Tíminn - 14.05.1976, Side 11
Föstudagur 14. maí 1976.
TÍMINN
(Jtgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn-
arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri:
Steimgrimur Glslason. Ritstjórnarskrifstofur i Edduhús-
inu viö Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur I
AOalstræti 7, simi 26500 — afgreiöslusimi 12323 — aug-
lýsingasimi 19523. Verö I lausasöiu kr. 50.00. Askriftar-
gjaldkr. 1000.00 á mánuöi. Blaöaprent h.f.
Ekkisnögg
sveifla
1 hinni itarlegu yfirlitsræðu, sem ólafur Jó-
hannesson dómsmálaráðherra flutti á aðalfundi
miðstjórnar Framsóknarflokksins, vék hann að þvi
i lokin, að þrátt fyrir nokkra skerðingu á lifskjörun-
um frá þvi, sem þau voru bezt, byggju Islendingar
almennt við sæmileg kjör og ekki mikið lakari en
gengur og gerist i nágrannalöndunum. Það bæri
hins vegar að viðurkenna, að þetta hefði að nokkru
leyti byggzt á þvi, að þjóðin hefur eytt meira en hún
hefur aflað. Þess vegna þyrfti að draga úr eyðslu,
en það mætti ekki leiða til atvinnuleysis, þvi að þá
myndu kjörin fljótt versna. Ólafi Jóhannessyni fór-
ust siðan orð á þessa leið:
,,Þess vegna er það, að þó að eitthvað þurfi að
draga úr hraðanum, — þvi að það er nú einu sinni
staðreynd, að við höfum lifað um efni fram, — þá er
það æskilegt, að i þeim efnum verði ekki snögg
sveifla, að þar verði ekki neinar stökkbreytingar.
Umfram allt verður þvi að reyna að halda þannig á
málum, að atvinnuleysi eigi sér ekki stað. Vandan-
um þarf þvi fyrst og fremst að mæta með aukinni
framleiðslu á hvern mann, með meiri afköstum.
Með þeim hætti þurfum við að jafna á hallanum.
Þar er óneitanlega eitt erfiðasta viðfangsefnið hætt-
an á ofveiði fiskistofna. í þeim málum verður að
taka upp skynsamlega stjórnun, hvað sem það kost-
ar. úr sókn i tiltekna fiskistofna getur þurft að
draga i bili, en það þarf þá að reyna að bæta þar um
með tilraunum til veiða á öðrum fisktegundum og
leita að nýjum fiskimiðum. Það má ekki láta deig-
an siga, heldur bregðast skjótt við og án allra
tregðulögmála. Þar þarf að koma til samvinna milli
rikisvalds og atvinnuvega til eflingar aukinnar fjöl-
breytni i atvinnulifi, — ekki aðeins i sjávarútvegi
heldur einnig i iðnaði og landbúnaði. Það má ekki
láta bugast af barlómi og svartsýni, þó að skylt sé
að lita á málin af raunsæi. Það er svo sannarlega
heldur ekki neinn uppgjafarhugur i fólki. Hvarvetna
mætir maður framfarahug og framkvæmdavilja —
reyndar oft meiri heldur en getan leyfir. Það er þvi
viðtækt viðfangsefni að koma skipulagi á fram-
kvæmdir svo að við færumst ekki of mikið i fang i
einu.”
Hófleg bjartsýni
Ólafur Jóhannesson lauk ræðu sinni með þessum
orðum:
„Um sinn hefur sitthvað á móti blásið og sitthvað
hefur farið á annan veg, en maður hefði kosið, á það
skal ekki dregin dul. Við höfum á ýmsum sviðum átt
við erfiðleika að striða um sinn. Stjórnarsamstarfið
verður oft að leysa viðfangsefnin með málamiðlun,
og er það svo að hvorugur starfsaðilinn er fyllilega
ánægður með útkomuna, en hver er svo vitur, að
hann geti fullyrt að sin leið sé sú eina rétta.Aðalat-
riðið er, að samstaða sé um markmiðin. Það er
vissulega alltaf erfitt að spá um ókomna tið, en það
er trúa min, að mestu erfiðleikarnir séu nú að baki.
Ég fæ ekki betur séð en að á flestum sviðum þokist
frekar til réttrar áttar, þó að sumum finnist seint
sækjast. Ég held þvi, að þrátt fyrir allt getum við
litið fram á veginn með hóflegri bjartsýni.”
Þ.Þ.
II
18. maí getur orðið örlagaríkur dagur
MIKIL spenna hefur nú
skapazt i sambandi við próf-
kosningarnar i Bandarikjun-
um, en úrslit þeirra hafa hing-
að til farið á allt annan veg en
spáð var i upphafi af þeim,
sem gleggstir þóttu vera.
Upphaflegu spádómarnir voru
yfirleitt þeir, að Ford forseti
myndi sigra Reagan auðveld-
lega i prófkosningunum og
verða útnefndur nær einróma
á flokksþingi repúblikana sem
frambjóðandi þeirra, þar sem
Reagan hefði áður talið skyn-
samlegast að draga sig i hlé.
