Tíminn - 11.03.1976, Qupperneq 5

Tíminn - 11.03.1976, Qupperneq 5
Fimmtudagui' 11. inarz 1976 TÍMINN 5 Eintómar tilviljanir Enn heldur Alþýðublaðiö þvi fram, að hinar stöðugu árásir á Óiaf Jóhannesson séu ekki af pólitiskum toga spunnar held- ur liggi þar að baki réttlætis- kennd og umhyggja fyrir betri skipan dómsmáia hér á landi. Enginn minnistþess þó, að Al- þýðuflokkurinn hafi beitt sér sérstaklega fyrir bættri skip- an þessara mála. Hefur flokk- urinn þó átt inenn á þingi ára- tugum saman. Þaðhefur aftur á móti orðið hlutskipti ann- arra manna að beita sér fyrir lagafrumvörpum á þessu sviði, ekki sizt ólafs Jó- hannessonar dómsmálaráð- herra hin siðari ár, þó að árangurinn hafi ekki alltaf orðið sem skyldi, m.a. vegna tregöu þingmanna, Alþýöu- flokksþingmanna sem þing- manna annarra flokka, aö veita fjármagn til þessa mála- flokks. En hvernig skyidi þá standa á þvi, að það skuli einmitt veitzt að þeim manni, sem hefur þó beitt sér hvað mest i þessum málum? Eru það kannski eintómar tilviljanir, aðkratar skuli koma alls stað- ar við sögu, þegar sú rógsiðja cr skoöuð niður i kjölinn? Tilviljun nr. 1 Það var frambjóðandi Al- þýðuflokksins við síðustu ai- þingiskosningar, Vilmundur Gylfason, sem hóf rógskrifin um dómsmáiaráðherra. Tengsl Vilmundar við Albvöu- -- Sendimenn CIA hafa viða verið á ferð og marga hitt. flokkinn leyna sér ekkert, og sjálfur dregur hann ekki dul á, að hann ætli sér pólitiskan frama og aö nota skrif sin sið- ustu vikur og mánuöi sér til framdráttar. Tllviljun nr. 2 Þaðer sjálfsagt tilviljun, að það skyldi vera annar fram- bjóðandi Alþýðuflokksins, Arni Gunnarsson, sem mat- reiddi skrif Vilmundar á for- siðu Visis. Arni var taiinn i öruggu sæti fyrir Alþýöuflokk- inn i borgarstjórnarkosning- um 1970 og skipaði 2. sæti á listanuin. Ekki fór betur en svo, að Arni gtataöi þessu sæti, en Framsóknarflokkur- inn vann aftur á móti sæti. Arni er nú orðinn ritstjóri Ai- þýðublaðsins. Tilviljun nr. 3 Það er sjálfsqgt lika tilvilj- un, að þaö skyIdi vera Alþýðu- fiokksþingmaöurinn Sighvat- ur Björgvinsson, sem tók þetta mál upp á Alþingi. Þing- maöurinn virðist hafa góð sambönd við fréttastofu Sjón- varps, þvi að frétt þess efnis, að málið yrði tekið upp utan dagskrár, birtist dagimi áður i fréttatima. Tilviljun nr. 4 Vafalitiö er það einnig til- viijun, að það skyldu aðeins vera Alþýöuflokksþingmenn- irnir Gylfi Þ. Gislason og Bcnedikt Gröndal úr hópi stjórnarandstæðinga, sem veittust að dómsmáiaráö- heiTa i útvarpsumræöunum um vantraust á rikisstjómina. Tilviljun nr. 5 Enn ein tilviljunin er sú, að sama kvöld og vantraustsum- ræðurnarfóru fram, skyldi AI- þýðuflokksmaðurinn Hilmar Jónsson bókavörður úr Kefla- vik og frammámaöur i flokkn- um þar syöra, flytja útvarps- crindi urn „Daginn og veginn” Vilmundur Sighvatur > 11 t* — Arni. Hilmar Birgir Baldur Kristján P. Ilaukur sem nær eingöngu var helgað dómsmálaráðherra og meint- um ávirðingum hans. Tilviljun nr. 6 Ætli megi ekki enn fremur flokka það undir tilviljun, að sá maður, sem af ýmsum er talinn vera „kauði”, tollvörð- urinn á Keflavikurflugvelli, Kristján Pétursson, skuli einnig vera framarlega I krataliðinu suður með sjó? Tilviljun nr. 7 Það er svo sjálfsagt enn ein tiiviljunin, að i hópi þeirra, sem hvað ágengastir voru viö ölaf Jóhannesson, er hann svaraöi i beinni linu I rikisút- varpinu, skyldi vera fram- bjóðandi fyrir Alþýðufiokkinn , i Reykjavík viö undanfarnar kosningar, Birgir Þorvaldsson framkvæmdastjóri. Tilviljun nr. 8 og 9 Það má sjálfsagt lika heim- færa það undir tilviljanir, að ýnisir' hjálparkokkar krat- anna i „flotanum ósigrandi” skuli af sérstökum ástæðum vera i nöp við dómsmálaráð- herra.