Tíminn - 14.05.1976, Qupperneq 23
Föstudagur 14. mai 1976.
TÍMINN
23
Fundur undirbúningsstjóra
hverfasamtaka Framsóknar-
flokksins í Reykjavík
veröur haldinn mánudaginn 17. mal kl. 20:30 i Kaffiterlu Hótel
Hofs, Rauðarárstlg 18.
Akranes og nærsveitir
Framsóknarfélag Akraness heldur fund um stjórnmál I Fram-
sóknarhúsinu á Akranesi sunnudaginn 16. mai kl. 16.00. Fram-
sögumaður verður Ólafur Jóhannesson, dómsmálaráðherra og
formaöur Framsóknarflokksins.
Ollum heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Viðtalstími stjórnar
FUF í Reykjavík
Stjórn FUF I Reykjavik verður til viðtals þriðjudaginn 18. maí
kl. 17-19 að Rauðarárstig 18. Allir sem áhuga hafa á geta haft
samband við stjórnina og munu stjórnarmenn svara fyrirspurn-
um og taka við ábendingum ef fram koma.
Viðtalstímar
alþingismanna
°g
borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins
Hún var að vinna I gróðrastöð SkógræktarfélagsReykjavIkur I Fossvogi, þegar blaðamaður og ljós-
myndari Timans voru þar á ferð. Þaö er vel viðeigandi að starfa að skógrækt á þessu skeiöi ævinnar,
þegar sálin er full af vordraumum og vaxtarþrá. Timamynd Gunnar.
Kristján Benediktsson borgarfulltrúi veröur til viötals á skrif-
stofu Framsóknarflokksins, Rauðarárstlg 18, 15. maí frá kl 10-
12.
Danskurgestaleikur fró Folketeatret í
Kaupmannahöfn:
STÍGVEL OG SKÓR
Skógræktarfélag Reykja-
víkur veitir ókeypis
kennslu í garðrækt
Leikbrot um landflótta og andspyrnu
eftir Erik Knudsen
VS-Reykjavik — A MORGUN,
laugardaginn 15. mai, klúkkan
Um helgina verða i bjóöleik-
húsinu þrjár sýningar á dönskum
gestaleik frá Folketeatret i
Kaupmannahöfn. Sýningin
nefnist STIGVÉL OG SKÓR og er
tekin saman af danska rithöfund-
inum Erik Knudsen, en uppi-
staðan I sýningunni eru gaman-
þættir, grinvisur og ádeilusöngv-
ar eftir þíka höfunda, sem urðu
fyrir baröinu á nasismanum á
striðsárunum og komu margir
sem flóttamenn til Danmerkur.
Meðal textahöfunda, auk Knud-
sens sjálfs, eru Kurt Tucholsky,
Erich Kastner, Karl Valentin og
Bertolt Brecht. Mikiö er af söngv-
um I sýningunni og eru þeir eftir
Kurt Weill og Hanns Eisler, auk
danska tónskáldsins Bent Axen.
Leiks tjóri sýningarinnar er
Preben Harris, leikhússtjóri
Folketeatrets, en hann er einn
kunnasti leikhúsmaður Dana.
Fjórir vel kunnir leikarar koma
fram I sýningunni, þau Anne-Lisa
Gabold, Gyrd Löfquist, John
Hahn Petersen og Finn Nielsen.
Undirleik annast Frans H.
Rassmussen, og leikmynd er eftir
John Lindskov.
Sýning Folketeatrets á Stigvél
og skór hefur notiö mikilla vinn-
sælda i Danm. Hún var frum-
sýnd i fyrra, en vegna mikillar
aösóknar var verkið tekið upp
aftur i vetur og hefur hlotið mjög
góða dóma. Sýningar Dananna
verða á Litla sviöinu i Þjóöleik-
húskjallaranum. Gestir sitja við
borö, og eru veitingar framreidd-
ar fyrir sýningu og I hléi. Frum-
sýningin er á laugardagskvöld
önnur sýning á sunnudagskvöld
og slöasta sýning á mánudags-
kvöld. (Fréttatilkynning)
HIPP0DR0MEN
FOLKETEATRETS INTIMSCENE
ERIK KNUDSEN
TovLei
OG
SKO
SÆSON 1974-75
EN MOSAIK OM FLUGT OG MODSTAND
MED TEKSTER AF KURT TUCHOLSKY - ERIK KÁSTNER
KARL VALENTIN - BERTOLT BRECHT OG MED MUSIK
AF HANNS EISLER - KURT WEILL - BENT AXEN.
