Tíminn - 09.03.1976, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 9. marz 1976
TÍMINN
3
Samið um hönnun hitaveitu á Akureyri:
Hitaveita lögð í fyrstu
húsin á Akureyri 1977
— áætlað að Ijúka framkvæmdum 1979
SJ—Reykjavik. — Nú hafa verið
undirritaðir samningar um
hönnun hitaveitukerfis fyrir
Akureyri með jarðvarma frá
Laugalandi. Verkfræðistofa
Sigurðar Thoroddsens á Akur-
eyri og Verkfræðistofa Norður-
lands, einnig á Akureyri, hafa
tekið verkið að sér, en á bak við
þær standa Verkfræðistofa Sig.
Thor. i Reykjavik. Fjarhitun og
Almenna verkfræðistofan.
Að sögn Bjarna Einarssonar,
bæjarstjöra á Akureyri er
ætlunin að framkvæmdir við
innanbæjarkerfið hefjistá þessu
ári og aðveitulögn verði gerð ár-
ið 1977. Stefnt verður að þvi að
Hliðahverfi II, sem er i bygg-
ingu, fái þegar frá upphafi hita-
veitu. Gert er ráð fyrir að ein-
hverjir Akureyringar verði bún-
ir að fá hitaveitu i hús sfn fyrir
veturinn 1977.
Ætlunin er að framkvæmdum
við hitaveitu á Akureyri verði
lokið á árinu 1979.
Unnið er af miklu kappi að
hönnun hitaveitunnar, og er það
undir þeim skipuleggjendum
komið, hvenær framkvæmdir
geta hafizt, og ekki siður þvi
hvernig gengur að afla fjár til
að hefjast handa. Áherzla
verður lögð á að framkvæmdir
geti hafizt sem fyrst.
Borholan að Laugalandi er
orkumesta hola, sem boruð
hefur verið hér á landi á lág-
hitasvæði. Nú er verið að bora
þar aðra holu og er komiðniður
á 10.060 m dýpi, en hún hefur
ekki gefið vatn ennþá. Fyrri
holan gafvatn á 600m og aftur á
1300 m dýpi. Vonazt er til að
þessi hola gefi þvi meiri orku
neðar.
TVEIR BÍLAR FUKU ÚT AF
VEGINUM í OFSAVEÐRI
Gsal-Reykjavik — Ofsaveður var
á Austfjörðum á föstudagskvöld.
Þá fuku tveir bilar út af vegum,
annar i Oddskarði og hinn i Odds-
dal, og gjöreyðilögðust báðir
bilarnir. Annar billinn var mann-
laus, er hann þeyttist dt af vegin-
um, en i hinum voru piltur og
stúlka, og fór bOI þeirra sex velt-
ur, þar til þau komust dt. Stúlkan
meiddist litílsháttar og var lögð
inn á Sjúkrahúsið á Norðfirði, en
pilturinn slapp ómeiddur.
Gsal-Reykjavik. — Það er alrangt
að fangarnir hafi viðurkennt að
hafa margsinnis farið með Geir-
finni Einarssyni I sjóferðir frá
Keflavik, sagði Sigurbjörn Viðir,
rannsóknarlögreglumaður I sam-
tali við Timann, en i einu dag-
blaðanna i gær, var frá þvi skýrt
að játning þriggja gæzluvarð-
haidsfanganna lægi fyrir hvað
þetta atriði snertir, og það haft
eftir Erni Höskuldssyni, saka-
dómara.
Sigurbjörn sagði að enn væri
ekki hægt að greina dagblöðunum
frá neinum upplýsingum sem
Búnaðarþingi
lýkur á
miðvikudag
Mó-Reykjavik — Tveir fundir
voru á Búnaðarþingi i gær og þar
voru afgreidd fjögur mál. Meðal
annars var þar afgreidd ályktun
um skipulagningu búvörufram-
leiðslunnar. Nú sigur á seinni
hluta þingsins og er stefnt að þvi
að þingstörfum ljúki á miðviku-
dag. Fjöldi mála hefur þegar ver-
ið afgreiddur, en alls voru nær
fimmtiu mál Iögð fyrir þingið.
gébé—Rvik.,— Það er mikill
baráttuhugur I konum hér, sagði
Gréta Gunnarsdóttir um verkfall
kvenna á Akranesi. Enginn
viðræðufundur hefur veriö boðað-
ur, og við biðum bara rólegar.
Okkur hefur boriz.t mikill fjöldi af
simskeytum og simtölum frá fólki
um land allt.sem lýsir yfir stuðn-
ingi við okkur, sagði hdn. — Á
sunnudaginn var haldinn mjög
fjölmennur fundur hér á Akranesi
og þar var samþykkt að ,,skora á
alla góða atvinnurekendur á
Það var um kl. 18, að jeppabif-
reið var á leið yfir Oddskarö og
vareinn maður i bilnum. Er hann
var kominn upp i háskarðið
treysti hann sér ekki til að halda
ferðinni áfram, þar eð bilinn var
farinn að fjúka til á veginum.