þ.á m.lögregluþjónn úr Keflavik, sem taldi, aö gengið heföi verið framhjá sér við veitingu yfirlögregluþjóns- stöðu. Og enn fremur hjáipar- kokkur að nafni Baldui' ósk- arsson, sem eitt sinn var áhrifamaður i Framsóknar- flokknum, en villtist af leiö og lenti i slæmum félagsskap. Tilviljun nr. 10 Þátttaka allra þeirra manna, sem nefndir hafa ver- ið að framan, er augljós. En þeirri spurningu er hins vegar ósvarað, hver atti þeim á foraðið? Tiunda og slöasta tilviljunin ere.t.v. sú, hversu sérlega illa Alþýðublaðið hefur brugðizt viö, aö ýjað skyldi að þvi að einhver tengsl væru milli Al- þýðuflokksins og bandarisku leyniþjónustunnarCIA. Þaö er ekki einleikið. hversu óskap- lega Alþýðublaöiö er tauga- veiklað vegna þess máls, og hefur þó aðeins veriö tæpt á þvi i lesendadálkum. Hins vegar rifjar Þjóöviljinn upp i gær, að einn af fyrrverandi yfirmönnum CIA hefði nýlega lýst þviyfir, að mörgum topp- krötum i Vestur-Evrópu heföi verið greiddar mikiar fúlgur fyrir vcl unnin störf. Það þarf ekki að minna á þaö hér, að gott og náiö sam- starf er milli evrópskra krata, og hefur Gylfi Þ. Gislason ver- ið iöinn við að sækja fundi þeirra, nú siðast i Helsingja- eyri i Danmörku fyrir nok.ír- um vikum. __a.þ. 45 NORSK SKIP FÁ LEYFI TIL VEIÐA (slendingar ákveða hámarksafla Gsal—Reykjavik. — Samkomu- lag hefur tekizt miili rikis- stjórna Islands og Noregs um veiöar Norðmanna innan is- lenzkrar fiskveiðilögsögu. Sam- komulagið tók gildi tii bráða- birgða i gær, en endanlega, þeg- ar ríkisstjórnir beggja þjóðanna hafa tilkynnt að stjórnarskrár- ákvæðum þeirra hafi verið full- nægt, að þvi er segir i tilkynn- ingu utanrikisráðuneytisins i gær. Samkomulagið felurí sér leyfi tii handa 45 norskum skipum er stunda linuveiðar á svæðinu milli 12 og 200 milna utan við grunnlinur umhverfis isiands. Þóeru ákvæði I samkomulaginu sem kveða á urn að ekki séu fleiri en 30 linuveiðiskip, sem stundi veiðar samtimis. islenzk stjórnvöld munu ákveða hámarksafla þ.á.m. þorskafla. Leyfi verða veitt norskum skipum i samræmi við eftirfar- andireglur: a) norsk stjórnvöld skulu tilkynna islenzka sjávarút- vegsráðuneytinu nafn, skráningarnúmer og stærð skips, sem óskað er veiði- heimildar fyrir, svo og nafn skipstjóra, b) islenzka sjávarút- vegsráðuneytið veitir skipum, sem i hlut eiga, leyfi til linu og handfæraveiða. Leyfin eru veitt til 2-4 mánaða i senn, og er heimilt aö endurnýja þau. 1 þessu samkomulagi felst, að norsk skip, sem stunda veiðar samkvæmt ofangreindum ákvæðum skuli hlita sömu regi- um sem islenzk fiskveiðiskip við sams konar veiðar, og er norsk- um skipum gert að tilkynna is- lenzkum stjórnvöldum stað- setningu skipa daglega. Þá er norskum stjórnvöldum gert að gefa Fiskifélagi Islands misserislega skýrslu um veiði- magn, sem