Tíminn - 14.05.1976, Síða 16
16
TÍMINN
Föstudagur 14. mal 1976.
Á FLÓTTA FRÁ ÁSTINNI
Eftir Rona Randall
hugsa sig um: — Hvers vegna spyrjið þér að því?
— Justin var að gefa í skyn, að Brent ætti eitthvert
ævintýri með aðstoðarlækninum yðar, Myru Hender-
son. Hann sagði meira aðsegja, að sér fyndist hún aðlað-
andi. Og um kvöldið töluðu þau mikið saman í búnings-
herbergjum mínum. Síðan hef ég ekki séð hann. Ég hélt
satt að segja, að hann kæmi og bæði um gott veður, það
hef ur hann alltaf gert áður, sagði hún að lokum og virtist
barnalega hissa.
Gegn vilja sínum varð Mark að brosa. — En hvers
vegna ekki að brjóta odd af oflæti sínu í þetta sinn? Ég
held, að það væri skynsamlegt af yður.
— Svo þér vitið þá eitthvað? Ég skil það. En þér reynið
að halda því leyndu fyrir mér. Hvað er það? Er hann
farinn að vera með þessari Henderson-stelpu?
Þrátt f yrir vonbrigði sín vegna Myru, líkaði Mark ekki
að Venetia talaði um hana sem „þessa Henderson-
stelpu". Það gladdi hann, að þjónninn valdi einmitt þetta
andartak til að koma með matseðilinn. Meðan þau borð-
uðu, gætti hann þess að tala um ósköp venjulega hluti.
Á leiðinni heim í bílnum, greip Venetia í handlegg hon-
um og lagði höfuðið á öxl hans.
— Ef þér vitið eitthvað, vildi ég óska, að þér segðuð
mér það, hvíslaði hún.
Hann vildi, hvað hún átti við, en hann horfði á götuna
fram undan bílnum. — Vina mín, ég veit ekkert. En ég
er viss um, að ef þér vil jið fá Brent aftur, þurf ið þér ekki
annað en veifa með litla f ingrinum. Hann var raunveru-
lega ástfanginn af yður, það var greinilegt fyrir öllum.
— Var já, viðurkenndi hún. — En hversu alvarlegt
getur það hafa verið, ef stúlka eins og Myra Henderson
getur svo auðveldlega tekið hann frá mér?
Öttinn um einmitt það skar hann í hjartað. Hvers
vegna ætti hann eiginlega að hafa áhyggjur af því?
hugsaði hann gramur. Hvers vegna gat hann ekki bara
gleymt henni núna, þegar hann hafði komizt að því
hvernig hún var, fölsk og gersneydd öllu stolti?
— Þér vitið ekkert, hvort hún hefur tekið hann frá
yður, svarði hann rólega.
Hún færði sig litið eitt f jær honum og horfði rannsak-
andi á hann. — Og það, kæri Mark, er það sama og að
viðurkenna, að það sé eitthvað á milli þeirra — og að þér
vitið það.
— Ég veitekkert, svaraði hann kuldalega. — Einkalíf
aðstoðarlækna minna kemur mér ekki við.
Hún yppti öxlum. — Nú verðið þér kaldur og f jarlægur
aftur. En mér geðjast vel að yður þannig.... það er svo
aðlaðandi. Já, mér geðjast verulega vel að yður, Mark!
— Það var ánægjulegt.
— Geðjast yður að mér?
— Auðvitað.
Kannski svolítið meira?
— Ég þekki yður tæpast.
Hún þrýsti handlegg hans örlítið. — Þér eruð snillingur
í að koma yður hjá að svara spurningum. Þér ætlið þó
ekki að segja mér, að þetta kvöld hafi ekki verið yður
jafn indælt og mér?
— Mér finnst það hafa verið reglulega notalegt.
— Viðurkennið það bara. Allt kvöldið hef ur verið vaf ið
töf ral jóma, ég vissi það um leið og ég sá yður sitja í stúk-
unni. Þér horfðuð í augun á mér, munið þér. Ekki aðeins
einu sinni og í hvert sinn var eins og rafstraumur færi
um mig. Það var f yrir þig, sem ég dansaði í kvöld, Mark.
Vissirðu það ekki? Bara fyrir þig.
Þau voru komin að hótelinu. Mark stöðvaði bílinn og
drap á vélinni áður en hann sneri sér að Venetiu. — Vina
mín, ég er sattað segja upp með mér, en orðstír þinn sem
dansmeyjar er svo mikill, að ég veit, að þér dansið alltaf
jafn dásamlega og í kvöld.