hálfþrjú, fer fram sýnikennsla á
vegum Skógræktarfél. Reykja-
vikur I Fossvogi. Þar verður sýnd
sáning, græðlingaklipping, gróð-
ursetning, klipping og snyrting
trjáa o.fl. o.fl. Enn fremur verður
þar svarað fyrirspurnum. Jafn-
framt kennslunni verður plöntu-
sala I gróðrarstöð Skógræktarfé-
lagsins aö Fossvogsbletti 1, þar
sem kennslan fer fram. Taka má
fram, aö sýnikennslan og upplýs-
ingastarfsemin, sem henni er
tengd, er dkeypis og öllum heimil.
A blaöamannaiundi núna I vik-
unni lét Guðmundur Marteinsson
þess getiö, að hugmyndin um
sýnikennslu ætti ef til vúl eitthvað
skylt við þaö, þegar tviburum
dettur hið sama i hug, hvorum i
sinu lagi.Þannig ernefnilega mál
með vexti, að nú I vor éfndi Skóg-
ræktarfélag Hafnarfjaröar til
sýnikennslu I fyrsta skipti.en
þessi félög eru mjög jafnaldra,
veröa bæöi þrltug á hausti kom-
anda. Stofndagur Skógræktarfé-
lags Reykjavikur er 24. október
1946, en Skógræktarfélag Hafnar-
fjarðar var stofnað daginn eftir.
Þá kom það einnig fram á þess-
um blaöamannafundi, að þær teg-
undir sem mest eru seldar, eru
birki, sitkagreni, stafafura, berg-
fura, brekkuvíðir, viöja, (sem er
ágæt i skjólbelti), reyniviður og
Alaskaösp. En af runnum eru vin-
sælastir birkikvistur og glans-
mispill, sem reyndar gengur und-
ir ýmsum nöfnum.
Miövikudaginn 5. mal s.l. var
haldinnaðalfundur Skógræktarfé-
lags Reykjavíkur, i Tjarnarbúð.
I upphafi fundar minntist for-
maður félagsins látins félaga,
Hermanns Jónassonar, fyrrver-
andi forsætisráöherra, en hann
var eins og flestir vita mikill
skógræktarmaður, og góöur ná-
granni Skógræktarfélags Reykja-
vikur, þar sem hann vann að
skógrækt i landi sinu i Fossvogi.
Um starfsemina á liðnu ári er
það meðal annars að segja, aö af-
hentar voru 185.667 skógarplöntur
og níutlu þúsund garöplöntur Ur
skógræktarstöðinni i Fossvogi.
A undanförnum árum hefur
uppeldi trjáplantna verið talsvert
fært inn i gróðurhús og jafnframt
hefur aukizt ræktun plantna i
pottum.
í Heiðmörk var mikiö unnið á
liðnuári, gróðursettar voru 83.600
plöntur og mikið borið á af á-
buröi. Þess má geta i leiðinni, að
frá upphafi hafa veriö gróöursett-
ar I Heiðmörk á milli þrjár og
fjórar milljónir plantna. — Þá
voru og á siðasta ári gerðir
göngustigar og vegakerfi I Heiö-
mörk endurbætt. A slðasta ári
varð Heiðmörk 25 ára, og af þvi
tilefni var gefinn út vandaöur
bæklingur um Heiömörk, og lit-
prentað kort. En Heiðmörk er
2500 hektarar að stærö.
1 öskjuhlið hefur félagið einnig
séð um gróðursetningu fyrir Hita-
veitu Reykjavikur. Síöastliðiö ár
var plantað þar um tuttugu þús-
und trjáplöntum. I Rauðavatns-
stöð var plantað og gerðir þar
göngustlgar.
I stjórn Skógræktarfélags
Reykjavikur eru nú Guðmundur
Marteinsson rafm.verkfr. for-
maöur, Lárus Blöndal Guð-
mundsson bóksali varaformaöur,
Björn Ófeigsson heildsali gjald-
keri, Jón Birgir Jónssön verkfr.
ritari og Sveinbjörn Jónsson
hrlm. meðstjórnandi. Fram-
kvæmdastjóri er Vilhjálmur Sig-
tryggsson.
—VS