Tíminn - 14.05.1976, Síða 6

Tíminn - 14.05.1976, Síða 6
6 TÍMINN Föstudagur 14. maí 1976. Menntamálaráðuneytið, 12. mai 1976. Lausar stöður Viö Æfinga-og tilraunaskóla Kennaraháskóla tslands eru lausar nokkrar stööur fastra æfingakennara og einnig stööur almennra kennara. Einkum vantar kennara f eftir- taldar greinar: íslensku og lesgreinar, dönsku.ensku, lif- fræöi og eölisfræöi og iþróttir. Aö ööru jöfnu ganga þeir umsækjendur fyrir sem veriö geta jöfnum höndum bekkjarkennarar eldri deilda á barnastigi og kennt einhverjar framantaldra greina til »5 loka grunnskólans. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rfkisins. Umsóknir um framangreindar stööur, meö upplýsingum um námsferil og störf, skulu hafa borist menntamála- ráöuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavlk, fyrir 10. júni n.k. — Umsóknareyöublöö fást I ráöuneytinu og hjá skóla- stjóra. Bílasalan Höfðatúni 10 SELUR ALLA BÍLA: Fólksbíla — Stationbíla Jeppa — Sendibila Vörubila — Vöruflutningabíla 14 ára reynsla i bilaviðskiptum. Opið alla virka daga kl. 9—7, laugardaga kl. 1—4. Bílasclan Höfðatúni 10 .r t Simar 1-88-70 & 1-88-81 M3 Rafsuðu TÆKI fe fyrir ^ SUÐUVÍR 2,5 og 3,25 mm handhæg nýkomin.— Innbyggt öryggi <>9 ódýr fyrir yiirhitun. þyngd 18 kg ARAAULA 7 - SIMI 84450 LocL JieeJ E E3 Stýrisendar í brezkar vöru- og fólksbifreiöar og dráttarvélar BLOSSB-------- Skiphoíti 35 • Simar. 8-13-50 verzlun 8 13-51 verkstæói 8-13-52 skrifstota Loddteed Hemlahlutir í flestar gerðir bifreiöa frá Japan og Evrópulöndum HLOSSI! Skipholti 35 • Simar: 8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrifstofa Húnavallaskóli viö Reykjabraut —af mörgum talin tilgeröarleg bygging. Póll Pétursson, alþingismaður: Enn um teiknistofu ríkisins Örstutt athugasemd við ógnarlanga blaðagrein ORMAR Þór Guömundsson arkitekt skrifar mjög langa grein i Tlmann 9. mai, þar sem hann rekur viöhorf sitt til tillögu þeirrar til þingsályktunar, sem við Gunnlaugur Finnsson flutt- um á Alþingi um hönnun bygg- inga á vegum rikisins. Ég hef lesiö grein þessa frá upphafi til enda og fann í henni margt vel sagt og skynsamlega, enda er Ormar Þór maður hófsamur. Þó hefur hann sýnilega misskiliö eitt og annað I tillögunni og um- ræðum um hana, og þess vegna er nauðsynlegt að árétta örfá atriði. Arkitektinn telur spjótum beint að sinni stétt einni, þar sem vitnað er til gjaldskrár Arkitektafélagsins, en ekki allra annarra þeirra, sem við hönnunina fást. Tillagan er samkvæmt heiti sínu um hönn- un bygginga á vegum rikisins, og vitaskuld starfa fleiri en arkitektar að þvi að hanna mannvirki, þó að þáttur arki- tekts sé að ýmsu leyti veiga- mestur, þar sem arkitektinn vinnur að mótun verksins á frumstigi. Arkitektinn staðhæfir að byggjandi ráði stærð hússins. Rétt er það að vissu marki. Ég þekki þó dæmi þess, að arkitekt hefur ekki viljað hlita stærðar- fyrirmælum ráðuneytis, jafnvel svo að munað hefur 800 rúm- metrum á litilli heilsugæzlustöð, og staðið i löngu þófi um þessa rúmmetra, jafnvel svo að fram- kvæmdir hafa tafizt bagalega vegna löngunar arkitekts til þess að hafa mannvirkið stórt. Hvergi höfum við flutnings- menn sagt, að á teiknistofu rikisins ættu eingöngu að vinna arkitektar, orðið hönnun teljum við merkja þá vinnu, sem unnin er af arkitektum, verkfræðing- um, tæknifræðingum og hvers konar teiknurum og fræöingum, sem Ormar Þór telur skilmerki lega upp, að muni skipta á milli sin milljónunum 29 vegna heilsugæzlustöðvarinnar á Sauðárkróki, en það var áætlað- ur hönnunarkostnaður á frum- áætlun, sem okkur þingmönnum barst við afgreiðslu fjárlaga. Vera má, að þetta fólk þurfi 200 þúsund á mánuði útselt og þurfi 16 manns til þess að vinna þetta verk á 9 mánuðum. Þá