Tíminn - 14.05.1976, Qupperneq 3

Tíminn - 14.05.1976, Qupperneq 3
Föstudagur 14. mai 1976. TÍMINN 3 Hér sést hluti þeirra varðskipsmanna, sem héldu I gúmmlbáti yfir að brezka togaranum Primellu, albúnir til ferðarinnar. Timamynd: örn Rúnarsson. Gsal-Reykjavik. — Við héldum aö togarinn væri búinn að gefast upp. Skömmu eftir að viö settum út gúmmíbátinn drógu þeir upp fána I hálfa stöng og á hvolfi, — og við töldum það augljós merki uppgjafar, sagði Benóný Ás- grimsson, 2. stýrimaður á Ægi, er Timinn ræddi við hann um borð I varöskipinu I Reykjavikurhöfn I gær. Beitiskipið Blake er um 11 þús. tonn að stærð, 172 metr- ar að lengd og mesta breidd er 19.5 metrar. Það ristir 7 metra. A skipinu er þyrlu- skýli og þyrludekk. Um borð eru 4 Sea King þyrlur. Skipið er búið Seacat flugskeytum og fjölmörgum byssum af ýmsu tagi. Blake er knúiö fjórum túrbinu vélum og jafnmörgum skrúfum. Há- markshraði er 31.5 sjómilur. Eldsneytisgeymar taka 1850 tonn. 885 manna áhöfn er á skipinu, þar af 85 yfirmenn. Blake var sjósett 1945, en 1946 var smiðinni hætt og lá skipið óhreyft i átta ár, en tekið vartil viðsmiðina aftur 1955 og var Blake fullgert 1961. Kostnaður við smiðina nam tæpum 15 milljónum punda. A árunum 1965 til 1969 var Blake breytt þannig aö aðstaða er fyrir þyrlur um borð. Týr á annarri vél- inni fram á sumar sagði Pétur að þrjú skrúfublöð hefðu rifnað frá, og auk þess þyrfti aö senda skrúfuhausinn til athugunar erlendis. Pétur kvaðst ekki vera búinn að fá til- boð I smiði skrúfublaðanna og þvi gæti hann ekki sagt til um það. hvenær þau bærust til landsins, en sagði aö þó nokkur tlmi gæti liðiö þangað til. Bráðabirgðaviögerð á Tý er nú að ljúka, og kvaðst Pétur Sigurðsson gera ráð fyrir þvi, að Týr færi niður úr slipp i dag. Pétur sagði að Týr myndi sennilega halda til gæzlustarfa I næstu viku. Unnið að viðgerð á Tý I slippnum I Reykjavik. Timamynd: Gunnar Gsal-Reykjavik. AðsögnPéturs Sigurðssonar, forstjóra Land- helgisgæzlunnar er ljóst, að varðskipiö Týr verður að sigla á annarri aðalvélinni fram á sumariö, þar sem skrúfublöð hinnar vélarinnar verða ekki tilbúin fyrr en siöar i sumar. Skrúfubúnaður Týs skemmd- ist sem kunnugt er við hinar hrottafengnu árásir brezku freigátunnar Falmouth, og „VIÐ TÖLDUM ÞETTA AUG- UÓS MERKI UPPGJAFAR" Benóný sagði, að gúmmibát- urinn hefði veriö kominn miðja vegu milli togarans og varðskips- ins, er togarinn skyndilega setti á fulla ferð aftur. — Hvað voruð þið margir i gúmmibátnum? — Við vorum átta talsins, þrir stýrimenn, vélstjóri, og fjórir há- setar. Við stýrimennirnir vorum vopnaðir byssum, vélstjórinn og einn hásetanna voru með riffla, og hinir voru vopnaðir kylfum. Benóný sagði, að skipverjar á Ægi hefðu talið aö Nimrod- njósnaþoturnar væru óvopnaðar, alla vega hefðu þeir enga ástæðu til þess að halda að þær væru Varðskipsmenn á Ægi tóku upp á segulband hótun flug- stjórans á Nimrod-þotunni i fyrradag, en á henni kemur greinilega fram, að flug- stjórinn segist þurfa að skjóta, ef varðskipið hleypti öðru skoti af að togaranum. Benóný Asgrimsson, stýri- maður sést hér við segul- bandstækið. Timamynd: G.E. vopnum búnar. — Já, ég hefði alveg treyst Bretum til þess að framkvæma hótunina, það væri eftir öðru, sém þeir aðhafast hér á miðunum. Timinn innti Benóný eftir þvi, hvort hann hefði áður verið i þeim sporum, að fara yfir á togara og færa hann til hafnar. — Já, tvisvar sinnum hef ég lent I þvi. t fyrra þegar ég var stýrimaður á Albert tókum