Tíminn - 01.06.1976, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Þriöjudagur 1. júnl 1976.
Á FLÓTTA FRÁ ÁSTINNI
Eftir Rona Randall 65
eitthvað komið fyrir, sagði hún. — Þér er eins gott
aðsegja mér það Mark, því ég fæ hvort eð er að vita það
hjá einhverjum öðrum.
— Já, ég býst við því. Það komast allir að því fyrr eða
síðar, ef þeir vita það ekki þegar.
— Allir nema ég! Og ég vil fá að vita það núna!
Hann dró djúpt andann. — Jæja..... Myra fer frá St.
Georges um mánaðampótin.
Estelle sat hreyfingarlaus. Aldrei hefði henni getað
dottið þetta í hug! — Sagði hún upp? spurði hún loks
skilningssljó. — En hvers vegna, Mark? Gazt þú ekki
komið i veg fyrir það með því að neita að taka uppsögn-
ina til greina eða eitthvað slíkt?
Hann leit beint framan í hana. — Hún sagði ekki upp,
Estelle. — Ég rak hana!
— Þú... hvað?!!
Mark stóð upp. Stóllinn urgaði við gólf ið. — Ég sagði,
að ég hefði rekið hana, endurtók hann kuldalega. — Ég
ætla að minna þig á, að ég hef fullan rétt til að reka
hvern sem er, ef mig skyldi langa til þess.
Frænka hans horfði döpur á hann. — Ég sem hélt, að
það væri óhætt að veita þér þann rétt! Ég hélt, að þú
værir maður, sem alltaf athugaðir allt málefnalega og
værir réttlátur!
Þegar hann svaraði ekki, spurði hún hvasst: — Hvers
vegna rakstu hana, ef ég má spyrja? Hver var ástæðan,
sem þú gafst henni?
— Að ég gæti ekki starfað með neinum, sem ég gæti
ekki treyst fyllilega.
Estelle saup hveljur. — Ætlarðu að segja mér, að þú
treystir ekki Myru Henderson? Ég hef heyrt þig sjálfan
segja, að hún sé duglegur og skyldurækinn læknir.
— Ég meinti sem manneskju, ekki sem lækni.
— Ég á við hvoru tveggja! Ég treysti henni sem
manneskju, alveg eins og ég treysti henni sem lækni!
Hvers vegna treystirðu henni ekki? spurði Estelle ásak-
andi.
— Ég hef ekki hugsað mér að ræða það, svaraði hann
kuldalega í þrjóskutón.
— En ég hef hugsað mér það! Og það sem meira er, ég
skipa þér að gera það! Ég er í stjórn sjúkrahússins og
hef allan rétt til að fá að vita ástæðuna fyrir þvi, að þú
rekur fyrirvaralaust einhvern frá sjúkrahúsinu.
— Ég skal leggja ástæðuna fyrir mánaðarlegan
stjórnarf und.
— Þú segir mér hana núna! skipaði frænka hans. —
Stundum ertu svo heimskur og þrjózkur og ferð svo í
taugarnar á mér, að ég vildi, að þú værir aftur orðinn
smástrákur. Mig langar til að flengja þig.
Gegn vilja sínum varð hann að brosa og reiðin hvarf.
— Allt í lagi, þú vinnur einsog venjulega. Þaðer eins gott
að þú vitir það strax. Éq treysti ekki Myru Henderson
lengur vegna þess, að þao lítur út fyrir að hún sé í ástar-
sambandi við Brent Taylor.
— Ég trúi þessu ekki!
— Það gerði ég ekki heldur, ef ég hefði ekki séð þau
saman.
— Og þú ert í „ástarsambandi" við Venetiu af því þið
haf ið sézt saman á Maxim, ekki satt? Aha — þetta hitti í
mark! Ég vona sannarlega að Myra hafi orðið bálreið
við þig. Ég get ekki ímyndað mér, að hún hafi látið
undan ranglátri reiði þinni eins og ekkert væri! Hún
hef ur skap og hugrekki, guði sé lof fyrir það!
— Hún neitaði engu, sagði hann rólega.
— Nei, auðvitað ekki! Ég býst við að hún hafi meira
stolt en það! Þú hefur þó ekki ætlazt til að hún svaraði
svona hlægilegum ásökunum? Hvers vegna skyldu þau
Brent ekki hittast, fyrst þau eru gamlir vinir?