spyr ég svipað og gert var I reiknings- bókinni forðum, hvað þarf þá marga menn til þess að afkasta þvi verki, sem okkar stórvirk- asti iþróttamannvirkja-, heilsu- gæzlustöðva- og sjúkrahúsa- arkitekt, Jes Einar Þorsteins- Páll Pétursson son, hannar eða lætur vinna, og þá i framhaldi af þvi, hversu margar kýr þarf sá her að éta á einu máli? — Þvi hugurinn reik- ar til Heimskringlu. Arkitektinn Ormar Þór mis- skilur, hvaö ég á við með bygg- ingum, sem ég tel einstaka arki- tekta teikna sem minnismerki um sjálfa sig. Svo ég taki dæmi, sem við báðir þekkjum, þá tel ég viöbótina við barna- og miðskólann á Blönduósi vel heppnaöa og hagfellda bygg- ingu, teiknaða með nytsemis- sjónarmið fyrir augum á yfir- lætislausan og snotran hátt, en ekki fyrst og fremst til þess að vekja athygli á frumlegum per- sónuleika höfundar, eins og mér virðist höfundur Húnavalla- skóla hafa gert. Þessar bygg- ingar eiga fátt sameiginlegt. Arkitektinn talar um embætti húsameistara rikisins I fremur niðuriægjandi tón. — Einftver arkitekt réðst á þá stofnun I Þjóðviljanum i vetur, dróttaöi þvi að starfsmönnum embættis- ins, að þeir sinntu einkaverk- efnum sinum i vinnutima og ýmsu fleira. Ekki skal ég blanda mér I þá umræðu arki- tektanna — bendi þó á stórvirki, er sú stofnun lét frá sér fara undir stjórn Guðjóns Samúels- sonar. Arkitektinn Ormar Þór geng- ur út frá þvi, að arkitektar á hugsanlegri teiknistofu rikisins verði að vinna samkvæmt hin- um rosalega taxta Arkitektafé- lagsins, en til hans vitnaði ég bæði i þingræðu og i blaðagrein, og þetta er mergurinn málsins. Við flutningsmenn teljum, að arkitektar þeir og hönnuðir aðr- ir, er væntanlega störfuðu á teiknistofu rlkisins, ættu að vinna þar sem rlkisstarfsmenn og samkvæmt launakjörum þeirra, svo sem t.d. hönnuðir hjá húsnæðismálastofnun. Við erum þeirrar skoðunar, að rikisstarfsmenn geti hannað og unnið farsællega að þessum verkefnum og verðtryggður akkorðs- og uppmælingataxti sé ekki algjör forsenda þess að geta hugsað vituriegar hugsan- ir, reiknað samvizkusamlega eða fengið snjaliar hugmyndir. Ég er einnig ósammála Ormari Þór um það, að góður arkitektúr séeinungis vinna. Ég hef þekkt nokkra arkitekta sið- an þeir voru strákar, og um einn þeirra hef ég aldrei verið I vafa, að hann væri fæddur listamað- ur, enda hefur það sannazt rækilega I starfi hans. Ormar Þór viðurkennir margsinnis i greininni, að hönn- unarkostnaður sé allt að 7,5% af byggingarkostnaði og allar inn- borganir verðbættar að loknu verki. Þetta finnst mér mjög hátt hlutfall. Hins vegar varðar mig ekkert um það, hvernig arkitektar, verkfræðingar og tæknifræðingar skipta þessari bráð. Ég hygg einnig, að stund- um sjái þeiri veiðivon talsveröa, þvi bera vitni harðvítugar deil- ur um einstök verkefni milli hönnunarfyrirtæk ja. Freistandi væri að rekja fleiri atriði, úr grein Ormars Þórs, sérstaklega úr niðurlagi grein- arinnar, og svara þeim — árétta ýmsa þætti málsins og leitast við að varpa ljósi á fleiri atriði, sem gætu hugsanlega orðið til þess að gera byggingar ódýrari, án þess að það kæmi niður á traustleika, nytsemi eða fegurð þeirra, en það verður að biða betri tima, af þvi að ella yrði at- hugasemd min liklega löng og leiðinleg blaðagrein, sem fáir nenntu að lesa. Ég vil einungis að lokum' undirstrika það, að ég tel nauð- syn bera til þess að leita allra leiða til þess að gera þær opin- beru byggingar, sem við endi- lega þurfum að reisa, þannig úr garði, að þær verði okkur ekki fjárhagslega ofviða. önnur skipan hönnunarvinnu og annað greiðslufyrirkomulag vegna þeirra verkefna er einn þáttur þess máls. Þess vegna tel ég að hugmyndin um teiknistofu rikisins sé góð.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.