Hins vegar myndi enginn af
hinum mörgu forsetaefnum
demókr. sem kepptu i prófkj.
ná forustunni og mætti
þvi búast við miklum deilum
hjá þeim á flokksþinginu. Það
gæti jafnvel farið svo, að
greiða þyrfti 100 sinnum at-
kvæði um forsetaefni áður en
endanleg niðurstaða fengist,
en þannig varð það á flokks-
þingi þeirra fyrir 52 árum.
Sú útkoma, sem nú blasir
við, er næsta ólik þessum spá-
dómum. Ford forseti hefur
beðið hvern ósigurinn á fætur
öðrum fyrir Reagan i próf-
kjörunum, einkum i seinni tið.
Astæðan er sú, að Reagan hef-
ur tekizt að fylkja hægri armi
flokksins um sig, en hann hef-
ur löngum verið i meirihluta i
flokknum. Þessu til viðbótar
hafa svo ihaldssamir demó-
kratar, sem ætluöu að styðja
Wallace rikisstjóra i Alabama
til framboðs, snúizt á sveif
með Reagan, þar sem þeir
telja orðið vonlaust, að Wall-
ace verði i kjöri. Með þvi að
sameina þannig um sig ihalds-
sömustu öflin i báðum flokk-
unum, hefur Reagan tekizt að
sigra Ford i prófkjörunum.
Eins og nú standa sakir, hefur
Reagan fengið fleiri stuðn-
ingsmenn kjörna á flokksþing-
ið en Ford, en óháðir fulltrúar
ráða enn úrslitum og flestir
þeirra munu styðja Ford,
enda sýna skoðanakannanir,
að hann er miklu sigurvæn-
legri frambjóðandi en Reag-
an.
HJÁ demókrötum hefur
framvindan lika orðið allt
önnur en spáð var. Þar hefur
Jimmy Carter náð algerri for-
ustu og allir þeir keppinautar
hans, sem i fyrstu kepptu við
Brown og ieiðtogi demókrata I New Jersey en þar var Brown
nýiega.
SENNILEGA verður 18. mai
einn helzti úrslitadagurinn i
prófkjörunum. Þá fara fram
prófkjör bæði i Maryland og
Michigan. Tapi Carter fyrir
Brown i Maryland yrði það
nokkurt áfall fyrir hann. Það
yrði þó stórum alvarlegra fyr-
ir hann, ef hann tapaöi fyrir
Udall i Michigan, sem er
miklu stærra riki og þýðingar-
meira i þessu sambandi. Þá
myndi andstaðan gegn honum
stórlega magnazt. Ósigur i
Michigan yrði þó miklu alvar-
legri fyrir Ford, en Michigan
er heimariki hans. Þar er
hann i verulegri hættu, sökum
þess að fylgismenn Wallace
viröast hafa i hyggju að kjósa
Reagan. Tapi Ford i Michi-
gan, getur orðið tvisýnt, hvort
hann sigrar á flokksþinginu.
Eins og er, virðast það enn
almennustu spádómar i
Bandarikjunum, að Ford og
Carter verði keppinautarnir i
forsetakosningunum i nóvem-
ber. En reynslan hefur sýnt að
undanförnu, að varlega ber að
treysta spádómum i sambandi
við þessi mál. _þ þ
Church og Carter
hann, hafa dregið sig i hlé,
nema Udall, þingmaður frá
Arizona. Flokksforustunni og
mörgum þingmönnum demó-
krata hefur fallið þetta illa, en
þeir höfðu gert sér vonir um,
að enginn þeirra, sem kepptu i
prófkjörunum, myndi ná for-
ustunni og flokksþingið myndi
þvi snúa sér til Humphreys,
fyrrv. varaforseta, og biðja
hann að vera frambjóðanda
flokksins, en hann hefur ekki
viljað taka þátt i prófkjörun-
um og ekki sagzt vilja fara i
framboð, nema flokkurinn
biðji hann um það. A siðustu
stundu hafa þessir menn nú
sameinazt gegn Carter, þótt
hægt fari, og fylkt sér um tvo
menn, sem gáfu ekki kost á
sér fyrr en i nokkrum siðustu
prófkjörunum. Þetta er skýr-
ingin á þvi, að Frank Church
öldungadeildarþingmaður
vann nauman sigur yfir Cart-
er i Nebraska siðastl. þriðju-
dag, eða fékk 39% atkvæð-
anna, en Carter 38%. Þá er bú-
izt við, að Edmund Brown,
rikisstjóri i Kaliforniu, muni
sigra Carter i prófkjörinu i
Maryland næsta þriðjudag.
Sama dag keppir Carter við
Udall i Michigan. Bæði Brown
og Church eru snjallari en
fyrri keppinautar Carters, og
hann verður að keppa við þá
og Udall alla i senn og hefur
þvi óhægari aðstöðu.
Þótt svo fari, að Carter tapi i
Maryland og Michigan undir
þessum kringumstæðum, er
frekar óliklegt að komið verði
i veg fyrir sigur hans á flokks-
þinginu. Astæðan er sú, að
hann er nú sigurvænlegasta
forsetaefni demókrata. Hafni
flokksþingið honum, þykir
mjög liklegt, að margir óháðir
kjósendur, sem hafa stutt
hann, kjósi Ford i forseta-
kosningunum, ef hann verður i
kjöri. öðru máli gegndi, ef
Reagan yrði frambjóöandi
repúblikana.
ERLENT YFIRLIT
Church og Brown
gegn Carter