Mark þagði. Hann gat ekki sagt f rænku sinni, að Myra
og Brent hefðu verið meira en vinir. Og Estelle hélt
áfram í hæðnistón: — Segðu mér Mark, ætlar þú að
leggja þessa kjánalegu ástæðu fyrir stjórnarfundinn?
— Auðvitað ekki! Ég ætlaði bara aðs segja að hún væri
of ung og óreynd til að gegna stöðu við St. Georges. Hann
sneri sér undan og skyndilega kom meðaumkun í augu
Estelle.
— Ég held, að ég geti sagt þér, hvers vegna þú gerðir
þetta, sagði hún. — Ekki vegna þess að þú treystir henni
ekki, heldur vegna þess að þú elskar hana og ert dauð-
hræddur við tilfinningar þínar!
— Það er ekki satt!
— Ekki það? Estelle hristi höfuðið. — Vertu nú hrein-
skilinn við sjálfan þig, Mark. Horfstu í augu við sann-
leikann. Þú trúðir því versta, af því þú varst afbrýði-
samur. Þú varst hræddur um að hún elskaði Brent, þess
vegna vildirðu losna við hana. Þú ert ekki sá fyrsti, sem
ÞRIÐJUDAGUR
1.júni
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Sigrún Sigurðardóttir
lýkur lestri sögunnar ,,Þeg-
ar Friðbjörn Brandsson
minkaði” eftir Inger Sand-
berg (12). Tilkynningar kl.
9.30. Létt lög milli atriða.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Sinfóniuhljomsveitin i Bam-
berg leikur Atta rússnesk
þjóðlög op. 58 og Baba-
Yaga, hljómsveitarverk op.
56 eftir Anatol Ljadoff,
Jonel Perlea stjórn-
ar/Danill Sharfran og
Sinfóniuhljómsveit rúss-
neska útvarpsins leika
Sellókonsert i g-moll op. 49
eftir Dmitri Kabelevsky,
höfundurinn stjórn-
ar/Filharmoniusveitin I
Osló leikur Concerto Grosso
Norvegese op. 18 eftir Olaf
Kjelland, höfundurinn
stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Mynd-
in af Dorian Gray” eftir
Oscar Wilde Sigurður
Einarsson þýddi. Valdimar
Lárusson les (5).
15.00 Miðdegistónleikar Cliff-
ord Curzon og félagar úr
Vinaroktettinum leika
Kvintett í A-dúr fyrir píanó
og strengi „Silungakvintett-
inn” op. 14 eftir Schubert.
Heinz Holliger og Nýja
filharmoniusveitin leika
óbókonsert i C-dúr (K314)
eftir Mozart, Edo de Waart
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
17.30 „Ævintýri Sajós og litlu
bjóranna” eftir Grey Owl.
Sigriður Thorlacius les þýð-
ingu sina (2).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Nokkur orö frá Nairobi
Séra Bernharöur Guðmund-
■ son flytur annað erindi sitt
frá þingi alkirkjuráðsins.
20.00 Lög unga fólksins Ragn-
heiður Drifa Steinþórsdóttir
kynnir.
21.00 „Volaðs vera”, smásaga
eftir Elias Mar Hjalti
Rögnvaldsson leikari les.
21.30 „Svipmyndir” fyrir
pianó eftir Pál isólfsson
Jórunn Viðar leikur.
20.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Sá svarti senuþjófur”
ævisaga Haralds Björns-
sonar. Höfundurinn, Njörð-
ur P. Njarðvik, les (26).
22.40 Harmonikulög Andrew
Walter leikur.
23.00 A hljóöbergi Astarbréf
milli Heloise og Aberlard
Claire Bloom og Claude
Rains flytja.
23.40 Fréttir. Dagskrárlok.
Þriðjudagur
1. júní
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 McCloud Bandariskur
sakamálamyndaflokkur.
Hitabyigja Þýðandi Krist-
mann Eiðsson.
22.10 Hverjir stjórna? Um-
ræðuþáttur i sjónvarpssal
um áhrif ýmissa • valda-
stofnana og samtaka i is-
lensku þjóðfélagi. Meðal
þátttakenda eruþingmenn
og forystumenn hagsmuna-
samtaka embættiskerfis og
fjölmiðla. Bein útsending.
Umræðum stjórnar Ólafur
Ragnar Grimsson.
Dagskrárlok óákveöin.