þvi,
sem gera þurfti — og það var sem sagt ástæðan til þess
að hann stóð hér og beið óþolinmóður eftir flugvél á Le
Bourget-f lugvelli.
Hann vissi hvers vegna yf irhjúkrunarkonan hafði ver-
ið með þennan hæðnissvip. Hún vissi, eins og allir aðrir á
sjúkrahúsinu, hvað hann hafði mikinn áhuga á hinu kyn-
inu og þess vegna hafði talið, að hann vildi endilega hitta
þennan Henderson lækni.
David Harwey var dæmigerður fulltrúi lækna, sem
hafa nýlokið námi. Hann var afar áhugasamur og fullur
ábyrgðartilf inningar gagnvart starfinu, hann unni
læknisf ræði og öllu henni viðkomandi, en hann var ^nnþá
það ungur, að hann naut gjarnan lifsins utan sjúkrahúss-
ins.
David andvarpaði og leit óþolinmóðlega á úrið. Sam-
kvæmt áætlun átti flugvélin frá London að lenda eftir
nokkrar minútur en ekki bólaði á henni ennþá. Hann
hugsaði til AAimi. Hún yrði áreiðanlega í erfiðu skapi,
þegar hann kæmi of seint á stefnumótið, ef hún hafði þá
yfirleitt fyrir því að bíða hans. AAimi var ein af vinsæl-
ustu fyrirsætunum í París, þessa stundina,og þurfti
sannarlega ekki að bíða eftir karlmönnum.
Það yrði svei mér langt þangað til hann fyrirgæf i yf ir-
hjúkrunarkonunni að leggja honum þessa leiðinlegu
skyldu á herðar. Hún vissi vel að þetta var í f yrsta sinn i
meira en hálfan mánuð, sem hann átti f rí eftir hádegi og
ef hún hélt raunverulega, að hann hefði einhverja
ánægju af að taka á móti konu, sem var læknir, skjátlað-
ist henni hrapallega. Hann hafði andstyggð á kvenfólki í
stöðum....
Nú kom flugvélin i Ijós eins og stór, gljáandi fugl.
Nokkrum mínútum síðar lenti hún með miklum gný.
Doktor Harwey dró djúpt að sér andann og bjó sig undir
það sem koma skyldi. Nú tæki þetta ekki langa stund.
Hann ætlaði áð aka nýja aðstoðarlækninum inn í borgina
eins f Ijótt og hægt væri, setja hana úr við sjúkrahúsið og
hraða sér á fund AAimi....
Kvenkyns læknir! Það fór hrollur um hann við tilhugs-
unina. Hvað sjúkrahússtjórnin hugsaði eiginlega, var
fyrir ofan hans skilning. Auk þess hafði hann alltaf
heyrt, að doktor Lowell neitaði harðlega, að hafa kven-
kyns lækna i starfsliðinu, en kannski hafði hann ekki átt
neinna kosta völ í þetta sinn. Það var alltaf erfitt að fá
lækna til starfa við St. Georges, með þeim launum, sem
hægt var að bjóða þar. Þeir komu til að öðlast reynslu,
eins og hann sjálfur, störfuðu þar í nokkur ár og fengu
síðan betri stöður annars staðar, þar sem launin voru
margfalt betri.
Doktor AAyra Henderson, hugsaði hann með fyrirlitn-
ingu. Hann bjóst við að foreldrar hennar hefðu gefið
henni þetta kvenlega nafn í þeirri von að hún yxi upp i
samræmi við það. Hvernig skyldi þeim hafa orðið við,
þegar hún í stað þess að hlýða kveneðli sínu, hafði gerzt
menntuð mannvera með þörf fyrir f rama á sviði læknis-
fræðinnar?
Farþegarnir tóku að streyma út úr flugvélinni. Dr.
Harwey renndi augunum yfir hópinn. Kaupsýslumenn.
Ferðamenn. Háværir Bandaríkjamenn. Stúlka með
fallega fætur. Hann leit aftur á fæturna, en renndi síðan
augunum áfram. Hópurinn færðist að tollskoðunarborð-
unum og dr. Harwey gekk inn í biðsalinn. Doktor AAyra
Henderson hafði fengið skilaboð um að einhver frá
Hermenn Mings
ræna öllu fémætu
frá þorpsbúum....
... En nu fá þeir að kenna
9. marz
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Guð þarnfast þinna
handa Fyrri dagskrárþátt-
ur i tilefni af æskulyðs- og
fórnarviku kirkjunnar, sem
helguð er málefnum
þroskaheftra barna hér á
landi. Umsjónarmenn:
Guðmundur Einarsson og
Jóhannes Tómasson.
15.00 Miðdegistónleikar
Artur Rubinstein og
Sinfóniuhljómsveitin i St.
Lois leika ,,Nætur i görðum
Spánar” eftir Manuel de
Falla: Vladimir Golsch-
mann stjórnar. Victoria de
los Angeles syngur þrjá
spænska söngva eftir
Granados: Gonzalo Soriano
leikur á pianó. Sinfóniu-
hljómsveitin i Minneapolis
leikur „Iberiu”, hljóm-
sveitarsvitu eftir Albeniz:
Antal Dorati stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
Tónleikar.
16.40 Litli barnatiniinn. Sigrún
Björnsdóttir sér um timann.
17.00 Lagið mitt Anne-Marie
Markan sér um óskalaga-
þátt fyrir börn undir tólf ára
aldri.
17.30 Framburðarkennsla i
spænsku og þýzku
17.50 Tónleikar. Tilkynningar
1R.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Hver er óháður? Guðjón
B. Baldvinsson fulltrúi
flytur erindi.
20.00 Lögunga fólksins.Sverr-
ir Sverrisson kynnir.
20.50 Frá ýmsum hliðum
Guðmundur Arni Stefáns-
son sér um þátt fyrir ung-
linga.
21.30 Sinfóniuhljóm s veit
islands leikur i útvarpssal
Stjórnandi: Páll P. Pálsson.
a. Forleikur að óperunni
„Lohengrin” eftir Wagner.
b. Þrjár impressiónir eftir
Atla Heimi Sveinsson. c.
Tveir slavneskir dansar
eftir Dvorák.
21.50 Kristfræði Nýja testa-
mentisins Dr. Jakob
Jónsson flytur 10. erindi
sitt: Daviðs sonur.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Lestur
Passiusálma (19)
22.25 Kvöldsagan: ,,t verum",
sjálfsævisaga Theódórs
Friðrikssonar Gils Guð-
mundsson les siðara bindi
(28)
22.45 Harmonikulög Reynir
Jónasson og félagar leika.
23.00 A hljóðbergi. Danski
leikarinn Erik Mörk les
söguna „Portnerens sön”
eftir H.C. Andersen. (Hljóð-
ritað á listahátið i Reykja-
vik i júni 1972).
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
9. mars 1976
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.40 Leshringur. Kynning á
nýju námsformi, sem mjög
er að ryðja sér til rúms
erlendis. Þátturinn er gerð-
ur i samvinnu við Bréfa-
skólann. Leiðbeinandi er
Gunnlaugur Kristinsson.
21.20 Columbo. Bandariskur
sakamálamyndaflokkur.
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
22.35 Utan úr heimi.Umræðu-
þáttur um erlend málefni.
Hafréttarráöstefnan. Þátt-
takendur Benedikt Gröndal,
alþingismaður, Már Elis-
son, fiskimálastjóri, Þór
Vilhjálmsson, hæstaréttar-
dómari, og Gunnar G.
Schram, sem stjórnar
umræðum.
23.15 Dagskrárlok.