Einkennisklæddur dyravörður opnaði bíldyrnar og
rétti inn höndina til að hjálpa Venetiu út. Mark fékk þá
undarlegu tilfinningu, að maðurinn hefði komið á ná-
kvæmlega réttu andartaki, annars hefði ef till vill eitt-
hvað gerzt, sem hann hefði iðrazt síðar.
Þegar Venetia rétti fram höndina í kveðjuskyni,
þannig að hann var neyddur til að kyssa hana, nam bíll
staðar beint fyrir f raman þau. Brent steig út og hraðaði
sér að innganginum, þar sem hann hafði nær rekizt á
Venetiu. Þau stóðu og horfðu hvort á annað og Mark
sagði ákveðinn: — Nú hafið þér tækifærið, Venetia.
Notið það! Munið hvað ég sagði um fyrsta skref ið.
Og áður en hún fengi tækifæri til að svara, var hann
farinn.
21. kaf li
Þau voru samferða upp í lyftunni í óþægilegri þögn, en
Venetiu til undrunar fór Brent úr um leið og hún og gekk
með henni ef tir ganginum í átt að íbúð hennar.
— Ég þarf að tala við þig, sagði hann.
Hún var búin að stinga lyklinum f skrána, en áður en
^’Hér förum við
Viöerum herna
Djöfullkomdu!
takk fyrir feröina!
Þúmátt
lendá! 5
Föstudagur
14. mai
7.00 Morgunútvarp
Veöurfregnir kl. 7.00,8.15 og
10.10. Morgunleikfimi kl.
7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30
8.15 (og forustugr. dagbl.),
9.00 og 10.00. Morgunbænkl.
7.55. Morgunstund
barnanna kl. 8.45: Guörún
Birna Hannesdóttir heldur
áfram sögunni „Stóru
gæsinni og litlu hvltu
öndinni” eftir Meindert De
Jong (11). Tilkynningar kl.
9.30. Þingfréttir kl. 9.45.
Létt lög milli atriöa.
Spjailaö viö bændur kl.
10.05. Úr handraöanum kl.
10.25: Sverrir Kjartansson
sér um þáttinn. Morgun-
tónleikar kl. 11.00: Boyd
Neel strengjasveitin leikur
Sankti Páls svitu eftir
Gustav Holst /
Fllharmónlusveitin i Osló
leikur Sinfónlu nr. 2 op. 22
eftir Klaus Egge: öivin
Fjeldstad stj. /
Fllharmónlusveitin I New
York leikur „Pulcinellu”,
svitu eftir Igor Stravinský:
Leonard Bemstein stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veöurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Viö vinnuna. Tónleikar.
14.30 Miödegissagan: „Gestur
I blindgötu” eftir Jane
Blackmore Valdís Halldórs-
dóttir les þýöingu sína (5).
15.00 Miödegistónleikar
Vladimír Ashkenazy leikur
Pianósónötu I G-dúr op. 78
eftir Franz Schubert.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veöurfregnir).
16.20 Popphorn
17.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Guöni Kol-
beinsson flytur þáttin.
19.40 Þingsjá. Kári Jónasson
sér um þáttinn.
20.00 Tónleikar Sinfóniuhljóm-
sveitar islands i Háskóla-
blói kvöldiö áöur, hinir
siöustu á starfsarinu.
Hljómsveitarstjóri:
Karsten Andersen.
Einleikari: Rússneski
pianósnillin gurinn Emil
Gilelsa. „Friöur”, tónverk
fyrir strengi og slagveik
eftir Arne Nordheim. b.
Pianókonsert nr. 5 I Es-dúr
„Keisarakonsertinn” op. 73
eftir Ludwig van
Beethoven. c. Sinfónla nr. 2 I
D-dúr eftir Jean Sibelius. —
Jón Múli Amason kynnir
tónleikana —
21.45 „Ein kona I hús”, smá
saga eftir Pétur Hraunfjörö
Höfundur les.
22.00 Fréttir.
22.15 Veöurfregnir. Dvöi.
Þáttur um bókmenntir.
Umsjón: Gylfi Gröndal.
22.50 Afangar.Tónlistarþáttur
I umsjá Asmundar Jóns-
sonar og Guöna Rúnars
Agnarssonar.
23.40 Fréttir. Dagskrárlok.
14. mai
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Kastljós Umsjónar-
maöur Svala Thorlacius.
21.40 Kvonbænir (Palos
brudefærd) Grænlensk
kvikmynd frá árinu 1933,
tekin I Angmagssalik.
Myndina geröi Knud
Rassmussen. Meö þessari
leiknu heimildamynd hugö-
ist Rassmussen varðveita
fróöleik um þá siöi og lífs-
venjur, sem tlökuöust meö
eskimóum, áöur en þeir
kynntust menningu hvita
mannsins. Þýöandi Dóra
Hafsteinsdóttir.
22,55 Dagskrárlok