Tíminn - 14.05.1976, Page 19
Föstudagur 14. maí 1976.
TÍMINN
19
Nýliðar Þróttar ^
skotnir á bóla
Þeir máttu þola stórtap (1:4)
fyrir KR-ingum f fyrsta leik
Islandsmótsins í gærkvöldi
KRingar skutu nýliöa Þróttar á bólakaf, þegar þeir mættust I fyrsta leik íslandsmótsins
i knattspyrnu á nýja grasvellinum I gærkvöldi — fjórum sinnum mátti Jón Þorbjörns-
son, markvöröur Þróttar hiröa knöttinn úr netinu hjá sér, eftir skot frá KR-ingum. Ný-
liöar Þróttar náöu aöeins aö svara einu sinni, þegar hinn ungi og efnilegi Þorvaidur í.
Þorvaldsson skoraöi örugglega úr vitaspyrnu, fram hjá Magnúsi Guömundssyni,
inarkveröi Vesturbæjarliösins — þar meö opnaöi Þorvaldur markareikning Þróttar f 1.
deiltí. ogskoraöi fyrsta mark Þróttar i deiidinni 110ár.
Hinir ungu leikmenn Þróttar
byrjuðu leikinn af miklum krafti
og það munaði ekki miklu, að
þeim tækist að skora fyrsta mark
leiksins — Sverrir Brynjólfsson
komast einn inn fyrir KR-vörn-
ina, en skot hans sleikti þverslá
KR-marksins. KR-ingar svöruðu
þessu með góðri skyndisókn —
nýliðinn Arni Guðmundsson, sem
skoraði 4 mörk i Reykjavíkur-
mótinu, brauzt þá skemmtilega
upp vinstri kantinn og sendi
knöttinn fyrir mark Þróttar —
knötturinn skauzt fram hjá Jóni
Þorbjörnssyni, markverði Þrótt-
ar, til Björns Péturssonar, sem
skoraði auðveldlega.
Þróttarar gáfust ekki upp við
þetta mótlæti — þeir sóttu nokkuð
stift og áttu mörg góð skot að
marki. Ekki munaði miklu, að
Gunnar Ingvarssyni tækist að
skora á 37. minútu — hann skaut
góðu skoti af 25 m færi, sem
Magnús Guðmundsson bjargaði
meistaralega, með þvi að slá
knöttinn aftur fyrir endamörk.
KR-ingar gáfu eftir miðjuna á
þessum tima — og léku mjög
aftarlega. Englendingurinn Ron
Lewin, sem er staddur hér á
landi, til að leiöbeina KR-ingum,
var ekki of hrifinn af leikaðferð
KR-inga — hann sagði: — „Hver
hefur þjálfað KR-liðið að undan-
förnu? Þetta er ekki góð knatt-
spyrna hjá þeim!” (Já, svona
getur það verið Knapp!)
KR-ingar mættu ákveðnir til
leiks i siöari hálfleik — og skoraði
Jóhann Torfason þá (2:0) fyrir
KR-inga eftiraðeins 40 sekúndur,
eftir að Magnús markvörður,
hafði spyrnt knettinum fram.
Jóhann sendi knöttinn fram hjá
Jóni, markverði Þróttar. Stuttu
siðar var dæmd vitaspyrna á KR-
inga — þegar Börkur Ingvarsson
handlék knöttinn. Þorvaldur
skoraði örugglega úr vitaspyrn-
unni. Eftir þetta náðu KR-ingar
góðum tökum á leiknum og Ottó
Guðmundsson og Björn Péturs-
son innsigluðu stórsigur (4:1).
Halldór Björnsson átti góðan
leik hjá KR-liðinu — vann mikið
og var alltaf á ferðinni. Þá var
Ottó einnig drjúgur og sömuleiðis
Jóhann Torfason og Björn
Pétursson. — Ég er að verða
góður eftir meiðslin — þetta
kemur með hverri æfingu, sagði
Jóhann eftir leikinn, en hann
hefur verið frá vegna meiðsla i
tæpt ár. Þorvaldur t. Þorvaldsson
var skástur hjá Þrótti — en það
var greinilegt á leik hinna ungu
Þróttara, að þá vantar meiri
reynslu. Aðalsteinn Ornólfsson og
Sverrir Brynjólfsson áttu einnig
góða spretti.