Maðurinn fór þvl út úr bilnum og
komst i björgunarskýli sem
þarna er og gerði viðvart til Norð-
fjarðar, og bað um að hann yrði
sóttur á jarðýtu. Brugðið var
skjótt við og lögðu tveir menn af
fram hefðu komið við rannsókn
málsins.
Sem kunnugt er hafa fjórir
menn verið úrskuröaðir i gæzlu-
varðhald I Geirfinnsmálinu svo-
nefnda, og voru þeir allir úr-
skurðaðir i 45 daga gæzluvarð-
hald. Sá timi rennur út n.k.
fimmtudag hjá þremur þeirra, og
verðurþá ákvörðuntekin um það,
hvort gæzluvarðhaldsvist þeirra
verður framlengd.
Piltur í
lífshæftu
Gsal-Reykjavik — Tæplega tvi-
tugur piltur liggur nú á gjör-
gæzludeild Borgarspitalans i
Reykjavik eftir árás sem gerð
var á hann I veitingahúsinu
Klúbbnum s.l. föstudagskvöld.
Pilturinn er talinn i lifshættu.
Nánari tildrög eru þau, að
skömmu eftir miðnætti sl. föstu-
dagskvölds fór pilturinn á salerni
á neðstu hæð veitingahússins. Þar
var hann sleginn niður og siöan
sparkað i kviðinn á honum. Ekki
er vitað hver þessi fólskuverk
vann, og biður rannsóknarlög-
reglan i Reykjavlk alla þá sem
vitni urðu að þessum atburði, að
hafa samband við sig.
Akranesi að viöurkenna óskir
kvennanna, semja strax og leysa
þessa ósanngjörnu deilu.”
Enginn samningafundur hefur
verið haldinnsiöan á fimmtudag i
siöustu viku og enginn fundur
hefur verið boðaður enn. A fund-
inum á sunnudaginn i Rein var
eftirfarandi ályktun samþykkt
einróma:
Fjölmennur fundur haldinn i
Rein 7. marz mótmælir þeim við-
brögðum atvinnurekenda á Akra-
nesi, aö stöðva enn frystihúsin á
stað inn í Oddsdal, þar sem jarð-
ýtan var. I Oddsdal óku mennirn-
ir fram á pilt og stúlku, en bíll
þeirra hafði þá skömmu áður fok-
ið Ut af veginum. Annar mann-
anna hélt þvi með þau til byggða
en hinn fór á ýtunni upp i Odd-
skarð.
Þegar komið var upp i skarðið
var svo hVasst að ógjörningur var
að tengja bilinn i skarðinu viö ýt-
una. Mennirnir héldu þvi til Norð-
fjarðar á ýtunni og gekk sú ferð
slysalaust fyrir sig.
A laugardagsmorgun var veðr-
ið orðið skaplegt og fóru menn þá
að huga að bilnum i skarðinu, en
hann lá þá viðs fjarri veginum og
var gjöreyðilagður. Sömu sögu
var að segja um bilinn i Oddsdal,
enhann hafði farið margar veltur
eftir að pilturinn og stúlkan kom-
ust Ur honum.
1 GÆR var undirritaöur á Egils-
stöðum samningur um kaup Sam-
bands .islenzkra samvinnufélaga
og Kaupfélags Héraðsbúa á
prjónastofunni Dyngju hf. á
Egilsstöðum. Fyrirhugaö er aö
Dyngja hf. starfi i nánum tengsl-
um við Iðnaðardeild Sambands-
ins á Akureyri og aðalvefkefni
Dyngju á næstunni verður fram-
leiðsla á ullarvörum til útflutn-
ings.
Dyngja hf. var stofnuö 15. janU-
ar 1968 og hefur fram að þessu
framleitt prjónavörur fyrir
innanlandsmarkaö og til útflutn-
ings. A árinu 1974 hófst samstarf
Dyngju hf. við Iðnaðardeild Sam-
bandsins, sem siðan hefur séö
prjónastofunni fyrir verulegum
aðalannatima ársins og halda
áfram vinnudeilu i bænum, þegar
flestir staðir hafa að loknu alls-
herjarverkfalli hafið störf af full-
um krafti.
Fundurinn viðurkennir ekki þá
átyllu, sem þeir bera fram, að
vilja ekki mæta óskum starfs-
kvenna sinna, heldur bjóöa þeim
upp á verri samning en áður gilti
um kauptryggingu i fiskvinnu.
Þetta er ekki atriði um kaup,
heldur um almenna virðingu og
mannréttindi.
Blaðamenn
samþykktu
verkfalls-
heimild
Á fundi f Blaðamannafélagi
Islands sem haldinn var i gær,
var samþykkt, að veita stjórn
og launamálanefnd félagsins
heimild til verkfallsboðunar.