við brezka togarann Arlanda og fór- um með hann inn til ísafjarðar, en togarinn var með ölögleg veiðarfæri. Þegar ég var háseti á Albert, fyrir 8-9 árum, þá tókum við tvo togara I sömu ferðinni og færðum til hafnar. Baldur Halldórsson 1. stýri- maður á Ægi og Bogi Agn- arsson, 3. stýrimaður stjórn- uðu byssu varðskipsins, er það reyndi að taka Hull-tog- arann Primellu og færa til hafnar, en varðskipið kom að togaranum að ólöglegum veiðum á Vikurgrunni I fyrradag. Þá var i fyrsta sinn abreiður teknar af byssu varðskips i þessu þorskastriði, og skotið þrem- ur púðurskotum og einu föstu skoti fyrir framan stefni landhelgisbrjótsins. Mynd- ina tók örn Rúnarsson, einn varöskipsmanna, er Baldur og Bogi munduðu byssuna. Be íitiskip tilfa lúið til íslandsfei ðar OO-Reykjavik. — Mikið var skrif- að um landhelgismálið og siðustu atburði á islandsmiðum i brezk blöð i gærmorgun og var það rætt i brezka þinginu s.l. miðvikudag, og þar farið fram á, að tslending- ar yrðu beittir meiri hörku. Öll forsiða Oaily Mail var lögð undir landhelgismálið og þar var skýrt frá þvi, að flotinn væri reiðubúinn að senda beitiskip á islandsmið til að vernda togar- ana. Beitiskipið Blake liggur i Portsmouth og er tilbúið til að láta úr höfn fyrirvaralitið og sigla til islands. 1 umræðunum á brezka þinginu tóku margir til máls og Ian Gil- mor, sem er talsmaður stjórnar- andstöðunnar i varnarmálum, sagði m.a. að rikisstjórnin-sýndi litla röggsemi i framgöngu sinni i þorskastriðinu. Hann sagði að stefna Callaghans, þáverandi utanrikisráðherra hafi verið reikul og fálmandi þegar islend- ingar hótuðu að segja sig úr At- lantshafsbandalaginu og hafi styrkur flotans ekki verið nýttur sem skyldi og allthjakkaði i sama farinu. Væri timi til kominn, að rikisstjórnin tæki einhverjar af- gerandi ákvarðanir I málinu. Duffy aðstoðaðarvarnarmálaráð- herra tók upp hanzkann fyrir flot- ,ann og benti á að islenzka varð- skipinu hafi ekki tekizt að taka togarann Primella, vegna þess að Nimrod þota var á flugi yfir staðnum og hafi komið i veg fyrir að togarinn yrði tekinn. Þá afsak- aði hann einnig flotann með þvi að benda á að varðskipi hefði ekki tekizt að taka neinn togara frá upphafi átakanna og þrátt fyrir allt hafi herskipunum tekizt að vernda togarana við veiðar og forða þeim frá klippum varðskip- anna þótt aðgerðir þeirra hafi stundum heppnazt. Hann sagði, að Island væri mikilvægt I sam- starfi Natorikjanna, en haldið yrði áfram að vernda brezka tog- ara fyrir klippum varðskipanna, þótt flotinn neytti ekki allra sinna hernaðarlegu yfirburða. James Johnson þingmaður frá Hull átaldi flotann fyrir getuleysi og sagði hann hvergi nærri veita tog- urunum næga vernd. Patrick Walls þingmaður sagði að is- lenzku varðskipin væru byggð fyrir siglingar á heimskautahafi, en þaö væru freigáturnar ekki. Þær væru smiðaðar úr þunnu og veiku stáli og þyldu ekki árekstr- ana við varðskipin. Hann hélt þvi fram að 12 af 16 freigátum brezka flotans væru laskaðar eftir árekstra við varðskipin. A þingfundinum var þvi haldið fram, að Nimrod þoturnar væru óvonnaðar könnunarvélar. Helgi Agústsson I London, sagði að öll morgunblöðin i gær hafi greint Itarlega frá atburðunum er Nímrod þotan kóm i veg fyrir að Primella væri tekinn og frá umræðunum á þingi vegna þess máls. Væru blöðin yfirleitt sam- mála I fréttaflutningi sinum Skipverjar á Primeliu drógu upp fána í hólfa stöng og á hvolfi:

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.