aflað er á grundvelli ofangreindra ákvæða. Tekið er fram i samkomulag- inu, að það haggi i engu sjónar- miðum samningsaðila varðandi mörk lögsögu milli landa þeirra. Hvor aðili um sig getur fellt samkomulagið úr gildi með sex mánaða fyrirvara. Olav Lydvo, sendiherra Noregs á Islandi staðfesti sam- komulagið fyrir hönd Noregs, en Einar Agústsson, utanrikis- ráðherra fyrir hönd Islands. Q Alþingi sveitarstjórnum, i embættis- mannakerfi, stjórnmálaflokkum og hagsmunasamtökum er nær algerlega i höndum karla. 1 niðurstöðum skýrslunnar kemur fram, að án nýrra aögerða og breyttra viðhorfa verði ekki um aðræða umtalsverðar breytingar i jafnréttismálum kynjanna i ná- inni framtið. Opinberir starfsmenn fyrstir Hvað snertir sömu laun fyrir sömu störf til handa konum og körlum, þá voru opinberir starfs- menn fyrsta starfsstéttin, sem hlaut iögvemdað launajafnrétti kynjanna. Það var á árinu 1954. 1 lögum um réttindi og skyldur starfsmanna rikisins, nr. 38 frá 1954, 3. gr. segir svo: „Konur og karlar hafa jafnan rétt til opin- berra starfa og til sömu launa fyrir sömu störf.” Á árinu 1961 voru sett lög um almennan launa- jöfnuð kvenna og karla og skyldi honum náð 1967. Þessi lög voru sett i samræmi við fullgildingu samþykktar Alþjóðavinnumála- stofnunarinnar nr. 100, sem full- gilt var af Islands hálfu hinn 17. febrúar 1958. Með henni skuldbatt Island sig til að tryggja jöfn laun til kvenna og karla fyrir jafnverð- mæt störf. A árinu 1964 fullgilti Island fyrir sitt leyti samþykkt Alþjóða- vinnumálastofnunarinnar nr. 111 um útrýmingu á hvers konar mis- rétti i atvinnu eða starfi. Jafnlaunaráð A árinu 1973 voru sett lög um Jafnlaunaráð.er kveða á um, að konum og körlum beri að fá sömu laun fyrir jafnverðmæt störf, og atvinnurekendum sé óheimiit að mismuna starfsfólki eftir kyn- ferði. Jafnlaunaráði er ætlað að tryggja framkvæmd laga um jafnrétti kynjanna i atvinnulifinu, og hefur starfsemi Jafnlaunaráðs gefið góða raun. En þrátt fyrirlagalegt jafnrétti til menntunar, atvinnu, launa og stjórnmálalegrar þátttöku þá rikir hér enn nokkurt misrétti milli kvenna og karla á mörgum sviðum. Alþjóðlegt kvennaár Til þess að flýta fyrir jafnréttis- þróun, ákváðu Sameinuðu þjóð- irnar að árið 1975 yrði útnefnt alþjóðlegt kvennaár. A kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóöanna, sem haldin var i Mexico dagana 19. júni—2. júli s.l. var samþykkt framkvæmdaáætl- un til næstu 10 ára. 1 þessari framkvæmdaáætlun voru rikis- stjomir hvattar til að stuðla að jafnrétti kynjanna á öllum svið- um, m.a. með lagasetningu, sem kveði á um full jafnrétti i vinnu- málum, menntamálum o.fl. Búast má við, ef frumvarp þetta verður samþykkt, að það muni marka verulegt spor i þá átt að breyta rikjandi viðhorfum og flýta fyrir þvi að fullt jafnrétti kynjanna náist i reynd." AUGLÝSIÐ í TÍMANUM Fiskveiðiheimild til handa Norðmönnum innan islenzkrar fiskvciði- lögsögu var staðfest i gær af Einari Agústssy ni, utanrikisrðherra og Olav Lydvo, sendiherra Noregs. Myndin er tekin i gær er samkoinu- lagið var staðfest, t.f.v. Hans G. Afidersen, hafréttarfræðingur, Olav Lydvo, sendiherra og Einar Agústsson, utanrikisráðherra.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.