Var verkfallsheimildin sam-
þykkt með 44 atkvæðum gegn
1.
Samningaviðræður blaða-
manna og útgefenda hafa
staðið i nokkrar vikur, og er
málið nú i höndum sáttasemj-
ara rikisins. - Siðasti
samningafundur var haldinn
s.l. fimmtudag og bar þá tals-
vert á milli deiluaðila. Nýr
samningafundur hefur ekki
verið boðaður.
hluta verkefna hennar.
Stjórn Dyngju hf. skipa, Hjört-
ur Eiriksson, formaður, Þor-
steinn Sveinsson, varaformaður
gébé' Rvik — Bræla var á loðnu-
miöunum I gærdag og bátarnir
gátu ekki verið við veiðar. Loðn-
an færir sig sifellt norðar og er nú
beint út af Svörtuloftum, vestast
á Snæfellsnesi. t fyrrinótt fengu
14 bátar afla, samtals 3.700 tonn.
Frá miðnætti á laugardag til mið-
nættis á sunnudag tilkynntu 47
bátar um afla til loðnunefndar,
samtals 14.055 tonn. Heildarveiö-
in á þessari loðnuvertið var þvi
orðin I gær 237.407 tonn. Ilelga
Guðmundsdóttir var aflahæst á
laugardagskvöld, með samtals
7.874 tonn, en Guðmundur RE
hafði þá fengið 7.770 tonn og Sig-
urður RE 7.504 tonn.
Samkvæmt skýrslu Fiskifélags
Islands fengu 73 bátar einhvern
loðnuafla i siðustu viku og var
vikuaflinn samtals 56.124 tonn.
Frá upphafi vertíðar til og með 6.
marz s.l. hafa 76 skip fengið ein-
hvern afla og var heildaraflinn
Snarpur
kippur í
Grímsey
Mó—Reykjavik.— I laugardags-
kvöldið fannst snarpur jarð-
skjálfti I Grimsey og átti hann
upptök sin skammt austan við
eyna. Kippurinn mældist 5,1 stig á
Richterkvarða. Ekki er vitað um
neinar skemmdir i eynni, en eitt-
hvað var um að munir hryndu úr
hillum. A aöfaranótt sunnudags-
ins voru siðan kippir af og til alla
nóttina og á sunnudag var stöðug
virkni.
A sunnudagskvöld fannst siðan
allstór kippur skömmu eftir mið-
nætti, en siðan hefur verið rólegt i
Grimsey.
Rekstrar-
kostnaður
minnkar um
13 millj.
Gsal-Reykjavik — Þeiin fjölgar
stöðugt skipunum, sem ganga
fyrir svartoliu, en þvi fylgir
mikill sparnaður miöaö við
notkun gasoliu. Nýjasta dæmiö
er Akraborgin, sem i siðustu
viku fór i sina fyrstu ferö, knúin
af vélum, sem ganga fyrir
svartoliu. Það voru 52 vélskóla-
nemar, sem unnu að breyting-
um á oliukerfi skipsins, en unnið
var að breytingunum að nætur-
lagi.
Til merkis um þann mikla
sparnað. sem þessi brevting
hefur i för með sér, má nefna.
að áætlað er að reksturs-
kostnaður Akraborgarinnar
minnki um rúmlega þrettán
milljónir króna á ári.
og Asgrimur Stefánsson, með-
stjórnandi.
Framkvæmdastjóri Dyngju er
Armann Benediktsson.
s.l. laugardagskvöld samtals
219.652 tonn, á móti 349.821 tonn-
um á sama tima i fyrra, en þá
höfðu 107 skip fengið einhvern
afla. .
Loðnu hefur verið landað á 21
höfn viðs vegar um landið, auk
bræðsluskipsins Norglobal, sem
hefur tekið á móti mestum afla
eöa samtals 34.543 tonnum, en
næst koma Vestmannaeyjar með
26.582 tonn og Seyðisfjörður meö
26.146tonn.Tiu aflahæstu skipin á
þessari vertiö voru i siöustu viku-
lok þessi:
Helga Guðmundsdóttir 7874 tonn
BA
GuðmundurRE 7770 —
SigurðurRE 7504 —
Börkur NK 6926 —
HilmirSU 6383 —
Eldborg GK 6213 —
Grindvikingur GK 6048 —
Hákon ÞH 5740 —
GisliArniRE 5649 —
Loftur Baldvinsson EA 5385 —
„Hafa ekki viðurkennt
að hafa farið á sjó"
Mikill baráftuhugur í konum
A A Lmnarí — enginn samningafundur
a MKraneSI boðaðurenn
Dyngja framleiðir ullar
varning til útflutnings
— mun starfa í tengslum við Iðnaðardeild
Sambandsins á Akureyri
Bræla á loðnumiðum
— loðnan nú beint út af
Svörtuloftum
— Helga Guðmundsdóttir BA
aflahæst