Hinrik Lárusson dæmdi leikinn
vel — hann gaf þremur leikmönn-
um áminningu. KR-ingnumólafi
Ólafssyni og Þrótturunum
Guðmundi Gislasyni og Jóhanni
Hreiðarssyni.
— SOS
ARNI GUÐMUNDSSON.... sést hér brjótast fram
hjá Guömundi Glslasyni. Arni sendi siöan knött-
inn fyrir mark Þróttar, þar sem Björn Pétursson
var á réttum staö og skoraöi fyrsta mark islands-
mótsins.
(Timamynd Gunnar)
Björn skoraði fyrsta markið!
„Þægileg tilfinn
ing að sjá
knöttinn hafna
í netinu"...
■
sagði Björn Pétursson, sem var ekki búinn að skora mark í 3 ár
— Ég var á auöum sjó og markiö
stóö opiö. Knötturinn smaug á
milli markvaröar og varnar-
manns — svo aö ég þurfti ekki
annaö en aö spyrna i markiö,
sagöi Björn Pétursson, eöa
„Biöffi”, eins og hann er kailaö-
ur, eftir aö hann haföi skoraö
fyrsta mark Islandsmótsins.
Björn spyrnti knettinum örugg-
lega meö innanfótarskoti —
hann hafnaöi upp undir þaknetinu
á marki Þróttar. — Þaö var þægi-
leg tilfinning aö horfa á knöttinn
hafna i netamöskvunum — þaö er
svo langt siöan ég skoraöi, aö
maöur var farinn aö gleyma,
- ...í.
hvernig fara á aö þvi, sagöi
Björn.
Björn skoraði siöast mark i 1.
deildarkeppninni fyrir þremur
árum.eöa gegn Fram i ágúst 1973
á Laugardalsvellinum, en fyrsta
1. deildarmarkið skoraöi hann
áriðáöur — gegn Val. Björn sýndi
það i leiknum gegn Þrótti, aö
hann er að komast I mjög góða
æfingu — hann er útsjónarsamur
miðvallarspilari, sem hefur gott
auga fyrir samspili og getur þar
aö auki skotið — það sýndi hann
siðar i leiknum, þegar hann skor-
aði (4:1) aftur — með góðu lang-
skoti. Þá átti hann og hlut aö
þriðja marki KR-inga — skaut að
marki Þróttar en Ottó
Guömundsson náði þá að breyta
stefnu knattarins, þannig aö hann
sigldiörugglega fram hjá varnar-
mönnum Þróttar og i netið.
— SOS
Noro-
menn
velja...
NORÐMENN hafa valið
landslið sitt, sem mætir Is-
lendingum á Ullevaal-leikvell-
inum i Osló 19. mai, en það
verður skipað þessum leik-
mönnum: Jan Birkelund
(Skeid), Svein Gröndalen
(Rosenborg), Jan Hansen
(Rosenborg), Gabriel Höy-
iand (Bryne), Pal Jacobsen
(Hamarkam), Tom R. Jacob-
sen (Fram), Tor Egil Johan-
sen (Lilleström), Helga Karl-
sen (Brann), Svein Kvia
(Viking), fyrirliði, Tom Lund
(Lilleström), Jan Erik Olsen
(Mjöndalen), Ole Chr. Olsen
(Mjöndalen), Helge Skuseth
(Starth), Sigbjörn Slinning
(Viking), Stein Thurnberg
(Start) og Björn Tronstad
(Brann).
9 af þessum leikmönnum
léku með norska liöinu, sem
sigraði Islendinga (3:2) i
Bergen sl. sumar — þeir eru
skrifaöir með feitum stöfum.
—SOS
BJÖRN PÉTURSSON.....sést hér
skora fyrsta mark islandsmóts-
ins (Timamynd Gunnar)
LILJA
SIGFUS
Met við
Svartahaf
ÍR-ingarnir Lilja Guömunds-
dóttir og Sigfús Jónsson voru i
sviösijósinu i Sochji viö
Svartahaf á miövikudaginn —
þar settu þau bæöi glæsiiegt
islandsmet. Lilja hljóp 1500 m
á 4:31,6 minútum og Sigfús
hljóp 10.000 m á 30:10,0 minút-